Morgunblaðið - 31.01.1986, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986
Að bregða á sig grímu, fara í annarra líki og skunda svo
á grímuball, er ágætis tilbreyting í skemmtanalífinu. Slíkt
gerðu nemendur Myndlista- og handíðaskólans nýverið á
Hótel Borg, þar sem Árni Sæberg tók meðfylgjandi myndir
rv M m-- Wg-, 1
Wy l|
ræða þreytu, iangvarandi mikið
sjónálag eða þá það að gleraugu
séu ekki lengur rétt fyrir augun.
Og lestrargleraugu henta oft ekki
við tölvuvinnu, þar sem fjarlægðin
frá auganu til textans getur verið
allt að tvöfalt lengri en ef um bók
væri að ræða. Afleiðing þessa
getur m.a. falist í röngum vinnu-
stellingum, þegar fólk fer að halla
sérfram á við til að sjá á skjáinn."
— Getur þetta þýtt að þeir sem
á annað borð nota gleraugu þurfi
sérstök gleraugu fyrir vinnu við
tölvuskjái?
„Það er vel mögulegt ef fólk
vinnur mikið við tölvuskjái, sér-
staklega ef það er líka komið fram
á miðjan aldur. Ef fólk hins vegar
á við langvarandi augnsjúkdóma
að stríða eða hefur fremur litla
sjón, þá hugsa ég að vinna við
tölvuskjái sé ekki æskileg til lengd-
ar."
Áhrif lyfja
— Annað mál. Geta lyf haft
áhrifáaugun?
„Það eru til fáein lyf sem geta
haft áhrif á bæði hornhimnu og
sjónhimnu og það eru þá aðallega
gigtarlyf. En gigtarlæknar passa
mjög vel upp á þá sjúklinga sem
eru á slíkum lyfjum og hafa með
þá góða samvinnu við augnlækna.
Eins eru til meltingarlyf sem verka
á ósjálfráða taugakerfiö og geta
mögulega haft áhrif á sjónstilling-
una, vídd Ijósops augnanna og í
alveg sérstökum tilvikum valdið
sjaldgæfum sjúkdómi sem heitir
bráðagláka, en slíkt er afar fátítt."
Ættgengir augn-
sjúkdómar
— Þegar þú minnist á bráða-
gláku dettur mér í hug sú tegund
I„Lestrargler-
augu henta oft
ekki við tölvu-
vinnu, þar sem
fjarlægdin frá
auganu til text-
ans getur verið
tvöfalt lengri
en ef um bók
væri að ræða.“
gláku sem er öllu þekktari og talin
ættgeng. Er mikið um ættgenga
augnsjúkdóma?
„Já, glákan er talin dálítil ættar-
fylgja, þó þannig að um sé að
ræða mjög nákominn skyldleika.
Það er einnig dálítið um sjónlags-
galla sem eru meðfæddir og ætt-
gengir að einhverju leyti, en glákan
er líklega algengust augnsjúkdóma
hvað ættarfylgni varðar.
Karlmenn litblind-
ari en konur
— Svo við hverfum frá ættar-
tengslunum aftur í atvinnulífiö.
Getur litblinda háð fólki verulega
í vinnu?
„Ja, þaö er náttúrulega mjög
æskilegt að hafa gott litarskyn, en
ekki lífsnauðsynlegt. Litblinda eða
brenglað litarskyn í einhverjum
mæli er ekki ýkja óalgengt, en
nokkuð kynbundið. Um hálft pró-
sent kvenna hefur brenglað lita-
skyn á móti átta prósentum karla.
Aðallega eru það rauði og græni
liturinn sem þetta fólk á í erfiðleik •
um með að greina á milli, en það
lærir á litina og á yfirleitt ekki í
erfiðleikum með götuvitana t.a.m.,
I„Augun eru
býsna sterk og
ætluð til notk-
unar. Þau eru
hlutur sem ekki
eyðist og menn
skyldu ekki
spara í þeim
skilningi.“
þó að það kunni að hafa fallið á
litaskynsprófi. Reyndar er ekkí
með öllu rétt að tala um litblindu,
því alger litblinda er mjög sjaldgæf.
En það er með litaskynið eins og
dýptarskynið, sem ekki er nein lífs-
nauðsyn, en ágætt að hafa í lagi,
sérstaklega ef fólk er að vinna
mikla nákvæmnisvinnu þar sem
fjarlægðir skipta máli. En eineygt
fólk sem skilgreiningunni sam-
kvæmt á ekki að hafa dýptarskyn,
kemst nú yfirleitt ágætlega af eftir
sem áður. Hvað þetta tvennt varð-
ar þá er ég ekki frá því að fullmikið
vægi hafi verið lagt á það t.d.
varðandi inntökuskilyrði í vissar
starfsgreinar. Þó eru til aðrar þar
sem þetta skiptir miklu rnáli."
Litir og lýsing
í vimraumhverfi
— Talandi um liti. Geta litir í
umhverfi haft áhrif á sjónina?
„Mikil litagleði í umhverfinu
getur verið þreytandi fyrir augun
og skynsamlegt er að gæta þar
hófs, sérstaklega á vinnustöðum
og hafa þar fremur Ijósa liti. Helst
ekki hvítt þó, því hvíti liturinn eykur
likurnar á endurkasti og í þessum
efnum skiptir samspil lita og Ijóss
miklu máli.“
— Það eru sem sé engir alvar-
legar hindranir í atvinnulífinu hvað
augun varðar?
„Nei og eins og ég kom að áðan,
þá er fólk yfirleitt vel á verði hvað
augun snertir. Þegar ég hins vegar
tala um starfsgreinar almennt þá
er ég ekki að meina þau störf sem
krefjast meira af augunum en
almennt gerist, s.s. gullsmíði, úr-
smíði, Ijósmyndun og annað slíkt.
Augnlækningar til dæmis, en við
augnlæknar vinnum yfirleitt í
svona birtu," segir Ólafur Grétar
og breytir lýsingunni á læknastofu
sinni úr skærri birtu í rökkur. Brosir