Morgunblaðið - 29.11.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.11.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER1985 B 5 búiö). Eftir hádegi mætti gera sam- an laufabrauö þá sem flestir úr fjöl- skyldunni, nú er hægt aö kaupa lauf abrauö lagaö og útflatt svo eft- irleikurinn er léttur og ánægjulegur. Ekki sakar ef mamma lumar á ein- hverju gómsætu til aö auka stemmninguna. i dag eöa kvöld tökum viö til viö smákökubaksturinn, þaö er léttara ef deigin biöa nú tilbúin, viö fáum vel þegna aöstoö heimilisfólksins. Ef frystikista er til á heimilinu þá má flýta fyrir sér meö því aö útbúa í hanaýmislegt góögæti til jóla hvort sem um er aö ræöa soöiö, steikteöa bakaö. í dag eöa kvöld væri upplagt aö bjóöa vinkonu heim til aö útbúa heimaunnar jólagjafir, það er margt hægt aö gera fallegt án mikils kostnaöar, eins og útbúa heima- unnin merkispjöld á pakkana sem veröa mun persónulegri en annars. Viö veröum alltaf aö sinna ákveön- um skyldustörfum en gleymum ekki aö eiga rólegar stundir meö f jöl- skyldunni og jafnvel leyfa börnun- um aö taka til kvöldhressingu. 13. iSk, •4'f ) iTi Um leiö og viö kaupum inn til helg- arinnar væri upplagt aö kaupa jóla- pappír, bönd og merkimiöa, eins jólaskraut ef vantar, þaö er gaman aö tína fram gamla skrautiö og skreyta svolítiö á hverjum degi, í staö þess aö set ja allt upp í einu. Fyrir þá yngstu væri vinsælt aö kíkja á jólasveinana í gluggum verslana, og kaupa jólatréð. í dag tökum vö fram allt sem þarf aö pússa og fægja, eöa þú getur tekiö til viö aö föndra og er þá upplagt aö bjóöa nágrönnum f blokkini eöa næsta húsi aö vera með og hver sér um eina hugmynd og efni í hana. Jólalegar veitingar án fyrirþafnar. i dag kveikjum viö þriöja Ijósiö á aðventukransinum og gerum okkur dagamun meö því aö heimsækja einhvern vin eöa ættingja, aö sjálf- sögöu leggjum við til kaffibrauðiö. I kvöld getum við frætt börnin um jólahald og helgisiöi. Hvernig væri aö líta eftir jólaljósun- um sem eiga aö f ara á jólatréö, athuga hvort þau eru í lagi, annars koma þeim í viðgerð, muna aö eiga aukaperur. Nú Ijúkum viö viö jólaþvottinn og öll íbúöin er aö fá á sig jólalegan blæ. Kökudunkar fullir af gómsæt- um kökum og gott gróft brauö heimabakaö er komið í frystinn. Gleymið ekki aö kaupa kertin og jólaservétturnar. Margar húsmæöur hafa ánægju af aö útbúa sitt eigiö jólasælgæti, þrátt fyrir mikiö úrval góögætis á markaönum, þaö mætti gera í kvöld og jafnvel útbúa jólahús úr pipar- kökudeigi, og börnin fá aö sjálf- sögöu aö vera með. Betraer aö útbúa piparkökudeigið daginn áö- ur. Nú skrifum viö upp á lista allt sem viö þurfum aö kaupa til jóla af matvöru og kaupum jólaöliö. Kvöldiö notum viö til aö bjóöa nokkrum vinum til aö smakka pip- arkökurnar sem viö bökuöum eöa bara keyptum, kertaljós á borðin, stemmningin er til staöar. Nú er best aö vera búin aö kaupa jólagjaf irnar og væri upplagt aö pakka þeim inn og skreyta. Núer best aö minna f jölskylduna á jólahársnyrtinguef þesser þörf. Ef f jölskyldan er ekki í vinnu í dag, þá er upplagt aö fá sér göngutúr og skoöa jólaútstillingar og gera inn- kaup ef meö þarf, kikja síöan inn á veitingastað og fá sér hressingu, börnunum f innst variö í þaö. i dag kveikjum viö á f jóröa Ijósinu á aöventukransinum. Stemmningin mikil, nóg að gera viö ýmsa vinnu eöa leik. Óllum er hollt aö hugsa um útlitiö, ekki hvaö síst í jólaönnun- um, geföu þér smástund strax aö morgninum til snyrtingar, þér vinnst betur og ert ánægöari. Ómetanlegt er ef þú hefur tíma til hálftímagöngu. Nú er gaman aö fara i bæinn, finna jólastemmninguna bæöi hjá þeim sem búnir eru aö öllu og eins hjá þeim sem seinni eru. Eins er falleg hugsun og góö tilfinning aö fara meö fallega jólaskreytingu til vinar eöa á leiöi ástvina. Nú er best aö gæta þess aö nóg sé af mjólk, nýju brauði og ööru til hátíðarinnar. Börnin fá nú gjarnan jólasveinahúfur til aö lífga upp á tilveruna og fara meö jólagjafir til vina og ættingja, meðan jólasteikin er tekin til. Eftir það bíðum viö prúö- búin með óþreyju eftir aö kveikt veröiájólatrégu. Gleðilegjól. Texti: Ásthildur Pétursdóttir. STANSAÐU, DANSAÐU o OG ÖSKRAÐU! ... því að nú er að koma út ný LP plata með hljómsveitinni Grafík! Við ætlum að bjóða öllum aðdáendum Grafík sérstakan pakka á tilboðsverði: Fyrir kr. 649,- fá allir sem innrita sig í Grafíkklúbbinn plötuna eða kassettu, Grafíkbol og Grafíkmerki. Það eina sem þú þarft að gera er að hringja í síma 23037- og innritaþig í Grafíkklúbbinn. Plötupakkinn verðursíðansendur um hæl. KLClBBURINN salt, pipar múskat 2 dl rifinn ostur. Suðan látin koma upp á vatn- inu, salti bætt út í ásamt hveiti- plötunum. Suöutími eftir því sem stendur á pakka hverrar geröar. Hrært í meö trésleif um leið og þetta er sett í pottinn til aö losa dálítiðísundur. Það kemur fyrir aö sjóði upp úr þegar spaghetti eöa annaö „pasta“ er soðið, en mælt er með aö setja örlitla sojaolíu í suðu- vatniö til aö koma í veg fyrir slíkt. Vatniö látiö renna vel af „pasta“-plötunum. Oftast eru slíkar plötur og lengjur skolaöar úr köldu vatni eftir suöu til aö koma í veg fyrir aö þær séu sam- anklesstar. Fleskiö er skoriö í smábita og brugöiö í olíu á pönnu. Sömuleiöis brytjaöur laukur, gul- rót og sellerí. Hvítlauksgeirinn kraminn eöa brytjaöur örsmátt. Hakkaöa kjötiö sett á pönnuna, brúnaö viö vægan hita og losaö í sundur meö gaffli um leiö, niöur- soönu tómatarnir settir út á ásamt kjötkrafti ef vill, og látið malla saman smástund og aðeins látiö þykkna. Sósan bragöbætt með salti, pipar, basil og timian. Ostasósa Smjörlíki brætt í potti, hveiti hrært saman viö og þynnt út meö mjólkinni, rifna ostinum bætt út í síöast. í smurt ofnfast fast er fyrst sett lag af kjötsósunni, síöan er sett lag af „pasta"-plötunum eöa lengjum, þá er sett ostasósa yfir. Þetta er síðan endurtekiö en þó þannig aö efst er haft lag af plöt- um og ostasósa ofan á. Rifnum osti er stráö þar yfir og rétturinn bakaöur í ofni, 200°C í 40 mín. Best er aö láta réttinn aöeins bíöa í ofninum þegar hann er tilbúinn. Gæta þarf þess aö „pasta“- plöturnar séu vel þaktar sósu svo þær haröni ekki í ofninum. Lasagne er borið fram meö góöu brauöi og smjöri og græn- metissalati. Spaghetti í ofni 100 gr spaghetti eöa annaö „pasta“ vatn 1 matsk. olía salt 150grhakkaökjöt 1 matsk.smjörlíki 'h laukur, saxaöur 1 stórgulrót, gróft rifin 2 matsk. söxuð steinselja salt, pipar ’Atsk.oregano 'h dós niðursoðnir tómatar 'h dós tómatþykkni % dl kaffirjómi 75—100 gr rifinn ostur Spaghetti soöiö í léttsöltu vatn- inu. Olíu bætt í suðuvatnið, vatniö látiö renna vel af eftir suöu. Kjötiö sett á pönnu, brúnaö í smjörlíki, losaö í sundur, kryddi og græn- meti bætt út í, þynnt meö leginum af tómöfunum og tómatþykkninu, aöeins látið malla og bragöbætt aö smekk. Spaghetti og kjötsósa sett í smurt ofnfast fat, blandaö saman, niöursoönir tómatar lagö- ir ofan á, rifnum osti og rjóma blandaö saman og sett efst. Sett í ofninn viö 225°C í 15—20 mín. eða þar til osturinn er oröinn gyllt- ur á lit. Brauö og smjör boriö meö. Hægt aö laga þennan rétt fyrirfram, þ.e. sjóöa spaghetti og brúna kjötiö og setja svo í ofninn rétt fyrir neyslu. Skammturinn er ætlaðurfyrirtvo. í jógúrt-ábætisrétti misritaöist uppskriftin. Rétt er hún svona: 3 matsk. vanilluís, 1 'h dl jaröar- berjajógúrt, 1 matsk. jaröarberja- sulta eöa jaröarber.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.