Morgunblaðið - 03.11.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.11.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER1985 33 Þrjátíu ár eru liðin frá því Halldór Laxness hlaut Nóbels- verðlaun. Hver um annan hafa menn litið til baka og rifjað upp hvað sagt var þann daginn. Grip- ið einhverja glefsu úr innlendum og erlendum blöðum og lagt út af henni. Tilvitnun i ummæli í einu af frönsku dagblöðunum og nútímaútlegging á þeim rifjaði upp hvílíkan bobba virðuleg blöð gátu komist í við að fá allt í einu í fréttum, að þeim alls ókunnur rithöfundur væri orðinn fræg- asta skáld heims. Og gráðug pressan beið með gapandi ginið eftir að fá efnið í greinina, sem strax næsta morgun skyldi leiða fréttahungraða og ófróða lesend- ur um nóbelshöfundinn og verk hans í allan sannleikann. Og ekkert sjónvarp eða gervihnettir til að senda höfundinn sjálfan, og þá sem á honum kunnu skil, beint á skjáinn inn í stofu í hverjum heimskima. í ljósi þess er kannski obbolítið kúnstugt að grípa setningu úr frétt augna- bliksins og draga af heilagan sannleika þrjátíu árum seinna. Blöðin voru bara í spreng að finna eitthvað bitastætt. Kveikjan að þessum hugleið- ingum voru viðbrögð dagblaðsins Le Figaro í París, sem á fyrsta degi bjargaði sér snarlega fyrir horn og á snilldarlegan hátt. Þann dag, sem Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin, hafði aðeins verið þýdd ein bók eftir hinn nýja nóbelshöfund á frönsku. Svigrúmið var lítið. Hvað gerði fréttastjórinn? Rit- stjórnin sló upp veislu Halldóri Laxness til heiðurs og bauð til síðdegisdrykkju, ekki aðeins sendiherra landsins, Pétri Bene- diktssyni og sendiherrafrúnni, Mörtu Thors, heldur og öllum íslendingum í borginni sem hægt var að ná til með aðstoð sendi- ráðsins. „Við fundum okkur auðvitað öll riddara þann dag- inn,“ eins og Eggert Stefánsson stórsöngvari orðaði það svo vel Sgar hann sagði: „í dag eru allir lendingar „nóbel“. Þeir finna sig göfuga - þú hefur slegið þá til riddara með sigri þínum." Þótt heiðursgesturinn væri víðs fjarri var þarna mikil veisla og göfug nóbelshöfundinum til heið- urs. Blaðamenn Figaros dreifðu sér skipulega meðal íslending- anna og kreistu út úr þeim allar þær upplýsingar um skáldið þeirra sem þar var að hafa. Við höfðum þó sjálfsagt öll a.m.k. lesið bækur Halldórs, þótt ekki værum við kannski brúklegir bókmenntaspekingar. Við vorum bara rígmontnir Islendingar og kunnum vel að meta svo fína veislu og mikinn sóma við landa okkar. Þarna var nóbelsverðlauna- hafinn frá 1952, Francois Maur- iac, og frægir bókmenntarit- stjórar og dálkahöfundar. Og þarna í miðjum hópnum trónaði gamli Alfred Jolivet, svolítið rykfallinn prófessor í íslensku við Sorbonne-háskóla, sem allt í einu var orðinn hetja dagsins og miðpunktur athyglinnar. Hann hafði löngu áður þýtt á frönsku Sölku Völku „petit fille d’Is- lande", eins og hún hét. Og gegn- um þá bók eina gátu franskir nú kynnst við Halldór Laxness. Náð var í kvikmyndina sænsku um Sölku Völku, sem skömmu seinna var sýnd í París og íslenska sendiráðið efni til veislu fyrir bókmenntamenn á eftir. Sú Salka Valka flutti að vísu lítið af fiski og söltum sjó í andrúms- loft heimsborgarinnar, en varð að duga þar til aðrar og betri þýðingar á verkum Halldórs tóku hratt að berast, Atómstöðin strax árið eftir. En á því herrans ári 1955 vissu Frakkar nánast ekkert um Halldór Laxness. Raunar aðferð hans við skáldsagnagerð þeim all framandi. Þessi beina frásögn og knappi stíll, sem sparar lýsingar- orðin, f raun andstætt þeirra bókmenntaarfi og bókmennta- hefð. Franskar skáldsögurgjarn- an hlaðnar löngum lýsingum af aðstæðum, umhverfi, persónun- um og sálarlífi þeirra. Islend- ingasögurnar í knöppum tilsvör- um sem lýsa persónunum og atburðum. Gárungarnir hafa jafnvel sagt að stíll og bók- menntahefð tslendinga byggist á því að kálfar voru svo fáir og dýrir að bókfellið varð að spara. En það var sannarlega kominn tími til að Frakkar, svo og allur umheimurinn utan Norðurlanda, kynntist við það besta sem skrif- að hefur verið af þeirri gerð. Og það varð til á. íslandi; sem er skáldverk Halldórs Kiljans Lax- ness. Er það ekki þetta einmitt hlutverk og gagn Nóbelsverð- launa, að ryðja slíkum afreks- bókmenntum braut á borð bók- menntafólks sem ekki vissi að þær væru til? Halldór Laxness hefur sjálfur vakið athygli á þessum mun: „Sem stendur skrifa íslendingar ekki leingur á meginlandsvísu einsog þeir gerðu á 12. og 13. öld þegar þeir áttu samleið með frökkum í stórri bókmentahefð, sem þó var sjálfstæð hjá hvorum um sig.“ Um mismunandi lesend- ur eftir löndum og hve fastir þeir eru í gömlum hefðum og því sem þeir eru vanir hefur Halldór Laxness tekið skemmtilegt lítið dæmi annars staðar í íslendinga- spjalli sínu, segir þar m.a.: „í annan stað bjó ég til róman þar sem lögregluþjónn kom við sögu. Bókmenntaprófessor í París sem lesið hafði franska þýðingu bók- arinnar í handriti gerði athuga- semd við verkið og íslendingur- inn í mér var satt að segja nokk- uð lengi að taka við sér. „Það er tilgángslaust að gefa út skáld- sögu af lögregluþjóni hér í Par- ís.“ sagði bókmenntaprófessor- inn. „Það vill einginn hér heyra um svoleiðis persónur í bókum. Við köllum þá ílics, (þetta er dónalegt orð sem stundum er haft á frönsku um lögreglu- þjóna). Bókin kom samt út nokkrum sinnum í París, og sein- ast í skrautútgáfu, sennilega af því eitthvað hefur fundist í henni að auki sem dregið gat hug manna frá lögregluþjónum; en það er önnur saga." Neðanmáls segir Halldór svo aðra skemmtilega sögu: „Má ég til gamans vitna í svipað franskt tilsvar eftir minni, úr ævisögu Ravels. Bjartsýnn og gáfaður hljómsveitarstjóri sænskur er kominn til Parísar að stjórna hljómleikum. Ravel spyr hann í samkvæmi kvöldið áður hvaða tónlist hann ætli að stjórna. Svíinn nefndi hrifinn og vonglað- ur ópus-merkið á einni af hinum þektari stórsymfóníum Brahms. Ravel svaraði snögt: Svoleiðis valsar eru ekki spilaðir í París." Fyrst farið er að vitna í skemmtilegar frásagnir Hall- dórs um þetta efni er vart hægt að stilla sig um að ljúka þessum gárum á orðum hans: „Bók- mentaráðunautur forlags í Skandinavíu segir við mig fyrir nokkrum árum: „Ég var að ljúka við að skrifa forlagi mínu um- sögn um bók eftir íslenskan höf- und sem reyndar var nokkuð góð. En því miður, höfuðpersónan var leigubílstjóri. Það er með öllu óhugsandi að hægt sé að selja skáldsögu um leigubílstjóra, sagða í fyrstu persónu, nema þvíaðeins bílstjórinn geti sannað að hann sé rússneskur greifi eða spænskur markís.“ „Þetta skilur enginn íslending- ur.“ ÆVINTÝRAHÚSIÐ - FÓTBOLTASKÓRINN - STÓRI FÓTBOLTINN - LITLI FÓTBOLTINN - VÍKINGURINN - BANGSINN - TENINGURINN - FÍLLINN - GRÍSINN - UGLAN BUNAÐARBANKINN TRAUSTUR BANKI E E * V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.