Morgunblaðið - 17.09.1985, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
I
„Glamúrhippar
Hippatímabilið fræga hafði í
för með sér breyttar hug-
myndir manna um margt, þar á
meðal klæðaburð. Hipparnir voru
afar sundurleitir í klæðaburði, til
dæmis voru sterkir litir mjög
vinsælir. Ekki liðu mörg ár eftir
að hipparnir voru úr sögunni þar
til fólki fór að þykja fatasmekkur
þeirra fáránlegur, menn fóru á
grímudansleiki klæddir í hippa-
búning rétt eins og froskbúning
eða álfabúning áður. Fyrir nokkr-
um árum íklæddust dimitantar
eins menntaskólans hér í borg
„hippabúningum" og vöktu mikla
kátínu skólafélaga sinna, sjaldan
þóttust menn hafa séð dimitanta í
jafn hlægilegum skrípabúningum.
merkilegt fyrirbæri
En tímarnir líða og breytast;
ansi hratt á þessum síðustu og
verstu. Nú er farið að sníða hin
dýrustu skrautklæði í stíl við
druslur hippanna og kalla vetrar-
tísku. Það eru klæðskerar í Lund-
únum sem fengu þessa skringilegu
hugmynd. Hætt er við að hippun-
um gömlu hefði þótt dapurt til
þess að hugsa að blómahugsjónin
mikla yrði sniðug söluvara frum-
legra tískuhönnuða að tiltölulega
skömmum tíma liðnum.
Meðfylgjandi eru nokkrar
myndir af tískuhippunum nýju
þar sem þeir „fíla sig“ á strætum
Lundúnaborgar.
fclk í
fréttum
FIMMTA STARFSÁR BRIDSSKÓLANS:
Hjálpum fólki af stað
— segir skólastjórinn Páll Bergsson
„Það verður enginn útlærður í
spilinu eftir að hafa sótt námskeið
hjá okkur. Við ætlum okkur ekki
þá dul að gera menn að meistunim
á nokkrum kvöldstundum. En
menn geta komist vel af stað og
náð þroska við borðið sem ella
tæki nokkur ár að öðlast,“ segir
Páll Bergsson, forsvarsmaður
Bridsskóians í Reykjavík, sem nú
er að hefja sitt fímmta starfsár.
Páll og samkennari hans Guð-
jón Sigurðsson hafa útskrifað í
kringum þúsund manns frá þeim
tíma sem skólinn tók til starfa.
„Sumir af nemendum okkar hafa
farið út í keppnisbrids, aðrir
hafa kosið að njóta íþróttarinnn-
ar í rólegheitum í heimahúsum,
eins og gengur," segir Páll.
„Brids er þannig íþrótt að hennar
má bæði njóta sem huggulegrar
aflsöpunar og sem hörku keppn-
isgreinar."
Bridsskólinn býður upp á
Mortfunblaðið/Þorkell
Aðstandendur Bridsskólans í Reykjavík. Skólastjórinn Páll Bergsson
(t.h.) og samkennari hans Guðjón Sigurðsson.
Fyrrum nemendur Bridsskólans sökkva sér niður í „frjálsu" spila-
mennskuna.
tvenns konar námskeið, eitt fyrir
þá sem ekkert eða lítið kunna í
reglum spilsins og annað fyrir
þá sem kunna nokkuð en vilja
ná betri tökum á spilamennsku
sinni. Á byrjendanámskeiðinu
læra menn að telja punktana,
helstu atriði útreikningsins og
undirstöðuatriðin í sögnum. Og
fá auðvitað þjálfun í sjálfri spila-
mennskunni líka. í framhalds-
námskeiðinu er lögð meiri
áhersla á að þjálfa úrspilið.
Hvert námskeið stendur yfir f
ellefu kvöldstundir, þrjá tíma í
senn. Kvöldin fara þannig fram
að fyrst er kennt með aðstoð
myndvarpa, síðan eru spiluð
undirbúin spil og þau skýrð, en
síðasta klukkutímann er frjáls
spilamennska undir leiðsögn
kennaranna. „Frjálsa spila-
mennskan er óneitanlega vinsæl-
ust,“ segir Páll, „og oft finnst
fólkinu erfitt að hætta á tilskild-
um tíma, eins og allir bridsspil-
arar þekkja."