Morgunblaðið - 26.10.1985, Síða 44

Morgunblaðið - 26.10.1985, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER1985 / Minning: Jóhann Skaptason fv. sýslumaöur sinni og dó á heimili sínu í umsjá sinnar trygglyndu og umhyggju- sömu eiginkonu, Sigríðar Víðis Jónsdóttur sem helgaði líf sitt í einu og öllu eiginmanni sínum í hálfa öld og fimm árum betur. Þannig var hann sjálfum sér samkvæmur til hinnstu stundar. Gunnlaugur Þórðarson V Hver vann hér svo að með orku? Aldrei neinn svo vígi hljóð. Búinn er úr bálastorku bergkastali frjálsri þjóð. Drottins hönd þeim vörnum veldur vittu barn sú hönd er sterk. Gat ei nema guð og eldur gjört svo dýrðlegt furðuverk. (Jónas Hallgr.) í dag er gerð frá Húsavíkurkirkju útför Jóhanns Skaptasonar, fyrr- verandi sýslumanns. Hann verður jarðsettur í Laufási. Jóhann lést á heimili sínu 17. október 1985, 81 árs að aldri. Jóhann Skaptason fæddist í I.itlagerði í Grýtubakkahreppi 6. febrúar 1904. Foreldrar Jóhanns voru Bergljót Sigurðardóttir, húsfreyja, og Skapti Jóhannsson, bóndi í Litla- Gerði. Foreldrar Bergljótar, móður Jó- hanns, voru hjónin Sigurður Gutt- ormsson, bóndi i Kollsstaðagerði á Völlum í Suður-Múlasýslu og Guðríður Eiríksdóttir frá Skriðu- klaustri í Fljótsdal, systir Jónasar skólastjóra á Eiðum. Faðir Sigurð- ar var Guttormur, stúdent og al- , . þingismaður á Arnarheiðarstöðum í Fljótsdal, Vigfússon, prests á Valþjófsstað, Ormssonar. Móðir Sigurðar, kona Guttorms var Halldóra Jónsdóttir, Þorsteinsson- ar, vefara, sem hin kunna Vefara- ætt á Fljótsdalshéraði er kennd við. Foreldrar Skapta, föður Jó- hanns, voru hjónin Jóhann Bessa- son frá Skógum í Fnjóskadal og Sigurlaug Einarsdóttir frá Geir- bjarnarstöðum í Kaldakinn. For- eldrar Jóhanns Bessasonar voru Bessi Eiríksson frá Steinkirkju og Margrét Jónsdóttir, fædd að Heið- arhúsum á Flateyjardalsheiði. Jóhann Bessason og Sigurlaug bjuggu á Skarði í Dalsmynni. " Bergljót Sigurðardóttir missti ung föður sinn. Móðir hennar Guðríður fluttist þá til Seyðis- fjarðar og hafði yngstu dótturina, Bergljótu, hjá sér. Hinar dæturnar þrjár voru líka allar í bernsku en var komið fyrir hjá nánustu skyld- mennum. Sú elsta, Halldóra, fór að Þverá í Laxárdal í Suður- Þingeyjarsýslu, til Bergljótar Guttormsdóttur, föðursystur sinnar, sem var seinni kona Jóns Jóakimssonar, bónda þar. Þær mæðgur, Guðríður og Bergljót, voru til heimilis í Hótel ísland á Seyðisfirði. 18. febrúar árið 1885 fellur snjóflóðið mikla úr Bjólfi yfir bæinn. Bergljót litla berst út á sjó en bjargast úr snjó- og krapa- hrönninni. Móðir hennar ferst. Bergljót ólst upp hjá frændfólki á Fljótsdalshéraði. Hún sótti Laugalandsskóla í Eyjafirði í tvö ár. Sumarið á milli, 1895, var hún í kaupavinnu á Skarði í Dalsmynni og kynntist þar Skapta, elsta syni Jóhanns Bessasonar. Þau giftu sig 1897 og settust að á Skarði til árs- ins 1900 þá um vorið fluttu þau að Litlagerði, næsta bæ utan við Skarð, sem Jóhann á Skarði hafði haft með til ábúðar. Þar byggðu þau upp bæjarhúsin. Litlagerði var lítil en notadrjúg jörð. Þau Bergljót og Skapti eignuð- ust 8 börn. Þau eru: Garðar fæddur 1898, dó í frumbernsku, Guðríður fædd 16. september 1899, Sigur- laug fædd 17. nóvember 1901, Arnheiður fædd 16. nóvember 1902, Jóhann fæddur 6. febrúar 1904, Þórey fædd 12. maí 1905, Svava fædd 21. júní 1906 og Sigríð- ur fædd 21. október 1907. Vorið 1907 syrti að. Heilsu Skapta tók að hnigna. Hann lagð- ist rúmfastur og lést um haustið, aðeins fertugur að aldri. Hann var jarðsettur sama dag og yngsta dóttirin fæddist. Bergljót neyddist til að bregða búi þegar eiginmaður hennar var fallinn frá. Börnunum varð hún að koma fyrir hjá venslafólki nema Arnheiði og Jóhanni sem ólust upp hjá henni. Hún fluttist um tíma til frændfólks síns á Fljótsdals- héraði. Jóhann var alla tið mjög hændur að móður sinni. Þorsteinn Skaptason, ritstjóri Austra á Seyðisfirði, og móðir hans, Sigríð- ur Þorsteinsdóttir buðu Bergljótu að taka Jóhann í fóstur. Hún fór því ofan á Seyðisfjörð með dreng- inn haustið 1908 og dvaldi þar um tíma og vann. Einn daginn þegar hún kom ekki heim á réttum tíma var Jóhann sannfærður um að hún væri farinn upp á Hérað. Hann beið því engra boða en þaut inn fjörð í áttina til Fjarðarheiðar. En flóttamaðurinn ungi var hand- samaður á leiðinni þar sem hann hljóp allt hvað hann orkaði og var færður grátandi til byggða. En heldur léttist á honum brúnin þegar hann mætti þar opnum faðmi móður sinnar. Líklega hefur þessi strokutilraun sannfært að- standendur um að ekki væri hætt- andi á að skilja drenginn eftir nauðugan á Seyðisfirði. Þessi saga sýnir að snemma beygist krókur að því sem verða vill. Alveg fram í andlátið var Jóhann gæddur einstökum viljastyrk. Þegar hann hafði tekið ákvörðun haggaði henni enginn. Haustiö 1912 fluttist Bergljót aftur á Norðurland. Hún afréð að setjast að á Akureyri og vinna fyrir sér og börnum sínum með fatasaumi. Þá var Jóhann átta ára gamall og gladdist yfir að vera kominn aftur í sína heimabyggð. 1914 gerðist Bergljót húsvörður barnaskólans á Akureyri og var það til 1921. Á sumrin stundaði hún ýmsa vinnu. Henni farnaðist vel, enda var hún verklagin og vel kynnt. Eftir þetta bjó hún með börnum sínum sem þá voru upp- komin. Jóhann gekk í skóla á Akureyri, en á sumrin var hann í sveit. Átta sumur og hálfan vetur, frostavet- urinn mikla, var hann á Skarði hjá Jóni föðurbróður sínum og Sigurlaugu ömmu sinni. Svo liðu æskuárin. í kaupstaðnum á vetr- um en í sveitinni á sumrin. Og alltaf var jafn gaman að fara í sveitina á vorin sem að koma aftur heim á haustin. Ógleymanlegir voru vordagarnir með sól og sunn- anvindi, sem bræddu snjóinn úr fjöllum og hleyptu vexti í hvern læk, svo þeir fossuðu niður hlíð- arnar ofan í árnar sem ultu fram kolmórauðar í hrokavexti. Skógur- inn laufgaðist og fyllti dalinn bjarkarilmi, og lambféð dreifðist um grænkandi haga. Og svo voru það fuglarnir: Marjötlur, stein- deplar, músarindlar, auðnutittl- ingar, þrestir, lóur, hrossagaukar, smyrlar, fálkar og ótal fleiri. Hér voru æskuminningar bundnar hverjum bala og hverjum hóli, hverjum læk og hverri lind, sér- hverjum hnúki og fjallstindi. Hér voru festar þær römmu taugar sem drógu hann seinna heim. Jóhann tók gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskólanum á Ákureyri vorið 1921. Næstu þrjú árin vann hann margskonar vinnu á Akur- eyri og í nágrenni. Hugur hans stóð mjög til búskapar, en hann var landlaus maður. Eins fannst honum hann ekki hafa þá líkam- legu burði sem til þyrfti, en þar hafði hann samanburð við annál- aða krafta afa sins Jóhanns Bessa- sonar og föðurbróður síns Jóns á Skarði. Á Akureyri festi Jóhann sér þriggja dagsláttu erfðafestu- land. Það land girti hann og kenndi við Tómas Sæmundsson og kallaði Tómasarhaga. Á þessum árum vann Jóhann þá verkamannavinnu sem til féll, svo sem í síld á Hjalt- eyri, við viðgerð á rafveitustíflunni á Akureyri og við jarðræktarstörf. Fyrsta veturinn var hann atvinnu- laus. Þegar Jóhann var farinn að vinna við afgreiðslustörf í kjötbúð Kaupfélags Eyfirðinga eftir ára- mót 1924 fann hann að slík störf áttu ekki hug hans. Hann ákvað að reyna að komast til Reykjavíkur næsta haust og hefja nám við Menntaskólann í Reykjavík. Um vorið barst honum sú gleðifregn að næsta haust ætti að hefja kennslu til framhaldsnáms við Gagnfræðaskólann á Akureyri. Jóhann gat þvi haldið áfram námi í sinni heimabyggð. Á Alþingi var tekist á um stofn- un menntaskóla á Akureyri. And- staða gegn honum var mikil í Reykjavík, einkum meðal kennara Menntaskólans í Reykjavík og í ákveðnum hópi í Háskólanum. Ýmsu var borið við, fjöldi stúdenta í landinu var talinn of mikill og norðlensku kennurunum var ekki treyst til að kenna fræðin. Það voru 16 nemendur sem settust í framhaldsdeildina, eftir þrjú ár voru 9 eftir. Sex þeirra þreyttu stúdentspróf fyrir sunnan, því ekki var kennurum gagnfræðaskóla treyst til að prófa þá. Suðurganga þeirra Var prófsteinn á getu Norð- lendinga. Stúdentsefnin voru kvödd með viðhöfn á Akureyri og sigldu suður með es. íslandi. I Reykjavík lásu þeir í mánuð undir prófið. þeir voru prófaðir grannt í námsefni þriggja ára, en ekki er að orðlengja um það að þeir sex- menningar stóðust prófið með glæsibrag. Við Menntaskólann í Reykjavík luku 40 stúdentar prófi í máladeild þetta vor. Þórarinn Bjömsson varð fjórði að ofan, Brynjólfur Sveinsson sá níundi og Jóhann Skaptason sautjándi. Þar með var ísinn brotinn fyrir stofnun Menntaskólans á Akureyri. Sig- urður Guðmundsson skólameistari hélt suðurförum og venslamönnum þeirra veislu þegar heim var komið. í þessari baráttu mótuðust skoðanir Jóhanns og lífsviðhorf. Frá þeim tíma þráði hann að starfa í dreifbýlinu og reyna að verða því að liði. Sumarið 1927 aðstoðaði Jóhann frænda sinn Jón Víðis við mælingu Siglufjarðarkaupstaðar. Þeir eru synir systranna Halldóru og Berg- ljótar. Áður en þeir skilja um haustið býður Jón Víðis Jóhanni ókeypis fæði hjá sér næsta vetur ef hann hyggi á nám í háskólanum. Jóhann þáði þetta góða boð sem gerði honum fært framhaldsnám- ið. Sumarið áður höfðu þeir mælt upp kauptúnið á Norðfirði. Á leið- inni austur með es. Nóvu komu þeir við á Siglufirði. Veður var gott og fjörðurinn unaðsfagur. í mynni Siglufjarðar tekur á móti þeim blágrá móðan frá síldarverk- smiðjunum. Þeir frændur fylgjast að upp í bæinn. Göturnar eru for- ugar og andrúmsloftið fúlt. þeir leggja á brattann og ganga upp í Hvanneyrarskál. í skálinni er gott aö vera. Hún er vaxin grasi og lyngi, og óþefurinn frá verksmiðj- unum nær ekki þangað upp. Fjöldi kvikfénaðar er á beit, hestar, kýr, kindur og geitur. Jón Víðis gengur upp úr skálinni á hnjúkinn norðan hennar, Illviðrishnjúk. Þarna uppfrá una þeir sér allan daginn og ræða margt. Um kvöldið heldur skipið áfram áleiðis til Húsavíkur. Vinátta Jóns og Jóhanns entist meðan báðir lifðu. Þeir voru um margt líkir. Báðir unnu ósleitilega langan vinnudag og voru framúr- skarandi vandvirkir. Leti var hugtak sem ekki var til í orðaforða þeirra. Þeirra hugsjón var að gefa meira af sér en þeir tóku til sín. Þeir voru áhugasamir um velferð lands og lýðs og reiðubúnir að leggja hverju góðu máli lið eftir getu. Þeir fóru vel með efni sín en voru stórtækir í útlátum, ef þeim þótti við þurfa. Ég fæ seint fullþakkað að mega njóta tilsagnar þessara frænda minna og umönnunar á þroska- skeiði ævi minnar. Haustið 1927 hóf Jóhann laga- nám við Háskóla íslands og lauk því í febrúar 1932. Jóhann bjó hjá Jóni Víðis og foreldrum hans á Hverfisgötu 40. Þá kynntist hann frænku sinni Sigríði, systur Jóns. Þau felldu hugi saman og giftu sig 6. júní 1930. Sumarið 1931 leysti hann sýslumann Barðstrendinga af í tvo mánuði. Þau hjónin fóru vestur, kynntust héraðinu og upp- lifðu sína hveitibrauðsdaga. Um haustið stofnuðu þau eigið heimili á efstu hæðinni á Þórsgötu 17. Að loknu námi réðst Jóhann til starfa hjá Olíuverslun íslands hf. og vann þar sem lögfræðingur félagsins til ársloka 1935. Jóhann og Sigríður byggðu húsið á Eiríksgötu 4. Eftir að Jón Víðis hafði seinna byggt ofan á þetta hús og flutst þangað með foreldrum sínum varð það að ættarmiðstöð, þar sem allur ætt- leggurinn var jafnan velkominn. Þar ríkti heiðríkja og ró, sem átti rætur í þingeyskri bændamenn- ingu. 1935 fóru þau Sigríður og Jó- hann í hálft ár til Englands og Danmerkur, og Jóhann las þjóðar- rétt með styrk úr Sáttmálasjóði. f nóvember 1935 var Jóhann skipaður sýslumaður í Barða- strandarsýslu. Þau Sigríður flutt- ust vestur í janúar 1936 og komu sér fyrir í timburhúsi Bergs Jóns- sonar fráfarandi sýslumanns. í júlí brennur sýslumannsbústaður- inn. Sigríður lokast inni á efri hæð hússins og stekkur niður úr eld- hafinu. Hún brákaðist illa í baki. Sigríður er flutt til Reykjavíkur og liggur þar í gifsi í fjóra mánuði. Jóhann heldur ótrauður áfram og byggir nýtt hús, nú úr steini. Isýslumannsembættinu var Jó- hann atorkusamur. Sýslunefndin festi kaup á ýtunni Ása-Þór sem vann að því að koma á vegasam- bandi í héraðinu. Nýtt sjúkrahús var byggt á Patreksfirði, útgáfa árbóka Barðastrandarsýslu hafin, sýslubókasafn og byggðasafn stofnað. Ásamt fleirum gekkst Jó- hann fyrir uppbyggingu Hrað- frystihúss Patreksfjarðar hf. Þau hjónin festa mikið ástfóstur við héraðið en vissu þó að þau voru á leið norður. Þannig liðu tuttugu ár. Frá 1. júní 1956 skipaði Bjarni Benediktsson Jóhann sýslumann í Þingeyjarsýslu og bæjarfógeta í Húsavík. Þeir Bjarni og Jóhann voru ekki flokksbræður og vildu margir að málum yrði skipað á annan hátt. í þessu máli sýndi Bjarni Benediktsson stjórnvisku og réttsýni sem forráðamenn þjóð- arinnar mættu hafa að eftir- breytni. Á Húsavík byggðu Sigríður og Jóhann sitt þriðja hús. Jóhann var að lokum kominn heim. í menning- ar- og atvinnumálum var Jóhann gæddur sömu framfaraþrá. Árbók Þingeyinga hóf göngu sína. Safna- húsið á Húsavík reis upp. Sjötugur vék Jóhann úr embætti sáttur við embættisstörf sín. Þá gafst honum kostur að vinna áfram að áhugamálum sínum, lesa og skrifa og sinna ýmsu, sem ekki vannst áður tími til. Jóhann skrifaði margt. Héraðs- lýsingar Barðastrandarsýslu og Suður-Þingeyjarsýslu birtust í ár- bókum Ferðafélagsins. Greinar um byggðamál komu í tímaritum og dagblöðum. í árbækur sýslanna skrifaði hann greinar um margvís- leg málefni. Jóhann orti og birtust nokkur kvæði á prenti undir skáldanafninu Bjarki. I handriti liggja æskuminningar 1 Legsteinar 1 gramt — marmari Opiö alla daga, einníg kvöld ó.f Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi, og helgar. símar 620809 og 72818. og margir athyglisverðir þættir sem hann vann að á síðari árum ævi sinnar. í samantekt um líf móður sinnar, skrifar Jóhann: „Æskumenn munu oftast beina sjónum fram á við til komandi daga og gera sér þá ýmsar hug- myndir um framtíðina, jafnframt sem þeir þá um leið eru að móta ókominn lífsferil sinn. En seinni hluta ævinnar verður mörgum litið til baka, ekki aðeins til sinna gengnu spora, heldur er einnig reynt að rekja slóðir genginna kynslóða. Sumum stendur þá næst að hyggja að ferli forfeðra sinna. Þá fyrst verður þeim ljóst hve fá- fróðir þeir eru um fortíðina og hversu mjög þeir hafa vanrækt að fræðast um feril nánustu vanda- manna meðan þeir voru ofar mold- ar.“ Jóhann skrifaði ekki um verk sjálfs sín og sinn embættisferil, því þá þótti honum sem hann væri að framhefja sjálfan sig. Eins bjóst hann við að viðkomendum þætti að þarflausu of nærri sér gengið. Hér hefur verðmætur fróð- leikur glatast því stálminni sínu hélt Jóhann til hinstu stundar. Alla tíð var Jóhann bóndi. Fyrir vestan hélt hann kindur og gaf þeim á kvöldin að loknum vinnu- degi. Hestarnir voru þeim hjónum einnig kærir. Þegar norður kom hafði Jóhann fé á fóðrum hjá kunningum sínum. Jóhann ræktaði garðinn sinn. Kringum Brattahlíð, heimili þeirra á Patreksfirði, óx upp fal- legur trjágróður. Reiturinn inn við Mikladalsá var girtur og ruddur af grjóti. Skógræktarfélag Vest- ur-Barðstrendinga var stofnað. Þegar húsið í Túni á Húsavík var komið upp var fyrstu trjánum plantað. Nú er garðurinn á Húsa- vík orðinn unaðsreitur. Mest gladdist Jóhann þegar hann fékk keypt sex hektara land af Jóni föðurbróður sínum á Skarði. Hér hafði hann ungur hlaupið um sem geitasmali. Landið girti hann og þau Sigríður reistu þar sumar- bústað og kölluðu Skaptahlíð. Þar áttu þau saman marga ánægju- stund. Sigríði og Jóhanni varð ekki barna auðið. En hjá þeim dvaldi oft á sumrin ungt frændfólkið, sem naut ástar þeirra og leiðsagnar. Sigríður Víðis skilur nú við eig- inmann sinn eftir 55 ára sambúð. Það verður henni ekki létt. Megi hún finna þann kraft sem svo oft hefur hjálpað henni í erfiðleikum i lífinu. Megi hún enn um sinn njóta góðrar elli í hópi vina og frændfólks. Ég er þakklátur því að ég gat aðstoðað Jóhann þegar hann gekk með reisn yfir móðuna miklu. Við eigum Jóhanni og hans kynslóð svo ótal margt að þakka. Ég á þá ósk að við getum fært þeirri kynslóð sem tekur við af okkur eins mikil- vægan arf og við höfum fengið. Norðanmaðurinn Þorgeir Ljós- vetningagoði ákvað að við skyldum allir hafa ein lög og einn sið. „Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn". Það sem við Jóhann eigum óuppgert okkar á milli munum við ræða þegar við reikum saman léttir í spori um skóginn í Skaptahlíð. Við munum ganga saman og dást að vexti jarðar og fegurð lífsins. Jón Hálfdánarson Jóhann Skaptason, fyrrverandi sýslumaður Þingeyjarsýslu og bæjarfógeti Húsavíkur, er látinn, 81 árs að aldri. Votta ég eftirlif- andi eiginkonu, Sigríði Víðis, og ættingjum dýpstu samúð. Jóhann Skaptason verður mér mjög minnisstæður maður, þótt leiðir okkar mættust ekki fyrr en hann lét af sýslumannsembættinu á Húsavík, sem hann hafði gegnt um 20 ára skeið. Jóhann sýndi mér þegar, er ég kom til Húsavíkur 1974, mikla vinsemd og lagði sig fram um að liðsinna mér með verkefni, sem mín biðu í hinu nýja starfi. Það var gott að vera eftir- maður hans, því að allt var í röð og reglu í hans höndum. Jóhann Skaptason var afar vel- viljaður og gerði sér far um að láta gott af sér leiða í öllum málum. Hann var strangheiðarlegur og orð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.