Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1986
57
Kinnarnir keppa ekki i neinum smáUekjum. Peter Geitel og Errki Vanbanen
aka 260 hestafla Nissan 240RS (Lh.), en Sakari Viierima og Tapio Eirtivaara
220 hestafla Opel Manta 400. Samskonar bflar hafa náð góðum árangri í
heimsmeistarakeppninni í rallakstri.
Sakari Viierima:
Framarlega í
kappakstri og rall-
akstri í Finnlandi
Þeir eru ekki margir sem hafa átt og keppt á tólf mismunandi keppnis-
bflum um ævina. Hvað þá að hafa gert slíkt á aðeins átta mánaða tíma-
bili, en einmitt þetta hefur Finninn Sakari Viierima afrekað á þessu ári.
Hann ekur í Ljómarallinu á nýjum Opel Manta 400 ásamt Tapio Eirtiva-
ara. Viierima er talinn eitt mesta efni í topp rallökumann, sem Finnar
eiga f dag. Fáir eru fljótari.
Viierima er jafnvígur á öll
farartaeki, hvaða nöfnum sem
þau nefnast. Hann keppir í rall-
akstri og kappakstri í Finnlandi.
„Þetta er áhugamál hjá mér, en
ég tek þetta alvarlega og það eru
miklir peningar í húfi,“ sagði
Viierima í samtali við Morgun-
blaðið. „Ef ég tæki kostnaðinn
við að keppa i ralli saman, þá
myndi ég líklega hætta öllu
saman. Ég þori ekki að taka fram
vasatölvuna!"
Það hefur ekki verið ódýrt
óhappið, sem henti hann fyrir
nokkrum vikum í 1000 vatna
rallinu. Sú keppni er liður í
heimsmeistarakeppninni í rall-
akstri og var Viierima í tólfta
sæti af yfir 150 keppendum,
þegar Opel Manta hans fór útaf.
Flaug bíllinn útaf á 170 km
hraða, fór margar veltur áður en
hann skall á tré. Kviknaði í bfln-
um, en ökumennirnir sluppu báð-
ir ómeiddir frá gjörónýtum bíln-
um. „Svona atvik hafa ekki áhrif
á mig. Þekktur finnskur ökumað-
ur sagði eitt sinn að ef ökumaður
velti ekki a.m.k. einu sinni á ári,
þá færi hann of hægt. Það eru
þrjú ár síðan ég velti síðast ...
“ sagði Viierima.
Viierima varð í öru sæti í
finnsku „rally-sprint" meistara-
keppninni í fyrra og þriðji árið
á undan. í slíkri keppni eru eknar
tvær stuttar sérleiðir og keppa
um 150 bílar f hvorri keppni.
Gildir að aka sem hraðast um
krókóttar leiðir. Árangur Viie-
Akureyri:
íslensk lög og ítalsk-
ar aríur í Borgarbíó
TENÓRSÖNGVARINN Páll Jó-
hannesson heldur sína 14. einsöngs-
tónleika, fimmtudaginn 19. septem-
ber nk. kl. 19.00 í Borgarbfó á
Akureyri.
Á efnisskrá eru lög eftir Inga
T. Lárusson, Karl Runólfsson og
aríur úr þekktum ftölskum óper-
um. ólafur Vignir Albertsson leik-
ur undir.
Eftir að Páll lauk námi frá
Söngskólanum í Reykjavík hélt
hann til Ítalíu, þar sem hann hefur
stundað söngnám sl. 4 ár, þar af
hjá Pier Miranda Ferraro síðustu
tvö árin.
Préttatilkynning.
Tenórsöngvarinn Páll Jóhannesson.
rima sýnir því að hann er enginn
aukvisi við stýrið.
Árið 1983 ók hann í 33 röllum
á sama bílnum, Ford Escort RS.
Það hlýtur að nálgast heimsmet.
Hér heima keppa t.d. rallöku-
menn yfirleitt í 5 keppnum á ári!
Viierima er því í toppæfingu
fyrir Ljómarallið, en hvað skyldi
hann ætla sér f keppninni?
„Keppnin er óvenjuleg og að
sama skapi áhugaverð. Geitel
hefur gefið mér góð ráð, því hann
kom í fyrra. Ég vonast til að
komast í mark, þvf það er afrek
að ljúka keppninni. Ég hef minna
afl en t.d. Geitel og Lord, þannig
að maður veit ekki ennþá um
eigin möguleika. Þar fyrir utan
þekki ég ekki aðstæður, þó ég
skoði leiðimar einu sinni fyrir
keppni. Ég mun aka á 80-90%
af getu minni, vera varkár," sagði
Viierima.
Hvað þessi orð þýða er erfitt
að segja, en Finnar eru þekktir
fyrir allt annað en rólegan akst-
ur. Einn Finni í viðgerðarþjón-
ustu keppnisbíls hérlendis sagði
að Viierima myndi ekki sætta sig
við að tapa fyrir Geitel, og öfugt.
Geitel myndi líma niður bensfn-
gjöfina frekar en að verða á eftir
Chris Lord á Audi Quattro,
breskum ökumanni, það yrði
hneisa f augum Finna, jafnvel
þó hann sé á betri bfl. Það eru
því horfur á ævintýrum í her-
búðum Finna.
L\
BALLETTSKOLI
EDDU
SCHEVING
Skúlatúni 4
Kennsla hefst í byrjun október. Allir aldurshópar frá 5 ára.
Byrjendur og framhaldsnemendur.
Innritun og upplýsingar í síma 25620 kl. 16—19 í síma 76350 á öörum
tímum. Afhending skírteina þriöjudaginn 1. október kl. 16—18.
4
Pú ert í takt við tímann
í æfingafötum frá Arena!
Það er nánast sama
hvert tilefnið er
- æfingafötin frá ARENA
henta alls staðar:
• Leikfimi
• dans
• fimleikar
• líkamsrækt
• ballett o.fl. o.fl.
íþrótta- og leikfimiskór
í miklu úrvali
•Sendumf*
rxY?TKRÖFU
spomommm
JNGOLFS
ÓSKARSSONAR
Á horni KiAprmríGS
0G GRETVSGÓTU
S:i17S3
%VÖNDUÐ VARA
GLÆSILEG HÖNNUN
IKGOTTVERÐ