Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 15

Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER1985 fellinga og Vestfirðinga um mjög lélega afkomu í saltfiskverkun eigi við rök að styðjast. Stærðarmunur saltfisks gefur 10% verðmun og gefa gæðin það sama. 3. Rafmagnsverð til fiskvinnslu Fyrir liggur úttekt á rafmagns- verðsmálum sem unnin hefur ver- ið í samvinnu við Samband ísl. rafveitna. Komið er sæmilegt yfir- SUerð 10/30 G«ði nr. 1 SUerð of ga 1. Sudurland 90,1% 14,9% 105,0 2. Reykjanes 04,6% 31,6% 96,2 3. Nordurland 38,1% 54,4% 92,5% 4. Sudvesturland 55,6 21,7 77,2 5. VeHtfirðir 23,7% 44,3% 68,0 6. SnjpfellsneH 35,9% 30,1% 66,0% 7. Aunturland 44,9% 18,4% 63,3% Þessi tafla sýnir okkur að nauð- synlegt er að hafa áhrif á stærð- ina með stærri netamöskvum. Varðandi gæðin ættum við að taka Norðlendinga okkur til fyrir- myndar. Með lagfæringu innan- frá, þ.e.a.s. lagfæringu okkar sjálfra, má ná verulegum árangri, enda skylda okkar að sinna stöð- ugt slíkum málum. Mun ég nú víkja nánar að yfir- skrift þessa aðalfundar, sem er frekari stefnumörkun í málefnum fiskvinnslunnar. Eins og ég hef vikið að hér að framan var unnin veruleg vinna varðandi tillögugerð og stefnumörkun í málefnum fisk- vinnslunnar, í sumar þó sérstak- lega í þeim málefnum er varða rekstrarskilyrði fiskvinnslunnar og snúa því frekar að stjórnvöld- um en okkur sjálfum. Á þessum aðalfundi hefur verið ákveðið að koma á laggirnar fjór- um hópum er skuli vinna á fundin- um að eftirfarandi verkefnum: Rekstrarskilyrði fiskvinnslunnar, innra skipulag sjávarútvegsins, fiskveiðistefnan 1986—1988 og staða og hlutverk hagsmunasam- taka. Þegar fjallað er um rekstrar- skilyrði fiskvinnslunnar verður að taka tillit og afstöðu til eftirfar- andi atriða. 1. Almenn efnahagsstjórn Taka verður fyrir gengisskrán- inguna og peningamálastjórnina. Setja verður innstreymi af er- lendu lánsfé í samhengi við geng- isskráninguna og samkeppnis- stöðu fiskvinnslunnar á vinnu- markaðnum. Ákveða verður hvort vilji sé fyrir því að taka upp bar- áttu fyrir markaðsskráningu á gengi, eða hvort menn vilja að stjórnvöld skrái gengið áfram og þá hvernig. 2. Fjármögnun fiskvinnslunnar Fjalla þarf um afurðalánakerf- ið. Taka verður afstöðu til vaxta, bankakostnaðar, uppruna fjár- magnsins o.fl. Huga verður að því hvort leggja eigi til að erlendir bankar geti farið beint í afurða- lánaviðskiptin. Fjalla verður um fjárfestinga- lán og þátt Fiskveiðasjóðs og Byggðasjóðs. Hugmyndir um leigukaupsamninga hafa nýlega komið inn í þessa umræðu og taka verður afstöðu til þess hvort leggja eigi eitthvað ákveðið til um það mál. lit yfir þessi mál og því grundvöll- ur fyrir tillögugerð. 4. Viröisaukaskattur Nú hafa komið fram yfirlýs- ingar um að virðisaukaskattur verði tekinn upp líklega ekki síðar en í ársbyrjun 1987. Taka verður afstöðu til málsins, en nú er sjáv- arútvegnum endurgreiddur upp- safnaður söluskattur I formi framlags til Aflatryggingasjóðs. Er slíkt fyrirkomulag æskilegt eða er virðisaukaskatturinn betri? 5. Málefni fiskvinnslufólks Mikil umræða fór fram í vor og sumar um atvinnuöryggi fisk- vinnslufólks og fyrirkomulag at- vinnuleysistrygginga. Taka verður afstöðu til þess hvort leggja eigi til breytingar á þessu fyrirkomu- lagi. Þá hefur verið mikið rætt um menntunarmál fiskvinnslufólks og afstaða til þeirra mála verður að koma fram. Á tímabili var mikið rætt um skattfrádrátt fyrir fiskvinnslu- fólk. Taka verður afstöðu til þessa máls og með hvaða hætti það ætti að útfærast. 6. Hringormavandinn Fyrr í sumar var mikið rætt um hringormavandann. En nú þyrfti að setja fram skýrar tillögur um aðgerðir gegn þessum vágesti. 7. Nýsköpun Nýsköpunartalið virðist eitt- hvað vera að fjara út. en fá þarf fram hvort einhverjar ákveðnar hugmyndir eru um þessi mál. Varðandi innra skipulag sjávar- útvegsins þarf eftirfarandi að koma fram: 1. Verðlagning sjávarafia Setja þarf niður ákveðna stefnu í þessu máli. í sumar komu upp hugmyndir í þá átt að losa meira um fiskverðsákvarðanir en verið hefur. Þær hugmyndir hafa þó ekki leitt til neinna breytinga á verðlagningu afurða. Gera þarf þessar hugmyndir ákveðnari ann- aðhvort af eða á. 2. Samræming veiða og vinnslu Ræða verður hvort einhverjar aðrar leiðir en kvótakerfi, skrap- dagakerfi eða breytt verðlagning geta stuðlað að aukinni samhæf- ingu veiða og vinnslu. 3. Miðlun hráefnis, sérhæfing húsa Hér þarf að ræða á hvaða svæð- um slík miðlun væri framkvæm- anleg og hvaða breytingar þyrftu að verða á samstarfi fyrirtækja til þess að þetta geti gengið upp. 4. Meðferð hráefnis — betri vara Ræða þarf um hvar gæðabónus- inn stendur, hver framtíð hans muni verða, og hvernig nýgerðir bónussamingar koma inn á það mál. Ræða þarf almennt um fyrir- komulag bónusmálanna. Ræða þarf að hve miklu leyti tækni- breytingar og framfarir geta bætt hráefnið. Er tvífrysting t.d. raunhæft fyrirkomulag. 5. Sveigjanlegt vinnufyrirkomulag Ræða þarf hvort einver akkur sé í að semja um vaktavinnufyrir- komulag sérstaklega, eða annars konar sveigjanlegt vinnufyrir- komulag. Er eitthvað borgandi fyrir þetta? Eins kemur til álita að semja um tilflutning á fríum. Þess má geta að dagvistunarmál koma oft upp í umræðum um mál- efni starfsfólks. 6. Frystitogarar Hver eru áhrif frystitogara og munu þeir breyta einhverju umtalsverðu í framtíðinni? 7. Tæknivæðing Sérstaklega þarf að velta því fyrir sér hvort horfur séu á tækni- væðingu þeirra starfa þar sem handavinnan er mest, þ.e. snyrt- ing og pökkun. 8. Fiskmat Hvaða stefnu á að taka í fisk- matsmálum bæði með hliðsjón af verðlagningu og útflutningi. 9. Sjóðakerfi Ræða þarf sjóðakerfið og þær tilfærslur, sem eru fyrir tilverkn- að þess. Er þetta æskilegt eða ætti einhverju að breyta? 10. Áróðursherferð Ætti að leggja til sameiginlega áróðursherferð fyrir sjávarútveg- inn með LÍÚ og starfsfólki? Fiskveiðistefnan 1986 og 1988. Taka þarf afstöðu til frumvarps sjávarútvesgráðherra um fisk- veiðistefnuna svo og þeirra til- lagna er fram hafa komið í mál- inu. Staða og hlutverk hagsmuna- samtaka. Fjalla þarf um stöðu og hlut- verk hagsmunasamtaka miðað við þær aðstæður sem eru í dag. Taka þarf afstöðu til þess hvort heilla- vænlegra sé að einn aðili komi fram fyrir fiskvinnsluna gagnvart stjórnvöldum og velji m.a. þá menn er sitja í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum hins opinbera t.d. í Verðlagsráð, í Verðjöfnun- arsjóð, í Fiskveiðisjóð og annað er áhrif hefur á mótun fiskveiði og fiskvinnslustefnu í landinu. Það skal tekið skýrt fram að hér er ekki átt við breytingu á þeim mönnum er nú hafa valist í þessi störf því að breyting á ákvarðana- töku þarf ekki að leiða til breyt- ingar á vali á mönnum. Góðir fundarmenn. Ég vil láta i ljós von um árangursríkan og góð- an aðalfund og að hann megi verða til þess að efla samtök okkar í framtíðinni. Húsinu lyft i fiutningatæki {Njarðvíkum, en þaðan var húsið fiutt út í Hafnir. Hafnir: Björgunarsveitinni Eldey gefið húsnæði Björgunarsveitinni Eldey í Höfn- um hefur verið gefið níutíu fermetra hús undir starfsemi sveitarinnar. Það var Valgeirsbakarí í Njarðvíkum sem gaf sveitinni húsið en áður fór starf- semi bakarísins fram í húsinu. Húsið hefur verið flutt í Hafnir og sett þar á sökkul. Jón Borgarsson sagði í samtali við Morgunblaðið að mikil ánægja væri með þessa rausnarlegu gjöf og allt það sem tilheyrði. Sagðist hann undrandi á fyrirgreiðslunni sem hefði fengist, þar sem hlutir gerðust fyrir nánast ekki neitt. Vinna og efni sem hefur þurft hefur meira og minna verið gefin. í Höfnum eru málefni björgun- arsveitarinnar mikið áhugamál allra íbúanna, sem eru meira og minna viðriðnir starf sveitarinnar, sem er liðlega fimmtíu ára gömul. í gegnum tíðina hefur sveitin oft verið kölluð út og bjargað mörgum mönnum. í eigu sveitarinnar er einn fyrsti björgunarbíll á fslandi sem var keyptur af Varnarliðinu. Þessi gamla björgunarbifreið verður höfð í nýja húsinu. E.G. Leiðrétting f MYNDATEXTA í Morgunblað- inu í gær misritaðist föðurnafn Arnar Bjarnasonar, forstjóra Hollustuverndar ríkisins. Morgun- blaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Forseti Sam- einaðs Al- þingis stíg- ur í stólinn Á MORGUN, sunnudaginn 27. október, er þakkargjörðardagur kirkjunnar. Af því tilefni prédikar forseti sameinaðs Alþingis í Dóm- kirkjunni. Sr. Þórir Stephensen Messan hefst kl. 11 f.h. (Frá Dómkirkjunni) Þorvaldur Garðar Kristjánsson íslenska hljómsveitin Tófilist Jón Ásgeirsson Fyrstu tónleikar vetrarins haldnir í Langholtskirkju fímmtudaginn 24. október ítölsk tónlist frá öndverðri tuttug- ustu öld Stjórnandi: Marc Tardue Einsöngvari: Sigríður Ella Magnúsdóttir Trittico Botticelliano eftir Respighi var fyrst á efniss- kránni en verkið skiptist í þrjá þætti, er bera nöfn frægra mál- verka eftir Botticelli. Fyrsti þátturinn heitir Vorið, annar Tilbeiðsla vitringanna og sá sið- asti Fæðing Venusar. Margt » þessari tónlist minnir á Vivaldi og auk þesð mátti heyra í öðrum þætti stef, er minna á jólasálma, meðal annars einn mjög frægan er ber nafnið Immanuel. Blásar- arnir áttu oft mjög fallegar strófur, Björn Árnason á fagott, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson á klarinett, Ólafur Flosason á óbó og Martial Nardeau á flautu. f heild lék hljómsveitin mjög vel og var auðheyrt að hljómsveitar- stjórinn Marc Tardue var þarna í essinu sínu. Now and then heitir nýtt verk eftir bandarískt tónskáld, Frede- rick Fox, og var verkið sérstak- lega samið fyrir fslensku hljóm- sveitina. Verk þetta er einfalt og skýrt í gerð, býr yfir töluverðri spennu og samfelldri tónhugsun. Hljómsveitin flutti verkið mjög vel og mátti merkja að hljóm- sveitarstjórinn hafði lagt mikla rækt við verkið. Af hljóðfæra- leikurunum, sem allir gerðu mjög vel, var sérlega skemmti- legt að hlýða á leik slagverks- mannsins Árna Áskelssonar, sérstaklega í niðurlagi verksins. Folk Songs eftir Berio, var síð- asta verkið á þessum skemmti- legu tónleikum en einsöngvari var Sigríður Ella Magnúsdóttir. Folk Songs er mjög skemmtilegt verk og sérlega vegna þess hve útfærslulausnir tónskáldsins eru einfaldar en um leið áhrifamikl- ar. f einu lagi notar hann nánast aðeins lágfiðluna, í öðru hörp- una, lágan tón á klarinett eða celló, og þjóðlögin halda ein- kennum sínum en litast samt af nútímalegum vinnubrögðum. Fyrir söngvarann er eitt og ann- að að gerast, er gefur honum tækifæri til breytileika í tón- mótum, leik með hryn og stíl. Sigríður Ella söng lögin vel, ein- kum þó, fyrir undirritaðan, lögin frá Frakklandi, Sikiley, Sardiníu og Azerbaitsjan. Ef þessir tón- Sigríður Ella Magnúsdóttir leikar marka stefnuna í efnisvali fyrir veturinn, er fslenska hljómsveitin i uppsveiflu, því þetta voru, bæði hvað snertir efnisval og flutning, mjög góðir Marc Tardue tónleikar. Hér ber bæði að þakka flytjendum og sérstaklega hljómsveitarstjóranum Marc Tardue, sem sannarlega stýrði liði sínu af kunnáttu og öryggi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.