Morgunblaðið - 17.09.1985, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
Morgunblaðið/Friðþjófur
Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra gangsetur vélar Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki í stjórnstöð hennar
á laugardag. Fyrir aftan hann stendur Einar Einarsson framleiðslustjóri verksmiðjunnar.
Iðnaðarráðherra við vígslu Steinullarverksmiðjunnar:
Lýsti hlut ríkisins í
verksmiðjunni falan
— Á að vera undantekning að ríkið standi í beinum
atvinnurekstri, sagði Ragnar Arnalds
SauAárkróki, 16. september. Fri Hirti Gislasyni blaðamanni Morgunblaósins.
VIÐ FORMLEGA vígslu Steinullar-
verksmiðjunnar á Sauðárkróki í gær
lýsti Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra hlut ríkisins, 40 af hundr-
aði, í verksmiðjunni falan. Sagði
hann þá skoðun sína að ríkið ætti
ekki að vera að vafstra í rekstri sem
þessum þó hann væri arðvænlegur.
Hins vegar væri rétt að ríkið aðstoð-
aði heimamenn og einstaklinga úti
á landi við uppbyggingu atvinnu
þegar þeir væru þess ekki megnugir
sjálfir. Að því loknu ætti rfkið að
sleppa hendinni af fyrirtækjunum og
gefa einstaklingum og öðrum sem
áhuga hefðu kost á að eignast hlut
ríkisins.
Ragnar Arnalds þingmaður
Alþýðubandalagsins flutti meðal
annarra ávarp við þetta tækifæri
og sagði það skoðun sína að það
ætti að vera undantekning en ekki
regla að ríkið stæði í beinum at-
vinnurekstri. Þó væri Steinullar-
verksmiðjan á Sauðárkróki gott
dæmi um undantekninguna því án
aðstoðar ríkisins hefði þessi mikil-
vægi þáttur í sögu atvinnulífs
Skagafjarðar og í raun landsins
alls ekki orðið að veruleika. Auk
Ragnars Arnalds og iðnaðarráð-
herra fluttu ávörp við þetta tæki-
færi meðal annarra alþingismenn-
irnir Páll Pétursson og Pálmi
Jónsson, forsætisráðherra, Stein-
grímur Hermannsson, stjórnar-
formaður Steinullarverksmiðj-
unnar, Árni Guðmundsson, og
Magnús Sigurjónsson forseti bæj-
arstjórnar Sauðárkróks.
Upphaf og aðdraganda Steinull-
arverksmiðjunnar má rekja til
ársins 1975 er sú hugmynd vaknaði
í Skagafirði að þar væru til staðar
hráefni sem hentuðu til fram-
leiðslu steinullar. Siðan þá hefur
á ýmsu gengið og meðal annars
voru um stofnun verksmiðjunnar
skiptar skoðanir á Alþingi og sagði
Ragnar Arnalds að hann minntist
þess ekki að á þeim vettvangi hefði
nokkurt mál klofið jafn marga
stjórnmálaflokka. Helstu hlut-
hafar í verksmiðjunni eru ríkis-
sjóður, Steinullarfélagið hf. á
Sauðárkróki, Oy Partek ab í Finn-
landi, Samband islenskra sam-
vinnufélaga og Kaupfélag Skag-
firðinga. Byggingaframkvæmdir
hófust i júní 1984 og er að mestu
lokið. Tilraunaframleiðsla hófst 9.
ágúst sl. en framleiðsla er nú
hafin. Framkvæmdakostnaður er
um 350 milljónir kr. og starfsmenn
verða 30 til 35.
Notkun á einangrunarull á ís-
landi var áætluð um 100 þúsund
rúmmetrar árið 1984. Þetta jafn-
gildir um 3.000 til 3.500 tonnum
af steinull. Notkun á einangrunar-
plasti var 30-40 þúsund rúmmetr-
ar. Með lækkun á verði einangr-
unarefna er reiknað með að notkun
þeirra til einangrunar eldra hús-
næðis aukist, en það er nú fyrst
að húseigendum býðst brunaþolið
einangrunarefni á lágu verði að
sögn forráðamanna verksmiðjunn-
ar. Reiknað er með að verksmiðjan
nái um 4 þúsund tonna sölu á
innlendum markaði að tveimur
árum liðnum.
i
Fjórar mjög frambærilegar myndir
ásamt úrvals myndaflokki á 3 spólum.
Islanskur
texti
I Islentkur textí J
LIVING PROOF CARTIER AFFAIR BORN BEAUTIFUL
Þaö or ekki alltaf teklö út meö
sœkllnni aö eiga fræga loreldra
Þettafékk Hank Wílliams yngri
aö reyna aöeins átta ára gamall.
Þá lést faöir hans, Hank Williams
eldri, aöelns 29 ára gamall, sök-
um áfengis- og eíturlyf janeyslu.
Hann haföl verið einn vlnsælasti
country- og western-söngvari
heims. Nú kröföust aödáendur
hans þess aö Hank yngri tækl
upp merklö lyrlr tðður sinn. Mls-
kunnarlaust sogast Hank yngrl
Inn á sömu feigöar br autina sem
kostaö haföi fööur hans Irfiö
Llvinfl Proot er sönn saga um
ungan mann, sem berst örvænt-
ingarfuilri baráttu fyrir að fá aö
lifaetgin lifi.
Aöalhlutver k: Richard Thomas -
Ann Gillespie
Léttkrydduö sakamélamynd
sem allir hafa gaman af. Joan
Collins ter á kostum í hlutverki
sjónvarpsst jörnunnar sem hefur
allt sem hugurinn girnist. Telly
Savalas bregst ekki heldur í hlul-
verki skúrksins. David Hasselhof
leikur Kurt. ungan mann sem
fellur fyrir stjörnunni, þrátt tyrir
alltönnuráform.
Ekki er allt gull sem glóir Fyrlr-
sætuheimurlnn er fullur af ung-
um stúlkum sem halda aö þær
hati allt sem til þarf. en þegar
samkeppnin er hörö er ekki alltaf
nóg aö hafa fallegt andllt og góö-
an vöxt...
Mynd sem konur ættu ekki aö
láta fara fram hjá sér.
Aöalhfutverk: Lori Singer -
Erin Gray.
THE LAST PLAŒ ON FARTH
A ENDIMÖ»miM JAHHAB
Á ENDIMÖRKUM
JARÐAR
Sönn saga um hió haróvítuga
kapphlaup milli Amundsen og
Scott hvor þeirra næói fyrst á
Suóurheimskautió. Saga um
ótrúlega þrautseigju hugrakkra
manna sem leggja allt aó veói til
aósigra.
Aóalhlutverk: Max von Sydow,
Martin Shaw, Sverre Anker
Ousdal.
Þessi myndaflokkur hefur ekki
veriö sýndur i íslenska sjónvarp-
inu.
LIVE A LITTLE
STEAL A LOT
Tveir urvals þjófar legg ja á ráöln
um innbrot aidarinnar. Þeim
tekst aö stela og koma í verö
dýrmætasta safír veraldar. Þá
hefst I júfa líflö en li'ka flóttinn
undan réttvisinni...
Spennumynd i hæsta gæöa-
flokki. Aöalhlutverk: Robert
Conrad-Don Stroud.
Á myndbandaleigum
um allt land í vikunni.
Dreifing
VIDtO
Síöumúla 21, aími 686250.
ASÍ og BSRB samþykkja samhljóða ályktanir:
Áformum um sölu-
skatt á matvörur
harðlega mótmælt
EITIRFARANDI ályktun var sam-
þykkt einróma á fundum miðstjórnar
Alþýðusambands íslands og stjórnar
BSRB í gær:
„Síðustu mánuði hefur verðlag
hækkað umfram það sem gert var
ráð fyrir við gerð kjarasamninga
á liðnu sumri. Forsendur samn-
inga virðast vera að bresta, þrátt
fyrir yfirlýsingar stjórnvalda um
að verðlagi yrði haldið f skefjum.
Miklar verðhækkanir siðustu mán-
uði virðast ekki valda stjórnvöld-
um áhyggjum og engar fregnir
berast af þeim bæ um aðgerðir til
þess að sporna gegn vandanum.
Þvert á móti eru nú opinberuð
áform um álagningu söluskatts á
brýnustu nauðsynjar og þar með
stórfellda hækkun framfærslu-
byrðar. Söluskattur er nú 25%.
óþarft er að rökræða í hvert óefni
bágri afkomu láglaunafólks væri
stefnt ef söluskatti yrði skellt á
matvörur, sem nú eru undanþegn-
ar skattinum.
Miðstjórn Alþýðusambands Is-
lands krefst þess, að hætt verði
við öll áform um innheimtu sölu-
skatts af matvælum og varar ríkis-
stjórnina við því að skera með
þeim hætti upp herör gegn fólkinu
í landinu. Launafólki hefur þegar
verið gert að axla of þungar byrðar
og aukin skattheimta af almenn-
ingi kemur ekki til greina. Fari
ríkisstjórnin sínu fram í þessu efni
hlýtur verkalýðshreyfingin að
bregðast við af fyllsta þunga.“
Morgunblaðiö/Árni Sæberg
Norodom Sihanouk, prins, og Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráó-
herra, sem nú gegnir embætti utanríkisráöherra.
Sihanouk prins:
Skýrði íslenskum
ráðherrum frá ástand-
inu í Kambódíu
NORODOM Sihanouk, prins frá
Kambódíu, sem staddur er hér á
landi í einkaheimsókn, átti í gær-
morgnn viðræóur vió Ragnhildi
Helgadóttur, menntamálaráó-
herra, sem gegnir starfi utanrfkis-
ráóherra í fjarveru Geirs Hall-
grímssonar.
Sihanouk gerði ráöherranum
grein fyrir sjónarmiói sínu til
ástands mála í heimalandi sínu,
sem Víetnamar hafa hernumið.
Prinsinn er leiótogi útlægrar sam-
steypustjórnar þriggja skærulióa-
hreyfinga, sem Sameinuðu þjóóirn-
ar hafa vióurkennt sem hina einu
lögmætu stjórn landsins.
Morgunblaðið/Bjarni
Steingrímur Hermannsson, forsætisráóherra, og kona hans, Edda GuÓ-
mundsdóttir, taka á móti Sihanouk, prins, á Þingvöllum í gær. Á mynd-
inni er einnig Ólafur Egilsson, sendiherra, sem gegnir störfum ráðuneyt-
isstjóra í utanríkisráöuneytinu í fjarveru IngvaS. Ingvarssonar.
Að fundinum loknum hélt
prinsinn ásamt föruneyti sínu og
nokkrum íslenskum embættis-
mönnum til Þingvalla, þar sem
hann snæddi hádegisverð og
ræddi við Steingrím Her-
mannsson, forsætisráðherra.
í gærkvöldi sat Sihanouk
prins síðan kvöldverðarboð
Ragnhildar Helgadóttur í Ráð-
herrabústaðnum við Tjarnar-
götu. Á morgun er fyrirhugaður
fundur hans með íslenskum
blaðamönnum, en prinsinn fer af
landi brott árdegis á miðviku-
dag.