Morgunblaðið - 17.09.1985, Síða 44
44
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
Legubekkurinn meö svarta
leörinu kominn.
Verð aðeins kr. 28.440 stgr.
EIH
H¥n
Bláskógar
Ármúla 8, sími 686080.
Söngmenn
Karlakórinn Fóstbræöur getur bætt viö sig söng-
mönnum.
Upplýsingar í síma 84870 eftir kl. 7 í kvöld og næstu
kvöld.
ALLT í RÖÐ OG REGLU!
Ef þú ert þreytt(ur) á óreiðunni
og uppvaskinu í kaffistofunni
þá er Duni kaffibarinn lausn á vandanum.
Duni er ódýrasti barinn í bænum
Duni kaffibarinn sparar bæöi tíma og pláss.
Hann getur staðið á borði eða hangið á vegg.
- hann kostar aðeins 3.550.- krónur!
(Innifalið í verði: Málmstandur, 2000 mál, tíu höldur og 1000
teskeiðar.)
STANDBERG HF.
- kaffistofaj hverjum krók!
Sogavegi 108
■ símar 35240 og 35242
Nýtt aðalskipulag Egilsstaða allt til ársins 2004 kynnt á almennum borgarafundi.
Morgunblaðið/ólafur
Egilsstaðir:
Opin svæði og trjá-
gróður einkenna tiliögu
að nýju aðalskipulagi
KgibstöAuni, 14. september.
Nýlega boðaði skipulagsnefnd Eg-
ilsstaðahrepps til almenns borgara-
fundar í Valaskjálf til að kynna nýja
tillögu að aðalskipulagi Egilsstaða-
kauptúns næstu 20 árin eða allt til
ársins 2004.
Egilsstaðahreppur var stofnað-
ur með sérstökum lögum frá Al-
þingi árið 1947 en þá hafði mynd-
ast hér vísir að þéttbýliskjarna
kringum sjúkrahús er var reist ár-
ið 1944 og kaupfélagsútibú sem
var stofnsett árið 1946.
Strax við stofnun sveitarfélags-
ins var hafist handa um gerð aðal-
skipulags fyrir kauptúnið sem tók
gildi árið 1948. Árin 1957 og 1964
var skipulagið endurskoðað og því
breytt en þá hafði íbúum fjölgað
verulega í kauptúninu og byggð
vaxið, t.d. mun íbúum sveitarfé-
lagsins hafa fjölgað um 15% árið
1964. Árið 1968 var enn gerð ný
skipulagstillaga að Egilsstaða-
kauptúni sem síðan var staðfest
árið 1969 af skipulagsyfirvöldum.
Árið 1982 var skipulag kaup-
túnsins enn á ný tekið til gagn-
gerðar endurskoðunar en sú
endurskoðun hefur leitt til þeirrar
skipulagstillögu er nú liggur fyrir
og kynnt var á borgarfundi í fyrri
viku.
Þórhallur Pálsson, forstöðu-
maður Skipulagsstofu Austur-
lands, kynnti hina nýju skipu-
lagstillögu á fundinum. í máli
hans kom fram að gert er ráð fyrir
þróun byggðar til suðurs í hinni
nýju skipulagstillögu, að bygg-
ingarsvæði næstu ára verði sunn-
an við athafnasvæði Kaupfélags
Votihvammur norðan við Egilsstaðaþorp. Gert er ráð fyrir skv. skipulagstil-
lögunni að farvegur Eyvindarár verði fcrður til norðurs og hvammurinn
stækkaður. Þar á að rísa iðnaðarhverfi. Ekki munu allir Egilsstaðabúar sáttir
við það.
Héraðsbúa og Mjólkursamlags
KHB. Jafnframt er tekið frá bygg-
ingarsvæði til seinni tíma nóta
utan Eyvindarárinnar í landi
jarðanna Miðhúsa og Eyvindarár.
Þá er gert ráð fyrir í tillögunni að
farvegur Eyvindarár verði færður
til norðurs vegna væntanlegs
flugvallarsvæðis en við það fæst
aukið landrými í svonefndum
Votahvammi austan við Vistheim-
ilið Vonarland en þar er gert ráð
fyrir iðnaðarhverfi skv. skipu-
lagstillögunni.
Það sem einkennir hina nýju
skipulagstillögu öðru fremur eru
Trjágróður er þegar ríkjandi f Egilsstaðahreppi. Skipulagstillagan gerír ráð
fyrir frekarr sbjólbeltum, opnum svæðum með trjágróðri. Egilsstaðir cigtrað
verða bær í skógi.
opin svæði, trjágróður og skjól-
belti enda að því stefnt að Egils-
staðir verði „bær í skógi“ eins og
Þórhallur Pálsson komst að orði.
Eftir viðbrögðum fundarmanna
á borgarafundinum að dæma virð-
ast Egilsstaðabúar nokkuð sáttir
við hina nýju skipulagsstillögu
enda lagði sveitarstjórinn, Sigurð-
ur Símonarson, áherslu á nauðsyn
reglulegrar endurskoðunar skipu-
iagsins a.m.k. á 5 ára fresti. Helst
virtist iðnaðarhverfi í Vota-
hvammi fara fyrir brjóst sumra
fundarmanna sem gjarnan vildu
sjá útivistarsvæði þar um slóðir.
Fundarmönnum varð ekki tíðrætt
um gamalt þrætuepli, nýja brú á
Eyvindará, en henni er ætlaður
staður skv. tillögunni skammt
neðan við gömlu brúna.
Frestur til að skila athugasemd-
um við skipulagsstillöguna rennur
út nú í byrjun viku og eftir um-
fjöllun í hreppsnefnd um hugsan-
legar athugasemdir verður skipu-
lagsstillagan væntanlega send til
staðfestingar skipulagsyfirvalda
ríkisins.
Íbúatala Egilsstaðahrepps er nú
um 1320 en skv. skipulagstillög-
unni er gert ráð fyrir 1613 íbúum
á Egilsstöðum árið 1990 og 2104
árið 2004. Meðalfjölgun íbúa Eg-
ilsstaða hefur verið 4,5% á ári allt
frá árinu 1973.
f byrjun árs 1984 voru hér 374
íbúðir og meðalstærð þeirra var
þá 131,23 ma.
— Ólafur
1