Morgunblaðið - 17.09.1985, Side 31

Morgunblaðið - 17.09.1985, Side 31
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985 MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985 31 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fróttastjórar Auglýsingastjóri hf! Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 400 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 35 kr. eintakiö. Norræn ljóðlistarhátíð Isamtali sem Morgunblaðið átti við Marshall Brement, fyrrum sendiherra Bandaríkj- anna hér á landi, í tilefni af ljóða- þýðingum hans lagði hann áherzlu á að ljóðlistin væri enn snarari þáttur í samtímalífi á íslandi en til að mynda í Banda- ríkjunum þar sem mun minni tengsl væru milli ljóðskálda og almennings en tíðkaðist hér á landi, enda virtust skáld þar vestra einkum yrkja hvert fyrir annað, en hér á landi væri ljóð- listin sprottin úr þjóðlífinu og almenningur væri í mikilvægum tengslum við hana þrátt fyrir margvísleg fjölmiðlaumsvif sem eru einkenni okkar tíma. Orð sendiherrans sem er sjálf- ur gott skáld og merkilegur menningarfrömuður vöktu at- hygli margra enda er hann öllum hnútum kunnugur bæði hér heima og vestra og hann var í meiri tengslum við íslenzkt þjóð- líf og menningu en tíðkast um sendiherra sem einkum umgang- ast þröngan hóp manna og vita einatt næsta lítið um innri gerð íslenzks þjóðfélags og menning- ararf okkar. Ástæðan til þess að þetta er rifjað upp eru athyglisverð sam- töl við sum af þeim erlendu ljóð- skáldum sem hafa tekið þátt í þeirri merkilegu norrænu ljóð- listarhátíð sem hér hefur verið haldin undanfarið fyrir frum- kvæði forstjóra Norræna húss- ins, Knuts Odegárd, og sam- verkamanna hans. Margir er- lendir gestir hafa sótt okkur heim og kynnt okkur list sína og verður það að teljast til tíðinda. í samtali sem birtist hér í blað- inu við bandaríska ljóðskáldið James Tate segir þessi ágæti fulltrúi þjóðar sinnar m.a. að staða ljóðsins sé ólík í ýmsum löndum eins og hann kemst að orði og „mér finnst það hvetjandi að sjá hversu staða þess er sterk hér á landi. Ég hef verið að reyna að ímynda mér hvernig það er að vera ljóðskáld á íslandi og setja mig í þeirra spor — það er mjög gaman. Ég gæti trúað að ef tíu beztu ljóðskáld Bandaríkj- anna hættu einn daginn að yrkja væri flestum sama, það er að segja ef þeir tækju eftir því. Ef tíu beztu ljóðskáldin á Islandi hættu aftur á móti, myndi það eflaust vekja mikla athygli með- al almennings og þykja alvarleg tíðindi." Þarna tekur James Tate í sama streng og Marshall Brement og geta þeir áreiðanlega trútt um talað. Vonandi hafa orð þeirra við rök að styðjast því að í engri listgrein hefur samhengi ís- lenzkrar menningar verið jafn augljóst og mikilvægt og í ljóð- listinni sem hefur fylgt þjóðinni frá því fyrstu landnámsmennirn- ir stigu hér á land. Ljóðlistin hefur verið yndi og athvarf Is- lendinga um aldir, og þá ekki sízt á myrkum öldum þegar þjóð- in átti undir högg að sækja, varðveitti einkenni sín og sótti afl í þessa göfugu listgrein. Það er vonandi ekki tilviljun að slík norræn ljóðlistarhátíð skuli vera haldin hér á landi. Hér lifir ljóðið enn með þjóðinni þótt um það hafi verið deilt á undanförnum árum hvort þróun íslenzkrar ljóðlistar hafi verið heillavænleg eða ekki en slíkar deilur eru nú að mestu úr sögunni og engum dettur lengur í hug að amast við nýgræðingi og krefjast þess að einungis sé ort í hefð- bundnum stíl. Þá dettur varla nokkrum manni í hug að amast við fornum áhrifum íslenzkrar ljóðlistar á nútímaskáldskap, enda eðlilegt að fortíð og framtíð kallist á í góðum rismiklum skáldskap. Við höfum þá sérstöðu, Islend- ingar, að hafa borið gæfu til þess að varðveita gamla hefð, efla hana og rækta á sama tíma og okkur hefur tekizt að endurnýja þessa hefð og veita nýjum straumum inn í íslenzkan skáld- skap á þann veg að almenningur hefur tekið ástfóstri við margt í nútímaskáldskap og sýnir æ ofan í æ að hann vill taka þátt í ræktun þess nýja gróðurs sem skotið hefur rótum í bókmennt- um okkar. Norræna ljóðlistar- hátíðin er merki þess áhuga sem er á ljóðlist hér á landi og það er engin uppákoma hversu vel hefur tekizt til. Það sýnir m.a. sá áhugi sem almenningur hefur haft á þessu athyglisverða fram- taki enda hefur aðsókn verið góð og staðfestir sterka stöðu ljóðs- ins hér á landi. Viðtökur hafa einnig verið með afbrigðum góð- ar, og geta ljóðskáldin vel við þær unað. Þá hafa fjölmiðlar sýnt hátíðinni sóma og sinnt henni með þeim hætti að nær einstætt máteljast. Lítill vafi er á því að Norræna ljóðlistarhátíðin á eftir að verða íslenzkri ljóðlist örvun og afl- gjafi og eftirminnileg reynsla á tímum efnishyggju og yfirborðs- skvaldurs. Það skiptir ekki öllu hvaða skáld eru til kvödd hverju sinni heldur er hitt mikilvægara að þessari listgrein sé sýndur sá sómi sem hún á skilið og athyglin beinist að henni, ekki síður en annarri merkilegri arfleifð. Ljóð- listin hefur öllum stundum verið rauði þráðurinn í íslenzkri menn- ingu og verður vonandi svo lengi sem tunga okkar er töluð. Það er raunar ekki sízt undir ljóðlist- inni komið og áhuga almennings á henni hver þróun íslenzkrar tungu verður í framtíðinni því að ljóðið er okkur í senn athvarí og uppörvun og ætti að hvetja okkur til að varðveita tunguna eins og efni standa til. Án tungu okkar sem er dýrmætasta eign þjóðarinnar værum við ein- kennalaus útskagalýður sem enginn þyrfti að taka tillit til. Vegna menningar okkar fengum við handritin heim og það var ekki sízt hennar vegna sem rétt- ur okkar til fiskimiðanna var viðurkenndur. Við erum sérstök þjóð þótt fáir séum og menning okkar er rótgróin arfleifð og raunverulegur þáttur í sjálfs- bjargarviðleitni okkar og þeirri kröfu að tillit sé tekið til okkar sem sérstæðrar þjóðar sem hefur .niklum andlegum auði að miðla. Þessi auður er lítilsvirði ef fólkið í landinu hefur ekki áhuga á honum og þeim arfi sem er undirstaða íslenzks veruleika á vályndum tímum. Sem betur fer er menningararfleifð okkar snar þáttur í þjóðlífinu og vonandi verður ávallt hægt að ganga að því vísu. Norræna ljóðlistarhátíðin sem var raunar alþjóðleg er hvetjandi yfirlýsing um að íslenzk menning skiptir máli og merk skáld erlend og menningarfrömuðir eru ódeigir að skrifa undir það. Á hátíðinni hafa íslendingar eign- azt marga nýja og merkilega vini sem eru áhrifamenn í umhverfi sínu og það verður skemmtilegt að fá fleiri slíka í heimsókn þegar næsta hátíð verður haldin. Það er ekki ónýtt að eiga bakhjarla eins og David Gascoyne, eitt af þeim „örfáu ensku skáldum sem ortu gjaldgengan skáldskap að hætti súrrealista", eins og segir í dagskrá Norrænu ljóðlistar- hátíðarinnar en hann talaði af áhuga um ljóðaþýðingar Mars- hall Brements og sýnir það eitt út af fyrir sig hversu merkilegt starf sendiherrann hefur innt af hendi, og Justo Jorge Padrón, merkilegt og vel þekkt spænskt Ijóðskáld sem unnið hefur und- anfarin ár að þýðingum á ís- lenzkum ljóðum og sagði í sam- tali hér í blaðinu að hann hefði gefið út bók með ritgerðum um ýmsa helztu lausmálshöfunda á Islandi, auk þess sem hann hefur gefið út ritgerðarsafn um ljóða- gerð á Norðurlöndunum fimm og var íslands ýtarlega getið. „Síð- ustu árin hef ég verið að undir- búa stórt safnrit íslenzkra ljóða frá þessari öld og hef lokið um helming hennar. Að ári kem ég hingað aftur í boði Norræna hússins til að ljúka því verki. Sú bók kemur út hjá helzta forlagi Spánar í 15 þús. eintökum sem seld verða bæði á Spáni og öðrum spænskumælandi löndum. Von- andi opnar þessi bók möguleika á að gefa út í framtíðinni verk einstakra íslenzkra ljóðskálda á spænsku." Við eigum að fagna slíkum fulltrúum íslenzkrar menningar í öðrum löndum. Við eigum að veita starfi þeirra þá athygli sem það á skilið, styrkja þá eins og unnt er og auðvelda þeim róður- inn. Starf slíkra manna er okkur ómetanlegt. Það víkkar út ís- lenzka landhelgi, gerir menning- arlögsögu okkar að því heillandi ævintýri sem er lítilli þjóð í senn aðhald og uppörvun. Slíka vini höfum við Islendingar ávallt átt. Norræna ljóðlistarhátíðin hef- ur einnig verið aðhald og uppörv- un. En það sem meira er: íslenzk ljóðlist átti þessa hátíð skilið og þeir sem að henni stóðu hafa unnið gott verk og mikilvægt. En mikilvægast er að ljóðlistin gegnir merkilegu hlutverki í samtímalífi þjóðarinnar. Á því hefur fengizt margvísleg stað- festing, ekki sízt á Degi ljóðsins, með stofnun Ijóðaklúbbs Al- menna bókafélagsins, og nú undanfarna daga í Norræna hús- inu. Svo geta menn deilt um ýmis framkvæmdaratriði því að allt orkar tvímælis þá gert er en um það verður ekki deilt að ljóðlist- arhátíðin er merkur viðburður þegar á heildina er litið og við eigum að meta slíkt framtak eins og efni standa til. í hinum mikla lífsvef erum við þræðir í margvíslegum litum Ræða forseta íslands í veislu Spánarkonungs ígærkvöldi Hér fer á eftir ræða Vigdísar Finnbogadóttur, forseta ísiands, f kvöldverðarveislu spænsku kon- ungshjónanna í gær. Konungur og drottning Spánar, Vuestras Majestades. Ég færi yður kærar þakkir fyrir að bjóða mér, sem fulltrúa Islands að heimsækja yður á Spáni og til að dvelja hér á mildari breidd- argráðu þessa daga. Sú gestrisni sem mér hefur þegar verið sýnd og hlý orð yðar hátignar hafa snortið mig djúpt. Einhver kann að spyrja sem svo, hvort Islendingar og Spánverjar eigi nokkuð sameiginlegt, þessar tvær þjóðir sem augljóslega búa við ólík skilyrði; önnur á eylandi langt úti í Atlantshafi og hin á sólvermdum skaga syðst f Evrópu. Eyja og skagi — insula og penins- ula á latínu; þessi orð skýra á svipstundu hvað það er sem tengir þjóðir okkar. Þær eru báðar tengdar hafinu en það er einmitt hafið sem um aldir hefur verið mikil samgönguleið milli þjóða. Hafið hefur stöðugt verið hvatn- ing þeim sem við það búa til að kanna hvað handan þess leynist. Ekkert hefur auðgað samskipti þjóða eins og hafið — og er ekki reyndar mannlífið sjálft ókannað úthaf sem öllum er ætlað að leggja á, hvort heldur við byr eða mót- byr? Forfeður þjóða okkar beggja buðu hafinu birginn og fundu sömu heimsálfu, fslendingur árið þúsund, Kristófer Kólumbus undir lok fimmtándu aldar. Sagnfræð- ingum okkar þykir reyndar ekki ólíklegt að sæfarinn mikli hafi fært sér f nyt fslenskar heimildir áður en hann lagði upp f sína merku ferð. Islendingar og Spánverjar hafa allt frá miðöldum vitað hvorir af öðrum eða frá þvf að fslensk þjóð varð til. Islendingar eru ung þjóð meðal þjóða. Við rekjum sögu okkar til ársins 874 er forfeður okkar námu land á ósnortinni eyju. Skömmu eftir landnám hófu (slendingar að rita sögu sína og nánustu granna sinna. Saga Is- lands var skráð á tungu sem við höfum varðveitt og er enn lifandi mál f heimalandi okkar. fslensk tunga og saga eru höfuðþættir f sjálfsvitund fslensku þjóðarinnar. Það er þess vegna þessara heim- ilda, sem skráðar voru fyrir mörg- um öldum, að okkur er kunnugt um að fslendingar fóru til Spánar til að auðga anda sinn. Sem dæmi má nefna að á tólfu öld kom Hrafn Sveinbjarnarson, frumherji Iæknavísinda á Islandi, til Spánar til að kynna sér þá læknislist, sem hann hafði frétt að stæði þar á háu stigi. Spánverjar þekktu einnig mjög snemma til íslands. Þeir leituðu fanga á auðugum miðum í hafinu sem umlykur okkur. Þeir komu til að sækja ljósmeti, þvf löngu áður en menn uppgötvuðu svartagull var til annar ljósgjafi. Brætt hvalspik lýsti upp dimma vetur á Spáni. Vissulega er jarðargróður á Spáni ríkulegri en á Islandi, en þó eru í báðum löndum hrjóstrug héruð, auðnir og víðáttur. Slfkar ómælisvfddir efla skilning og víð- sýni manna og auðvelda þeim að skilja hve mikilvægur hver ein- staklingur er, þar sem lifið er stöðug barátta við óblíða náttúru. „Við Islendingar líkjumst hinum háfjallalegu og þrjósku Spánverj- um ... “ skrifaði kunnur samtímahöfundur fslenskur. Og vissulega vekur margt at- hygli sem líkt er með okkur og tengir eyjuna okkar skaganum ykkar. Á þrettándu öld var ort á Spáni eitt fegursta sagnakvæði sem um getur, Poema de Mio Cid. fslendingar þekkja mannlýsingar þessa kvæðis. Sömu manngerðir koma fyrir f Islendingasögunum, þar sem sagnaritarar okkar á mið- öldum lýsa samtímamönnum sín- um, fólki af holdi og blóði, sem rækir skyldur við frændgarð sinn og höfðingja, söguhetjur, sem eins og söguhetjur okkar setja heiður og rétt ofar öllu. íslenskur lesandi finnur f þessari frásögn eins og í Islendingasögunum, íýsingum á algildum viðfangsefnum sem gefa þessum bókmenntum mannlegan og seiðandi blæ. Þær eru og verða sígildar. Þannig hafa forfeður þjóðanna okkar beggja fært okkur í arf skáldskap f ljóðum og sögum sem þúsund árum síðar eflir vitund okkar um hver við erum og hvar við erum og hvar við erum stödd á vegferð. Bergmál þeirra sem ortu i fortíð ómar í nútíð. Á tslandi eins og á Spáni hafa skáld okkar varð- veitt þjóðartilfinningu hvort sem verið hefur við meðbyr eða mótbyr og þannig hannað, hlekk fyrir hlekk, þá keðju sem tengir nútfö og framtíð. Það þarf þvf engan að undra að á landinu mfnu langt f norðri sé unnt að snúa spænskri tungu á fs- lensku, svo sem sem raun ber vitni svo gjörólfk sem hún er okkar tungu. Meðal öndvegishöfunda spænskra bókmennta sem þýddir hafa verið á islensku eru Cervant- es og Lorca. Mig langar til að leyfa ykkur að heyra á islensku fagra þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar á vögguljóði úr Blóðbrullaupi eftir Federico García Lorca ... Hér skal hjartaljúfur heyra um Stóra-Faxa, hestinn úti í ánni. Áin svðl og skyggð rennur gegnum gljúfur grænrökkvaðra skóga, byltist undan brúnni barmafull af hryggð. Aldrei drenginn dreymir dul, sem áin geymir, hálf í undirheimum, hálf í mannabyggð. Sof þú baldursbrá, því mannlaus bíður hestur úti í á. Blunda, rósin rjóð, því niður hestsins vanga vætlar blóð. I Evrópu hinna mörgu þjóða tjáum við raunveruleikann hver á sínu tungumáli og þar má aldrei gleymast að leggja rækt við móð- urmálin. Það er að þakka þeirri hefð sem þau hafa skapað að menning okkar hvors um sig, f þessum tveim löndum Ijóssins, kallast á. Þetta ljós gerir okkur næmari fyrir fegurð náttúrunnar og feg- urð listanna. Á umliðnum árum höfum við æ betur gert okkur grein fyrir því hve sú rödd er mik- ilvæg, sem talar til okkar f list- rænni sköpun, lifandi og hljóm- mikil f löndum okkar beggja, sköpun sem hver með sfnu sniði hefur svo margt að gefa okkur. Nú, þegar óseðjandi tæknin eltir manninn alla leið inn f einkalff hans, skiptir afar miklu að rækta vináttu, hlýju og mannleg tengsl — og skapa þannig varanleg lista- verk. Það eru bestu gjafirnar sem við gefum gefið hvert öðru. Þannig hlýðum við á rödd Spánar á Is- landi og vonum að þið megið einn- ig heyra okkar. I hinum mikla lífsvef erum við þræðir í margvíslegum litum. Þræðimir fléttast saman og skapa þannig í sífellu mynstar og lit- brigði. f samskiptum þjóða okkar verður jafnhliða menningarlegum samskiptum að leggja áherslu á viðskipti, sem hafa verið mismun- andi mikil á liðnum árum en aukast nú æ meir af beggja hálfu og verða sífellt fjölbreyttari. Nú- tíma tækni, svo sem tölvutæknin í fiskiðnaði, opnar nýjar viðskipta- leiðir. Fulltrúar Islands eru ein- mitt um þessar mundir á sýningu í Galisíu — því nú er svo komið að við getum skipst á ýmsu öðru en saltfiski og vfni, sem verið hefur meginþáttur f viðskiptum okkar. Ekki skal því heldur gleymt að straumur ferðamanna hefur auk- ist mjög á síðustu árum, einkum ferðir Islendinga til Spánar og hefur það ríkulega stuðlað að því að kynna Spán og spænska menn- ingu á fslandi. Það er von mín að þessi kynni styrki cnn vináttubönd þjóða okkar og að traust vinátta megi ávallt vera öðrum fordæmi — eins og lýsandi viti sem beinir sæför- um heimshafanna f örugga höfn. Þegar hugsað er til framtíðarinn- ar er gott til þess að vita að fyrir þetta verði okkar minnst. Permitídme por último, Maj- estades, expressar la alegrfa que siento al estar aqui entre vosotros. Para mi es una oportunidad muy especial conocer de cerca esta tier- ra de luz e ilustre cultura. Brindo por Vuestras Majestades y la Familia Real por Espana y los espanoles — por la amistad entre nuestras dos naciones. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, heilsar forsætisráðherra Spánar, Felipe Gonzalez, við komuna til Barajas- flugvallar þar sem Juan Carlos Spánarkonungur (til hægri) tók á móti henni. Fánar íslands og Spánar prýða göturnar í Madrid Madrid, 16. september, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl. HÁDEGISSÓLIN skein á heiðbláum himni og heitur vindur blés þegar forseti íslands, Vigdís Finnbogadótt- ir, kom hálftíma of seint með far- þegaflugi Lufthansa í opinbera heim- sókn til Spánar í dag. Jóhann Karl I. Spánarkonungur, og æðstu menn þjóðarinnar téku á móti henni og fylgdarliði fyrir framan móttöku- skála þjóðarinnar á flugvellinum í Madrid. Konungur heilsaði forseta við enda rauðs dregils og þau gengu saman að litlum palli með rauðu flauelsþaki. Þar stóðu þau saman á meðan herhljómsveit lék þjóð- söngva landanna og 24 heiðurs- skotum var skotið úr fallbyssum. Forsetinn gekk síðan og skoðaði heiðursvörð herdeildanna þriggja úr spánska hernum. Hún kynnti fylgdarlið sitt, Geir Hallgrímsson, utanrfkisráðherra og frú, Ingva Ingvarsson, sendiherra, og frú, harald Kroyer, sendiherra, og frú, Halldór Reynisson, forsetaritara, og frú, og Herdísi Þorsteinsdóttur, hárgreiðslu- og aðstoðarkonu for- seta á ferðalögum, fyrir konungi. Gengu þau síðan öll þangað sem spænska móttökuliðið stóð og heilsuðu forsætisráðherra Spánar, utanríkisráðherra, forseta öld- ungadeildar þingsins og borgar- stjóra Madrid, meðal annarra. Forseti flaug síðan í þyrlu með konungi til E1 Pardo-hallarinnar, sem er skammt fyrir utan Madrid, en hún mun dveljast þar ásamt fylgdarliði á meðan á heimsókn- inni stendur. Hún snæddi hádegisverð með konungshjónunum í La Zarzuela— höllinni, þar sem þau búa, en utan- ríkisráðherra og annað fylgdarlið sátu hádegisverðarboð Fernandez Ordonez, utanríkisráðherra, og konu hans í Viana-höllinni. Frú Vigdís Finnbogadóttir var klædd í hvftan kjól og hafði blá- grænan silkiklút, sem blakti f vindinum, við komuna til Spánar. Hún gekk fram hjá heiðursverðin- um eins og hún hefði aldrei gert annað um ævina og spánskir ljós- myndarar höfðu á orði að það væri meira gaman að mynda hana en Mitterrand Frakklandsforseta þegar hann skoðar herdeildir við komur í opinberar heimsóknir. Þegar gestirnir voru farnir af flugvellinum, kom í ljós að heið- ursskotin höfðu kveikt í sinu við flugvöllinn og það þurfti að kalla á slökkviliðið til að ráða við eldinn sem þó var ekki mikill. Fánar íslands og Spánar prýða allar helstu götur og torg hér í Madrid. Fólkið á götunni var þó ekki visst um hvaða fáni íslenski fáninn væri, ein stúlka hélt helst að þetta væri danski fáninn og von væri á danska utanríkisráðherran- um í heimsókn. En spánskir fjöl- miðlar bættu úr þessu í dag. Greinar um ísland og myndir af forsetanum birtust í öllum helstu blöðunum í dag og sjón- varpið sýndi fimmtán mínútna þátt um landið í gær. Veglegar móttökur for- seta íslands á Spáni Madríd, 16. september. Frá önnu Bjarandótt- ur fréttaríUra Morgunblateing. Forseti fslands kom klædd skautbúningi og skreytt orðum til hátíðarveislu Spánarkonungs í Kon- unglegu höllinni í Madríd ( kvöld. Sólin var sest þegar hún og fylgdar- lið hennar mættu til veislu klukkan hálf tíu að staðartíma, en mikill mannfjöldi hafði þó safnast við hall- arhliðin til að sjá erlendu gestina og konungshjónin. Þau heilsuðu Vigdísi forseta í sérstökum móttökusal og þau tóku síðan saman á móti heið- ursgestum veislunnar, fylgdarliði forseta og æðstu ráðamönnum á Spáni. Þjóðhöfðingjarnir fluttu báðir ræðu yfir kvöldverðinum, forseti íslands mælti á frönsku en flutti lokaorðin á spænsku. Konungur sagði meðal annars í ræðu sinni, að það væri mikil ánægja að sjá áhugann sem þjóðirnar sýna hvor annarri og sagði að nemendur sem koma til landsins til að sækja há- skóla og læra spænsku, og ferða- menn sem koma i frí, styrktu gömul vináttubönd landanna. fslensku gestirnir á Spáni voru mjög ánægðir í kvöld með móttök- urnar eftir fyrsta daginn. Vigdís forseti snæddi óformlegan hádeg- isverð með konungshjónunum, Katrínu dóttur þeirra og Alex- andreu, dóttur Konstantíns, fyrr- verandi Grikkjakonungs og bróð- urdóttur drottningar, í heimilis- höll þeirra. Þar skiptust þjóðhöfð- ingjarnir á orðum og gjöfum. For- seti fslands sæmdi konung Stór- krossi með keðju hinnar íslensku fálkaorðu og hann sæmdi hana orðu Karls konungs III á bandi, en það er æðsta orðan sem Spánverj- ar veita erlendum þjóðhöfðingj- um. Soffía drottning og dæturnar tvær voru einnig sæmdar islenska Stórkrossinum. Vigdís forseti færði konungi áritað eintak númer fjögur af sér- útgáfu Dýraríkis Benedikts Gröndal og færði drottningu handofna værðarvoð eftir Guð- rúnu Vigfúsdóttur á Isafirði að gjöf. Börnunum gaf hún íslenskar bækur. Hún hlaut sjálf gullið pennastatíf með handrituðum nöfnum konungshjónanna, vegleg- ar kertaluktir og mynd af hjónun- um í silfurramma að gjöf. Þjóðhöfðingjarnir ræddu um þjóðfélagsmál og málefni sem snerta bæði löndin yfir málsverð- inum, sem var köld andalúzísk grænmetissúpa, innbakaður fiski- réttur, akurhæna, ostar og ávext- ir. Það fór mjög vel á með þeim og voru bæði sammála um að stuðla að auknu sambandi þjóðanna. Felipe Gonzalez, forsætisráð- herra, heimsótti forseta íslands í E1 Pardo-höllina í eftirmiðdag. Hann stansaði lengur en venja hans er þegar hann heimsækir þjóðhöfðingja sem eru í opinber- um heimsóknum. Hann varðist allra frétta að samtalinu loknu en forseti sagði að þau hefðu rætt vandamál beggja þjóðanna, fram- tíðina og mikilvægi þess að minna ungu kynslóðina á dýrmæti frelsis og sjálfstæðis. Geir Hallgrímsson, utanríkis- ráðherra, sagði að hádegisveröar- boði spænska utanríkisráðherr- ans loknu, að þar hefði verið skipst á borðræðum en málefna- legri umræður m.a. um Atlands- hafsbandalagið og inngöngu Spán- ar í Evrópubandalagið biðu morg- undagsins. E1 Prado-höllin, þar sem forseti vor býr, var reist 1547. Hún er mjög glæsileg og garðarnir í kring afar fallegir. Þar ríkir mikil kyrrð og ró. Franco, fyrrverandi ein- ræðisherra Spánar, bjó i höllinni þangað til hann lést fyrir 10 árum. Hún er nú notuð sem gististaður fyrir erlenda gesti í opinberum heimsóknum og forseti Islands býður þar til móttöku annað kvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.