Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 17

Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 17
Húsavíkur, hann var þá 52 ára. Johann var mikill Þingeyingur, sveitamaður í húð og hár, og mál- svari þeirrar menningar sem hér hefur ríkt, með sterkar rætur meðal frænda og vina frá æsku- dögum. Það var honum þvi mikil hamingja að fá tækifæri til að vinna með þessu fólki sem byggði héraðið og vera aftur kominn heim. Sigríður átti líka upphaflega ræturnar í Laxárdalnum, svo að heimkoman til Húsavíkur var heimkoma þeirra beggja. Þegar Jóhann Skaptason tók við sýslumannsembættinu í Þingeyj- arsýslu flutti hann með sér mikla starfsreynslu sem reglusamur embættismaður úr gamla skólan- um og lagði mikla og nákvæma vinnu í skyldustörfin, og svo tók hann til óspilltra mála að sinna áhugamálum sinum, sem urðu að lokum stór þáttur af ævistarfi hans. Hann kom með fullmótaðar teikningar að stóru og vönduðu íbúðarhúsi og viðbyggingu fyrir embættið, hann kom þessu upp á stuttum tíma og nefndi Tún, stór lóð var umhverfis þar sem nú er mikill trjágróður. Jóhann var merkur náttúru- fræðingur, þeirrar þekkingar afl- aði hann sér með lestri bóka um þau efni, hann bar með sér mikla ást til íslenskrar náttúru, ferðaðist töluvert um landið, safnaði stöðugt steinum, fuglum, ýmsu úr jarð- fræði og þekkti vel til flóru ís- Iands. Af öllu þessu kom hann með allmikið að vestan frá Patreks- firði, og varð það síðar uppistaðan að söfnunum, sem hann stóð fyrir að koma upp á Húsavík. Jóhann Skaptason hafði mikinn áhuga á að efla Þingeyska menn- ingu, og hann var ekki lengi að framkvæma þær hugsjónir sínar. Hann stóð fyrir þeirri merkilegu framkvæmd, sem er bygging Safnahússins á Húsavík. Hann fékk stóra lóð í miðbænum sem rúmar fleiri stórbyggingar, svona var bjartsýni hans, áhugi og reisn. Bygging Safnahússins hófst 1967 og stóð yfir í 12 ár. Jóhann var formaður byggingarnefndar allan tímann, og það er skoðun allra að án hans dugnaðar hefði ekki orðið af þessum framkvæmd- um. Hann fékk til liðs við sig um 170 einstaklinga, sem allir lögðu fé til byggingarinnar, sumir stórfé. Á vígsludegi Safnahússins 24. maí 1980 þegar söfnin voru opnuð almenningi, afhenti Jóhann eign- araðilum, S-Þingeyjarsýslu og Húsavík, Safnahúsið skuldlaust með öllu, en innistæðu á bygging- arreikningi. Þessi saga er eins og ævintýri. Á þessum degi voru þau glöð Jóhann og Sigríður, mikill draum- ur hafði ræst. Þingeyingar fjöl- menntu og þökkuðu þeim af heilum hug, glæsilega forystu um bygg- ingu Safnahússins, sem fyrst og fremst er þeirra verk. Þegar Jóhann skilaði af sér þessum framkvæmdum hafði hann skipulagt í aðalatriðum náttúru- gripasafnið, byggðasafnið og að nokkru leyti skjalasafnið. Bóka- safnið var tekið í notkun fyrr. Þetta stóra verk þeirra sýslu- mannshjónanna, og samstarfs- fólks þeirra er mikill og veglegur minnisvarði, sem setur svip á hér- aðið allt og eflir þingeyska menn- ingu. Jóhann ritaði um þetta leyti Árbók FÍ um S-Þingeyjarsýslu austan Skjálfandafljóts. Árið 1958 stóð hann fyrir að gefa út nýtt tímarit, Árbók Þing- eyinga, ritaði hann upphafsorð og lýsti því að þetta ætti að vera rit sem geymir ýmis menningarmál, atburði og hverskonar söguiegar heimildir sem snerta Suður- og Norður-Þingeyjarsýslur. Þetta rit hefur komið út árlega og er eitt útbreiddasta átthagarit sem gefið er nt á landinu. Sjálfur skrifaði Jóhann töluvert í Árbókina, var lengi tritstjórninni og sá um allar fjárréiður til 1979. Þegar sýslumannshjónin hættn störfum gáfu Þingeyingar þeim fagurt málverk frá æskubyggð Jó- hanns, Dalsmynni. Þar sést Fnjóskáin liðast, silfurtær í hinu fallega umhverfi. Gjöfinni fylgdu MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER1985 17 þakkir fyrir merkileg menningar- störf í þessari byggð. Hjá frændfólkinu i Skarði fékk hann land undir sumarbústað, sem hann byggði og nefndi Skaptahlíð. Þar var hans uppáhalds gróður- reitur, þar kunni hann við sig, í sambýli við skóginn, blómin og fuglana, enda lágu þar hin léttu spor smaladrengsins. Þarna var gott að dvelja í önn dagsins. Ég hefi áður sagt að Jóhann nefndi íbúðarhús þeirra hjóna Tún. Það fór vel á því, hann var ræktunarmaður mikill, vann tölu- vert að skógræktarmálum og kom sér upp stórum trjágarði við íbúð- arhúsið. Grenitrén skarta að sjálf- sögðu fagurgræn, en núna á sið- ustu haustdögunum, þegar laufin eru nær öll að falla af alaskaösp- inni i garðinum þeirra hjóna, féll þessi sterki stofn, Jóhann Skapta- son, hann var allur. Hann skildi eftir sig menningarsögu, sem Þingeyingar gleyma ekki og þakka honum. I fölva haustlitanna leggur hann nú á heiðina i átt til landamær- anna eilífu til móts við móður sína og föður, sem hann unni svo mjög. Við hjónin þökkum Jóhanni Skaptasyni.fyrir vináttu og sam- starf og sendum Sigríði Víðis samúðarkveðjur og óskum henni blessunar í skjóli góðra frænda og vina. Finnur Kristjánsson í dag fer fram útför Jóhanns Skaptasonar frá Husavíkurkirkju, en hann verður til moldar borinn í Laufási. Jóhann Skaptason var sýslumaður í Barðastrandarsýslu 1935—1956 og bæjarfógeti á Húsa- vík og sýslumaður í Þingeyjarsýsl- um 1956-1974. Jóhann Skaptason var fæddur 6. febrúar 1904 í Litlagerði í Grýtu- bakkahreppi. Foreldrar hans voru Skapti Bersason bóndi og Bergljót Sigurðardóttir Guttormssonar alþm. Faðir Jóhanns dó, er hann var á fjórða ári. Var það mikið áfall fyrir móður hans, sem stóð uppi með sex börn og varð að leysa heimili sitt upp og senda sum eldri börnin frá sér, en fluttist til Akur- eyrar í vinnumennsku. Föðurmiss- irinn hafði djúpstæð áhrif á Jó- hann og kom það stundum fram hve honum þótti hann þungbær jafnvel á efri árum. Jóhann braust af þrautseigju til mennta og lauk lögfræðiprófi 1932 og í framhaldi af því fór hann utan til frekara náms i Oxford og við Kaupmanna- hafnarháskóla. Taldi hann þessa námsdvöl hafa verið mjög mikil- væga og þroskandi og það svo að allt framhaldsnám ytra ætti að vega þungt, þegar til emæbættis- veitinga kæmi. Jóhann Skaptason lét allstaðar, þar sem hann starfaði, gott af sér leiða. Þannig átti hann frumkvæði að útgáfu Árbókar Barðstrendinga sem er merkt menningarrit og kemur út einu sinni á ári. Hann beitti sér fyrir stofnun Bókasafns V-Barðastrandarsýslu og Byggða- safns V-Barð. Þá átti hann þátt í stofnun Hraðfrystihúss Patreks- fjarðar og var frumkvöðull skóg- ræktarstarfa i sýslunni. Þegar hann fluttist til Húsavík- ur var það eitt af hans fyrstu verkum að hefjast handa um út- gáfu Árbókar Þingeyinga. Þó mun framtak hans og fórnfýsi við að byggja hið mikla safnahús á Húsa- vík halda nafni hans lengst á lofti. Kynni okkar Jóhanns Skapta- sonar hófust, er það var að ráðast að náfrænka hans yrði kona mín, eiginkona Jóhanns, Sigríður Víðis, var systir tilvonandi tengdamóður minnar. Þau hjónin voru systra- börn og bæði m.a. af Vefaraætt. Þá var það um mánaðarskeið á árinu 1944 að ég var á „lögfræði- námskúrsusi" við sýslumannsem- bættið á Patreksfirði. Jóhann Skaptason var ákaflega siðavandur; t.d. var óvígð sambúð honum þyrnir í augum — taldi eðlilegast ef fólk byggi saman að það gift sig, hitt gæti orðið til vandræða og tjóns, ef á herti. Honum fannst og að hjónaskilnað- ur væri uppgjöf í lífsins skóla. Hann var með afbrigðum sam- viskusamur embættismaður og haldinn þeirri vandvirkni að gat verið um of. Hann var alvörumað- ur að eðlisfari, en átti til glettni, sem naut sín í frábærum tækifær- isræðum. Hann var drengskapar- maður og hugsjónamaður og mat menningu og framtak. Mér er minnisstæð þingaferð, sem ég fór með honum í um Barða- strandarsýslu. Þetta var mikið ferðalag og farið um alla sýsluna á hestum. Vegir voru þá engir að heita má, en Jóhann sýslumaður barðist mjög fyrir vegagerð og átti drjúgan þátt í því að koma sýsl- unni í þjóðvegasamband. Án þess að bera það undir Jóhann sýslu- mann, tók ég með mér viskípela í nesti. Fornvinur Jóhanns, Hákon Kristófersson í Haga, fyrrv. alþm. var meðreiðarmaður okkar og sonur hans Bjarni. Eitt af þeim verkefnum, sem beið Jóhanns var að reyna að leysa landamerkja- deilu. Enda þótt Jóhann sýslumað- ur væri mannasættir í sjálfu sér, þá virtist sáttin ekki ætla að tak- ast. Þá skarst Hákon i Haga í leikinn, en hann hafði líka áfengis- pela í nesti sínu. Peli Hákons og svo síðar minn réðu úrslitum um að þarna tókust sættir um síðsum- arnótt og sú sátt stóð. Jóhann varð þá að viðurkenna að vín væri mannasættir, en hann taldi best að það væri í hófi og neytti þess mjögsjaldan. Með Jóhanni er genginn einn af okkar mætari mönnum, sem unni landi sínu og náttúru og það svo að hann sást ekki fyrir, er hann fór í embættisbúningi fyrir bíla- lest til Akureyrar til þess að reyna að stöðva frekari virkjun Laxár. Þannig varð hann, sem átti að halda uppi röð og reglu í sínu umdæmi, hálfgerður uppreisnar- maður, slíkur var eldmóður hans þegar því var að skipta. Að þessu leyti var hann náskyldur „ekkj- unni við ána“, sem Guðmundur Friðjónsson orti um. Við vorum á öndverðum meiði um þær fram- kvæmdir og ég er enn þeirrar skoðunar, að sú rómantíska draumsýn, sem birtist I ofverndun lands og bygginga, eigi takmarkað- an rétt á sér í dag. Það mun ekki gleymast þeim, sem til þekkja, hve æskuslóðir Jó- hanns voru honum kærar og hve það varð honum mikil upplyfting að verða sýslumaður í fæðingar- sýslu sinni. Hann festi stundum á blað endurminningar og átti Iétt með að yrkja. Bóndinn var alla jafnan snar þáttur i Jóhanni og fékk t.d. útrás í því að hann átti um árabil mórauðar kindur á Patreksfirði, sem þóttu kostagrip- ir. Það sem er þó minnisstæðast við Jóhann Skaptason sýslumann var það hve hann var frábitinn því að vilja trana sér fram eða berast á, allt tildur var honum á móti skapi og hann vildi geta leyst verk sitt af hendi, þannig að ekki yrði hægt að finna að því. Hann var magnað- ur persónuleiki sem sópaði af, þótt hann væri ekki mikill að vallarsýn. Þeir, sem kynntust Jóhanni Skaptasyni hljóta allir að bera virðingu fyrir honum. Barðstrendingar og Þingeyingar standa í þakkarskuld við Jóhann Skaptason fyrir framlag hans til menningar i sýslunum, sem hann þjónaði, raunar þjóðin öll. Fyrir tveimur árum sagði Jó- hann Skaptason við mig, að hann ætti ekki mörg ár eftir ólifuð og þegar að því kæmi, vildi hann fá að deyja án þess að læknar fengju að halda í sér lífinu lengur en eðlilegt væri. Ekki mátti hann hugsa til þess að reynt yrði að treina í honum lífið, eins og nú væri svo algengt á sjúkrahúsum og hann vildi fá að deyja í sínu eigin rúmi. Nokkru seinna ámálgaði ég við hann að það myndi fara best um þau hjónin á elliheimili, en þá var fyrirmyndar elliheimili í smiðum á Húsavík. Ég hef sjaldan séð Jó- hann reiðari en við þessari uppá- stungu minni, samt vissi hann að hún varð gerð i bestu meiningu. Mér skildist seinna að hann mun hafa talið sig berskjaldaðri fyrir því að fá að deyja I friði, eins og hann orðaðí það, ef hann væri á elliheimili. Jóhanni Skaptasyni varð að ósk Sjábls. 44—45. TANNLÆKNIR Hef opnað tannlæknastofu að Síðumúla 25 Tímapantanir í síma 34450 DROPLAUG SVEINBJÖRNSDÓTTIR tannlæknir - OPIÐ LAUGARDAG KL. 10—4 ffV ILJI Bláskógar Ármúla 8. S. 686080 — 686244. Föstudaginn 25. og laugardaginn 26. verður víkingaskipið okkar ( Blómasal drekkhlaðið villibráð. Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt. Við bjóðum upp á: Hreindyr - viHfgæs - önd - rjúpu - sjöfugia - helðalamb - graflax - sllung o.ft. Borðapantanir í sírrra 22322- 22521 HÓTEL LOFTLEIÐIR FLUGLEIDA ^SfHÓTEL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.