Morgunblaðið - 17.09.1985, Page 60

Morgunblaðið - 17.09.1985, Page 60
KEILUSALUWINN OPINN 1000-00.30 *fgunÞ(ftfrtfe fE EITT KDRT AliS SIAÐÉR ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR. Raufarhöfn: Verulegt smygl finnst í skipi LÖGREGLAN á Raufarhöfn fann í gærmorgun tölverðan smyglvarning um borð í flutningaskipinu Val, sem var að koma til landsins frá Hollandi og Frakklandi. Lögreglan á Húsavík var kölluð til hjálpar við leitina og fundust samtals 31 kassi af áfengi, eða 372 flöskur, þrjú myndbandstæki og 12 kassar af bjór. Fimm af sjö skipverjum Vals hafa játað á sig smyglið. Meginhluti smyglvarningsins fannst í gámi í lestinni og á felu- stað uppi á stýrishúsi. Að sögn Kristins ólafssonar tollgæslu- stjóra er verðmæti varningsins metið á um hálfa milljón króna. Banaslys f Fljótunum: 41 árs gamall maður beið bana í bflveltu BANASLYS varð í Fljótunum í Skagafjarðarsýslu kl. tvö aðfaranótt sunnudagsins sl., þegar 41 árs gamall maður, Olafur Björnsson frá Siglu- firði, missti bfl sinn út af veginum skammt frá afleggjaranum að bæn- um Hrauni. Bfllinn valt þrjár veltur niður 15 metra slakka og hafnaði í stórgrýti. Er talið að Ólafur hafi lát- ist samstundis. Skyggni var mjög slæmt þegar slysið varð, myrkur mikið, þoka og súld. Er álitið að Ólafur hafi misst sjónar á veginum. Engin vitni urðu að slysinu, en fólk sem statt var í grenndinni heyrði háv- aðann sem af þvi hlaust og hljóp strax á vettvang og gerði lögreglu viðvart. Bifreiðin er gömul af gerð- inni Willys Jeepster, með blæju- þaki. ólafur heitinn var mat- sveinn, en starfaði aðallega hjá _ Síldarverksmiðju rikisins á Siglu- firði. Hann lætur eftir sig konu og fjögur börn. ÖxnadalsheiÖi: Átján ára stúlka beið bana í umferðarslysi ÁTJÁN ára gömul stúlka beið bana í umferðarslysi á Öxnadalsheiði skömmu fyrir hádegi á laugardags- morguninn. Hún hét Eygló Vil- hjálmsdóttir frá Sflalæk í Aðaldal. Stúlkan ók bifreið sem valt skammt við Grjótá nærri slysavarnarskýlinu Sesseljubúð. Þrír farþegar voru f bflnum og sluppu tveir ómeiddir, en einn hlaut minni háttar meiðsl. Bifreiðin, af gerðinni Lada, var á leið vestur yfir heiðina. Allkröpp hægri beygja er á veginum þar sem slysið varð, og að sögn lögreglunn- ar virðist stúkan hafa lent í lausa- möl og missti stjórn á bifreiðinni. Bifreiðin mun hafa farið nokkrar veltur áður en hún stöðvaðist á hjólunum. Hún er talin ónýt. Eygló heitin fæddist. 24. október 1966. Talið er að hún hafi látist samstundis. „Þetta Morgunblaðið/Bjarni var tóm ævintýramennska." Sigurður Ægir Birgisson í rúmi sínu á skurðdeild Landakotsspítala. „Hjálmlaus hefði ég aldrei sloppið lifandi“ Rætt við Sigurð Ægi Birgisson sem hrapaði 10 metra niður þverhníptan jökulvegg „Þetta var tóm ævintýramennska, ég var búinn að síga niður jökulvegg- inn, mér datt bara í hug að ég gæti klifrað upp aftur. Það endaði svona.“ Þetta sagði Sigurður Ægir Birgisson í samtali við Morgunblaðið, en um helgina varð hann fyrir því óhappi að hrapa eina tíu metra niður eftir jökulvegg. Sigurður Ægir var ásamt fé- lögum sinum í ungliðasveitinni Brandi, sem er deild í Björgunar- sveitinni á Hornafirði, á æfingu á Fláajökli. Fláajökulí er tunga úr Vatnajökli milli Heinabergs- fjalla og Fláafjalls. „Við vorum sem sagt að æfa sig niður jökulvegg. Ég var með tvær ísaxir í höndunum og brodda á skónum, en þannig verður maður að vera útbúinn ef maður ætlar að klifra upp þverhnípt svell. Ég var kominn alveg að brúninni þegar brotnaði frá annarri ísöxinni svo ég hnykktist til og missti þá takið á hinni. Ég var bundinn við hana og þessvegna kipptist ég úr axl- arliðnum og handleggsbrotnaði þegar spottinn tók í. Svo hrapaði ég sem leið lá niður á jafnsléttu og lenti þar á báðum fótum. Þá slitnuðu liðbönd í fótunum og ég ökklabrotnaði. Eiginlega var ég nú samt hepp- inn, því ég slóst illilega utan í vegginn og hefði ég ekki verið með hjálm á höfðinu, hefði ég aldrei sloppið lifandi. Við höfðum verið nokkuð fyrir- hyggjulitlir áður en við lögðum af stað og höfðum engar sjúkra- börur með okkur. Það þurfti því að búa til börur úr tveim brodd- stöfum þegar búið var að hífa mig upp aftur og dröslast þannig með mig niður af jöklinum. Ekki tók betra við þegar þaðan var komið, því bíllinn festist. Það vildi okkur til happs að bóndi úr nágrenninu var staddur þarna og gat ekið á næsta bæ til að hringja á sjúkrabíl. En það liðu tæplega fimm klukkutímar frá því að slysið varð þangað til ég var kominn á heilsugæslustöðina á Höfn. Eftir það leið ekki á löngu þar til ég var kominn á Borgarspítalann." „Nei, alls ekki,“ svarar Sigurð- ur Ægir, aðspurður um hvort þetta hefði ekki verið óskaplega sárt. „Ég var allur dofinn og gat ekkert hreyft mig, ég hef ekki orðið var við nokkurn sársauka hingað til.“ Þegar Sigurður Ægir er spurð- ur hvað hann búist við að þurfa að liggja lengi segist hann ekki vita það nákvæmlega, fyrst þurfi bólgan í fótunum að hjaðna, svo hægt sé að gera aðgerð og sauma saman liðböndin. „Maður verður víst að sætta sig við að vera talsvert lengi í lamasessi, það er bara refsing fyrir glannaskap- inn,“ segir hann að lokum og glottir við tönn. Synti út brim- garðinn til að bjarga sér BJÖRN Guðmundur Markússon, tuttugu og tveggja ára Garöbæingur, var hætt kominn við Keynisdranga undan Vík í Mýrdal sl. sunnudag þegar sjórinn hreif hann með sér frá landi. Björn Guðmundur var i blautbúning, en hettulaus og berhentur. Hann var hætt kominn þegar brimskaflar þeyttu honum í fjöruna, komst ekki á þurrt og greip þá til þess ráðs að synda frá landi, en mikið brim var og þungur sjór. Félagar hans sem voru með honum í fjðr- unni kölluðu á hjálp og Reynir Ragnarsson frá Vík fann Björn Guðmund úr flugvél um einn og hálfan kílómetra austan við fjöruna þar sem hann fór út í sjóinn og um tvo kllómetra frá landi. Björn Guðmund hafði borið með urðum og klettum en hafði sloppið út á djúpið þar sem hann fannst skömmu áður en birtu fór að bregða. Danski-Pétur frá Vestmannaeyjum bjargaði honum um borð og sigldi með hann til Vestmannaeyja. Sjá viðtal við Björn Guðmund í grein um slysið á bls. 58 og 59. Morgunblaðið/ Vilborg Einarsdóttir Þessi mynd var tekin af Bimi Guðmundi skríðandi á maganum f flæðarmálinu skömmu áður en straumurinn hreif hann með sér, en þá varð sakleysisleg myndataka að ógnvekjandi atburði. Víkingur sviptur Norður- landameistaratitlinum? Neitaði að fara í lyfjapróf VÍKINGUR Traustason kraftlyft ingamaður, sem varð Norðurlanda- meistari í sínum flokki um helgina í Þrándheimi í Noregi, á það á hættu að verða sviptur titlinum þar sem hann neitaði að fara í lyfjapróf að keppni lokinni. Þá gæti hann átt yfir höfði sér keppnisbann á Norður- löndum. Víkingur keppti á mótinu ásamt Kára Elíssyni. Kári varö einnig Norðurlandameistari og fór í lyfjapróf. Víkingur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að móts- haldarar hefðu komið mjög ílla fram við Kára. „Þeir dæmdu af okkur fullt af lyftum sem áttu að vera gildar, breyttu tímasetningu mótsins þannig að það munaði að- eins fimm mínútum að ég missti af mótinu," sagði hann. Sjá nánar Bl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.