Morgunblaðið - 17.09.1985, Page 43

Morgunblaðið - 17.09.1985, Page 43
MORGU NBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985 43 Mikill mannfjöldi var við athöfnina, en hún fór friðsamlega fram. Og eldgleypar sýndu listir sínar. Bjórlíkið „jarðað“ Á laugardagskvöldið var bjór- líkiö jarðaö á táknrænan hátt á Steindórsplaninu í Reykjavík að viðstöddu fjölmenni. Eigendur bjórkránna fjögurra í miðborg Reykjavíkur gengu fylktu liði ásamt meölimum leikhópsins Svart og sykurlaust milli kránna Vegagerð á Ströndum: Lægstu til- boð u ndir 50%af kostn- aðaráætlun og söfnuðu saman bjórlíki í eina stóra tunnu sem borin var á nokk- urs konar líkbörum á Steindórs- planið. Þar var um 20 lítrum af bjórlíki hellt niður, enda bannað að selja bjórlfki frá 15. september. Guðvarður Gíslason fram- kvæmdastjóri á Gauki á Stöng sagði í samtali við blaðið að hann væri ánægður með athöfn- ina, en um 300 manns voru viðstaddir þessa táknrænu jarð- arför. Er ekki að vita nema þessi atburður verði skráður á spjöld sögunnar, því auk fulltrúa ríkis- fjölmiðla og dagblaða voru þýskir sjónvarpsfréttamenn viðstaddir athöfnina ásamt Hrafni Gunnlaugssyni sem var að vinna að heimildarkvikmynd fyrir Reykjavíkurborg. „Við höldum því fram að fólk hafi m.a. komið til að mótmæla bjórlíki í landinu, það kallaði slagorð eins og „bjór er þjóðar- stolt" og „við viljum bjór" og einhverjir voru með mótmæla- spjöld," sagði Guðvarður. Eng- inn ákallaði þó bjórlíkið, enda mun verða hægt að kaupa það áfram á kránum, þó blöndunin fari öðruvísi fram, héðan í frá verður blöndun á staðnum, hálf- ur lítri pilsner og 3 cl af vín- anda. „Við höfum ætlað okkur að finna nýtt nafn á þetta en það hefur ekki tekist enn.“ Síðustu dropunum hellt niður. OPNUÐ hafa verið tilboð í tvö vega- gerðarverkefni á Vestfjörðum sem Vegagerðin bauð nýlega úL í báðum tilvikum voru öll tilboðin undir kostnaðaráætlun og lægstu tilboð lægri en helmingur áætlunar. Höttur sf. bauð lægst í Stein- grímsfjarðarheiði II, en þar er um að ræða 2,6 km kafla með fyllingu, burðarlagi og sprengingum. Verk- inu skal lokið 1. júlí á næsta ári. Tilboð Hattar var 4.379 þúsund kr., sem er 47% af kostnaðaráætl- un, en hún var 9.318 þúsund kr. Átta verktakar buðu í veginn og voru öll tilboðin lægri en kostn- aðaráætlun, það hæsta 86% af áætluninni. Karl Björnsson á Hólmavík átti lægsta boð í styrkingu Hólmavík- urvegar. Um er að ræða 14 km vegarkafla og á verkinu að vera lokið 10. nóvember. Tilboð Karls var 2.149 þúsund kr., sem er 45,8% af kostnaðaráætlun. Sex fyrirtæki buðu í verkið, öll undir kostnaðar- áætlun, sem var 4.692 þúsund kr. og var hæsta tilboðið 80% af kostnaðaráætlun. TAKTU ÞÁTT í ptaymobi Allir krakkar á aldrinum 4—11 ára mega vera meö. Þetta er ekkert mál. Þú færö mynd til aö lita í næstu „Playmo-búö“ (leikfangabúö, bókabúö, kaupfélagi eöa stórmarkaöi). Þú skilar síöan myndinni inn, fyrir 15. október. pkiymobll Hvað skal gera: Litið myndina hinumegin með vax- tré- eða tússlitum. 5krifið nafn, aldur og heimilisfang, hér fyrir neðan og skilið f viðkomandi verslun fyrir 15. október 1985. hafn:__________________________ heimilisfang:_ Verðlaun: 1. verðlaun eru Playmobil leiK- föng fyrii 4.000,- hr 2. verðlaun eru Playmobil leik- föng fyrir 3.000,- kr og 40 aukaverðlaun. RCOLUR 1 Pátttaka er hetmil öllum börnum á aldrinum 4 - 11 ára 2 Dómnefnd tekur tillit til aldurs, við úrskurð bestu myndanna 5 Úrskurði dómnefndar verður ekki breytt RJÓAIAÍS < tncð blábeijasultu RJÓMAÍS með súkkulaðísósu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.