Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 25

Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER1985 25 Pallborðsumræður um stöðu þjóðarbókhlöðu. Frá vinstri eru Sigmundur Guðbjarnason háskólarektor, Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður, Árni Gunnarsson skrifstofustjóri menntamálaráðuneytis, Guðrún Helgadóttir alþingismaður, Elva Björk Gunnarsdóttir stjórnandi umræðnanna, fundarritari, Einar Sigurðsson háskólabókavörður, Manfreð Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitektar hússins. Yfir þeim má sjá veggteppi er Norðmenn gáfu til Þjóðarbókhlöðunnar og prýöa mun einn vegg hennar er þar að kemur. „Við særum ríkisstjórn og Alþingi við sól og mána... “ Mikil gagnrýni á fjársvelti þjóðarbókhlöðunnar á ráðstefnu Bókavarðafélags íslands Þjóðarbókhlaðan er ekki einasta bráðnauðsynleg til þess að annast varðveislu á bókum, heldur getur hún og skipt sköpum um það hvernig íslendingum lánast að hasla sér völl í hinu svokallaða upplýsingasam- félagi sem nú er óðum að verða til. Það er á hinn bóginn til mesta vansa hvernig landsstjórnin hefur sffellt látið byggingu bókhlöðunnar sitja á hakanum og skorið fé til hennar við nögl, nú síðast með aðeins fimm milljón króna framlagi á síðustu fjár- lögum. Þetta var í stuttu máli niðurstaða ráðstefnu sem Bókavarðafélag ís- lands hélt á laugardaginn var. Ráð- stefnan var haldin í tilefni af 25 ára afmæli Bókavarðafélagsins og fór fram í hátíðarsal Háskóla íslands. Dagskrá ráðstefnunnar var skipt í tvennt. Fyrir kaffihlé voru flutt ávörp og erindi um ýmsar hliðar þjóðarbókhlöðunnar og þeirrar starfsemi sem þar mun fara fram, en eftir hlé voru síðan pallborðsumræður og fyrirspurn- um svarað. Var það mál manna að ráðstefnan hefði verið hin gagn- legasta og þökkuðu flestir þeir sem til máls tóku Bókavarðafélagi ís- lands fyrir frumkvæði þess. Það var Erla Jónsdóttir, formað- ur Bókavarðafélagsins, sem setti ráðstefnuna og rakti hún m.a. gildi bókasafna í menningarsögunni frá upphafi, bæði hér heima og erlend- is. „Hið skráða orð hefur frá alda öðli verið dýrgripur sem menn hafa lagt allt í sölurnar til þess að eignast," sagði Erla. Hún lýsti einnig framsýni og djörfung Hannesar Hafstein, ráðherra, sem upp úr aldamótum hefði beitt sér fyrir því að Safnahúsið var reist á aðeins hálfu þriðja ári. Síðar á ráðstefnunni kom fram að þau ár sem Safnahúsið var í byggingu hefði verið veitt til þess tólfta hluta íslensku fjárlaganna og var ekki laust við að ráðstefnugestum þætti núverandi stjórnvöld vera litlir bókavinir miðað við þann stórhug. Ragnhildur Helgadóttir, fyrrum menntamálaráðherra, átti að flytja ávarp á ráðstefnunni en hún forfallaðist á síðustu stundu. Árni Gunnarsson, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu, flutti kveðju hennar á fundinn og kvað hana ávallt hafa haft mikinn áhuga á byggingu þjóðarbókhlöð- unnar þó fjárveitingar hefðu ekki fengist sem skyldi. Þá sagði Árni að í menntamálaráðuneytinu hefðu menn fullan skilning á því hversu nauðsynleg þjóðarbókhlað- an væri og raunar væri bygging hennar eitt brýnasta verkefnið sem tslendingar stæðu nú frammi fyrir, með fullri virðingu fyrir öðrum viðfangsefnum. „Hrævareldur“ Næstur talaði Gylfi Þ. Gíslason er hann var menntamálaráðherra árið 1957 þegar nefnd, er hann skipaði, lagði til að sameina bæri Landsbókasafn og Háskólabóka- safn. Gylfi rakti afskipti sín af þessu máli og tók fram að sér hefði þótt sérlega vænt um það að einn helsti leiðtogi stjórnarandstöð- unnar, Bjarni Benediktsson, hefði mælt mjög með framgangi málsins og stutt sig dyggilega. Gylfi var Texti: ILLUGI JÖKULSSON svo aftur yfirmaður menntamála árið 1966 þegar önnur nefnd lagði til að söfnin yrðu bæði til húsa í nýrri byggingu í nágrenni háskól- ans. í tali sínu lagði Gylfi áhersiu* á að íslendingar ættu að taka fullan þátt í því tæknisamfélagi sm nú væri að þróast í veröldinni, en án þess að missa sjónar á menningararfleifð sinni. Hann taldi það fjarri öllum sanni að til þess að geta gert sig gildandi í þessu tæknisamfélagi yrðu smá- þjóðir að afsala sér þjóðareinkenn- um sínum en bætti við að til þess að íslendingum auðnaðist að varð- veita menningu sína væri stofnun á borð við þjóðarbókhlöðuna lífs- nauðsyn. Þá tók til máls Finnbogi Guð- mundsson, landsbókavörður, og flutti sögulegt yfirlit um byggingu þjóðarbókhlöðunnar. Ágrip af því yfirliti er að finna annars staðar hér á opnunni en Finnbogi lauk máli sínu á því að fjalla um það mikla fjársvelti sem þjóðarbók- hlaðan væri nú í. Aukafjárveiting upp á 10 milljónir í vor hefði vakið vonir um að úr kynni að rætast en með nýju fjárlögunum hefði komið í ljós að aukafjárveitingin hefði ekki verið annað en „hrævar- eldur“. Nú væri ljóst að með sama áframhaldi entist öldin ekki til þess að ljúka byggingunni. „Við særum ríkisstjórn og Alþingi við^ sól og mána í þessu mikla nauð- synjamáli," sagði Finnbogi Guð- mundsson að lokum, við góðar undirtektir ráðstefnugesta. „Martröð“ Þá steig í pontu Einar Sigurösson, háskólabókavörður. Hann byrjaði á því að fara nokkrum orðum um tvíþætt hlutverk bókasafna, ann- ars vegar varðveislu og hins vegar upplýsingastarfsemi, en fjallaði síðan einkum um vanda Háskóla- bókasafnsins. Hann gat þess að auk hins eiginlega Háskólabóka- safns væri um að ræða 18 sérsöfn við ýmsar deildir víðs vegar um borgina og þó slík sérsöfn hefðu sitt gildi þá ykist mikilvægi svo- Mílljón bindi í nýju þjóðarbókhlöðunni Aðstaöa Landsbókasafnsins og Háskólabókasafns gerbreytist Gerum ráð fyrir aö einhver sérvitr- ingurinn sé svo fróöleiksfús og fluglæs að hann lesi jafnan eina bók á dag og láti sig einu gilda efni hennar og blaðsíöufjölda. Setjum hann svo niður í nýju þjóöarbók- hlööunni, berum daglega á borö fyrir hann nýja bók og bíðum þess að hann hafí lesiö allt safnið upp til agna. Viö þurfum að vísu aö taka svolítið á þolinmæöinni því þetta mun taka hann rétt tæp 2.740 ár. Ef bókaormurinn okkar byrjar lest- urinn í upphafí næsta árs lítur hann varla upp fyrr en áriö 4726. En aö sönnu eru engar líkur á því aö hann geti byrjað á næsta ári; þjóöarbók- hlaðan er enn ekki tilbúin og veröur það varla í náinni framtíö, ef svo fer fram sem horfír. Hugmyndin um þjóðarbókhlöðu er til komin vegna þess að mönnum hefur lengi þótt óhagkvæmt að halda úti bæði Landsbókasafni og Háskólabókasafni, auk þess sem söfnin tvö búa núorðið við aldeilis ófullnægjandi aðstöðu. í lögum um þjóðarbókhlöðu segir: „Safnið skal gegna hlutverki því er Lands- bókasafn og Háskólasafn hafa gegnt hingað til, og skal það haft vel við vöxt, að því er tekur til þjónustu allrar, magns og tegunda bókakostsins." Hlutverk safnanna tveggja eru margþætt, einkum Landsbóka- safnsins. Nefna má að safnið skal annast söfnun og varðveislu ís- lenskra rita og rita er varða ísland og íslensk efni, fornra og nýrra, prentaðra og óprentaðra; veita viðtöku skyldueintökum allra bóka er koma út á landinu, afla erlendra rita í öllum greinum vísinda, bók- mennta, lista, tækni og samtíðar- málefnum, annast rannsóknir í íslenskri bókfræði og gefa út skrár þar að lútandi, og þannig mætti lengi telja. Háskólabókasafnið skal á hinn bóginn sinna jöfnum höndum þörfum kennslu og rann- sóknarstarfsemi i Háskólanum, og sem aðalsafn landsins í fjölmörg- um greinum sinnir það jafnframt að vissu marki þörfum atvinnulífs, stjórnsýslu og rannsókna utan háskólans. Þá hefur Háskólabóka- safn mikil samskipti við útlönd, einkum varðandi lán rita og útveg- un ljósrita. Upplýsingaþjónusta takmörkuð Eins og allir vita sem þurft hafa að sækja þjónustu til þessara safna er þröngt um þau bæði og vinnuaðstaða helst til slæm, bæði fyrir bókaverði og þá sem komnir eru að sækja sér fróðleik. Þetta hefur hamlað mjög starfsemi þeirra: upplýsingaþjónusta er tak- mörkuð og mörg aðkallandi verk- efni bíða úrlausnar, svo sem ljós- myndun íslensku dagblaðanna, efnisskráning blaða og tímarita og svo framvegis. Mikill fjöldi bóka er í geymslu vítt og breitt um Reykjavík, engin fyrirlestra- eða fundarherbergi eru í söfnunum og lestraraðstaða er ekki fyrir nema 60 manns; 45 í Landsbókasafni og 15 í Háskólabókasafni. Allt mun þetta horfa til betri vegar þegar þjóðarbókhlaðan kemst loksins í gagnið. Fyrrnefndu söfnin tvö ráða nú yfir um 2.700 fermetra húsrými, en nýja bók- hlaðan verður yfir 12.000 fermetr- ar svo rými fimmfaldast. 1 bækl- ingi sem Halldóra Þorsteinsdóttir tók saman fyrir ráðstefnu Bóka- varðafélagsins um þjóðarbókhlöð- una er rakið hvað helst vinnst með þj óðarbókhlöðunni: „Húsnæðisþörf tveggja stærstu rannsóknarbókasafna landsins, verður fullnægt í náinni framtíð. Auk þess verður rýmra um Þjóð- skjalasafn" — en gert er ráð fyrir að það fái Safnahúsið eitt til umráða þegar Landsbókasafnið er á brott. Ennfremur: „Ritakostur Há- skólabókasafns og Landsbóka- safns verður Sameinaður að veru- legu leyti og unnt verður að sjá á einum stað hvað tiltækt er í söfn- unum. Opinn aðgangur verður að fjölda rita sem nú eru í lokuðum geymslum beggja safnanna. Enn- fremur fæst hagkvæmari nýting á bókakosti og bókakaupafé. Hægt verður að byggja upp öflugt safn handbóka- og uppslátt- arrita og efla um leið upplýsinga- þjónustu. Vinnuaðstaða starfsfólks stór- batnar og leiðir hún af sér betri nýtingu á tíma þess og starfskröft- um. Þá eykst þjónusta og svigrúm skapast til verkefna sem söfnunum ber að sinna samkvæmt lögum. Safngestum býðst fjölbreytt lestraraðstaða, ýmist í Iesbásum eða við stærri og minni borð, í námunda við þau rit sem nota skal. Fyrirlestrarsalur og sýningar- svæði verður í húsinu. Auk þess verður þægilegt umhverfi til lest- urs blaða og tímarita, og aðstaða til félagslegra samskipta." 800 lessæti Þess má geta að í þjóðarbók- hlöðunni verða lessæti fyrir 800 manns, gagnstætt þeim 60, sem nú eru í söfnunum tveimur. Eins og flestir vita er verið að reisa þjóðarbókhlöðuna við Birki- mel þar sem Melavöllurinn var áður. Húsið er fjórar hæðir auk kjallara og gengið verður inn í það að sunnan á annarri hæð. Á þeirri hæð verða skrár um safnefni, aðfangadeild, flokkunar- og skrán- ingardeild, aðalafgreiðsla útlána, miðstöð lesenda- og stofnanaþjón- ustu, stjórnardeild, sýningar- svæði, fyrirlestrarsalur, kaffistofa og fleira. Á jarðhæð verður þjóðdeild Landsbókasafnsins, handritasal- ur, lestrarsalur, kortasafn, svo- nefnt Benediktssafn og fleiri sér- söfn, bókband, viðgerðir og sitt- hvað fleira. Á þriðju hæð verður svo fjöl- breytt lestraraðstaða, tónlistar- safn, kennslurými og svo fram- vegis. Bókageymslur verða í kjallaran- um. Alls er gert ráð fyrir því að í safninu muni rýmast ein milljón binda; sá fjöldi sem það mun taka fyrstnefndan lestrarhest 2.740 ár að lesa! Arkitektar þjóðarbókhlöðunnar eru þeir Manfreð Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson og var, teikning þeirra samþykkt árið 1977 y af byggingarnefnd sem Finnbogi Guðmundsson, landsbókavörður, stýrir. Árið eftir tók Vilhjálmur Hjálmarsson svo fyrstu skóflu- stunguna og grafinn var grunnur, steyptir sökklar og gólfplata í kjallara. Árið 1979 fór þjóðarbók- hlaðan svo að kenna á sparsemi yfirvalda og engar framkvæmdir voru í grunninum. 1980 var kjallar- inn hins vegar steyptur og 1981 voru hæðirnar fjórar svo steyptar upp að mestu. Þá lagði forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hornstein þjóðarbókhlöðunnar. Skrykkjótar * framkvæmdir Framkvæmdir síðan hafa verið heldur strykkjóttar. Uppsteypunni var lokið 1982 og þá var smíðuð þakgrind, árið eftir var unnið við einangrun og álskildi en 1984 voru alls engar framkvæmdir. í ár var boðinn út áfangi fyrir um 15 millj- ónir króna og hófust framkvæmdir í síðasta mánuði. Miðað við fimm milljóna króna framlag á fjárlög- unum nýju horfir svo ekki vænlega um framtíðina. Alls er talið að 277 milljónir þurfi til að ljúka fram-* kvæmdum og verði ekki gert átak í fjáröflun má búast við að þjóðar- bókhlaðan verði ekki tekin í notk- un fyrr en einhvern tíma eftir aldamót. Og þessa byggingu ætlaði þjóðin að gefa sjálfri sér í afmælisgjöf á 1100 ára afmæli Islandsbyggðar, árið 1974.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.