Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 43

Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 43
MORGUNBLAÐID, LAUfiARDAGUR 26. OKTÓBER1985 43 SVARAR í SÍMA 10109 KL. 10—11.30 FRA MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS I b Nl K F=> 5TR (K "ÉG VRR SPM SNÖ&GVRST FFIRINM W ÓTTRST R{) VIÐ ÍS- LE'NDlN&RR YRÐUM RFTUR RÐ TRKR UPP BÆNRSKRRRNRR" Utlendar kon- ur í heimilis- hjálpina í Velvakanda birtast oft kvart- anir eða athugasemdir. Þetta finnst mér mjög jákvætt, til þess að upplýsa aðra um það sem ábóta- vant er í þjóðfélaginu. Sú athuga- semd sem hér birtist er um heimil- ishjálparþjónustuna. Heimilis- hjálpin er fyrir sjúklinga og gam- alt fólk og er hún bæði gagnleg og nauðsynleg. Vandamál geta þó komið upp, sem ekki finnst úrlausn á. Miðaldra maður þurfti að fá heimilisaðstoð, því hann þjáðist af blóðtappa. Jú, hann fékk sam- þykki fyrir aðstoð 4 tíma, tvisvar í viku. Svo kom heimilishjálpin til hans — 18 ára piltur, nemi! — Þetta var röskur ungur maður, en hann féll ekki inn í starfið fannst hinum sjúka manni og hann bað um eldri konu. ómögulegt var að veita honum þessa ósk og þar við sat. Ættingjarnir reyndu að út- vega lítilsháttar aðstoð, þótt það væri illmögulegt. Þetta vekur nokkra eftirþanka. Hversvegna var ekki hægt að verða við ósk mannsins? Og ef skortur er á konum til slíkrar þjónustu, hvern- ig er þá með útlendar konur? Hingað er alltaf verið að senda konur til að vinna i fiski. Hér vantaði ekki lærða konu, heldur aðeins vana heimilisstörfum og helst með einhverja reynslu af veiku fólki. Ein úr vesturbænum. Siðspillandi efni í sjónvarpinu Velvakandi góður. Ég las nýlega grein í dálki þín- um, sem faðir skrifar og er hún eins og töluð út úr mínu hjarta. Það var mál til komið að loksins væri hreyft við þessum máli, sem enginn virist þora eða vilja and- mæla. Sjónvarpið á að vera menningar- tæki auk þess að vera öflugasti fjölmiðill þjóðarinnar. Þó hefur það í áraraðir fært manni mann- skemmandi ofbeldis- og óþverra- myndir inn í stofu. Oft í viku heyrist sá við auki við kynningar dagskrárliða að hann „sé ekki við hæfi barna“ eða „geti valdið ótta hjábörnum". Getur verið að ráðamenn þessa fjölmiðils séu svo afsiðaðir að þeir finni ekki ábyrgðina sem hvílir á þeim við efnisval. Það er ótrúlegt að þeir haldi að svona myndir hafi góð áhrif á nokkurn mann, sist af öllu börn eða unglinga sem oft eru látin vera yfir yngri börn- um þegar foreldrar eru fjarver- andi. Taugaveiklun barna og ör- yggisleysi er orðið óberandi. Ég hitti nýlega 9 ára telpu sem sagðist fá martröð ef hún horfði á myndir sem væru ljótar. Svona efni hlýtur alltaf að hafa ill áhrif utan þess að vera afsiðandi fyrir börn að fylgjast með sýnikennslu í glæp- um, manndrápum og klámi. Ég tek undir með föðurnum. Hvar standa barnaverndarnefndir Úr veðbókarvottorði Allt má heita að leiki I lyndi, lánin veita þeir í skyndi. Ékki neita veði í vindi, víst að keyta duga myndi. Hákur. eða kvenfélög í þessum máli. Það heyrist hvorki hósti né stuna úr þeirri átt. Ekki vantar jafnréttis- baráttuna og kröfurnar um fleiri barnaheimili svo hægt sé að kom- ast sem fyrst frá börnunum eftir að þau eru komin í heiminn. Aðrir eiga að bera ábyrgð uppeldina en foreldrarnir svo sem barnaheimili, og skólar svo síðan tekur sjón- varpið við með sínum útsending- um. Ég skora á sjónvarpið að vakna af þyrnirósarsvefni sínum. Það var mikið hneykslast á siðspillandi myndum í Keflavíkursjónvarpinu. En er betra að horfa á þær í því íslenska? Móðir fyrir austan. spurt og svarad Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS Hvað kostar bensín- stöðin við Fannarfold? Spurt: Árni Jóhannsson hringdi með fyrirspurn til Þórðar Ásgeirssonar forstjóra Olíuverslunar Islands. „Mig langar að vita hvað olíuaf- greiðslustöðin við Fannarfold í Grafarvoginum mun kosta Olís á þessum krepputímum?" Svarað: Að sögn Þórðar Ásgeirssonar forstjóra hefur bensínafgreiðslan ekki verið opnuð og endanlegur kostnaður því ekki ljós. „Síðustu tölur, sem eru frá 30. september síðastliðnum, hljóða upp á 2,7 milljónir króna. Endanlegt verð verður þá nokkru hærra því t.d. eru bensíndælur ekki með í þessum tölum. Þetta er mjög ódýr bensín- stöð miðað við margar aðrar sem reistar hafa verið hér á landi, því sett er upp gamalt hús sem gert hefur verið upp.“ Þórður treysti sér ekki til að svara hvað ný bens- ínstöð myndi kosta, því fyrirtækið legði ekki út í slíkar framkvæmdir en ætla mætti að kostnaður við þær skipti tugum milljóna króna. Félagiö Svæðameðferð heldur námskeið í svæðameðferð og mun það hefjast 31. október nk. Innritun verður mánudaginn 28. október milli kl. 20—22 að Austurströnd 3, Seltjarnarnesi. Stjórnin. .< ^Húsnæðisstofnun ríkisins Sért þú húsbyggjandi, þarftu að lesa þetta: 1. Sendir þú okkur lánsumsókn fyrir 1. febrúar síðastliðinn? 2. Verður byggingin ekki fokheld fyrir 1. nóvember næstkomandi? Eigi þetta tvennt við um þig, verður þú að staðfesta umsóknina sérstaklega, ella verður hún felld úr gildi. Þú getur staðfest hana með því að hringja í síma 28361. Símsvari tekur víð staðfestingum allan sólarhringinn, fram að 1. nóvember. Umsókn má líka staðfesta með bréfi, helst ábyrgðarbréfi. Reykjavík, 23. október 1985. c§o Húsnæðisstofnun ríkisins FYRSTA FLOKKS STURTUKLEFAR FRA Kbnaffe Afgreiðum einnig sérpantanir með stuttum fyrirvara j ji 14.900,- ; 't\. HORNKLEFI ! 1 2 hlufar IwM hver hlið. | 16.500,- HORNKLEFI H 3 hlutar IIJH hver hlið. j Í 1 9.700,- RENNIHURÐ 1 I f. sturtubotn | 3 hlutar U 9.146,- V/ENGHURÐ ;L 25.500,- FULLBÚNIR STURTUKLEFAR , (m/blöndunartœkjum) * VATNSVIRKINN/ ! ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8Ó20 - 128 REYKJAVÍK 1 SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.