Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 35

Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. OKTÖBER1985 35 Kveðjuorð: Hafsteinn Davíðs son svœðisstjóri Fæddur 13. desember 1922 Dáinn 18. október 1985 Fimmtudaginn 24. október sl. fór fram frá Fossvogskapellu í Reykjavík útför Hafsteins Davlðs- sonar, svæðisstjóra Orkubús Vest- fjarða. Minningarathöfn um hann fer fram í dag í Patreksfjarðar-. kirkju. Þegar Hafsteinn fór suður til Reykjavíkur nú í byrjun september hvarflaði ekki að mér að hann væri að fara í sína hinstu ferð. Hann sem hafði notað sumarfríið sitt til þess að klæða íbúðarhúsið að utan og við það starf var hann þegar hann var kallaður á sjúkra- hús til aðgerðar, sem áður hafði verið fyrirhuguð. Hafsteinn hafði ekki lokið þessari vinnu alveg, en var langt kominn. Vir.nupallarnir standa ennþá eins og hann skildi við þá. Hann nánast hoppaði létti- lega niður af pallinum, ók út á flugvöll, fór suður, á sjúkrahús og nokkru síðar burt kallaður úr þessum heimi horfinn sjónum okkar sem eftir lifum. Hafsteinn stundaði nám í Reyk- holtsskóla í Borgarfirði en þaðan lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hann stundaði nám við Iðnskólann og lærði rafvirkjun. Hann fékk síðar meistararéttindi í iðn sinni. Upp úr 1950 kynntist hann bræðr- unum Friðþjófi og Garðari, oft kallaðir Vatneyrarbræður, en þeir ráku umf angsmikla útgerð og fisk- vinnslu á þessum árum á Patreks- firði. Þeir sóttust eftir því að fá Hafstein vestur á Patreksfjörð og greiddu götu hans til að fara til Þýskalands og Englands til náms í meðferð og viðgerðum á ratsjám og dýptarmælum. Eftir að hann kom úr námsferðinni setti hann upp rafverkstæði í vélsmiðjunni Sindra á Patreksfirði. Það varð fljótlega mikið að gera hjá Hafsteini, sérstaklega vegna þess að Þjóðverjar, Bretar og fleiri útlendingar sóttu mikið á íslands- mið á togurum sínum til að fiska. Þá vildi sitthvað bila og þessir menn sigldu skipum sínum oft inn á Patreksfjörð, sérstaklega ef eitt- hvað hafði bilað í ratsjám og dýpt- armælum skipanna. Hafsteinn varð fljótlega þekktur fyrir kunnáttu sína á þessu sviði og það spurðist út meðal skip- stjórnarmanna að hjá honum var hægt að fá viðgerð á þessum mikil- vægu öryggistækjum sjómanna. Um nokkurra ára skeið hafði hann mikla vinnu í sambandi við þetta og góðar tekjur enda veitti ekki af því um þetta leyti kynnist hann eftirlifandi konu sinni, Ernu Aradóttur frá Patreksfirði, og eignast þau sitt fyrsta barn. Þau stofna sitt heimili að Aðal- stræti 13, Patreksfiði, og eru þar fyrstu árin og börnunum fjölgar og í kjallarann flutti Hafsteinn verkstæði sitt frá þeim stað er áður er getið. Síðar er fjölskyldan hafði flutt úr þessu húsi notaði hann hús- næðið á annan áratug undir versl- + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, ÞURfOUR ÞÓROARDÓTTIR, Túngötu 16, Keflavlk, andaöist aö kvöldi 24. október. Guörún Kristinsdóttir, Magni Sigurhansson, Margeir Elentínusson, Þórdís Guöjónsdóttir og barnabörn. t Konan mín, STEFANÍA GUÐBRANDSDÓTTIR, Þorsteinsgötu 4, Borgarnesi, lést í sjúkrahúsi Akraness 24. október. Geir Jónsson. + Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaöir og afi, SIGURÐUR S. MAGNÚSSON prófessor, Flókagötu 54, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Háteigskirkju þriöjudaginn 29. október kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstof nanir. Audrey Magnússon, Ingibjörg Sigurðardóttir, Þorleifur Guömundsson, Sigursteinn Sigurösson, Anna María Siguröardóttir, Snjólaug Elín Siguröardóttír, Ragnar Hrafnsson, Hjördfs Siguröardóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför bróöur okkar og mágs, Hannesar Þóröar Thorsteinssonar loftskeytamanns. Sérstakar þakkir til fyrrverandi starfsfélaga í Gufunesi og áhafnar á bv. Karlsefni. Þorsteinn Thorsteinsson, Guöbjörg Þórarinsdóttir, Ragnar Thorsteinsson, Elísabet M. Thorsteinsson, Kristjana Milla Thorsteinsson, Alfreö Elíasson, Ragnheiöur Thorsteinsson, Sveínn Björnsson, og systkinabörn. un með ýmiskonar raftæki og annað er tilheyrði fagi hans. Rúmum tveim árum eftir að Hafsteinn flutti á Patreksfjörð tók hann við stöðu rafveitustjóra af ívari Helgasyni og starfaði þar óslitið þar til Rafveita Patreks- hrepps varð stofnaðili að Orkubúi Vestfjarða að hann gerðist svæðis- stjóri fyrir hið stóra fyrirtæki hér á suðurhluta Vestfjarða og gegndi því starfi þar til hann lést. Voið 1961 flytja þau Erna og Hafsteinn með börnin sín, sem þá voru fædd, inn í nýtt, stórt og myndarlegt hús sem þau höfðu byggt að Urðargötu 18, og þar er heimili þeirra, fagurt og notalegt með góðum heimilisanda. Erna og Hafsteinn eignuðust sex mannvæn börn sem öll eru á lífi, eru sjálfstæð og hafa hlotið góða menntun. Þau eru: Hafdís, Helga, Vilborg, Davíð, Ester og Haukur. Þau yngstu eru enn við nám. Barna- börnin eru orðin fjögur. Fjölskyldan er samhent í einu og öllu að hverju sem gengið er að. Hafsteinn var mjög starfsamur maður, hann var alltaf eitthvað að gera, hafði ævinlega eitthvað til að fást við, annað hvort er til- heyrði menntun hans og iðn eða við heimilið og garðinn umhverfis húsið þeirra, sem þau hjón höfðu gert svo undurfagran, þar sem hið náttúrulega fékk að njóta sín. Ég nýt þess að horfa upp í garðinn þegar ég geng til og frá vinnu, sjá fallegu blómin, trén og gosbrunn- inn út við götuna. Hafsteinn var rúmlega meðal- maður á hæð, grannur, ljós yfirlit- um, bar sig vel og hreyfingar hans voru léttar og hraðar eins og ungur maður væri á ferð. Útlit hans og yfirbragð gerði hann því mikið unglegri en í árum var talið og bar hann því aldur sinn einstaklega vel. Hann var frískur maður og alltaf ferskur með miklar hug- myndir um svo margt, oft svo há- leitar að menn treystu sér ekki til að framkvæma þær, en margar aðrar komust þó í framkvæmd. Yfirleitt var létt yfir Hafsteini og hann naut þess að vera innan um fólk enda var hann félagslynd- ur. Þó gat hann verið alvörugefinn og stóð fast á sinu þegar það átti við. Hann gat meira að segja verið nokkuð erfiður viðfangs ef honum fannst vera gengið á rétt sinn eða þess fyrirtækis sem hann stjórnaði svo lengi og hafði mikinn áhuga á. Fyrir mörgum árum þegar við báðir unnum fyrir sveitarfélagið hvor á sínum stað, kom það fyrir nokkrum sinnum að okkur varð illilega sundurorða og tókum nokkrar snerrur saman. í raun vorum við báðir að gæta þess sem okkur hafði verið trúað fyrir en litum vandamálin hvor frá sínum sjónarhóli. Ekki urðu úr þessu ósættir, hvorugur erfði við hinn, heldur fóru samskipti okkar að aukast og urðu að vinskap sem dafnaði með hverju ári sem leið og entist meðan báðir lifðu. Hafsteinn Davíðsson var sjálf- stæðismaður og starfaði af hug og sál fyrir flokkinn og félag sitt hér á Patreksfirði. Hann sat lengi í stjórn Sjálf- stæðisfélagsins Skjaldar á Pat- reksfirði, átti sæti í kjördæmisráði um margra ára skeið, var í út- gáfustjórn Vesturlands, sat i raf- veitunefnd, skólanefnd Iðnskólans og Tónlistarskólans svo eitthvað sé nefnt auk margra annarra trún- Minning: Pétur Ólafsson Fæddur 15. mars 1902 Dáinn 18. október 1985 í dag er hann afi okkar lagður til hinstu hvilu og þá hrannast upp minningar frá æskudögunum. Afi vann mestan hluta starfs- ævi sinnar sem vaktmaður í Hval- stöðinni í Hvalfirði og var eini starfsmaður stöðvarinnar yfir veturinn. Fór það þvi eftir veðri og færð hvort hann gat haldið með okkur jólin. Þau ber hæst i minn- ingunni, þvi jólin voru loksins komin, þegar hann afi kom. Jólin okkar með afa voru stutt. Foreldr- ar okkar sóttu hann áður en heil- agt varð á aðfangadag og óku hon- um aftur til vinnu á jólanótt, því hans vinnuskylda var jafnt á stór- hátíðum, sem alla aðra daga. Ógleymanlegar eru heimsókn- irnar til afa i Hvalstöðina, alltaf voru móttökurnar jafn hlýlegar hvort sem ferðinni var heitið til hans eða við áttum leið um Hval- fjörðinn. I minningunni finnst okkur það hafa verið hans hátíð- arstundir þegar við komum i heimsókn, því hann var svo mikið einn. Nú þegar leiðir skiljast viljum við þakka afa okkar innilega sam- verustundirnar og biðja algóðan Guð að geyma hann. Þú maður, hvert sem hér þú fer, Guðs helgur andi fylgi þér, og hvar sem liggur leiðin þín, þig leiði Drottinn heim til sín. (V. Briem) Barnabörn. í dag er gamall vinur minn, Pét- ur Ólafsson, til moldar borinn á Akranesi. Ég sé hann fyrir mér á hvalskurðarplaninu, svitaperlur á enni og einbeitni og festa í öllum hans hreyfingum. Hann er þéttur á velli, ber sig vel og sviphreinn. Engan mann hef ég hitt sem frem- ur en hann lagði sig svo fram í störfum sínum, að hann hlífðist hvergi við. Féll enda aldrei verk úr hendi og lét sig einu gilda um vinnutímann. Hann gat ekki unnið hvalveiðistöðinni betur en hann gerði. Þótt kynni okkar Péturs mættu kallast náin á því tveggja áratuga skeiði, seð leiðir okkar lágu saman á vertíðum hjá hvalveiðifélaginu hafði ég aðeins óljósan grun um hið erfiða lífshlaup hans. Pétur fæddist á Másstöðum í Þingi 15. mars 1902, sonur hjón- anna Ólafs Sigvaldasonar og Mar- grétar Helgadóttur. Þau slitu samvistir þegar hann var á þriðja aldursári og ólst hann upp með föður sínum og stjúpu á ýmsum bæjum í Vatnsdal og Þingi. Á fermingarárinu fór hann í vinnu- mennsku, en trúlofaðist 17 ára gamall Guðrúnu Jóhannsdóttur og lést hún hálfu öðru ári síðar. Hafði þá alið honum son, Jóhann, og varð Pétur að koma honum í fóstur eftir lát Guðrúnar, en var sjálfur áfram í vinnumennsku. Síðan kvæntist hann Ingibjörgu Jakobsdóttur 1927, en missti hana eftir sex ára sambúð og höfðu þau þá eignast dóttur, Huldu, sem Pét- ur hafði hjá sér. Laufeyju Elías- dóttur giftist hann 1943 og átt með henni tvö börn, Sæunni og Inga. Þau slitu samvistir'. Það er fyrii: ungt fólk nú nær ógjörningur að setja sig 1 spor unglingsins í Vatnsdalnum, sem varð að sjá á eftir unnustunni ofan 1 gröfina og skiljast við son aðarstarfa sem hann gegndi fyrír sjálfstæðisfélagið og bæjarfélag sitt. Um margra ára skeið hafði hann að aukastarfi framkvæmdastjórn á Skjaldborg, eign sjálfstæðisfé- lagsins, sem þá var samkomuhús Patreksfirðinga og þar var einnig rekið kvikmyndahús sem hann hafði á sinni hendi og rak með myndarbrag og samviskusemi eins og allt sem honum var trúað fyrir. Aðstæður voru að mörgu leyti » erfiðar en þó tókst honum að reka þetta og að ég best veit að mestu leyti í sjálfboðavinnu. Þetta var erfið vinna og stóð i mörg ár og var farin að ganga nærri honum þegar hann lét af þessum störfum. Tómstundastörf fyrir unglinga voru hans hjartans mál og hann lét hendur standa fram úr ermum í þeim efnum því í fjölda ára hélt hann uppi æskulýðsstarfi í Skjald- borg þar sem unglingarnir í bæn- um gátu komið saman, hlustað á tónlist sem kom frá góðum fjölrása tækjum, dansað, spilað og leikið sér við hin ýmsu tæki sem hann og unglingarnir höfðu komið upp. Hafsteinn hafði gott tóneyra og hafði yndi af tónlist. Hann lék á sög og brá henni oft fyrir sig á skemmtunum og í góðra vina hópi. Hann var einn af stofnendum Lionsklúbbs Patreksfjarðar og starfaði í honum allt til dauðadags. I klúbbnum eins og annars staðar þar sem hann var félagi var hann mjög virkur og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir Lionsklúbb- inn sinn og alltaf samviskusam- lega og með gleði. Margar ljúfar minningar koma upp í hugann, úr lífi og starfi, við spilamennsku, ferðalög og við að bergja á góðu víni í góðra vina hópi. Þess vegna er söknuðurinn mikill meðal okkar vina hans og félaga. Það er mikil eftirsjón í Hafsteini úr okkar litla bæjarfélagi þar sem hann var svo virkur alla tíð. Við Helga þökkum samveru og vináttu liðinna ára og sendum Ernu og fjölskyldu innilegar sam- úðarkveðjur. Hilmar Jónsson sinn á fyrsta ári, sökum fátæktar og eiga engan að. Og örlögin héldu áfram að reyna á þolrifin, en það vitum við, sem Pétur þekktum, að hann kom óskemmdur úr þeirri viðureign. Hann var jafnlyndur, ávallt hress í bragði og hlýr. Ein- staklega barngóður og var aldrei glaðari undir lokin en á heimilum sonar síns og dóttur á Akranesi í félagsskap barnabarnanna. Þau skildu gamla manninn, voru ljós hans, þótt augun væri slokknuð. Pétur Ólafsson vann við að reisa hvalveiðistöðina 1947 og starfaði þar síðan til ársins 1979, þá 77 ára að aldri. Þá missti hann sjónina og fluttist á dvalarheimilið Höfða á Akranesi, þar sem hann bjó þangað til hann lést 18. október sl. Hann hafði fótavist til síðasta dags. Það stytti honum ævikvöld- ið, hversu vel börn hans og tengdabörn á Akranesi önnuðust um hann. Við gamlir félagar hans og vinir úr hvalnum, gleymum honum ekki. Og þótt við sumir hverjir höfum ekki aðstöðu til að fylgja honum til grafar í dag, mun hug- urinn dveljast við minningu hans. Ástvinum hans bera þessar linur hlýjar samúðarkveðjur. Megi hann 1 friði hvíla. Halldór Rlöndal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.