Morgunblaðið - 17.09.1985, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
FiMppseyjar:
18 manns létust er sprengja
sprakk í þéttsetnum bíósal
__ Pagadian og Manila, Filippseyjum, 16. september. AP.
ÁTJÁN manns létu ÍiTið og 91 særðist, þegar handsprengju var varpað ofan
af svölum niður í þéttsetinn áhorfendasal kvikmyndahúss í bænum Lala á
Mindanao-eyju á Filippseyjum í gærkvöldi. Aðrar fregnir herma, að allt að 35
manns hafi farist í sprengingunni.
Macedonio Ceniza, lögreglu-
stjóri Lala, lítils bæjar um 800 km
fyrir sunnan Manila, sagði í út-
varpsviðtali, að fimm manns
hefðu látist samstundis eftir
sprenginguna, en þrettán á
sjúkrahúsi skömmu síðar.
Ríkisfréttastofan í Manila kvað
30 hafa farist i sprengingunni, en
tilgreindi ekki heimildarmenn.
Útvarpsstöð hermdi, að 25 hefðu
dáið strax á sunnudagskvöld, en
tíu látist síðar af sárum sínum.
Margir hinna látnu og særðu
voru troðnir undir í tryllingnum
sem greip bíógesti, þegar flísar úr
sprengjunni dreifðust um salinn.
Tvisvar áður hafa sprengjur
sprungið í kvikmyndahúsum í hér-
aðinu og hefur skæruliðum komm-
únista verið kennt um í bæði
skiptin.
Skæruliðarnir vísa þeim ásök-
unum á bug og kveðast ekki grípa
til neinna þeirra ráða, sem verði
saklausum borgurum að fjörtjóni.
Ráðgjafi Ferdinands E. Marcos-
ar forseta hefur lagt til, að vopna-
hlé verði komið á á milli stjórnar-
innar og skæruliða kommúnista í
því skyni að koma í veg fyrir, að
borgarastyrjöld skelli á í landinu.
í framhaldi af því verði efnt til
friðarviðræðna milli þessara aðila
með milligöngu hlutlauss aðila,
t.d. Rauða kross Filippseyja.
Karpov sigraði á ný
Skák
Karl Þorsteins
Með öðrum sínum sigri í röð,
nú síðast í 5. einvígisskákinni á
laugardag, hefur heimsmeistar-
inn Anatoíy Karpov tekið foryst-
una í einvígi sínu gegn áskorand-
anum, Garri Kasparov. Hann
hefur nú hlotið þrjá vinninga
gegn tveimur vinningum áskor-
andans. Góð forysta og ekki síð-
ari fyrir þá sakir að heimsmeist-
aranum nægir að halda jöfnu I
24 skáka einvígi þeirra, 12—12,
til að halda krúnunni.
Margir áttu von á frestun frá
áskorandanum eftir slæman
ósigur á föstudag, en Kasparov
var ekki á þeim buxunum og hóf
taflið með kóngspeðs leik. Upp
kom afbrigði af spænskum leik
og tefldu meistararnir byrjunar-
leikina hratt. Kannski engin
furða, því fyrstu 14 leikirnir
sáust einnig í 46. skák þeirra
kappa úr fyrra einvíginu fyrir
ári sem stöðvað var eins og frægt
er af endemum. Karpov lumaði
á endurbót í fimmtánda leik er
hann sótti að hvítreita biskup
hvíts með riddara í stað þess að
hörfa, eins og áður hefur sést.
Kasparov svaraði þessu með sókn
á miðborðið, en menn heims-
meistarans stóðu traustir fyrir.
Staðan varð mjög viðkvæm og
uppskipti Kasparovs í 19. og 20.
leik voru gagnrýnd af viðstödd-
um stórmeisturum. Karpov náði
þá yfirhöndinni, þáði peð sem að
honum var rétt og gekk öruggur
um sviðið meðan Kasparov sat
þungur á brún við borðið. Er
skákin fór í bið hafði Karpov
tekist að einfalda taflið með peði
yfir og tæknilega unna stöðu eins
og það var orðað. Það kom einnig
á daginn að Kasparov taldi frek-
ari mótspyrnu vonlausa og gaf
biðskákina án frekari tafl-
mennsku.
Karpov hefur nú teflt síðustu
tvær skákir af stakri snilld eftir
litlausa byrjun 1 einvíginu og
stefnir nú hraðbyri í sigur í ein-
víginu. Kasparov veldur á hinn
bóginn vonbrigðum. Hann hefur
ekki lært nægilega af sínu fyrra
einvígi gegn heimsmeistaranum.
Hann getur ekki setið á höndum
sér og leggur of oft allt spil á
eina hönd. Það er nokkuð sem
enginn getur leyft sér gegn
Karpov, enda er hann snillingur
að kveða slíkt mótspil í kútinn.
Því er ljóst að Kasparov verður
að gera stórar breytingar á tafl-
mennsku sinni ef hann ætlar að
hrifsa heimsmeistaratitilinn úr
höndum Karpovs.
Hvítt: Anatoly Karpov.
Svart: Garri Kasparov.
Spænskur leikur.
1. e4—e5,2. Rf3-Rc6,3. Bb5—«6,
4. Ba4—Rf6, 5. 0—0—Be7, 6.
Hel—b5, 7. Bb3—d6, 8. c3—0—0,
9. h3—Bb7,10. d4—He8,11. Rbd2
(Karpov hefði örugglega kosið
að leika 11. Rg5 og fyrst eftir 11.
Hf8, 12. Rf3—He8 leikið 13.
Rbd2.) 11.—Bf8, 12. a4—Dd7, 13.
axb5—axb5, 14. Hxa8—Bxa8, 15.
d5—Ra5 (Endurbót Karpovs.
Áður hafði hann leikið 15.—Rd8
og fengið slæma stöðu.) 16.
Ba2 c6, 17. b4—Rb7, 18. c4—
Hc8, 19. dxc6?! (Þessi uppskipti
voru gagnrýnd af stórmeisturum
f Moskvu og vafalaust réttilega.
19. Rh2 er hugsanleg endurbót,
en staða svarts er traust.) 19.—
Dxc6,20. c5?
(Kasparov er ekki að tefla við
byrjenda, eða skyldi hann telja
það? Annars hefði hann vafa-
laust drepið á b5 með jafnri
stöðu. Nú verða peð hvíts veik.)
20.—Rd8!, 21. Bd2—dxc5!, 22.
bxc5 (Ekki 22. Rxe5-Ða6!) 22.—
Dxc5, 23. Bxe5—Rd7, 24. Bb2 (24.
Bal var betra.) 24.—Db4!, 25.
Rb3? (í Moskvu voru menn
sammála að staða svarts væri
nú ákjósanlegri. Síðasti leikur
áskorandans var líka grófur af-
leikur. Skárra var 25. Dbl.) 25.—
Rc5!, 26. Bal (Kasparov gefur nú
peð enda átti hann fárra kosta
völ. T.d. gekk ekki 26. Rxc5—
Dxb2.) 26.—Bxe4, 27. Rfd4—
Rdb7, 28. De2—Rd6, 29. Rxc5-
Dxc5, 30. Dg4—He8, 31. Hdl-
Bg6, 32. Df4—Db4! (Þó svartur
sé peði yfir er hvítur ekki án
gagnfæra. Karpov telfir fram-
haldið af öryggi.) 33. Dcl—Be4,
34. Hel—Da5, 35. Bb3-Da8, 36.
Db2 (Flestir hefðu valdað peðið
án umhugsunar en Kasparov er
það ekki að skapi. Drápuð á g2
er líka hættulegt. T.d. 36,—Bxg2,
37. Hxe8—Rxe8, 38. Rf5! með
hinni banvænu hótun 39. Rh6+)
36.—b4, 37. He3—Bg6 (Hróka-
uppskiptin eru auðvitað svörtum
að skapi. Nú er staða hvíts von-
laus.) 38. Hxe8— Dxe8, 39. Dcl—
Re4,40. Bd5—Rc5,41. Rb3
Skákin fór hér í bið og biðleikur
Karpovs var 41.—Rd3. Ekki var
skákin tefld lengra því Kasparov
tilkynnti símleiðis uppgjöf sína.
Japanskur dansari
nrapar til bana
Myndin er tekin rétt áður en japanski dansarinn Yoshiuki Takada.
sem hangir í kaðlinum, hrapaði til bana niður sex hæða byggingu í
borginni Seattle í Bandaríkjunum á þriðjudag. Hann féll niður á gang-
stétt fyrir framan hundruðir manna sem fylgdust með sýningu japanska
dansflokksins Sankai Juku, sem heldur sýningar á kaðaldansi í mikilli
hæð.
Japan:
Þrír látnir af
drykkiareitrun
Tókýó, 16. sepL AP.
ÞRÍR Japanar hafa látist af neyslu
eitraðra drykkja úr sjálfsölum á
þessu sumri, að því er þarlend yfir-
völd greindu frá 1 dag.
Talsmaður lögreglunnar í Osaka
sagði að Haruo Otsu, bókhaldari,
hefði kvartað undan öndunarörð-
ugleikum eftir að hafa drukkið af
heilsudrykknum Oronamin-C.
Hann var fluttur á spítala og lést
þar af hjartaslagi aðfaranótt
sunnudags.
Læknasérfræðingar lögreglunn-
ar í Osaka fundu leifar af illgres-
iseyðinum paraquat í lögginni sem
eftir var í flöskunni sem Otsu
hafði drukkið af.
Þá lést stúdent f borginni Mats-
uzaka, 300 km. sunnan af Tókýó,
eftir að hafa neytt gosdrykkjarins
Real Gold frá Coca-Cola-verk-
smiðjunum í Japan.
Stúdentinn sagði lögreglu að
hann hefði keypt drykkinn í
sjálfsala síðastliðinn miðvikudag
og er nú verið að rannsaka inni-
hald drykkjarins.
48 ára gamall maður lést eftir
að hafa drukkið Real Gold i júlí og
fannst þá paraquat í flöskunni
sem maðurinn drakk af.
Fimm rúmsentimetra skammt-
ur af paraquat er banvænn.
Miklar verðhækk-
anir í Búlgaríu
Vín, 16. september. AP. 0
I DAG tilkynntu búlgörsk stjórnvöld
um miklar hækkanir vöruverós bæói
í heildsölu og smásölu, þar á meóal
58% hækkun á rafmagni til iðnaðar.
Verð á drykkjarvatni til annarra en
almennings hækkar um 360%.
Búlgarska ríkisfréttastofan
BTA kvað stjórnina hafa gripið til
þessara ráðstafana í því skyni að
„vega á móti þeim áföllum sem
þjóðarbúið varð fyrir á árunum
1984 og ’85“, og var þar átt við
hina þrálátu þurrka, sem herjuðu
á Balkanþjóðirnar á þessu tíma-
bili.
Opinberlega var frá því skýrt i
Búlgarfu, að hækkanirnar hefðu
verið ákveðnar með það í huga að
„stuðla að auknum sparnaði i raf-
orku- og vatnsnotkun og draga úr
neyslu ákveðinna vörutegunda".
Simagjöld fyrirtækja og stofn-
ana voru tvöfölduð, en hækkuðu
um50% hjáalmenningi.
BTA sagði, að stjórnvöld hefðu
sett skorður við innflutningi er-
lendra vina og „hækkað verð þeirra
verulega".
Þá sagði fréttastofan, að mat-
vörur hefðu hækkað i verði, en tók
ekki fram hve mikið. Það fylgdi
sögunni, að verð á algengustu
nauðsynjavörum, svo sem fatnaði,
húsgögnum, kolum og eldiviði
hefði ekki hækkað.
WV'f DfíNÍSKÓUW
innritun stendur yfir í síma: Reykjavík 38830
Hafiiarfjörður 52996.
Kl. 10-12 og 14-19