Morgunblaðið - 26.10.1985, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 26.10.1985, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER1985 Reykjavíkursögur Ástu: Þetta kom eins og sending Rætt við Helgu Bachmann um leikgerð hennar á fimm smásögum Ástu Sigurðardóttur Á Vesturgötu 3 (Hlaðvarpinn) standa nú yfir sýningar Kjallara- leikhússins á Reykjavíkursögum Ástu — leikgerð Helgu Bachmann á fimm smásögum Ástu Sigurð- ardóttur rithöfundar (1930—1971), sem allar gerast í Reykjavík eftirstríðsáranna. Sög- urnar heita Gata í rigningu, Súp- ermann, Kóngaliljur, í hvaða vagni og Frá sunnudagskvöldi til mánu- dagsmorguns og er að finna í smá- sagnasafni Ástu, sem ber heiti síð- astnefndu sögunnar. Sögurnar birtust fyrst í tímaritum, segir í sýningarskrá og vöktu mikla at- hygli, ekki síst „Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns", sem birt- ist í Llf og list árið 1951. „Ég las þessar sögur jafnóðum og þær komu út. Alveg um leið. Þær voru svo sannar og næmar og vöktu athygli fyrir dirfsku sakir. Ásta hneykslaði fólk stundum með skrifum sínum en tímarnir hafa breyst og nú hneykslist eng- inn lengur," sagði Helga Bach- mann í samtali við Morgunblaöið en auk þess að vera höfundur leik- gerðarinnar er Helga einnig leik- stjóri verksins. „Og mér finnst ennþá meira til þeirra koma í dag vegna þess að það er svo lifandi tilfinning i þeim. í sögunum er engin persóna, sem maður getur ekki fundið til með. Ég kajla leikgerðina Reykjavík- ursögur Ástu af því að ég valdi þær sögur úr smásagnasafninu sem gerast í Reykjavík. Þegar Ásta skrifar um stórborgarlífið dregur hún upp miskunnarlausa mynd en þar er líka mikil fegurð og mann- gæska öðrum þræði, von og trú á mennina. Þótt sögurnar sýni okkur svona eiginlega botninn á mannlegri neyð fáum við um leið — nærri því samstundis — þessa trú á hið góða. Það ásækir mann hvað Ásta leitast við að fyrirgefa eða afsaka þann sem hefur gert henni illt — og þá er ég að tala um konurnar í sögunum, sem margir vilja segja að sé Ásta og halda fram að hún sé að segja frá sjálfri sér. Mér finnst það ekki skipta Guðrún S. Gísladóttir og Helgi Skúlason f hlutverkum sínum í Reykjavíkursögum Astu. máli. Það er fyrst og fremst skáldskapur þessara verka sem ég hreifst af og kom mér til að ráðast í þessa leikgerð. Á fundi þar sem þingað var um Listahátið kvenna ákvað ég að reyna við sögurnar hennar Ástu og flytja leikgerð þeirra í Kjallar- ann á Vesturgötu 3. Núna var rétti tíminn til að gera þetta og margar smáar tilviljanir hjálpuðu til við að koma þessu á legg. Mér fannst VISA þjónusta Greiðslukortaviöskipti Nú geta auglýsendur Morgunblaösins greitt aug- lýsingar sínar meö greiðslukortum VISA og EUROCARD. Auglýsendur geta hringt inn auglýsingar, gefiö upp kortnúmer sitt og verður þá reikningurinn sendur korthafa frá VISA og EUROCARD. Um leiö og þessi þjónusta veröur tekin upp þá munum viö jafnframt veita þeim sem staögreiöa auglýsinqar 5% afslátt. AUglýsingadeild ég hafa meðbyr. Ég hafði hugsað um það áður hvað sögurnar eru í raun myndrænar en ekki þannig að ég hafi gengið með leikgerðina í maganum í mörg ár. Þetta kom eins og sending. Það urðu margir til að hjálpa okkur og það er gaman að nú skuli vera orðið til alvöru Kjallaraleik- hús á fslandi. En ég er alveg sannfærð um að maður á ekki að leikstýra ef mann langar ekki til þess. Leikstjórn er svo óskaplega krefjandi starf og maður verður að muna allan tímann að maður á að gefa en ekki þiggja. Það var gaman að sjá þetta verða til og auðvitað er ábyrgðin helmingi meiri þegar maður er valdur að þessu frá upphafi. En ég var með mjög góðan hóp sem vann vel saman og það er fyrir öllu. Fimm leikarar leika gríðarlega mörg hlutverk en þannig vildi ég hafa það. Mér fannst það tengja sög- urnar að hafa sömu leikarana í öllum sögunum. Mér finnst það hafa tekist. Nú höfum við sýnt 25 sinnum á sléttum mánuði og það er mjög óvenjulegt. Leikrit eru gjarna sýnd tvisvar í viku, kannski þrisvar en helst aldrei fimm sinnum. Leikendur eru: Emil Gunnar Guðmundsson, Guðlaug María Bjarnadóttir, Guðrún S. Gísla- Helga Bachmann leikstjóri. dóttir, Helgi Skúlason og Þor- steinn M. Jónsson. Aðal persón- urnar eru ólíkar en þær eru afskaplega heilsteyptar. Konurnar eru eins og alvöru konur, bæði mjúkar og sterkar og heitar. Og jafnvel í aumustu niðurlægingu sjá þær ljós í fjarska. En Ásta fjallaði ekki bara um konur. Þess vegna eru karlmenn bráðnauð- synlegir til að flytja þessar sögur. Þetta er enginn kvennafasismi. — ai. MorpmblaAUt/Gntlugnr Verðiaunahafarnir: Sigrún Elsa Smáradóttir, Jón Egilsson, Agnes S. Andrés- dóttir, Gísli Einarsson og Kristborg Einarsdóttir. Vestmannaeyjar: Fimm verðlaun veitt í ritgerðasamkeppni VeHtmannaeyjum, 21. október. í TILEFNI árs æskunnar efndi Tóm- stundaráð Vestmannaeyja í sam- vinnu við grunnskólana í bænum til ritgerðasamkeppni meðal skóla- barna. Efni ritgerðanna átti að fjalla um tómstunda- og atvinnumál barna og unglinga og bárust hátt á annað hundrað ritgerðir frá nemendum úr 5.—8. bekk grunnskólanna. Margar góðar ritgerðir bárust frá krökkunum og átti dómnefndin sem um þær fjallaði erfitt val þegar velja þurfti úr þær sem verðlaun skyldu hljóta. Upphaf- lega var ráðgert að veita þrenn verðlaun í ritgerðasamkeppninni, en úr varð að hafa verðlaunin fimm. Krakkarnir sem verðlaunin hlutu heita Sigrún Elsa Smára- dóttir, Agnes Andrésdóttir, Jón Egilsson, Kristborg Einarsdóttir og Gisli Gíslason. Voru þeim af- hent verðlaun sín, árituð bók, við hátíðlega athöfn í Bókasafni Vest- mannaeyja fyrir helgina, í lok bókaviku safnsins. Krakkarnir lásu þá upp ritgerðir sínar fyrir viðstadda. Tómstundaráð hyggst nýta sér í framtíðinni ýmsar þær hugmyndir oé uppástungur sem fram komu í ritgerðum krakkanna. -hkj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.