Morgunblaðið - 17.09.1985, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
33
Bókaþing 1985
verður haldið
í Borgarnesi
BÓKAGERÐ, bókaútgáfa, bóksala, bókasöfn og fjölmargt fleira verður til
umræðu á Bókaþiugi 1985, sem haldið verður í Borgarnesi laugardaginn
21. september næstkomandi. Þar verður fjallað um stöðu bókarinnar hér á
landi um þessar mundir og reynt að leita leiða til þess að auka veg hennar
sem mest á næstu árum.
Félag íslenskra bókaútgefenda
og Félag íslenskra bókaverslana
standa að þinginu, en hafa boðið
öðrum félögum og samtökum, sem
tengjast bókum beint eða óbeint
að taka þátt í þeirri umfjöllun, sem
þar mun fara fram og senda sem
flesta fulltrúa á þingið.
Bókaþing 1985 fer fram í Hótel
Borgarnesi og hefst kl. 13 þann 21.
september með ávarpi formanns
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Eyjólfs Sigurðssonar. Síðan verður
reynt að draga upp mynd af að-
stæðum í ýmsum greinum er
snerta bækur og bókaútgáfu í
landinu í sjö stuttum framsöguer-
indum.
ólafur Ragnarsson, útgefandi,
mun fjalla um stöðu bókarinnar á
íslandi á líðandi stund og leiðir til
þess að efla bókaáhuga og bóklest-
ur landsmanna.
Pétur Sveinsson, bóksali, mun
ræða um þær breytingar sem orðið
hafa á bóksölu i landinu á síðustu
árum, en sem kunnugt er jókst
bóksalan að nýju í fyrra eftir
samdrátt í nokkur ár.
Ný prenttækni og breytt bóka-
gerð heitir erindi Þorgeirs Bald-
urssonar, prentsmiðjustjóra, sem
verður hið þriðja á þinginu.
Næsti frummælandi verður Sig-
urður Pálsson, formaður Rithöf-
undasambands íslands, sem fjalla
mun um rithöfunda, bækur og bók-
sölu.
Bókasafnsfræðingarnir Anna
Torfadóttir og Ingibjörg Sverris-
dóttir munu ræða um íslenska
bókaútgáfu og bóksölu.
Sérfræðingur frá Kaupþingi hf.
mun kynna þingheimi hvernig
staðið hefur verið að því af hálfu
fyrirtækisins að fylgjast með sölu
bóka á jólamarkaði og setja saman
metsölulista.
Síðasta erindið á fyrri hluta
Bókaþings flytur svo ólafur Steph-
ensen, formaður Sambands ís-
lenskra auglýsingastofa, en hann
mun fjalla um bókaauglýsingar og
markaðsmál.
Eftir kaffihlé verður gestum
þingsins skipt í umræðuhópa til
þess að fjalla um einstaka þætti
er varða stöðu bókarinnar í sam-
félaginu. Eftir að gerð hefur verið
grein fyrir niðurstöðum þeirra
hefjast svo almennar umræður.
Aætlað er að slíta þinginu um
kl. 19 og mun það koma í hlut
Guðmundar Sigmundssonar, for-
manns Félags íslenskra bókaversl-
ana.
Bókaþing hafa verið haldin fjór-
um sinnum áður á árunum 1974—
1977 og þá á vegum Félags ís-
lenskra bókaútgefenda. Nú er tekið
til við slíkt þinghald að nýju í
breyttu formi með samstarfi út-
gefenda og bóksala, en jafnframt
eru þeir sem hagsmuna hafa að
gæta varðandi gerð, útgáfu og
Leiðrétting:
Rannveig
Traustadóttir
ekki
Tryggvadóttir
í FRÉTT um skýrslu svonefndrar
„mæðranefndar" Alþýðubanda-
lagsins sem birtist hér í blaðinu
7. september sl. og í Staksteinum
12. september sl., var ranglega
sagt, að einn af höfundum skýrsl-
unnar væri Rannveig Tryggva-
dóttir. Rétt nafn er Rannveig
Traustadóttir. Er beðist velvirð-
ingar á þessum mistökum.
miðlun bóka og aðrir áhugamenn
um bækur hvattir til að sækja
Bókaþingið.
Nánari upplýsingar um fyrir-
komulag þingsins, ferðir til Borg-
arness og þaðan eru veittar á
skrifstofu Félags íslenskra bóka-
útgefenda að Laufásvegi 12, sími
27820. Þegar hefur talsverður
fjöldi áhugasams fólks tilkynnt
þátttöku og er því útlit fyrir að
Bókaþing 1985 geti orðið fjölsótt
og gagnlegt.
(FrétUtilkynning)
k L
Þóra Fríða, Sigurður og Signý verða með tónleika í Selfosskirkju.
Tónleikar í
Selfosskirkju
Signý Sæmundsdóttir og Sigurð-
ur Pétur Bragason halda söngtón-
leika í Selfosskirkju nk. fimmtu-
dag. Undirleikari er Þóra Fríða
Sæmundsdóttir. Á efnisskránni
verða islensk og ítölsk lög, aríur og
dúettar.
Signý var við nám i Tónlist-
arskólanum f Reykjavík, lauk
prófi frá tónmenntakennara-
deildinni og Söngskólanum i
Reykjavík, en er nú í söngnámi í
Vínarborg. Siguröur er einnig
tónmenntakennari og hefur lokið
námi í Söngskólanum í Reykja-
vík.
Þóra Fríða Sæmundsdóttir
lauk kennaraprófi frá Tónlist-
arskólanum '78. Hún var við nám
i Tónlistarháskólanum í Freiburg
í þrjú ár, fór þá til Stuttgart og
nam þar ljóðaundirleik. Sl. tvö ár
hefur Þóra starfað við undirleik,
m.a. verið píanóundirleikari hjá
Óperunni.
Ttl hamingju
eigendui
Kjaiabréía j
-Þið völduð létta kostinn.
Þeir sem keyptu kjarabréí Verðbréíasjóðsins h/í
þann 17. maí sl. haía íengið betri vexti en aðrir.
78% ársvexti
Til samanburðar voru aðrir vexiir þannig á sama tímabili:
Bankabok 45% Aðrir verðbréíasjóðir 58%
Ríkisskuldabrél 50% Kjarabréí Verðbréíasjóðsins h/í 78%
Forsondur • M/v gen<jl veröbréfasjóða 6. sept. '85 • MAr sparlsklrteinl með 7% raunávðxtun • MAr bestu 6 mðn verðtryggða bankaretknlnoa (3,5% raunávðxtun) • Ekkl er teklð ttlllt til
innlausnargjalds eða sölulauna.
Það er augljóst, að Kjarabréfin okkar hafa gefið betri ávöxtun en aðrir
valkostir, írá því að sala þeirra hófsi 17. maí 1985.
Kjarabréí Verðbréfasjóðsins h/f fást í ílestum pósthúsum og hjá
Verðbréíamarkaði Fjáríestingaríélagsins, Hafnarstrœti 7, Reykjavík. Símar 28466 8c 28866.
VERÐBREFA
SJÓDURINN HF
Hafnarstræti 7
101 Reykjavik