Morgunblaðið - 29.11.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.11.1985, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER1985 \ Nú er vetur genginn í garö og hver og einn klæöist hlýjum vetr- arklæönaöi. Andlitiö þarf á aö halda vörn í köldu loftslagi jafnt og líkaminn. Nauö- synlegt er aö gera sér grein fyrir þörfum húöarinnar og gæta þess vel aö hreinsa og vernda hana og foröast allt sem veriö getur skaö- legt. Kalt loftslag, hitabreytingar og mikil sól reyna mikiö á húöina. Þar sem öll hús hér á landi eru upp- hituö, eru þaö mikil viðbrigöi fyrir húöina aö koma út í kulda án sér- stakrar varnar. Ástundun vetrar- íþrótta, gjarnan uppi í fjöllum, þar sem sólin og kuldinn eru magnaöri krefst þess aö húöin sé varin meö sport eöa sólarkremi. Dagleg umhiröa húöarinnar tryggir: 1. Endurnýjun, þar sem ný- myndun húöfrumanna er flýtt. 2. Næringu, sé húöinni gefin þau næringarefni sem hún þarfnast. 3. Raka, meö því aö bæta henni raka- tap. 4. Vörn, meö því aö styrkja eölilega vörn húöarinnar. Þaö skýr- ir hvers vegna nútíma kona sem hefur hirt vel um húö sína hefur mun unglegri húö en kona á svipuöum aldri sem hef ur vanrækt hana. Hreinsa á húöina daglega meö viðeigandi hreinsimjólk (eða m kremi), til þess aö leysa upp óhrein- indi og úrgangsefni sem safnast fyrir. Einungis vatn úr krananum getur ekki fullgert hreinsun á húö- inni, þar sem vatniö er ertandi og jafnvel skaölegt fyrir sýrustig húö- arinnar og veldur því aö hún þornar. Hreinsimjólkin mýkir og hreinsar vandlega án þess aö skaöa húöina þó vatnið sé notað meö. 50% af öllum vandamálum meö húöina má rekja til notkunar á vatni og sápu. Hinsvegar er fáanlegur sápulaus freyöihreinsir sem kemur í staö sápu, fyrir þá sem kunna vel þeirri tilfinningu aö nota sápu á andlitiö, hann hæfir öllum húötegundum og má nota á barnahúö og viö rakstur. Ándlitsvatn skal ávallt nota á eftir, það fullgerir hreinsunina, frískar og hjálpar til þess aö draga saman svitaholur. Andlitsvatniö á aö vera án alkóhóls, sem er ertandi og rakaeyöandi, gerir feita húö feitari og dregur raka úr þurri húö. Skyn- samlegra er aö nota vatn úr kranan- um en andlitsvatn meö alkóhóli. Karlmenn geta notaö andlitsvatn (lyktatlaust) sem „after shave". Æskilegt er aö nota „maska“ á búslóða Þegar líöur aö jólum fara margir aö hyggja aö tiltekt, málningu og ööru er e.t.v. hefur staöiö til lengi aö gera en er nú drifið í fyrir þessa miklu hátíö. Þaö er góö regla aö yfirfara innihald skápa og annars geymslurýmis einu sinni til tvisvar á ári. Stærö slíks rýmis skiptir ekki öllu máli, heldur nýting þess. Hér á eftir fara nokkrar leiðbeiningar um hvernig skynsamlegt er aö standa aö tiltekt í og endurskipulagningu á skápum og ööru geymslurými. Einnig hvern- ig haga má málum þegar heilar búslóöirerufluttar. Sjálfsagt er aö geyma hvern hlut sem næst þeim staö er aöalnotkun hans fer fram. Handklæði t.d. í baöherbergi eöa nálægt því, sæng- urver og þess háttar í svefnherbergi o.s.frv. Hluti sem notaöir eru sam- tímis skal geyma saman t.d. íþróttafatnaö, skó, tösku og e.t.v. tennisspaöa, bolta og aögangs- kort. Hluti sem notaöir eru sjaldan eöa á ákveönum árstíma s.s. vetr- arfatnað, strandfatnaö, jólaskraut og páskaskraut er hentugast aö geyma utan aöalgeymslurýmis, t.d. í geymsiu. Þægilegast er aö skipta skápaplássi í hverju svefnherbergi milli þeirra er því deila, þannig aö hver og einn geti gengiö aö sínum hlutum á vísum staö. Þegar taka á ákveöinn skáp fyrir er best aö gefa sér góöan tíma viö aö tína út úr honum. Veröa sér út um a.m.k. 4 kassa. Merkja þá: gefa, henda, setja aftur í skóp, setja annars staöar. Tína hlutina síöan út einn af öörum og spyrja sjálfan sig eftirfarandi spurninga: 1) Hef ég notaö þennan hlut undanfariö ár?, 2) Hefur hluturinn eitthvert sérstakt gildi peningalega/tilfinningalega? 3) Held óg aö ég muni nota hann einhverntíma aftur? Ef svariö viö þriöju spurningunni er já, ætti þó aö losa sig viö hann. Reyna sföan aö gefa eöa henda öllu sem ekki eru not fyrir, því ótrúlegustu hlutir vilja safnast saman og enginn hefur ótakmarkaö skápapláss. Gott er aö skrifa hjá sér hvaö sett er í kassann sem merktur er — setja annars staöar. Þetta vinnulag á viö alla skápa, þá sem innihalda fatnaö, barnaleikföng, eldhúsáhöid o.s.frv. Þegar skápurinn hefur veriö tæmdur er sjálfsagt aö athuga hvort gera þurfi viö eitthvaö eöa mála hann. Einnig hvort þurfi aö koma fyrir fleiri hillum, krókum og þess háttar. i ýmsum bygginga- vöruverslunum t.d. er hægt aö fá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.