Morgunblaðið - 17.09.1985, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
37
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2
Næstu námskeið:
Vefnaöarfræöi 16. sepf.
Tuskubrúöugerö l.okt.
Bótasaumur 1okt.
Leöursmíöi 5. okt.
Vefnaöur f. börn 5. okt.
Tauþrykk 8.okt.
Spjaldvefnaöur 17. okt.
Þjóöbúningasaumur 18. okt.
Innritun fer fram aö Laufásvegi
2. Upplýsingar veittar í sima
17800.
Aðstoða námsfólk
í islensku og erlendum málum.
Siguröur Skúlason magister,
Hrannarstig 3, sími 12526.
Er nám þitt
skipulegt „kaos“?
Leiösögn sf. hefur opnaö aö nýju
eftirsumarleyfi.
Fyrir þá sem ekki vita, þá er Leiö-
sögn þjónustufyrirtæki fyrir þá
sem vilja bæta stööu sína í námi.
Allir kennarar sem kenna hjá
okkur hafa kennsluréttindi og
reynslu á því skólastigi sem þeir
kenna til þess aö tryggja gæöi
kennslunnar.
Spyrjiö nemendur sem hafa veriö
hjá okkur. Þeir koma aftur og
aftur, enda fá þeir afslátt sem láta
sjásigoftar.
Veittur er systkina- og hópaf-
sláttur. Þá er veittur sérstakur
10% haustafsláttur í september
og október.
Viö erum í Þangbakka 10 í Breiö-
holti þ.e. bak viö Bióhöllina. Líttu
viö eöa hringdu. Viö erum viö
milli 14.00 og 18.00 daglega í
síma 79233.
Dyrasímar — Raflagnir
Gesturrafvirkjam.,s. 19637.
Hilmar Foss
lögg. skjalaþýö. og dómt., Hafn-
arstræti 11, Rvík. Símar 14824
og 621464.
Hörður Ólafsson
hæstaréttarlögmaður
lögg. dómt. og skjalaþýöandi i
ensku. Tek auk þess aö mér aö
skrifa verslunarbréf á frönsku og
dönsku. Sími 15627.
Bólstrun
Klæöningar og viögeröir á hús-
gögnum. Fljót og góö þjónusta.
Bólstrunin Smiöjuvegi 9, sími:
40800. Kvöld- og helgars.: 76999.
I.O.O.F. Rb. 4= 1349178%-
I.O.O.F. = Ob. 1P= 1679178% =
ÚTIVISTARFERÐIR
Helgin 20. — 22. sept
Haustlita- og grillveisla í Þórs-
mörk.
Árleg ferö sem enginn vill missa
af. Margir möguleikar til göngu-
feröa. Góö fararstjórn. Gist i skál-
um Útivistar, i Básum meöan
pláss leyfir, annars i tjöldum.
Fararstjórar: Ingibjörg S. Ás-
geirsdóttir, Fríöa Hjálmarsdóttir
og Kristján M. Baldursson.
Upplýsingar og farmiðar á skrif-
stofu Lækjargötu 6a, simar:
14606 og 23732. Sjáumst,
Útivist.
Fimir fætur
Dansæfing veröur i Hreyfilshús-
inu. sunnudaginn 22. þ.m. kl.
21.00.
Mætiö tímanlega. Nýir félagar
ávallt vekomnir.
Uppl. ísima 74170.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almennur bibliulestur í kvöld
kl. 20.30.
4
Mctsolubkx) á hverjum degi!
raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar |
Lærið frönsku hjá
Alliance Francaise
— Kvöldnámskeið fyrir byrjendur og lengra
komna.
— Bókmenntaklúbur.
— Upplýsingar og innritun á skrifstofu Alli-
ance Francaise, alla virka daga frá 16. til 27.
sept.kl. 15.00 tilkl. 19.00.
— Kennslahefst30. sept.
— Afslátturfyrirnámsmenn.
ALLIANCE FRANCAISE,
Laufásvegi 12,
sím i:2 38 70.
húsnæöi óskast
Verslunarhúsnæði óskast
Óska eftir verslunarhúsnæði við Laugaveg
eöaígrenndinni.
Tilboð sendist augld. Mbl. merkt: „Traustur
aðili — 8582“.
Skrifstofuhúsnæði — íbúð
Okkur vantar skrifstofuhúsnæði eða litla íbúö
til leigu undir rekstur sálfræðistofu. Þarf að
vera vestan Kringlumýrarbrautar. Uppl. ísíma
651198 og24143.
Veitingasalan í
Grafarholti
REKSTRARADILI óskast að veitingasölu
Golfklúbbs Reykjavíkur í Golfskálanum í Graf-
arholti. Um er að ræða útleigu á veitingasal
til veisluhalda að vetri til, en veitingasölu til
klúbbmeölima aö sumri. Samningstími er frá
1. nóvember nk. í eitt ár eöa lengur. Allar nán-
ari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri
klúbbsins.
Aðalfundur Bersa
Aöalfundur Bersa FUS, Vestur-Húnavatnssýslu, veröur haldinn í mötu-
neytisaöstööu VSP, miövikudaginn 18. september kl. 21.00.
Dagskrá:
LSkýrslastjórnar.
2. Kjördæmisþing noröurlandsk jördæmis vestra.
3. Skipulagsmál.
4. Kosningar.
5. Önnurmál.
Nýir félagar sem og aörir hvattir til aö mæta.
Stjórnin.
togtmiribifrtto
Askriftcirsíminn er 83033
HINN MANNLEGI ÞÁTTUR / EFTIR ÁSGEIR HVÍTASKÁLD
ís með ást
í blöðunum eru alls konar mat-
aruppskriftir og uppskriftir að
ýmiss konar lífshamingju. Hægt
er að fá ísbombu, ís með jarðar-
berjabragði og ís með banönum.
En hver hefur smakkað ís með ást?
Hér kemur uppskriftin.
Fyrst þarf það að vera sunnu-
dagur og helst sumardagurinn
fyrsti. Veðrið verður að vera
dumbungslegt, lágskýjað og rign-
ing. öll flögg eiga að blakta í þoku.
Gott er að blóta veðrinu. Ekkert
er hægt að gera og allt er hundleið-
inlegt.
Það er liðið vel yfir hádegi og
þið eruð með hausverk eftir of
mikinn svefn. Allt er á kafi í
óhreinu leirtaui í eldhúsinu. En
maður byrjar á því að taka hálf
frosinn kjúkling út úr ísskápnum
og reynir að þýða hann. Ekki er
verra að lemja kjúklinga helvítið
dulítið. Síðan er best að þræða
hann upp á tein og setja inn í
grillofninn með miklu magni af
sterku kryddi. Því næst er hægt
að bjóða konunni að fara út í búð
og kaupa pakka-ís ef þú splæsir
með innistæðulausri ávísun. En
eitt verður að vera svo þetta takist.
Enginn má vera heima nema þið
tvö, sem sagt einn maður og ein
kona. Enginn má koma í heimsókn
frekar en venjulega.
Síðan er gott að vakna þegar
konan er komin aftur og reynir
að vekja þig, þar sem þú hefur
sofnað í leti þinni í sófanum með
hálflesið Morgunblaðið. Konan á
að setja ísinn á kaldasta stað í
fsskápnum, sem er svo gamall og
af lélegustu gerð að í honum er
ekkert frystihólf.
Þá er kominn tími til að hefja
samningaviðræður; kappræðu um
það hver á að vaska upp. Þá er
gott að muna vel aftur í tímann
öll þau skipti sem þú hefur vaskað
upp. En baráttan er ekki til neins
því ef þú vinnur þessa rimmu þá
þarftu í staðinn að sjá um matinn.
Auðveldast er að sjóða hrísgrjón
til að hafa með kjúklingnum og
laga pakkasósu. En til þess að
losna við pakkabragðið er ágætt
að bæta ferskum eplabitum út í.
Það gefur sósunni rómantískari
blæ, og þú getur haldið því fram
að hún sé náttúruleg.
Auglýsingaflöggin blakta, bíl-
arnir bruna eftir blautu malbikinu
og þú veist að þú getur ekki gert
neitt skemmtilegra. Enginn er úti
í svona kubba veðri sem kemur í
skömmtum þegar rigningin hellist
yfir kassalöguð húsin. Það er ekki
einu sinni hægt að sitja á bryggju-
staur og dorga ónýtan ufsa. Ekki
hægt að hjóla eða labba. Þú hefur
ekki löngun til neins. Og mundu
að nefna ekki bíó á nafn og fletta
bíósíðunni fljótt. Þú veist hvað
myndirnar, amerískar og inni-
haldslausar, eru ömurlega leiðin-
legar. Þú veist allt um það, hvað
það getur verið niðurdrepandi að
fara á bíó í svona veðri á sunnu-
degi. Að horfa á lélega mynd í
þessari depresjón gæti hreinlega
orðið þinn dauðdagi.
Þú horfir á konuna þína vaska
upp og sérð líkama hennar bylgj-
ast til. Hún er það eina sem gæti
lyft sál þinni örlítið upp á við. En
hún þykist vera í fýlu því hún lenti
í uppvaskinu. Hún hefur óhag-
stæðar hugmyndir varðandi eld-
húsverkin og húsmóðurhlutverkið.
Kjúklingurinn rúllar. Þú vaknar
upp úr móki við brunalykt og veist
að kjúklingurinn er tilbúinn.
Þegar þið eruð búin að éta
aumingja fuglinn og sósan reynd-
ist æði, er búið að myndast nýtt
uppvask. En allir eru saddir og
kærulausir og það er ekki pláss
fyrir ís, loksins þegar þið létuð það
eftir ykkur að kaupa ís með helgar-
matnum. Þið leggist í sófann af-
vega af ofáti. Liggið þar dágóða
stund og uppgötvið að þið eruð svo
leið á öllu, södd á svo mörgu, að
þið hafið ekki einu sinni lyst á
hvort öðru. Ykkur vantar hreyf-
ingu, ferskt loft og að komast út
í náttúruna.
En eftir nokkurn tíma kviknar
lyst á ísnum. Og þið rífist um
bráðnuðu endana. í ísnum eru
bragðgóðar jarðarberjaleifar. En
svo dettur þér allt í einu í hug að
setja smá ísklípu á bert hné henn-
ar, og sleikja burt, varlega. Hana
kitlar og finnst ofsa gaman.
Skyndilega kviknar lystin að nýju.
Gráa veðrið gleymist, blankheitin,
leiðindin og þíladrunurnar. Og
þessi ís er goður, betri en allur
annar ís. Uppskriftin er líka ein-
stök.
Ef þú rankar við þér löngu
seinna og sérð að ísafgangurinn
er orðinn bráðnuð hrúga á stofu-
borðinu, veistu að þú hefur fengið
ís með ást.
Efndu fíkni-
efnasalar
til óeirð-
anna í
Birmingham?
Binningluuii, 16. sept AP.
GEOFFREY I)ear, lögreglu-
stjóri í West Midland, sagði á
sunnudag að óprúttnir heróín-
og kókaínsölumenn hefðu kom-
ið óeirðunum í Birmingham í v
síðustu viku af stað.
„Ég held að þessir sölu-
menn dauðans hafi stofnað
til uppþotsins til þess að
vernda fjallháan gróða sinn,“
sagði Dear fyrir lögreglu-
nefnd West Midland. „Kókaín
og heróín streymir inn í borg-
ina um þessar mundir."
Dear sagði að umsvifamikl-
ir eiturlyfjasalar hefðu
hreiðrað um sig í innflytjen-
dahverfinu Handsworth í
Birmingham. Þegar fíkni-
efnasveitir lögreglunnar voru ‘
stækkaðar sáu þeir umsvifum
sínum ógnað og gripu til
þessa örþrifaráðs.
Óeirðirnar voru þær alvar-
legustu í Bretlandi frá 1981,
þegar skálmöld ríkti í mið-
borg London, Liverpool og
Manchester. aM