Morgunblaðið - 17.09.1985, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 17.09.1985, Qupperneq 58
 „Mér fannst það mjög tilkomumikið að vera þarna í þessum hildarleik“ MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985 Morgunblaöið/SÍKurReir Morgunblaðið/Vilborg Einarsdóttir Það var ólgandi brim vió ströndina. Þarna er Björn Guðmundur í ilsðarmálinu. Tveir félagar Björns Guðmundar taka £ móti honum um borð í Danska-Pétri í Vestmannaeyjum. Fri vinstri: Vilborg, Björn Guðmundur og Þorkeli. — segir Björn Guðmundur Markússon sem var hætt kominn við Reynisdranga í Vík í Mýrdal Að lokinni myndatöku fimm manna hóps í fjörunni við Keynisfjall sl. sunnudag brá Björn Guðmundur Markússon sér í sjóinn í blautbúningi sem hann hafði verið í um þrjár klukkustundir við fyrirsætustörf í flæðarmálinu. Mikið brim var og meira aðdýpi en Björn Guðmundur reiknaði með og hreif brimið hann með sér. Illmögulegt var að sjósetja björgunarbáta til að leita að Birni Guðmundi og hraktist hann í hafinu í nær tvær klukkustundir áður en honum var bjargað um borð í Danska-Pétur VE eftir leiðsögn Reynis Ragnarssonar, flugmanns í Vík ^ í Mýrdal. Morgunblaðiö ræddi við Björn Guðmund, tvo af félögum hans sem voru í myndatökuhópnum og Reyni Ragnarsson flugmann. Var að örmagnast og missa meðvitund „Ég var kominn nokkra metra frá fjöruborðinu út í bylgjurnar þegar straumurinn hreif mig með sér,“ sagði Björn Guðmundur Markússon í samtali við Morgunblaðið, „og mig bar skjótt á órólegra svæði en var þar sem ég fór út í sjóinn. Eg freistaði þess þó að taka sundsprett í gegn um brotin að fjörunni, en einn brimskaflinn gróf mig niður í sandinn og ég fékk harkalegt höfuðhögg. Ég skynjaði að það var von- laust að ná landi þarna og þegar ég barðist við að komast aftur út í gegn um fjörubrotin var ég alveg að missa meðvitund og örmagnast, var lengi að ná andanum og jafna mig eftir byltuna í brotinu." Björn Guðmundur Markússon í skoðun hjá Einari Jónssyni lækni á sjúkrahúsinu I Vestmannaeyjum, en Björn Guðmundur hafði aðeins tognað nokkuð á hálsi eftir barninginn í fjörunni. MorKunblaÖið/Þorkell Heppinn hvernig straumurinn bar mig Ljósmyndaverkefni, sem unnið hafði verið að í fjöruborðinu og Björn Guðmundur tók þátt í sem fyrirsæta, var lokið þegar slysið átti sér stað. „Krakkarnir voru farnir að pakka saman og tvö voru farin upp úr fjöruborðinu. Ég sagðist ætla að fara aðeins lengra út í sjóinn en ég hafði gert í myndatökunni í fjörunni undir Reynisfjalli. Ég held að það hafi staðið tæpast hjá mér þar sem brimið lamdi mig niður í sandinn og ég mátti mín einskis, en þegar ég komst aftur út úr brimgarðin- um virtist mér straumurinn bera mig að klettunum við Reynis- dranga, en það var þó miklu við- kunnanlegra að vera fjær landi úr því sem komið var. Þar sem mig bar óðfluga að klettunum tók ég það ráð að reyna að synda lengra út því mér fannst brimið við landið espast verulega með flóðinu. Ég hafði reynt að kalla í krakkana, en eftir 10 mínútur eða svo sá ég þau ekki lengur. Það var mikið kapphlaup hjá mér að synda út til hafs áður en mig bæri í klettana landmegin við Reynisdranga, en ég var svo heppinn að straumurinn bar mig austur fyrir á milli Reyn- isdranga og skers fyrir utan þá sem braut verulega á, en brimið var það mikið að ég gat ekki stjórn- að því nema að litlu leyti hvert mig rak. Það var ekki það mikið flot í blautbúningnum að ég héldist á floti, en ég var hettulaus og ber- hentur. Það gusaðist sífellt kaldur sjór niður um hálsmál búningsins, en best fannst mér að halda á mér hita með því að krossleggja arm- ana og stinga höndunum undir handarkrikann með þéttingstaki. Fannst ég geta klappað vélinni Það leið líklega klukkustund þar til ég var kominn fram hjá Reynis- dröngum á rekinu, en þá sá ég inn á Víkina. Þá grillti ég í báta út til hafsins, en öldudalirnir voru það myndarlegir að stundum hvarf mér landsýn í krauminu. Mér létti mikið við að sjá til bátanna þótt þeir væru fjarri, en ég var farinn að búast við að þurfa að slást þarna nóttina, því það leið að kvöldi og maður vissi svo sem ekkert hvernig það myndi enda í þessum straum og kulda. Ég nötr- aði mikið þarna, skalf eins og hrísla, en hafði mátt í fingrunum t.d. Nokkru eftir að ég sá til bát- anna kom flugvélin og hnitaði hringa. Tvisvar eða þrisvar fannst mér flugmaðurinn fljúga svo lágt og nálægt mér að ég gæti klappað á vélina hjá honum og sagt: „Heyrðu, ég er hér.“ En líklega hefur hann átt erfitt með að sjá mig vegna þess að ég var svart- klæddur og dökkhærður, en þegar hann sá mig vaggaði hann vélinni og veifaði mér á þann hátt. Ég veifaði á móti. Mér hafði ekkert litist á þetta þegar hann sá mig ekki í fyrstu umferðunum, svo lágt og nálægt sem hann flaug, en þarna voru miklir öldudalir og brot í hafinu. Flugvélin lóðsaði síðan Danska-Pétur til mín, en bátarnir voru á allt öðrum stað. Skipverjar á Danska-Pétri frá Vestmannaeyjum sáu mig ekki fyrr en ég var við hliðina á þeim. Ég hafði veifað báðum handleggj- um og flugvélin flaug í sífellu yfir og gaf þannig til kynna fjarlægð- ina frá landi. Skipverjar á Danska-Pétri köstuðu neti til mín, ég greip í það og þeir kipptu mér inn fyrir borðstokkinn. „Hvernig er fiskiríið," var það fyrsta sem ég spurði þá að um leið og ég var kominn inn fyrir borð- stokkinn. Það kom svolítið á þá, en rosalega var ég feginn að sjá þá koma, það var hreint ótrúlegt að þetta skyldi ganga upp eftir nær tveggja klukkustunda volk í sjón- um. Hélt að þetta væri búið í fjörubrotinu Jú, ég var hræddur, mjög hrædd- ur, sérstaklega fyrst í fjöruborð- inu, þar hafði ég ekki vald yfir neinu. Ég er klár á því að ef ég hefði reynt aftur við fjöruna vær- um við ekki að spjalla hér saman, en ég hafði meiri stjórn eftir því sem ég komst fjær landi. Ég hélt reyndar að þetta væri búið í fjöru- brotinu þegar ég grófst í sandinn og þrýstingurinn var svo mikill að ég náði ekki andanum. Ég man að ég velti því fyrir mér hvernig ég ætti að taka þessu, en ég reyndi að rífa hausinn upp og berjast. Þegar ég var kominn út á dýpið reyndi ég að halda mig sem næst líklegu leitarsvæði, en hjálpin barst miklu fyrr en ég þorði að vona. Það er undarlegt hvernig maður tekur dauðann í sátt ef manni finnst að stundin sé runnin upp. Ég var því ekkert óviðbúinn dauða mínum. Ég verð hinsvegar að segja eins og er að mér fannst það mjög til- komumikið að vera þarna í þessum hildarleik, því þrátt fyrir tæpa stöðu þá var þetta hrikalega stór- kostlegt, landslagið þarna, kraft- urinn í sjónum og það hvað maður var í rauninni einskis megnugur í þessum faðmlögum. Mér fannst satt að segja að það væri ekki hægt að finna betri stað til að deyja á, ef það átti að vera uppi á ..x jr „I sjöunda himni þegar ég hafði fundið unga manninn“ „ÉG VAR í sjöunda himni þegar ég hafði fundið unga manninn út af Vík, því aðstæðurnar voni væg- ast sagt ekki árennilegar fyrir mann á sundi,“ sagði Reynir Ragnarsson, flugmaður í Vík, en hann fann Björn Guðmund úr flugvél sinni, TF-FAR, en flugvél hans er eina fhigvélin á stóru landsvæði og er mikilvægt öryggis- og sjúkraflugstæki. Telja kunnugir sem Morgunblaðið talaði við að staðsetning flugvélar Reynis kunni að hafa ráðið úrslitum um björgun mannsins. „Það var ákveðið í Björgun- arsveitarskýlinu í Vík að ég færi í loftið til leitar og að beðið yrði átekta með að sjósetja bát,“ sagði Reynir. „Ég ætlaði siðan að leiöbeina björgunarsveitar- Morgu n bl aðið/ Þor kel 1 Bjöm Guðmundur kveður Jóhann Guðjónsson skipstjóra á Danska- Pétri, en Björn Guðmundur kvaddi hann með orðunum: „Sjá- umst á sama stað og sömu stund að ári.“ mönnum úr lofti ef ég fyndi eitthvað. Það var nokkuð mikið brim við ströndina, meira en við erum vanir að fara út í. Það var vogun eins og það var og hörku- brim vestan við fjallið. Liklega hefur það bjargað Birni Guð- mundi að synda út úr briminu við ströndina og reyna ekki aftur landtöku. Ég hringsólaði fyrst við fjallið og sá að í fjörunni voru þau með band að klöngrast { klettunum og hélt að þau væru búin að finna hann, en svo stækkaði ég hringinn og fann hann loksins, veifaði vængjun- um og hann veifaði á móti. Hann var þá um 1 km frá bátnum en þetta var skömmu áður en fór að bregða birtu.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.