Morgunblaðið - 18.01.1986, Síða 22
22________
Amsterdam
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986
N-írskir hryðju-
verkamenn teknir
Frá Eggert H. Kjartanssyni, fréttarítara Morgimbiadsina í Hollandi.
BRESKA leyniþjónustan hefur lýst ánægju sinni með handtöku
þriggja hryðjuverkamanna úr irska lýðveldishernum í Amsterdam
sl. fimmtudagfsmorgun. Handtakan átti sér stað eftir að yfirvöld í
Bretlandi höfðu farið fram á handtöku og framsal hryðjuverkamann-
anna við hollensk yfirvöld.
Samkvæmt upplýsingum blaða-
fulltrúa lögreglunnar í Amsterdam
fór handtakan fram um fimmleytið
á fímmtudagsmorgni. Lögreglu-
mennimir höfðu þá haft gætur á
íbúðinni, sem íramir dvöldust í, frá
því kvöldið áður. Þegar lögreglu-
mennimir gerðu innrás í íbúðina,
sváfu mennimir og veittu því enga
mótspymu.
í gám, sem íramir höfðu á leigu
og stóð fyrir aftan ólympíu-íþrótta-
höllina í Amsterdam, fundust 14
rifflar, tvær skammbyssur, tvær
handsprengjur og ijórar tunnur af
nitrobensen, efni, sem notað er við
framleiðslu sprengja. Vopnin voru
öll vestræn, nema einn riffíllinn sem
var rússneskur. Blaðafulltrúinn
sagðist hvorki vita hversu lengi ír-
amir hefðu dvalist í Holiandi, né
hvert ætlunin hefði verið að senda
gáminn.
Fram til þessa hafa fangamir
eingöngu viðurkennt að þeir séu
frá Norður-írlandi. í fómm þeirra
fúndust fölsuð vegabréf. Tveir
Iranna em vel þekktir hjá lögregl-
unni, þeir Brendan McFarlane (34
ára) og Gene Kelly (30 ára). Sá
fyrmefndi hefur verið dæmdur
vegna morða á fímm mótmælendum
á Norður-írlandi og sá síðamefndi
vegna sprenginga í London.
Hryðjuverkamennimir flúðu
þann 26. september 1983 úr Maze-
fangelsinu á N-írlandi. Af þeim 38
föngum, sem tókst að flýja, fundust
19 þeirra fljótlega aftur.
Um það hvenær hryðjuverka-
mennimir yrðu framseldir breskum
stjómvöldum, sagðist blaðafulltrú-
inn ekkert geta sagt á þessu stigi
málsins.
PEN-þingið í Bandaríkjunum:
Konur óánægðar
með sinn hlut
New York, 17. janúar. AP.
HERSKÁAR kvenréttindakonur ollu truflunum á alþjóðaþingi rit-
höfundasamtakanna PEN f gær, er þær kröfðust skýringa á þvi
hvers vegna konum væri ekki meiri sómi sýndur á þinginu. Að
þeirra sögn eru aðeins 16 konur meðal þeirra 117 sem voru valdir
til þess að taka þátt í umræðum á þinginu.
„PEN hljóta að vera samtök sem
vinna að því að afnema ójafnrétti.
Þau ættu ekki að ýta undir það í
sínum eigin samtökum," sagði í
ályktun frá konunum. Þær kröfðust
einnig skýringa frá rithöfundinum
Normans Mailer, sem er forseti
PEN-samtakanna í Bandaríkjunum
og einn af aðalskipuleggjendum
þingsins, á lýrum hlut kvenna á
þinginu. Þá skipuðu þær nefnd til
að rannsaka uppbyggingu PEN-
samtakanna og lítinn hlut kvenna
þar.
Að öðru leyti fór þingið í gær
að mestu fram í fríði og spekt. Þó
stóð nokkur styrr um ummæli þýska
rithöfundarins Gunter Grass. í
umræðum um draumalandið sagðist
hann ekki skilja hvers vegna rit-
höfundar fyrirlitu Sovétríkin jafn
mikið og raun bæri vitni. „Fjár-
magnskerfið er einnig draumsýn.
Er það betra en . . . kommúnism-
inn? Það held ég ekki,“ sagði Grass.
„Ég verð að viðurkenna að ég
var furðu lostinn vegna ummæla
hans. Ég trúi ekki að þau gefí rétta
mynd af þvi sem hann hugsar . . .-
Mér fannst þetta vera vondur
draumur," sagði rithöfundurinn
Susan Sonntag.
Leikritahöfundurinn Arthur Mill-
er og forseti PEN í Frakklandi,
Rene Tavemier, héldu fund með
útlægum rithöfundum, sovéskum,
til þess að vekja athygli á raunum
fangelsaðra sovéskra rithöfunda.
Miller sagði að betur horfði í málum
rithöfundanna eftir leiðtogafundinn
í Genf seint í haust, en sovéski
rithöfundurinn, Vassily Aksyonov,
sagði að hann sæi þess iítil merki
að ástandið væri að batna. Nefndi
hann sem dæmi, máli sínu til stuðn-
ings, mál sovéska rithöfundarins
Mikhails Maylach, sem hefur verið
handtekinn, ákærður fyrir að hafa
erlendar bækur undir höndum.
Kína:
Peking, 17. janúar. AP.
KINVERSK stjómvöld hafa á
undanfömum fimm árum skipt
um 90% af yfirstjómendum 3.000
helstu iðnfyrirtækja landsins, að
því er sagði i opinberri tilkynn-
ingu, sem birtist i dag.
En sumir þeirra, sem hækkaðir
voru í tign, hafa reynst „óverðugir"
og aðrir misnotað vald sitt til per-
sónulegs ávinnings, er haft eftir
Wei Jianxing, jrfírmanni áætlunar-
stofnunar ríkisins.
Wei tjáði landsfundarmönnum á
efnahagsmálaráðstefnu kommún-
istaflokksins í Peking, að betur
menntaðir, yngri og hæfari stjóm-
endur hefðu tekið við mikilvægustu
framleiðslufyrirtækjunum í tveimur
lotum og hefðu mannaskiptin hafist
1982.
Fyrmefnd 3.000 fyrirtæki fram-
leiða um 45% af þjóðarframleiðsl-
unni, að því er fram kemur í Dag-
blaði alþýðunnar og fleiri blöðum.
Nýju stjómendumir em 46,6 ára
gamlir að meðaltali, og 89% þeirra
hafa framhaldsmenntun.
Mannaskipti þessi em þáttur í
viðleitni kínverska þjóðarleiðtog-
ans, Dengs Xiaoping, til losna við
dragbíta og vanhæfa embættis-
menn og ráða í staðinn atorkusamt
tæknifólk, sem hefur áhuga á fram-
fömm.
Skora á EB-löndin að
afnema dauðarefsingu
Hafa skipt um
90% af sljórn-
endum 3000
helstu iðnfyrir-
tækja landsins
í TÓKÝÓ kom til allmikilla mótmæla þegar Shevardnadze,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna, kom þangað til viðræðna um
Kúrileyjar. Sovétmenn tóku þær af Japönum í stríðslok og hafa
ekki skilað þeim aftur.
Tókýó:
Viðræður um
Kúrileyjar
Tókýó, 17. janúar. AP.
EDUARD Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og
Shintaro Abe, utanríkisráðherra Japans, áttu I nótt, aðfaranótt
föstudagsins, sinn fjórða fund um landadeilur ríkjanna. Hafði
ekki veríð gert ráð fyrir þessum fjórða fundi.
Ekki er vitað hvort nokkur ár- Hefur þetta mál staðið í vegi fyrir
angur hefur orðið af þessum við-
ræðum en þær snúast um Kúril-
eyjamar fyrir norðan Japan. Þær
tóku Sovétmenn af Japönum í
stríðslok og hafa ekki skilað aftur.
eðlilegum samskiptum rikjanna
og valdið því, að þau hafa ekki
enn lýst formlega yfír stríðslok-
um.
Evrópuþingið:
Stnubourg, Frakklandi, 17. janúar. AP.
EVRÓPUÞINGIÐ skoraði í dag
á ríkisstjómir aðildarlanda EB
að afnema að fullu dauðarefs-
ingu.
Aftökur eru ekki lengur fram-
kvæmdar í Vestur-Evrópu, en í
sumum landanna er dauðarefsing
enn til í lögum.
I ályktun þingsins eru ríkisstjóm-
ir landanna 12 hvattar til að stað-
festa Evrópusáttmálann, sem kveð-
ur á um afnám dauðarefsingar. Öll
EB-löndin nema Bretland og Irland
hafa undirritað sáttmáiann, en
aðeins Frakkland, Spánn, Danmörk
og Luxembourg hafa staðfest hann.
Enda þótt Belgía og Grikkland
hafí skrifað undir sáttmálann, hefúr
í hvomgu landanna verið gerður
reki að því að fella úr gildi öll lög,
sem kveða á um dauðarefsingu. Og
f Bretlandi em enn í gildi lög um
dauðarefsingu fyrir föðurlandssvik.
Listahátíð
unga fólksins
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Nýkominn frá útlöndum hefur
undirritaður í þrígang gengið um
sali Kjarvalsstaða og virt fyrir sér
verk ungs fólks á myndlistarvett-
vangi.
Til þessarar hátíðar virðist hafa
verið stofnað til þess að sýna
þverskurð af því sem ungt fólk
er að gera víðs vegar á landinu á
listavettvangi og er það mjög
mikilsvert framtak og þannig séð
hvom tveggja virðingarvert og
lofsvert. Ungt fólk á rétt á þeirri
nákvæmustu og bestu þjónustu
er mögulegt er að veita því á sviði
skapandi atriða.
Hvað myndlistina snertir þá
þarf enginn að efast um ágæta
hæfileika yngstu kynslóðarinnar
er virðir fyrir sér myndverkin í
Vestursal og vesturgangi því að
víða má sjá hressileg vinnubrögð
og athyglisverð tilþrif.
En það sem vekur þó athygli
öðm fremur er hve mglingslega
þessi sýning er sett upp og hve
verkin njóta sín illa í uppsetningu
allri. Líkist sýningin meira vor-
sýningu í skóla, sem ekki hefur
verið vandað sérstaklega til en
sérstakri listahátíð. Að sjálfsögðu
er rétt í sambandi við slíka fram-
kvæmd, að taka allt með og hafna
engu því að hér er um yngsta
vaxtarbroddinn að ræða og því
er öll myndskoðun út í hött. Hér
hefði og Laugardalshöliin verið
tilvalinn vettvangur því að þar er
nóg rými og staðurinn samræmist
meira steftiumörkun fram-
kvæmdaraðila.
Það er fátt sem réttlætir það,
að mbba verkum ungs fólks upp
um alla veggi í húsnæði sem
Kjarvalsstöðum, og á þann veg
að skoðandinn á erfítt með að fóta
sig og skapa sér raunhæfa mynd
af sýningunni í heild svo og koma
auga á gæði einstakra verka.
Hér gefur það auga leið að
viljinn einn dugir ekki ef fagleg
þekking er ekki með í leiknum
hvað undirbúning, framkvæmd og
uppsetningu snertir.
Almenningur virðist og ekki
vera með á nótunum enda em
salimir svo til tómir dag hvem.
Einn af þeim sem munu hafa
staðið að myndlistarsýningunni,
Björgvin Björgvinsson, virðist
vera fær um að taka af okkur
listrýnum ómakið um ítarlega
umljöllun framkvæmdarinnar en
eftir hann birtist ágæt kynningar-
grein hér í blaðinu 16. janúar.
Greinin er meira en réttlætanleg
að mörgu leyti og máski em hér
að myndast ný viðhorf um um-
fjallanir listviðburða á þann veg
að aðstandendur þeirra riti sjálfir
um þá og gerir það störf okkar
listrýna að sjálfsögðu óþörf.
Ber að fagna því vegna þess,
að það yrði mikil útópía allra
þeirra er troða upp á listavett-
vangi um alla framtíð. Við höfum
að sjálfsögðu engan einkarétt á
umflöllun listviðburða enda hafa
hér frændur, frænkur og kærir
vinir listamanna verið iðin við
kolann um mótmæli við skrifum
okkar í langa tíð. En í stuttu máli
þá er ég sammála Björgvini Björg-
vinssyni í aðalatriðum og gerir
það frammígrip frá minni hálfu
með öllu óþörf.
í einstaka tilviki er ég honum
ekki sammála og myndi vilja halda
ýmsum sýnendum meira fram en
hann gerir en það skal látið liggja
á milli hluta enda hef ég ekki í
viðamiklum pósti mínum er fyrir
lá er heim kom, fundið neitt boðs-
kort á listahátíðina og tel ég því
rétt minn til umfjöllunar sýningar-
innar af skomum skammti. Hins
vegar tel ég mig hafa fullan rétt
á því að vísa til þess, að hér hefur
ekki verið rétt að verki staðið
því að það er skoðun mín að með
markvissum undirbúningi, metn-
aðarfullu skipulagi og mikilli
áróðusherferð hefði sýningin
fengið verðskuldaða aðsókn al-
mennings og vakið óskipta at-
hygli.
Fleira hef ég ekki um fram-
kvæmdina að segja en hylli ungt
fólk í viðleitni þess á skapandi
vettvangi. Þeim vettvangi sem ég
tel mikilvægastan á landi hér.