Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 28
28
MORGUNBLADID, LAUG ARDAGUR 26. OKTÓBER1985
>
*
íslenskur húsbúnaður, Langholtsyegi 111:
Sýningin „Hótel-
húsbúnaður 1986“
opnuð í dag
„Hótelhúsbúnaður 1986“ nefnist
sýning, sem opnuð verður hjá ís-
lenskum húsbúnaði, Langholtsvegi
111, í dag, laugardag. Á sýningunni
verða kynntar ýmsar nýjungar í hús-
búnaði fyrir hótel, samkomuhús, fé-
lagsheimili, skóla, veitingahús, stofn-
anir og fyrirtæki.
í fyrsta sinn á íslandi eru nú
sýnd sérhönnuð húsgögn fyrir hót-
elherbergi. Pétur B. Lúthersson,
húsgagna- og innanhússarkitekt,
hefur hannað hótellínuna og sam-
ræmir hana að þörfum og óskum
hvers kaupanda. Einnig verða
kynnt ný áklæði og gluggatjöld,
gólfteppi í ýmsum litum og gerð-
um, sem einnig er hægt að fá sér-
ofin fyrir hótel, banka eða önnur
fyrirtæki.
Þá gefst tækifæri til að skoða
skrifstofuhúsgögn, barnahúsgögn,
borðstofu- og svefnherbergishús-
gögn, sérhönnuð húsgögn fyrir
sjúkrahús, svo og húsgögn fyrir
ráðstefnu-, mat-, og biðsali ásamt
úrvali íslenskra lampa. íslensk
myndlist mun einnig prýða sýning-
arsalina og mun Gallerí Langbrók
kynna verk eftir félagsmenn.
Sýningin verður opin um helgina
kl. 10.00 til 16.00 og á virkum
dögum kl. 10.00 til 18.00. Sýning-
unni lýkur 30. október. Hótel- og
veitingaskóli íslands býður upp á
veitingar á milli kl. 14.00 og 16.00
ídagogámorgun.
Messað^í ófullgerðri
kirkju Árbæjar
GUÐSÞJÓNUSTTA verður haldin á
morgun, þakkargjörðardag, í fyrsta
sinn í ófullgerðu kirkjuskipi safnað-
arheimilis og kirkju í Arbæjarpresta-
kalli og hefst athöfnin kl. 14.00.
vega nægilegt fjármagn til þess
að ljúka kirkjusmíðinni. Safnaðar-
menn eru hvattir til að koma til
kirkju og styðja kirkjubygginguna.
Nýlistasafnið:
Verkin hafa ákveðnu hlut-
verki að gegna í rýminu
— segir Ingólfur Örn Arnarson myndlistarmaður
SÝNING á verkum Ingóifs Arnar Arnarssonar í_ Nýlistasafninu, sem
staðið hefur undanfarna viku, lýkur um helgina. Á sýningunni eru um
fjörutíu verk, teikningar og skúlptúrar unnið á síðustu tveimur árum.
Ingólfur hefur stundað nám við Myndlista- og handíðaskólann, Myndlista-
skólann í Reykjavík og var í framhaldsnámi við Jan van Eyck Academie
í Hollandi í tvo vetur.
„Verkunum á sýningunni má
skipta í tvo samstæða flokka
myndverka, sem ég brýt upp með
skúlptúr," sagði Ingólfur. „Annar
flokkurinn eru myndir frá heim-
ili mínu. Myndir sem ég hef
teiknað eftir fyrirmyndum, sem
þar er að finna af hlutum sem
hafa fylgt mér frá barnæsku og
hafa á einn eða annan hátt virk-
að sterkt á mig. Ég tek ekki
fyrirmyndirnar beint upp heldur
er ég að leika mér með þær. Það
sama má segja um hinn flokkinn.
í honum eru myndir sem ég
teiknaði af íslensku landslagi úr
fjarlægð þegar ég var staddur í
Róm síðastliðið sumar. í lands-
lagsmyndunum er tilvitnun í ís-
lenska landslagshefð með ákveð-
inni geometriskri uppröðun.
Myndflokkana brýt ég upp með
einföldum skúlptúrnum á gólf-
inu, sem þó tengjast myndröðun-
um. Verkin vísa til hvors annars
og hafa ákveðnu hlutverki að
gegna þar sem þau eru staðsett
í rýminu og gefa sýningunni
heildarsvip."
— Fylgir þú ákveðinni stefnu
í myndlist?
„Nei, ég reyni að fást við
myndlist sem ekki hefur fasta
skilgreiningu en sæki til dæmis
ákveðnar hugmyndir frá mini-
malisma áranna 1960 til 1970. Ég
hreifst einnig af því sem ítalskir
nútímamálarar eru að gera og ég
sá í sumar en þeir byggja myndir
sínar til dæmis á tilvitnun í ít-
alska listmálara frá 17. og 18.
öld.“
— Eruverkþínauðskilin?
„Eg lít svo á að verkin eigi að
gefa áhorfendum tækifæri til að
fylla upp í þar sem við á. List
er eitthvað sem býr með fólki
sem hefur opinn hugann á annað
borð og það þarf ekki að horfa á
nýlist með öðrum augum heldur
en aðra list frá öðrum tíma. I
mínum verkum reyni ég að ná
fram persónulegum áherslum og
síöan er það áhorfandans að fylla
upp í,“ sagði Ingólfur að lokum.
Sýningin í Nýlistasafninu er
sjötta einkasýning Ingólfs hér á
landi en hann hefur auk þess átt
verk á samsýningum hér heima
og í Fodor Museum, Amsterdam,
Franklin Furnance, New York,
Filiale, Basel og Sveaborg, Hels-
ingfors.
I
Ný þingmál:
Orka fallvatns, háhitarétt-
indi og óbyggðir ríkiseign
Úttekt á „svartri atvinnustarfsemi“
FRUMVÖRP
Kirkjukór Árbæiarsóknar syng-
ur og Ingibjörg. I lok guðsþjón-
ustunnar flytur dómprófastur og
vígslubiskup, séra ólafur Skúla-
son, ávarp og Heiðar Hallgríms-
son, formaður kirkjubyggingar-
nefndar, skýrir frá gangi bygging-
arstarfsins. Á undan kirkjuat-
höfninni leikur Lúðrasveit Ár-
bæjar og Breiðholts í anddyri
byggingarinnar. Eftir guðsþjón-
ustuna verður kirkjugestum boðið
upp á kaffi ásamt meðlæti.
I rúm sjö ár hefur safnaðar-
heimili Árbæjarsafnaðar verið í
notkun og bættu úr brýnni þörf.
Það var þó aldrei hugsað öðruvísi
en hluti stærri byggingarheildar.
Því var ráðist í byggingu sjálfrar
kirkjunnar árið 1982 og er hún nú
fokheld. Hún er múrhúðuð að utan
og máluð og er ytra frágangi húss-
ins svo til lokið. Þó er eftir að setja
kross á framhlið kirkjunnar og
standa vonir til að hann komist
uppfyrir jólin.
Stefnt er að því að vígja kirkjuna
seint á næsta ári, á 200 ára afmæli
Reykjavíkurborgar, takist að út-
ALMENNUR stjórnmálafundur
verður í Bergþórshvoli á Dalvík á
morgun, sunnudaginn 27. októ-
ber, kl. 15.00. Þar munu þeir
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra, Halldór Blöndal
alþingismaður og Björn Dag-
bjartsson alþingismaður halda
Meðál frumvarpa, sem lögð hafa
verið fram síðustu daga, eru:
* 1) Frumvarp til laga um land í þjóð-
areign. Flutningsmenn eru Sig-
hvatur Björgvinsson og fleiri þing-
menn Alþýðuflokks. Fyrsta grein
frumvarpsins kveður á um að „þau
landsvæði skulu teljast þjóðareign
sem eignarheimildir einstaklinga
eða annarra lögaðila finnast ekki
að. - Sama máli gegnir um vatns-
ræður og síðan verða umræður og
fyrirspurnir.
Auglýst hafði verið að fundur-
inn ætti að hefjast klukkan 14.00,
en nú hefur því verið breytt og
hefst fundurinn klukkan 15.00
eins og áður sagði.
réttindi, jarðhita, námuréttindi og
önnur réttindi, bundin eignarrétti
lands, sem eignarheimild annarra
en ríkis finnast ekki að“. Tilgangur
frumvarpsins er sagður „að lýsa
óbyggðir íslands þjóðareign".
* 2) Frumvarp til breytina á orkulög-
um. Flutningsmenn eru Kjartan
Jóhannsson o.fl. þingmenn Alþýðu-
flokks. Frumvarpið felur það í sér
að orka sú, sem fólgin er í háhita-
svæðum, sé sameign þjóðarinnar.
Þó skulu sveitarfélög eða samtök
þeirra eða fyrirtæki þeirra, sem
keypt hafa land með háhita og með
nýtingu hans að markmiði, halda
rétti sínum óskertum.
* 3) Frumvarp um orku fallvatna og
nýtingu hennar. Flutingsmenn eru
Hjörleifur Guttormsson o.fl. þing-
menn úr þremur öðrum þingflokk-
um. 1 fyrstu grein frumvarpsins
segir: Orka fallvatna landsins er
eign íslenzka ríkisins, sem eitt
hefur heimild til nýtingar hennar.
Þó skulu óskertar heimildir þeirra,
sem þegar hafa virkjað fallvötn til
orkuframleiðslu. Undanþágur ná
einnig til raforkuframleiðslu allt
að 200 kW.
ÞINGSÁLYKTANIR
* 1 Skipan nefndar til að gera úttekt
á „svartri atvinnustarfsemi“ og tillög-
ur til úrbóta. Flutningsmenn eru
Stefán Guðmundsson og fleiri þing-
menn Framsóknarflokks. Með
svartri atvinnustarfsemi er átt við
rekstur sem „komist hefur hjá að
greiða lögboðin gjöld“. Ríkisstjórn-
in skipi nefndina. Forsætisráðherra
tilnefni formann hennar.
* 2) Úttekt á mismunun gagnvart
konum hérlendis. Flutningsmenn
Hjörleifur Guttormsson (Ábl.) og
Guðrún Helgadóttir (Abl.). Félags-
málaráðuneytið og Jafnréttisráð
vinni úttektina.
* 3) Úrbætur í umhvcrfismálum og
náttúruvernd. Flutningsmenn Hjör-
leifur Guttormsson o.fl. þingmenn
Alþýðubandalags. Tfunduð eru tíu
atriði, sem sérstaklega skal sinna.
Þar á meðal er að yfirstjórn helztu
málaflokka á sviði umhverfisvernd-
ar verði sameinuð í einu ráðuneyti
ekki síðar en í árslok 1986.
FYRIRSPURNIR
* Salome Þorkelsdóttir (S) spyr heil-
brigöisráðherra hvaða hækkanir
hafi orðið á bótaflokkum almanna-
trygginga frá 1. júní 1982 til 1.
október 1985: ellilífeyri, tekjutrygg-
ingu, heimilisuppbót, barnalífeyri,
mæðralaunum, ekkjubótum, fæð-
ingarorlofi o.fl.
* Guðmundur Einarsson (BJ) spyr
menntamálaráðherra hvort hann
hyggi á málshöfðun á hendur iðnað-
arráðherra vegna útgáfu námaleyf-
is og forræðis um rannsóknir við
Mývatn.
* Guðrún Helgadóttir (Abl.) spyr
forsætisráðherra hvaða lán Flug-
fiskur og Flateyri hf. hafi fengið úr
Byggðasjóði og hvaða tryggingar
hafi verið settar.
* Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
(Kvl.) spyr forsætisráðherra hvernig
ríkisstjórnin hyggist ná markmið-
um samnings um afnám allrar
mismununar gagnvart konum, sem
samþykktur var á Alþingi í júní sl.
Almennur stjómmálafundur á Dalvík:
Breyttur fundartími