Morgunblaðið - 29.11.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.11.1985, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER1985 Nú fer í hönd einn mesti annatími ársins, það er undirbúningur jólanna, sem er mörgum mjög kær, en öðrum finnst jafnvel nóg um. Jólaundirbúningur á íslandi hefur tekið talsverðum breytingum áseinni árum og vinnumynstur fjölskyldna einnig. Álagið er mikið við að sjá sér farborða, því að kröfurnar eru miklar. Hvað varðar jólaundirbúning ræður mestu að stilla kröfum í hóf varðandi jólin en njóta þeirra samt. Aðalatriðið er að skipuleggja tímann og nota hugmyndaflugið, nota ekki desembermánuð til að ljúka öllu af sem annars átti að gera allt heila árið. Nú á að fara í hönd skemmtilegur undirbúningur jólanna með allri fjölskyldunni og vinum. Hver dagur að hlakka til með börnunum og hver getur sett sinn svip á undirbúninginn. Höfum hugfast að litlu hlutirnir og hugsunarsemi geta skipt miklu máli. Fólk hegðar sér öðru vísi fyrir jólin en áöðrum tímum árs, er hlýrra í viðmóti og einhver notaleg eftirvænting sést í augum ungra sem gamalla. Undanfarin ár hafa okkur borist jólasiðir annarra norðurlandaþjóða og er ekki nema gott eitt um það að segja, en hver fjölskylda á að velja hvað henni hentar án þess að húsmóðirin verði örmagna við störf sín, því óneitanlega mæðir mest á henni í sambandi við jólaundirbúninginn hvort sem hún vinnur utan heimilisins eða ekki. Njótum jólaundirbúningsins vel allan desember, látum hann verða okkur gleði en ekki amstur. Gangi ykkur vel. 1. I dag kveikjum viö fyrsta kerti aö- ventukransins og börnin opna fyrsta gluggann á jóladagatalinu. Desem ber er genginn í garö meö jólaundirbúningi og tilhlökkun. 4. v £ 2. Þaö er ekki seinna vænna aö at- huga fatnað f jölskyldunnar, koma því af sem sauma á og kaupa, og því í hreinsun sem með þarf. 5. X • * 3. 6. • Nú er best að koma frá öllum jóla- pósti til útlanda og skrifa þeim bréf sem fjarri eru, ættingjum og vinum umjól. 09 I dag gerum viö jólaáætlunina okk- ar, skrifum niöur allt þaö sem gera skal til jóla, og strikum út allt sem frá kemst. Ef viö viljum vera vel útlítandi og afkasta miklu þá er áríðandi að hár- iö sé í góöu lagi, pöntum viö okkur jólapermanentiö eöa klippinguna núna. Ef viö höfum afgangst íma í dag, er mikiö frá ef eldhússkáparnir væru teknir í gegn, og ef enn er tími af- lögu þá setjumst viö notalega niöur og skoðum bækur eöa blöö og finn- 7. i 8. jpf r um góöar uppskriftir aö smákökum til aö nota um eöa eftir helgina. j dag er upplagt aö útbúa smáköku- deig og geyma í kæli eöa frysti þar til stund fæst til bökunar. Þeir sem þurfa aö þvo dúka og/eöa glugga- tjöld ættu ekki aö geyma sér þaö lengur. Kvöldiö upplagt til aö fá gesti í kaffi eöa jólaglögg. I dag kveikjum viö á ööru kerti aðventukransins, þá væri ekki úr vegi aö fara yfir jólavers og sálma ef krakkar eru á heimilinu. Eöa rabba svolítiö saman (jafnvel baka smákökurnar ef deigiö bíöur til- HEIMILISHORN Bergljót Ingólfsdóttir ÍTALSKUR MATUR í Heimilishorni hefur (talskur matur, svokallaðir „pastarétt- ir“, verið tekinn til umfjöllunar oftar en einu sinni. En þar sem vitað er að mörgum þykir slíkur matur hið mesta lostæti verður ítalskur matur aftur á borðum I dag. Þess ber þó að geta, að ýmsir þeir réttir, sem kallaðir eru ítalskir, hafa fengið á sig annarra þjóða blæ, með ítölsku „pasta“ hafa verið búnir til réttir með ýmiss konar ívafi. Lasagne Ca. 200 gr af „pastaplötum", lengjum eöa makkaróní ca. 2'/ilvatn 1 matsk.salt Kjötsósa: 2 sneiðar af léttsöltuöu fleski (eöa beikoni) 2laukar 1 gulrót selleríbiti hvítlauksgeiri 2matsk.olía 200grhakkaökjöt 1 dós niðursoðnir tómatar * salt, pipar basillauf timian. Ostasósa: 2 matsk. smjörlíki 2 matsk. hveiti Vílmjólk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.