Morgunblaðið - 18.01.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986
Ekkert verður
úr kjötútflutn-
ingi til Ameríku
Kaupandinn gat ekki lagt fram greiðslu-
tryggingar og annast birgðahaldið
FULLTRÚAR Landssamtaka sauðfjárbænda hafa rift samkomulagi
sem þeir gerðu í nóvember við bandarískt kjötsölufyrirtæki um út-
flutning á 70—100 tonnum af dilkakjöti tíl Bandaríkjanna. Sigurgeir
Þorgeirsson sauðfjárræktarráðunautur sem vann að þessu máli fyrir
sauðfjárbændur staðfesti þetta i gærkvöldi, en vUdi ekki greina frá
ástæðum ákvörðunarinnar fyrr en eftir að þeim sem að tilrauninni
stóðu hefði verið gerð grein fyrir málinu. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins gat bandaríski kaupandinn ekki lagt fram trygging-
ar fyrir greiðslum og ekki staðið við að hafa birgðahald með höndum.
í nóvember kom eigandi kjötsölu- með höndum. Þetta var annað en
fyrirtækisins hingað til lands,
kynnti sér aðstæður og gerði sam-
komulag við fulltrúa Landssamtaka
sauðfjárbænda um útflutning á
70—100 tonnum af dilkalqoti sem
tekin voru frá í sláturtíðinni í slátur-
húsinu í Borgamesi. Áætlað skila-
verð var rúmar 100 krónur fyrir
hvert kíló, sem er hærra verð en
yfírleitt hefur fengist fyrir íslenska
dilkakjötið á erlendri grund. Jafn-
framt var gert ráð fyrir að ennþá
meira kjöt yrði flutt út á næstu
árum og að verðið færi hækkandi.
Samkomulag aðila gerði ráð fyrir
að kaupandinn hefði birgðahald
ytra með höndum og fékk hann í
staðinn greiðslufrest á kjötinu. Var
þetta eitt af þeim skilyrðum sem
landbúnaðarráðuneytið setti fyrir
þessum viðskiptum. Formlegan
samning um kjötviðskiptin ætluðu
aðilar að undirrita þegar lögfræð-
ingar hefðu útfært þau drög að
samkomulagi sem gerð voru.
Af óljósum ástæðum urðu tafír
á því að kaupandinn staðfesti
samkomulagið með undirskrift sinni
og framlagningu greiðslutrygginga
og var ákveðið að Sigurgeir Þor-
geirsson og Jóhannes Kristjánsson
formaður sauðfjárbænda færu til
New York til að fá botn í málið.
Þá fyrst mun hafa komið í ljós að
erlendi kaupandinn gat ekki lagt
fram greiðslutryggingar og treysti
sér ekki til að hafa birgðahaldið
Ágætt
helgar-
veður
ÁGÆTT veður verður á öllu
landinu um helgina samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblaðið
fékk hjá Veðurstofunni í gær.
Hæg breytileg átt verður um allt
land og él á víð og dreif. Hiti verður
nálægt frostmarki við ströndina en
vægt frost inn til landsins. Gert er
ráð fyrir að veðrið haldist óbreytt
fram á þriðjudag.
um var talað og riftu fulltrúar
sauðfjárbænda þá samstarfínu, þar
sem þeir höfðu ekki umboð til að
breyta þessu grundvallaratriði við-
skiptanna. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins tíðkast það
ekki í Bandaríkjunum að viðskipti
fari fram með þeim hætti sem gert
var ráð fyrir í samkomulagi sauð-
flárbænda og bandaríska kaupand-
ans.
Færíflestan sjó
Morgunblaðið/OI.K.M.
Það þýðir ekki að láta deigan síga þótt það snjói svolítið, enda virðist hann fær í flestan sjó dreng-
urinn sem Ól.K.M. ljósmyndari Morgunblaðsins myndaði í Reykjavík í gær þar sem hann var að
ýta bamakerrunni.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1986:
Niðurstöðutalan er
4,2 milljarðar króna
— 46,21% tekna af útsvörum, 26,92% útgjalda til félagsmála
„Sú fjárhagsáætlun borgar-
innar, sem hér liggur fyrir, hefur
nokkur skýr einkenni. Hún ber
með sér, að fjárhagur borgarinn-
ar er afar traustur. Skuldir borg-
arsjóðs eru óverulegar miðaðar
við miklar eignir borgarinnar.
Hefur skuldastaðan batnað veru-
lega miðað við eignastöðu
Reykjavíkurborgar. Sama er að
segja um fyrirtæki borgarinnar, “
sagði Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, þegar fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar kom til ann-
arrar umræðu og afgreiðslu f
borgarstjórn á fimmtudags-
kvöld. Talsmenn vinstri flokk-
anna töldu, að áætlunin bæri
þess merki, að í ár yrði kosið til
borgarstjómar. í henni væri
tjaldað fram yfir kjördag 31.
maí næstkomandi.
Borgarstjóri sagði að ekki væri
um neina yfírdráttarskuld að ræða
hjá viðskiptabanka borgarsjóðs, ef
frá væri talinn hallinn á Borgarspít-
alanum, sem nam um 180 milljón-
um króna á síðasta ári. Hallinn
verður greiddur úr ríkissjóði. Tals-
menn minnihlutaflokkanna bentu á,
að í íjárhagsáætlun síðasta árs
hefði verið gert ráð fyrir 20,5 millj-
ón króna lántöku eða yfírdrætti en
niðurstaðan hefði orðið 250 milljón-
ir.
Davíð Oddsson sagði, að hinn
góði árangur við flármálastjóm
borgarinnar hefði náðst, þótt gjald-
stofnar fasteignaskatta og útsvars
hefðu verið lækkaðir frá því sem
var á stjómartíma vinstri flokk-
anna. Sigurjón Pétursson, oddviti
alþýðubandalagsmanna, sagði, að
kjaraskerðing ríkisstjómarinnar
hefði aukið framkvæmdafé borgar-
innar úr 200 milljónum í 1000
milljónir.
Niðurstöðutölur flárhagsáætlun-
arinnar fyrir þetta ár eru 4,2 millj-
arðar, sem er 35,2% hækkun frá
síðasta ári. 46,21% tekna eru áf
útsvari, 15,29% af fasteignagjöld-
um og 19,29% af aðstöðgjöldum.
26,92% af útgjöldum renna til fé-
lagsmála, 11,33% til fræðslumála,
7,89% til heilbrigðismála, 5,84% til
lista, íþrótta og útiveru og 4,75%
til stjómar borgarinnar.
MoivunblaÓið/Júlíua
Eirc Rodwell og Bjöm Theódórsson formaður BSI, fyrir aftan
Davíð Oddsson. Við hlið hans sitja Ámi Njálsson og Bragi.
Bridshátíð hafin
í gærkvöldi hófst bridshátíð á
Hótel Loftleiðum. Hófst hátíðin á
tvímenningskeppni þar sem 44
pör taka þátt og em þar á meðal
margir heimsþekktir spilarar. Það
var Davíð Oddsson borgarstjóri
sem setti mótið og sagði síðan
fyrstu sögnina fyrir Bandaríkja-
manninn Eric Rodwell. Mikill
fyöldi áhorfenda var á mótinu f
gærkvöldi en því lýkur á mánu-
dagskvöld.
155 breytingartillögur
frá vinstri flokkunum
VIÐ AFGREIÐSLU fjárhagsáætlunar Reykjavíkur fyrir 1986 vakti
Davíð Oddsson, borgarstjóri, máls á sundurlyndi vinstri flokkanna
í borgarstjóm og sagði málatilbúnað þeirra við afgreiðslu áætlunar-
innar lýsa því best. Lýsti hann því með þessum orðum:
atkvæðagreiðslu- ingslið og í 9 tilvikum 3 flokkar. í
Magnús L. Sveinsson, forseti
borgarsfj órnar, stjómar at-
kvæðagreiðslu við afgreiðslu
fjárhagsáætlunarinnar.
„Samkvæmt
skrá flytur minnihlutinn samtals
155 breytingartillögur.
Skipting:
Alþýðubandaiag 49
Framsóknarflokkur 39
Kvennaframboð 44
Alþýðuflokkur__________________23
155
Við einstaka reikningsliði er í 76
tilvikum aðeins flutt ein breytingar-
tillaga, í 26 tilvikum flytja 2 flokkar
breytingartillögur við sama reikn:
engu tiiviki flytja allir 4 flokkamir
breytingartillögur við sama reikn-
ingsliðinn.
I þeim 26 tilvikum, sem 2 flokkar
flytja breytingartillögur við sama
reikningslið, eru þeir sammála
aðeins í 5 tilvikum. I þeim 9 tilvik-
um, sem 3 flokkar flytja breyting-
artillögur við sama reikningslið, eru
þeir sammála aðeins í 2 tilvikum."
Við atkvæðagreiðslu í borgar-
stjóm voru aðeins tvær af tillögum
minnihlutans samþykktar.
Semeiit og
steypa
hækka
VERÐLAGSRÁÐ heimilaði á
fundi sínum á föstudag 15%
hækkun á sementi. Búast má
við að hækkunin leiði til
6—10% hækkunar á steypu.
Sementspokinn (50 kg) kost-
ar nú 281 kr. en hækkar um
rúmar 40 krónur, upp í rúmar
320 krónur. Hækkun sements-
ins tekur gildi á mánudag.
Hafskipsmálið
Tilnefndir í rannsóknarnefnd
HÆSTIRÉTTUR tilnefndi i gær
menn í rannsóknarnefnd á við-
skiptum Hafskips samkvæmt
lögum sem samþykkt voru á
Alþingi f desember. í nefndina
voru tilnefndir: Jón Þorsteinsson
hæstaréttarlögmaður, sem er
formaður, Brynjólfur I. Sigurðs-
son dósent við Háskóla Islands
og Sigurður Tómasson Iöggiltur
endurskoðandi.
Samkvæmt lögunum er hlutverk
nefíidarinnar að kanna hvort um
óeðlilega viðskiptahætti hafi verið
að ræða f viðskiptum Útvegsbanka
íslands og Hafskips hf. á undan-
fömum árum eða í viðskiptum
Hafskips við aðra aðila. Nefndin á
að hraða störfum sínum og skila
skýrslu tii viðskiptaráðherra sem
gerir Alþingi grein fyrir störfum
og niðurstöðum nefndarinnar.