Morgunblaðið - 18.01.1986, Page 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR 1986
Situr áfram
í sljórn LÍN
að ósk mennta-
málaráðherra
ÓLAFUR Arnarson, stjómar-
maður í Lánasjóði íslenskra
námsmanna fyrir hönd stúdenta,
lagði fram lausnarbeiðni sina á
fundi með menntamálaráðherra
ígær.
Ráðherra fór hinsvegar fram á
að Ólafur starfaði áfram í stjóm
LÍN fram til næstu Stúdentaráðs-
kosninga, sem fram fara í mars nk.
„Ég varð við ósk ráðherra um
að sitja áfram fyrst um sinn þar
sem ég tel að aðrar viðræður okkar
Sverris Hermannssonar í gær hafi
verið ákaflega hagstæðar fyrir
hagsmunabaráttu stúdenta", sagði
Ólafur í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins. Ólafur sagðist
vona að gott samstarf myndi takast
milli sín og nýrrar stjómar Stúd-
entaráðs HI en gert er ráð fyrir að
Félag vinstri manna og Félag
umbótasinnaðra stúdenta gangi til
samstarfs.
Ólafur sagði að nú væri vinna
við úthiutunarreglur næsta skólaárs
að hefjast innan stjómar LÍN. „Ráð-
herra taldi æskilegt að ég, sem hef
þegar setið um tíma í stjóminni,
tæki þátt í að móta þær reglur",
sagði Ólafur.
Heilbrigðis-
fulltrúi lokar
Selfossbíói
Seifossi, 17. janúar.
Heilbrigdisfuiltrúinn á Suður-
landi dæmdi í dag Selfossbíó
óhæft til samkomuhalds og ann-
arrar starfsemi. Fyrirhugað var
að halda diskótek í húsinu í
kvöld, en við skoðun var húsið
dæmt óhæft vegna ástands sal-
erna.
Áformað er að rífa Selfossbíó,
en ekki er ákeðið hvenær af því
verður. Bæjaryfirvöldum hefur ver-
ið bent á brunahættu sem stafar
af bíóinu, einkum með tilliti til þess
að það stendur við austurhlið nýja
félagsheimilisins.
— Sig.Jóns.
Opið 10—17 í dag
KOMIÐ og SKODIÐ
DAIHATSU
CUORE
(Borið fram Kúore)
Enn einn brautryðjandinn frá
DAIHATSU.
DAIHATSUUMBOÐIÐ
Ármúla 23, s. 685870 — 81733.
Selfoss:
Starfsemi Mjólkur-
bús Flóamanna í
samt lag eftir helgi
FRAMLEIÐSLA á G-vörum hjá
Mjólkurbúi Flóamanna hefst af
fullum krafti eftir helgina, en
starfsemi G-vörudeildarinnar lá
niðri á föstudag eftir að mikill
reykur komst þar inn við brun-
ann sem varð miðvikudaginn 15.
janúar.
Þessa dagana stendur yfír alls-
herjar hreingeming á Mjólkur-
búinu. Vélar og tæki, gólf, veggir
og loft era sápuþvegin, sömuleiðis
allir koppar og kimur.
Strax síðdegis á miðvikudag var
hafíst handa við hreingeminguna
og allt gert klárt fyrir starfsemi
búsins daginn eftir.
Vesturhluti Mjólkurbúsins varð
verst úti af reyknum og þar vora
menn önnum kafnir við hreingem-
inguna, rafvirkjar yfírfóra tölvu-
stýrðan tækjabúnað G-vöradeildar-
innar og mjólkurfræðingar þvoðu
og skrúbbuðu. Gert er ráð fyrir að
framleiðsia á G-vöram hefjist strax
eftir helgi.
í Camembert- og rjómaostagerð-
inni var búið að þvo allt í hólf og
gólf og menn tilbúnir að hefjast
handa við ostagerð.
Sig. Jóns.
Guðmundur Ketilsson og Mangor
Mikkelsen tilbúnir að hefjast
handa við Camembert-ostinn.