Morgunblaðið - 17.09.1985, Side 51
MORGUNBLADIÐ, ÞRIDJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
51
„Afi kenndi mér þuluna“
m
AVelvakandasíðu Morgun-
blaðsins birtist fyrirspurn
frá konu einni i sumar þar sem
hún spuröist fyrir um hvort ein-
hver kynni þulu sem byrjaði á:
„Sat ég undir fiskihlaða föður
míns“. Stuttu síðar var fyrir-
spurninni svarað á síðum Velvak-
anda þar sem þessi sjaldséða þula
var birt í heild sinni. Hólmfríður
Vala Svavarsdóttir, 11 ára, frá
Ólafsfirði, kannaðist strax við þul-
una og sendi Morgunblaðinu hana
til birtingar.
„Þegar ég var lítil raulaði afi
minn þessa þulu svo oft fyrir mig
og lærði ég hana þannig," sagði
Hólmfríður Vala er blaðamaður
spurðist fyrir um hvernig á því
stæði að hún, svona ung, kynni
þuluna. Afi stúlkunnar var sjálfur
útgerðarkóngur ólafsfirðinga,
Magnús Gamalíusson, sem sat og
raulaði fyrir barnabarn sitt. „Ég
var hinsvegar farin að ryðga svo-
lítið í þulunni svo að amma mín
rifjaði hana upp með mér um dag-
inn þegar fyrirspurnin í Velvak-
anda kom.“
Mér finnst ósköp gaman að
kunna þetta og geri ég svolítið af
því að blaða í Ijóðum þegar ég fer
í heimsókn til hennar ömmu
minnar, en annars er aðaláhug-
amálið hjá flestum krökkum hér
skíðaíþróttin og er ég þar engin
undantekning."
Hólmfríður sagðist hafa byrjað
i vist í sumar. Hún passaði lítinn
strák og er nú byrjuð í 5. bekk í
skólanum.
Hólmfríður Vala Svavarsdóttir
17. júní í Alberta
jóðhátiðardagurinn 17. júni
var haldinn með hefðbundn-
um hætti í Alberta-fylki í Kanada
í sumar, nánar tiltekið i bænum
Markerville.
Fjallkonan að þessu sinni var
Ragnheiður Sveinsdóttir Gunnars-
son, kona Geirs H. Gunnarssonar
bankastjóra í Calgary, en þau hafa
búið þar undanfarin níu ár.
Litla stúlkan á myndinni er Sara
Thorsteinsson og var hún kjörin
„prinsessa" fslendingadagsins.
Með á myndinni er ræðismaður
íslands í Alberta-fylki, Albert
Árnason.
Maðurinn á myndinni er
breskur ferðamaður í sum-
arleyfi á spönsku eynni Ibiza. Þar
hefur hann eins og margir aðrir
ferðamenn keypt sér bol með mynd
af Adolf Hitler framan á.
hitt naglann á höfuðið, því þetta
þykir voða sniðugt þar syðra og
menn kaupa þessa boli í þúsunda
tali.
Richard
pabbi í
annað sinn
Píanóleikarinn Richard Clayd-
ermann varð nýlega faðir í
annað skipti og hér á myndinni
er hann ásamt konu sinni Christ-
ine og syninum Peter.
Hann mun þó ekki hafa tækifæri
til að sinna syninum mikið á
næstunni því hans bíða nú heims-
reisur og einnig mun hann m.a.
leika í Japan fyrir Hirohito keis-
ara.
Sérstæð kímnigáfa
A bolnum stendur fyrir ofan
myndina af Hitler: Adolf Hitler
European tour 1939—45. Á bakinu
standa svo nöfn landanna sem
voru hernumin af Þjóðverjum í
stríðinu. Sá sem lét búa til þennan
einkennilega skreytta bol, hefur
COSPER
Eigum við að stökkva á hana eins og svampdýnu?
• • / ■i - F * * .. •, Það er líf og fjör v:
* ' ' ’ » » •* 1 ^ f Jazzballettskóla *.. \ * »• •.
» •*» ' Kristínar • •« • • x. ♦ • # • * % x
• • ■ • * •' ; . * Innritun er hafin í síma 33388 kl. 9-12 fyrir hádegi alla daga. :•/.•• c.
i • • •y * . * * Kennsla hefst miðvikudaginn 25. september \ húsakynnum . Nýja dansskólans í Ármúla 17A * % # 4 9 • 1 *
« * Allir aldurshópar. Börn frá 7 ára aldri. b • * r tc :
FÍD
Félag
íslenskra
danskennara
Nú geta
allir
verið með!
_____________________
WORD - RITVINNSLA
Word ritvinnslukerfið er með nýjustu ritvinnslukerfum á
markaðnum í dag, hannaö fyrir IBM einkatölvur.
Það býður upp á mjög margar aðgerðir sem hingað til hafa
ekki þekkst meðal ritvinnslukerfa á smátölvum. Segja má að
Word nálgist þaö að geta framkvæmt aðgerðir sem einungis
sérhannaðar ritvinnslutölvur hafa hingaö til getað unnið.
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að gera þátttakendur færa um að
vinna með ritvinnslukerfið að námskeiðinu loknu.
ÞÁTTT AKENDUR:
Námskeiðið er ætlað öllum notendum IBM og Atlantis einka-
tölva.
LEIÐBEIN ANDI:
Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen,
ritvinnslukennari hjá
Stjórnunarfélagi Islands.
TlMI OG STAÐUR:
23.—26.sept. kl. 13.30.
Ánanaustum 15.
TIIXYNNIÐ ÞATTTOKU
í SÍMA 621066
STJÓRNUNARFÉIAG
KlAKlD^ ananaust 15’
IOL/-M N L/O SIMI 621066.