Morgunblaðið - 26.10.1985, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 26. OKTÓBER1985
Eigið fé í sjávarútvegi
hefur rýrnað um and-
virði 30 skuttogara
í landinu hefur um langt árabil
ríkt stórfelld óstjórn í efnahagsmál-
um. Frá árslokum 1980 hefur eigið
fé í sjávarútvegi rýrnað svo milljörð-
um skiptir, jafnvel er talið að það
geti samsvarað andvirði 30 skuttog-
ara, segir í ályktun aðalfundar sam-
bands fiskvinnslustöðvanna 1985,
sem haldinn var í gær, en fundinum
var frestað þar til málin skýrast betur
um afkomu greinarinnar.
„Það er á vitorði allra að starfs-
greinin sé rekin með stórkostleg-
um halla og að ríkisstjórnin vinni
að lausn þeirra mála. Því felur
fundurinn stjórninni að fylgjast
grannt með, boða til fundar með
stjórn og varastjórn og taka þá
ákvörðun um boðun framhalds-
fundar."
1 ályktuninni segir ennfremur
að það sé lífsnauðsyn að tryggja
skilyrði til jákvæðs rekstrar nú
þegar. Sjávarútvegurinn verður að
hagnast verulega á næstu árum
ef einhver von á að vera til þess
að lífskjör hérlendis verði sam-
bærileg og í nágrannalöndunum.
Láta verður skilyrðislaust af
skuldasöfnun erlendis. Sjávarút-
vegur á Islandi neitar að standa
lengur undir erlendum lánum
stjórnvalda. Koma verður í veg
fyrir að hið opinbera og aðrar
atvinnugreinar geti í krafti er-
lends lánsfjár yfirboðið útflutn-
ingsgreinarnar á vinnumarkaðn-
um.
Það er frumskilyrði að gengis-
skráning íslensku krónunnar og
stjórn peninga- og lánsfjármála
miðist við að útflutningsgreinarn-
ar standi undir gjaldeyriseyðslu
þjóðarinnar.
Að undanförnu hefur farið fram
mikil umræða meðal forráða-
manna fiskvinnslunnar um hags-
munamál greinarinnar. Markmið-
ið með þessum umræðum og að-
gerðum í kjölfar þeirra er að efla
sjávarútveginn svo að hann geti
áfram gegnt sínu mikilvæga hlut-
verki í atvinnulífi landsmanna.
Forráðamenn fiskvinnslufyrir-
tækja eru staðráðnir í að snúa við
þeirri þróun, sem er að koma sjáv-
arútveginum á vonarvöl. Stjórn-
málamenn allra flokka hafa
keppst við allt árið að lýsa yfir
skilningi á alvarlegri stöðu sjávar-
útvegsins. Á þessum haustmánuð-
um kemur í ljós hver hugur fylgir
máli, segir í frétt aðalfundar
sambands fiskvinnslustöðvanna.
Sjá ræðu formanns Sambands
fískvinnshLStöðvanna á bls. 14 og 15.
Þörungayinnslan Reykhólum:
„Tilboð Svía peninga-
lega hagstæðast'
u
„ÞAÐ ER komin staðfesting á
bankaábyrgð frá Svíunum, varð-
andi tilboð þeirra í Þörungavinnsl-
Trillukarl
í vanda
MIKIÐ norð-vestan hvassviðri gekk
yfír Húsavík og nágrenni á fímmtu-
dagsmorguninn og þurfti Björgunar-
sveitin Garðar að aðstoða sjómann á
4 tonna trillu sem lenti í vandræðum
vegna veðurofsans.
Að sögn Hauks Logasonar stjórn-
armanns í Björgunarsveitinni Garð-
ari fór maðurinn út klukkan hálf
fimm um morguninn í nokkuð góðu
veðri. Hélt hann norður fyrir Tjör-
nes og út undir Mánáreyjar. Þegar
veðrið skall á komst hann ekki til
baka og varð að leita vars á Breiðu-
vík.
Lögreglan fylgdist með bátnum
allan tíman og þegar bregða tók
birtu um klukkan fjögur fóru þrír
björgunarsveitarmenn og sóttu
manninn á gúmmbáti.
una á Reykhólum," sagði Albert
Guðmundsson iðnaðarráðherra í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Það er ekkert boð í verksmiðj-
una, sem er hagstæðara peninga-
lega, en tilboð Svíanna, en það er
þó ekki þar með sagt að tilboði
þeirra verði endilega tekið. Það
veltur á því hvort ákvörðun verður
tekin um að einhverjir taki við
verksmiðjunni án samkeppni við
aðra eða ekki,“ sagði Albert.
Albert sagði að Svíarnir væru
reiðubúnir til þess að hafa
heimamenn með í rekstri verk-
smiðjunnar, að einhverju marki.
Það hefði komið fram í bréfi
frá þeim, en heimamenn yrðu
þá að kaupa af Svíunum ákveð-
inn hlut í verksmiðjunni.
Albert sagði að ákvörðun í
þessu máli yrði tekin innan
skamms og sagðist hann reikna
með að ræða þetta mál í ríkis-
stjórninni þegar hún yrði full-
skipuð á nýjan leik.
Málinu
er lokið
— segir Matthías Bjarna-
son samgöngurádherra
„FORSETI (slands óskaði eftir því
í morgun, að ég kæmi til hennar til
viðræðna og ég fór á hennar fund,
þar sem við ræddum þann ágreining
sem upp kom í gær,“ sagði Matthías
Bjarnason, samgönguráðherra í
samtali við Morgunblaðið í gær, „og
niðurstaðan af þeim viðræðum varð
sú að það er ákveðið af beggja hálfu
að þessu máli sé lokið og samstarf
verði hér eftir með eðlilegum hætti.“
„Við áttum mjög gagnlegan og
vinsamlegan fund, sem ég tel hafa
verið til góðs,“ sagði Matthías, „og
ég sé enga ástæðu til þess að ráð-
herrar séu í einhverri ósátt við
sinn þjóðhöfðingja. Mér finnst
vera nóg um deilur í okkar þjóð-
félagi, þó að slíkt sé ekki fyrir
hendi, og ég þori að fullyrða að
ósætti er ekki fyrir hendi hjá
okkur, á hvorugan veginn.“
Siglufjörður:
Morgunblaðið/Júlíus
Frá árekstrinum á mótum Kringhimýrarbrautar og Borgartúns.
Fjöldi árekstra í gær
ÁREKSTUR varð á mótum
Kringlumýrarbrautar og Borgar-
túns um klukkan eitt aðfaranótt
fostudagsins. Strætisvagn og fólks-
bifreið rákust saman. Ökumaður
fólksbifreiðarinnar var fluttur á
slysadeild. Hann slasaðist á hné
og gekkst undir aðgerð í gær.
Harður árekstur var milli
þriggja bíla á Smiðjuvegi í gær.
Ökumaður og farþegi I einum
bílnum voru fluttir á slysadeild
Borgarspítalans. Samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblaðið
fékk í gærkvöld slösuðust þeir
báðir alvarlega. Þeir eru ekki
taldir í lífshættu.
í gærkvöld var bifreið ekið á
ljósastaur í Skipholti. Bifreiðin
skemmdist mikið, en ökumanni
hennar tókst þó að aka um 400
metra spöl eftir áreksturinn. Þá
tóku hann og farþeginn á rás og
ætluðu að yfirgefa staðinn, eíi
lögreglan náði þeim fljótlega.
Grunur leikur á að ökumaðurinn
hafi verið ölvaður.
Mitsubishi-bifreidin sem ekið var á staur við Skipholt í gær.
Neyðarástand skap-
ast vegna vatnavaxta
Siglufirði, 25. október.
GÍFURLEG úrkoma er á Siglufírði
og er neyðarástand að skapast í
bænum vegna vatnavaxta. Hvann-
eyraráin og Bæjarlækurinn flæða
yfír bakka sína og fíætt hefur inn í
25—30 hús. Auk þess er fjöldi fyrir-
tækja umlukinn vatni. Mest er flóðið
í norðurbænum og miðbænum.
Björgunarsveitin er á ferðinni í
bænum og fólk hefur reynt að
Miðstjómarmaður í SUF boðar vantraust á Jón Helgason:
Alltaf einhverjir óánægðir með
ákvörðun og störf ráðherra*
99
u
- segir Jón Helgason dómsmálaráðherra
TILLAGA um vantraust á Jón Helgason landbúnaðar- og dómsmálaráð-
herra verður lögð fram á midstjórnarfundi Sambands ungra framsóknar-
manna, sem haldinn verður á Blönduósi í byrjun næsta mánaðar, að því
er NT hefur í gær eftir Valdimar Guðmundssyni, bónda í Bakkakoti.
Hann hyggst leggja fram tillög-
una til að lýsa vanþóknun sinni á
vinnubrögðum ráðherrans á „bak
við þetta framleiðslulagafrum-
varp I vor, sem lagt var fram án
þess að umtalsvert samráð væri
haft við bændasamtökin. Nú eru
un'gir bændur mjög uggandi um
sinn hag og þeir sjá ekki annað
en að hreint og skipulega sé verið
að ganga af þeim dauðum,“ segir
Valdimar.
Jón Helgason sagðist f samtali
við blaðamann Morgunblaðsins
ekki átta sig alveg á hvað vekti
fyrir Valdimar f Bakkakoti, þvf
að „með setningu framleiðsluráðs-
laganna var verið að verða við
ftrekuðum óskum Stéttarsam-
bands bænda“, sagði hann. Jón
sagði að þótt hann hefði frekar
óskað eftir stuðningi yið það, sem
hann teldi sig hafa verið að gera
rétt, þáhlytu alltaf að vera skiptar
skoðanir og að ekki væri hægt að
gera ráð /yrir að allir væru sam-
mála. „Það er varla óeðlilegt þótt
það verði skiptar skoðanir í
stjórnmálaflokki - ég held að það
gerist daglega að menn séu ósáttir
við einhverja ákvörðun ráðherra
eða störf hans,“ sagði Jón Helga-
son.
Valdimar hefur einnig nefnt til
að störf Jóns sem dómsmálaráð-
herra, einkum varðandi áfengis-
mál, orkuðu mjög tvímælis. Ráð-
herrann kvaðst enn ekki skilja vel
hvað Valdimar væri að fara, hvort
hann teldi sig hafa veitt of mörg
áfengisleyfi eöa of fá. „Fyrr á
þessu ári veitti ég áfengisleyfí f
Austur-Húnavatnssýslu," sagði
Jón. „Það er kannski það, sem
Valdimar er á móti. Ég hef í þess-
um efnum reynt að taka tillit til
óska Sambands íslenskra sveitar-
félaga, sem sendi frá sér yfirlýs-
ingu af ráðstefnu f maf um að of
mikið væri veitt af áfengisleyfum.
Ég vildi gjarnan ræða þetta mál-
efnalega við Valdimar og aðra og
væntanlega hitti ég hann fyrr en
seinna," sagði ráðherra.
— En hvað gerist ef miðstjórn-
arfundur SUF samþykkir van-
trauststillögu Valdimars í Bakka-
koti?
„Þingflokkur Framsóknar-
flokksins valdi mig til að gegna
þessu starfi og það er þingflokks-
ins að taka ákvörðun um hvenær
églæt af því,“ sagði Jón Helgason.
bjarga því sem bjargað verður með
því að opna niðurföll, ausa vatni út
og bjarga innanstokksmunum.
Tjón er þegar orðið nokkurt og
lítur út fyrir stórtjón ef ekkert
verður að gert.
Farþegar með Arnarflugsvél
komust ekki til Sauðárkróks og
þurftu að gista í Miðgarði.
Þá féll 5—6 metra há aurskriða
á veginn við Sauðanes. Veghefill
var á veginum og náði skriðan upp
að gluggum hefilsins. ökumannin-
um tókst að losa hann og komast
að Sauðanesi.
Þrátt fyrir mikla úrkomu er
hlýtt og gott veður.
Vegaskemmdir
á Norðurlandi
MIKLAR vegaskemmdir urðu víða á
Norðurlandi í gær vegna mikillar
úrkomu og vatnavaxta.
Sex bæir í Svarfaðardal urðu
vegasambandslausir, þegar grófst
frá brúm yfir Svarfaðardalsá og
Sandá. Skriða féll á Vatnsdalsveg
við Másstaði í Vatnsdal og lokaði
honum. Búið var að gera við veginn
í gærkvöldi. Skriður féllu einnig á
Lágheiði og er hún nú ófær. Þá
féllu aurskriður á Siglufjarðarveg,
bæði við Strákagöng jg f Mánár-
skriðum. Þrátt fyrir'-það var hægt
að aka um veginn þar sem þessar
skriður voru ekki mjög stórar.