Morgunblaðið - 26.10.1985, Síða 32
32
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER1985
Minning:
. Emma Guðrún
I Karlsdóttir
• Fsdd 16. október 1922
Dáin 18. október 1985
Eftir löng og ströng veikindi
hefur Emma nú hlotið hvíldina
eilífu. Einhvernveginn er það svo
að aldrei verður maður minni og
varnarlausari en einmitt þegar
dauðinn knýr á dyr. Efst í huga
mínum er þakklæti fyrir að hafa
kynnst Emmu, þakklæti fyrir góða
samfylgd sem verið hefur mér
mikils virði.
Náin kynni okkar Emmu hófust
um það leyti sem skyldunámi
okkar Jónu dóttur hennar var að
ljúka. Alltaf hafði hún brennandi
áhuga á því sem við vorum að
starfa, hvort sem það voru íþrótt-
irnar eða námið. Seinna eftir að
við Jóna héldum til framhalds-
náms og leiðir skildi, hélt hún
áfram að fylgjast með af sama
áhuganum. Þó svo að við hittumst
orðið æ sjaldnar, var alltaf jafn-
gaman að koma til Emmu og
_ spjalla. Umræðuefnin voru óþrjót-
* andi, því við hana var hægt að
tala um allt; heimsmálin, stjórn-
mál, íþróttir og ekki síst öll manns
hjartans mál. Emma átti við erfið-
an sjúkdóm að glíma. En sá vilja-
styrkur og það þrek sem hún sýndi
í veikindum sínum er aðdáunar-
verð og hjálpar manni sjálfum að
trúa á og meta lífið. Emma með
sinn sterka persónuleika á alltaf
eftir að verða mér minnisstæð.
Ég og fjölskylda mín biðjum
góðan guð að styrkja Jónu vinkonu
mína, Ingva og Erlu og veita þeim
huggun harmi gegn.
Erla Gunnarsdóttir
Það er komið haust og vetur
konungur heilsar raunar í dag.
Liljur vallarins falla nú ein af
annarri eftir að hafa skartað sínu
fegursta í sumar. Þær komu í vor
úr jörðinni. Þær gáfu okkur allt
það fegursta og besta sem þær
áttu án þess að ætlast til neins af
okkur, og allt hjá þeim var í kær-
leika gjört. Nú hafa þær skilað
hlutverki sínu og þær faila ein af
annarri og sameinast jörðinni á
ný.
En því skyldi þetta leita á hug-
ann nú? Vetrarkoman gæti verið
nægilegt tilefni, og víst höfum við
mikið að þakka hvað tíðarfar
varðar að undanförnu. Það fundu
þeir best sem ekki gengu heilir til
skógar. Hún Emma kunni vel að
meta það.
Og þá erum við komin að öðru
tilefni, sem vekur okkur til um-
hugsunar um framanrituð orð.
Það er hún Emma. Konan hans
Ingva. Mamma hennar Erlu og
hennar Jónu, nágranna- og vin-
konan okkar á Víðivöllunum, sem
við kveðjum í dag um leið og vetur
konungur heilsar.
Öllum sem kynntust Emmu og
nutu samvista hennar blandaðist
ekki hugur um að þar var ekki
venjuleg manneskja á ferð.
Var hún einmitt ekki ein af
þessum liljum vallarins, sem kom
til vina sinna og gaf þeim allt það
fegursta sem hún átti án þess að
krefjast nokkurs í staðinn? Og var
ekki allt hjá henni í kærleika gjört
og sagt? Heilsteypt, hreinskilin,
skemmtileg og skynsöm, já, um-
fram allt skynsöm. Það var ekki
einleikið hversu mikið hún gat
gefið manni oft á tíðum þegar
manni leið ekki vel. Ekki virtist
skipta máli hvernig henni leið
sjálfri, alltaf var sem af nógu væri
af að taka hjá henni og víst er að
margir fóru frá henni léttari í
skapi heldur en þeir komu.
Emma Guðrún Karlsdóttir
fæddist í Reykjavík þann 16.
október 1922. Móðir hennar hét
Guðrún Gunnlaugsdóttir, ættuð
frá Selfossi, en faðir hennar var
danskur og hét Johan Carlsson.
Þau áttu einnig einn son, sem býr
í Kaupmannahöfn.
Emma ólst upp í Kaupmanna-
höfn með foreldrum sínum og var
því dönsk að uppeldi og siðum.
Þegar Emma hafði aldur til fór
hún í menntaskóla, en varð að
hætta námi vegna styrjaldarinn-
ar. Þá gerðist hún einkaritari
hafnarstjórans í Kaupmannahöfn,
og gegndi því starfi í nokkur ár.
Það hefur eflaust verið þungbært
fyrir Emmu að þurfa að hætta
námi með aðrar eins gáfur og hún
hafði til að bera.
Árið 1956 fer Emma að kanna
ættland móður sinnar. Hún kemur
til Reykjavíkur og ræðst til starfa
á skrifstofu Sementsverksmiðju
ríkisins og vinnur þar næstu miss-
eri. En í ársbyrjun verða þáttaskil
í lífi hennar. í samkvæmi ætt-
menna sinna á Selfossi kynnist
hún eftirlifandi eiginmanni sín-
um, Ingva Ebenhartssyni, ættuð-
um frá Dalvík en vann þá á
skrifstofu KÁ. Á árinu 1958 hófu
þau búskap á Selfossi og hinn 22.
desember fæddist Erla, að vísu
fyrir tímann en hún dafnaði vel.
Hinn 31. maí 1962 fæddist svo
Jónína. Þá höfðu þau hjón hafið
byggingu á húsinu nr. 18 við Víði-
velli, og fluttu inn í það í árslok
1963 og þar hefur heimili þeirra
verið síðan.
f maí 1965 þegar við hófum að
byKgja á 17 fórum við að kynnast
þeim betur, og fundum brátt að
þessir nágrannar yrðu ekki kvíða-
efni enda átti það eftir að koma í
ljós. Reyndar hafði ég kynnst
Ingva áður þegar hann kenndi við
Iðnskólann og tróð bókfærslunni
svo í hausinn á mér, að hún situr
þar enn.
Á árunum 1966 og ’67 fór Emma
að kenna sjúkdóms, sem nefnist
liðagigt. Þessi sjúkdómur átti eftir
að hafa mikil áhrif á allt líf þeirra
hjóna. Erfiðir tímar fóru oft í
hönd. Margsinnis lá Emma á
sjúkrahúsum vikum og mánuðum
saman, og gekk í gegnum margar
aðgerðir víða á líkamanum.
Ekki fór á milli mála að góð
áhrif hafði að dvelja á sólar-
strönd. Þangað sóttu þau oft, og
kom Emma aftur sem endurnærð
og entist það oft lengi. Kynni
okkar á 17 urðu þó nokkur með
árunum. Bæði var að kona mín og
Emma urðu miklar vinkonur, og
eins hitt að Jóna varð brátt okkar
önnur hönd í formi barnapíu, og
stóð það í nokkur sumur fyrir utan
öll þau skipti sem þær systur
hlupu undir bagga ef við fórum að
skemmta okkur eða brugðum
okkur bæjarleið, já, eða til ann-
arra landa, og þá var nú Emma
betri en enginn.
Nokkur atriði úr lífinu eru ljós-
ari en önnur. Ég minnist sunnu-
dagskvölds í byrjun desember
1979. Við Emma erum með Ingva á
leið til Reykjavíkur. Ég til að
skemmta mér, og koma heim dag-
inn eftir. Hún til að leggjast á
sjúkrahús, og kom heim mörgum
mánuðum seinna. I maílok 1980,
sex mánuðum seinna, erum við
hjónin að fara til útlanda og erum
að kveðja Emmu, þá er hún enn á
sjúkrahúsi og ekki á heimleið. Og
hún gladdist svo innilega með
okkur og tók svo mikinn þátt í
þessu með okkur. Og manni varð
hugsað til þess að mikið ætti hún
meira skilið að vera að fara til
útlanda frekar en við.
Einnig minnist ég sumarsins
þegar Emma fór til Kaupmanna-
hafnar að finna föðurfólk sitt, og
var búin að hlakka til að komast í
sól og hita. En viti menn, þann
tíma sem hún dvaldi ytra var
kaldara þar en hér, og Emma kom
heim án þess að hafa nokkurn
bata fengið. Mikið fundum við til
með Emmu þá.
Þá var það eitt af þessum kvöld-
um, sem ég fór yfir með blöðin, að
við lentum á meiriháttar spjalli.
Þannig kvöldum gleymir maður
seint. Lífsspekin og leiðbein-
ingarnar sem þessi manneskja
hafði að geyma var með ólíkind-
um. Sannarlega var hún ein af
þessum liljum vallarins, sem miðl-
aði af sjálfri sér án þess að ætlast
til neins í staðinn.
Og skemmst er að minnast síð-
ustu legu Emmu frá því í maí 1984
til 18. október 1985. Það var erfið-
ur tími fyrir hana og ekki síður
dætur hennar og Ingva, en saman
stóðu þau sem einn maður og aldr-
ei glataði Emma voninni. Emma
hafði staðið vel við hlið manns
síns í starfi hans sem sýsluféhirð-
is, hreppstjóra, fulltrúa skatt-
stjóra, og stjórnmálamanns. Hún
hafði staðið dyggan vörð um dæt-
urnar í gegnum þeirra ár, mennt-
un og störf. Nú launuðu þau henni
allt sem hún gaf þeim, og ég veit
að nú er hún kvödd með mikilli
þökk og virðingu þeirra.
Nú er liðið að leiðarlokum um
sinn. Við á 17 munum sakna
Emmu sárt, við þökkum af alhug
fyrir allt sem hún var, fyrir allt
sem hún gaf okkur, öll heilræðin
til okkar og barnanna okkar frá
fyrstu tíð. Við vottum Ingva, Erlu,
Jónínu og öllu þeirra fólki okkar
dýpstu samúð, og biðjum algóðan
Guð að blessa minningu þessarar
lilju vallarins, sem gaf allt það
fegursta sem hún átti, og allt hjá
henni var í kærleika gjört.
Fyrir hönd okkar á 17,
Gissur Geirsson.
Það er komið haust. Ég horfi á,
hvernig haustvindarnir feykja
laufum trjánna til og frá. Þá berst
mér andlátsfregnin. Upp í hugann
kemur samlíkingin um mannlífið
sem tré með stofni, greinum og
laufblöðum, sem falla til jarðar.
Þennan haustmorgun, þann 18.
október, hefur fallið af fjölskyidu-
tré okkar enn eitt laufið, Emma
frænka mín, sem staðið hafði af
sér margan storminn, hafði fallið
í bylnum mikla, sem við öll lútum
í lægra haldi fyrir að lokum.
Tregi og söknuður gagntaka
hugann, en smám saman verða
yfirsterkari aðdáun og þökk fyrir
það fagra fordæmi, sem hún gaf
okkur hinum. Hún var óvenjumikl-
um eðliskostum gædd og hún átti
auðlegð, sem ekki er öllum gefin,
þar sem var ótrúlegur kjarkur og
ósérhlífni og kom það sér sannar-
lega vel í þeim langvinnu og kvala-
fullu veikindum, sem á hana voru
lögð. Hún bar líka takmarkalausa
umhyggju fyrir öðrum og hugsaði
fyrst og fremst um þeirra hag og
hvernig hún mætti verða að liði.
Emma var vel greind, hafði létta
lund og var skemmtileg í viðræð-
um, fróð um margt og vel lesin.
Hún tók ekki þátt í kapphlaupinu
um prjál og hégóma, sem svo mjög
einkennir nútimann, heldur lagði
hún meira upp úr manngildinu,
ræktun hugans og persónulegum
tengslum við fjölskyldu og vini. í
þeim tengslum var hún oftast
gefandi en við hin þiggjendur.
Emma Guðrún var fædd í Kaup-
mannahöfn þann 16. október 1922,
dóttir hjónanna Guðrúnar Gunn-
laugsdóttur og Johans Carlsen,
loftskeytamanns. Guðrún, móðir
Emmu, var dóttir hjónanna Guð-
rúnar Arnbjarnardóttur frá Sel-
fossi og Gunnlaugs ólafssonar,
sem lengst af bjuggu á Vatnsstíg
9 hér í borg. Guðrún giftist ung
til Danmerkur og bjó þar í um 40
ár, en ísland var alltaf ofarlega I
huga hennar. Þeir voru margir
íslendingarnir, sem nutu gestrisni
Johans og Gunnu á Venedigvej 7
í Kaupmannahöfn. Ég var ein
þeirra, þar eð Gunna var afasystir
mín. Þau Johan eignuðust auk
Emmu soninn Gunnlaug Óla, sem
býr í Kaupmannahöfn ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Eftir menntaskólanám og nokk-
ur ár við skrifstofustörf í Kaup-
mannahöfn, stóð hugur Emmu til
íslandsferðar. Hana langaði til að
vinna hér um hríð, kynnast
landinu og skyldfólki sínu hér. Mér
er í barnsminni, þegar Emma kom
til íslands á árunum upp úr 1950.
Hún hefur þá verið um þrítugt og
mér þótti hún glæsileg og heims-
konuleg. Hún hóf störf á skrifstofu
Sementsverksmiðju ríkisins og
undi hag sínum vel. Örlögin hög-
uðu því svo þannig, að hún ílentist
á íslandi, því hún kynntist Ingva
Ebenhardssyni frá Dalvík, og þá
reis hamingjusól Emmu hæst,
þegar þau gengu í hjónaband. Þau
reistu sér hús á Víðivöllum 18,
Selfossi, en Ingvi vinnur á sýslu-
skrifstofunni þar. Enn jókst ham-
ingjan, þegar dæturnar Guðrún
Erla og síðan Jónína fæddust, og
eftir það helgaði Emma fjölskyld-
unni alla krafta sína.
Oft skruppum við frændfólkið úr
Reykjavík austur um helgar og
nutum samvista við þetta ágæta
og gestrisna fólk. Vil ég fyrir hönd
fjölskyldnanna af Vatnsstígnum
þakka Emmu alla tryggð hennar
og vináttu fyrr og síðar.
Emma varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að sjá lffsstarf sitt bera góðan
ávöxt. Dæturnar eru hið mesta
mannkostafólk og ógleymanlegt
verður þeim, er til sáu, hversu frá-
bærlega vel þær og Ingvi reyndust
Emmu, þegar hún þurfti þess mest
með.
Ég þakka Emmu samfylgdina
og bið henni blessunar. Ég bið Guð
að styrkja eiginmann hennar og
dætur.
Sigríður Claessen
Kirkjudögum
lýkur í dag
KIRKJUDÖGUM 1985 lýkur í Lang-
holtskirkju í dag, laugardag. Sam-
koman hefst kl. 16 með síðdegiskaffi
en síðan mun sr. Rögnvaldur Finn-
bogason veita mönnum innsýn í
austurkirkjuna með erindi sem nefn-
ist íkónar-guðfræði í litum og línum.
Undanfarin ár hefur sr. Rögn-
valdur verið í leyfi og kynnt sér
kirkjuna sem starfar í austan-
tjaldslöndunum, ekki síst Rússl-
andi, Miðausturlöndum, Egyptal-
andi, Eþíópíu og Finnlandi. Riki-
dæmi þeirrar kirkjudeildar í
myndum, tónum og allri hefð,
hefur orðið mörgum áhugaefni en
lítið verið kynnt hérlendis.
Jón Stefánsson, organleikari, og
Katrín Sigurðardóttir, óperu-
söngvari, munu síðan flytja tónlist
við hæfi. Sr. Heimir Steinsson
mun síðan slíta Kirkjudögum 1985.
FrétUtilkynning
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Aöalfundur Óðins
Aöaffundur Malfundafelagsins Óöirrs veröur
hafdfnn sunnudaglnn 27. oklóbor nk. kt.
14.00 i Sjálfsfœölshúsinu Valhöll. Háaleitls-
braut 1.
Dagskra:
1. Venjuleg aöaúundarstör*
2. ðnnurnrrál.
Gestur fundarins verður Ðevfö Oddssen
borgarstjórt
Stjómin.
Ráðherraspjall
Mánudaglnn 28. október kl. 19.00 mun
Heimdallur, félag ungra sjálfstæðísmanna
i Reykjavík, gangast fyrtr kvöldveröarfundi
meö Sverri Hermannasyni, menntamála-
ráöherra Veröur fundurinn haldinn ( Utlu-
Brekku (viö hliöina á Laekjarbrekku. Banka-
stræti 2). AHir ungir sjálfstæöismenn vel-
komnir. Matarveröer kr. 400.
Heimdallur.
Fulltrúaráð sjálfstæðis-
-félaganna á Akranesi
Almennur fulltrúaráösfundur veröur haldinn
í sjálfstæöishúsinu viö Heiöarbraut mánu-
daginn 28. október kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Umræður um bæjarstjórnarkosnlngam-
ar 1986.
2. Valdimar Indriöason ræöir stjórnmála-
viöhorfin.
3. Almennarumræöur.
Sjáltstæöisfélögin
Akrnarnes.