Morgunblaðið - 17.09.1985, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
39
Fyrsta pásan
í tvo mánuði
— Rætt við menn hjá BÚR í bónusvinnustöðvun
„Óneitanlega setur það strik í reikninginn að tækjamenn skuli ekki vinna
í bónus, því allt er á fullum dampi á borðunum," sagði Magnús Guðmunds-
son, verkstjóri hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur er Morgunbiaðsmenn litu inn
í frystihús Bæjarútgerðarinnar á Granda eftir hádegi í gær, en þá var nýgeng-
in í gildi þar samúðarbónusvinnustöðvun Dagsbrúnar. I dag kemur síðan
bónusvinnustöðvun verkakvennafélagsins Framsóknar einnig til fram-
kvæmda.
Magnús sagði of snemmt um það
að segja hvað afköstin minnkuðu
mikið að svo komnu, en ljóst væri
að það yrði að vinna á laugardag
ef takast ætti að frysta allt. Hann
sagði að um 30 manns sem væru
í bónusverkfalli á staðnum og ynnu
þeir einkum við frystitækin. Hjör-
leifur var nýkominn inn með 130
tonn af fiski og sagði hann að það
myndi allt sent út í gámum.
Aðspurður um hvort hann bygg-
ist við mikilli afkastaminnkun,
þegar bónusvinnustöðvun Fram-
sóknar kæmi einnig til fram-
kvæmda, sagði hann að það yrði
sjálfsagt um helmingsminnkun.
Þeir hefðu fengið smá sýnishorn
af því á mánudaginn eftir fund sem
Guðmundur J. hefði haldið með
starfsfólkinu og afköstin hefðu
minnkað talsvert, þó ekki hefði
verið full samstaða um hægagang-
inn. „Það er allt á huldu um fram-
haldið. Vonandi leysist þetta sem
fyrst, það verður að nást sam-
komulag," sagði Magnús. “Annars
sagði Guðmundur J. á fundinum
hér um daginn að fiskvinnslufólkið
hefði verið notað sem skiptimynt
í samningunum í sumar og það er
spurning hvort ekki er verið að
nota það sem skiptimynt aftur nú
fyrir samningana í vetur."
Magnús Magnússon, yfirverk-
stjóri, sagði að það vantaði senni-
lega um helmingi fleiri stúlkur á
borðin, en þeir hefðu nú. Þær væru
nú 40-45 þegar best léti, en í sumar
þegar skólafólkið var að vinna
hefðu þær verið 110. Hann efaðist
um að margir hefðu auglýst meira
en BÚR eftir fó'ki, en það hefði
ekki borið meiri árangur en þetta
og einkum verið karlar sem sóttu
um störf. Hann sagði það segja
sitt um öryggisleysið í þessari
atvinnugrein og hefði kannski sitt
að segja um ásóknina í þessi störf,
að þetta væri í fjórða skipti á ár-
inu, sem vinnslan yrði fyrir trufl-
unum. Fyrst hefði það verið jóla-
stoppið, síðan tvivegis togaraverk-
fall og nú þetta.
„Þetta er í fyrsta skipti í 2 mán-
uði sem við tökum okkur góða
pásu, enda búið að vera rólegt í
dag,“ sagði Bergur Einarsson,
trúnaðarmaður Dagsbrúnar, sem
Morgunblaðið hitti einnig að máli.
Hringt er í pásu einu sinni á hverj-
um klukkutíma í frystihúsinu, en
hún venjulega ekki tekin vegna
þess að þá minnkar bónusinn.
Hann sagði að við frystana ynnu
venjulega 4 menn saman en nú
væru þeir 8 og hefðist ekki undan.
Þeir myndu aðeins vinna til klukk-
an 5, en það hefði þurft að vinna
lengur til að klára það sem fyrir
lægi.
„Hljóðið í fólkinu er ágætt, þó
auðvitað sé það eitthvað upp ofan,“
sagði hann er hann er hann var
spurður um viðhorf fólksins til
bónusvinnustöðvunarinar. „Fólk
er orðið þreytt á þessu kaupi og
það fékk ekkert í samningunum
síðasta sumar. Því var ákveðið að
reyna að ná einhverju í gegnum
bónusinn. Það er samstaðan sem
gildir, það kemur aldrei neitt nema
farið sé í einhverjar aðgerðir. Það
er í það minnsta venjan. Ég vil
engu spá um hvað þetta verður
langvinnt, en ég held að hvorugur
aðilinn hafi efni á því að þetta
standi lengi," sagði Bergur.
Það kom fram hjá Bergi að bón-
usinn getur verið allt frá 30-40%
ofan á launin uppí það að tvöfalda
þau. Hann sagði að af þeim átta
mönnum sem unnu við frysting-
una, væru aðeins tveir vanir nú
og svoleiðis hefði það verið frá því
skólafólkið hætti. Afköstin væru
minni hjá óvönu fólki, en þarna
hefði verið harður kjarni 6-7
manna.
i
Pardus-stál
prýðir húsin
Stallað þakstál á aðeins
kr. 440 pr. fermetri
í brúnu og svörtu
PflRBUS*
Smiðjuvegi 28, Kóp. S: 79011