Morgunblaðið - 31.01.1986, Side 6

Morgunblaðið - 31.01.1986, Side 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986 Heimur minninganna að vakna. Fremst á sviðinu er Kristbjörg Kjeld í hlutverki Þóreyjar, en teipurnar úr Listdansskóla Þjóðleikhússins eru þœr Björg Ólafsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Kristjana Brynjólfsdóttir, Kristjana Guðbrandsdóttir, Klara Gfsladóttir og Vilborg Danfelsdóttir. _______Þaðgerist vístekki á ___________hverjum degi að Þjóðleikhúsið frumflytur nýtt íslenskt leikrit né heldur að _______sýntséverk þarsem einungiskonurstandaá sviðinu og þaðtuttugu talsins. Dagurinn ídager sem sé ekki eins og hver annardaguríþessum efnum, því að í kvöld verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leikritið Upphitun, eftir Birgi Engilberts, sem nú kemur afturfram á sjónarsviðið eftir nærtólfára hvíldfrá________ leikritasmíðum. I millitíðinni sendi hann frá sér bókina Andvökuskýrslur, 1983,en segist að öðru leyti hafa hætt að skrifa um tíma nema þá fyriröskutunnuna, „sem er nú öllum hollt líka,“ svo höfð séu hanseiginorð. Það eru ekki bara lifandi verur sem vakna til lífsins á sviðinu. Þóra Friðriksdóttir, í hlutverki Sóleyjar finnur gömlu tuskudúkkuna systur sinnar í drasli og sú sama dúkka birtist Ijóslifandi í hugarheimi hinnar síðarnefndu. Dúkkuna leikur Sigurveig Jónsdóttir. Upphitun er leikrit sem að- standendur segja nálægt því að vera „sálfræði-þriller", en í miðju leiksins standa systurnar Þórey og Sóley og hefst atburðarásin þar sem móðir þeirra er látin og systurnar komnar ofan í kjall- ara gamla hússins til að fara í gegnum gleymda og grafna hluti úr fortíðinni. Kjallara sem er fullur af dýrindis drasli, því engu hefur verið hent á heimilinu. En í dótinu lifir fortíðin, minningarnar og sár sem ýfast þó ómögulegt sé að sætta sig við ósigur. „Þetta leikrit er svolítill leikur um tím- ann og eilífðina. Margvísleg mósaikbrot úr botni sálarlífsins," segir höfundur. Hann kveður verkið þó ekki ólíkt sínum fyrri í undirrótina, „ég er þarna staddur í þröngri blöndu fánýtis, tilgangsleysis og ósigra. Ósigra sem allir eru dæmdir til, þó sumir eigi sína góðan kafla með. En þetta ósigrastef er held ég í öllu því sem ég hef skrifað," segir Birgir, sem reyndar nefndi einn einþáttunga sinna því nafni, Ósigur. Og það eru tuttugu konur á sviðinu, litlar konur og stórar, en auk leikaranna Kristbjargar Kjeid og Þóru Friðriksdóttur, sem fara með hlutverk Þóreyjarog Sóleyj- ar, koma við sögu þær Sigurveig Jóns- dóttir, Helga E. Jónsdóttir, Tinna Gunn- laugsdóttir, Guðrún Þ. Stephensen, Bryndís Pétursdóttir og Guðrún Þórðar- dóttir, auk ballettdansaranna Katrínar Hall, Helenu Jóhannsdóttur, Láru Stef- ánsdóttur, Sigrúnar Guðmundsdóttur, Birgittu Heide og Astu Henriksdóttur, að ógleymdum telpum úr Listdansskóla Þjóðleikhússins sem taka þátt í sýning- unni. Það er því við nokkurt kvennaríki sem leikstjórinn Þórhallur Sigurðsson hefur unnið undanfarið og líkað tilbreyt- ingin bara vel. Reyndar segist Þórhallur kvennaríki ekki með öllu óvanur, á sínu heimili séu þær fjórar. En af hverju allar þessar konur? „Það er svolítið sem áhorfandinn verð- ur að gera sjálfur upp í leikslok. Og það er engin tilviljun," segir höfundur. En er þá um að ræða verk sem kannski fremur höfðar til kvenna en karla? Leikstjórinn hefur orðið: „Varla. Þarna er um að ræða aðalpersónu sem er fyrrverandi ballerína og þegar minningarnar leita á hana þá fáum við aðeins að gæjast inn í ballett- heiminn og það eru konur sem sýna okkur hann. Hins vegar held ég að Birgir hugsi þetta meira sem dæmisögu um lífið, list- ina og þrána eftirfegurð. Líka það hvernig hægt er að eyðileggja þá þrá. Það er auðvitað nokkuð sem finnst ekki síður í karlmönnum en konum, þannig að þetta er ekki kvennaleikrit í þeirri merkingu," segir Þórhallur, sem leikstýrir nú í 9. sinn á sviði Þjóðleikhússins. Hann glímdi við sitt fyrsta leikstjórnarverkefni þar árið 1973, sem einmitt voru tveir einþáttungar eftir Birgi Engilberts. Þórhallur nefndi innsýnina í ballett- heiminn, en Nanna Ólafsdóttir á heiður- inn af útfærslu þeirrar innsýnar höfundar. „Það má segja að við höfum farið af stað í sameiningu, haldið síðan sitt í hvora áttina og sameinast á ný hvort með sínar hugmyndir og unnið úr þeim," segir Nanna um samvinnu sína við Birgir. „Dansarnir urðu að æfast sér og leikurinn sér áður en glíman við að sameina þessa þætti í sýninguna hófst," segir Nanna og einn dansaranna, Katrín Hall bætir við, „og sjáðu bara hvað þessir þættir sameinast vel." Dansararnir í sýningunni eru sammála um mikilvægi þess að vinna í sýningu sameiginlegri leik og ballettn- um, „því vinnan með leikurunum og uppbygging leikrits krefst annars konar hluta en dansinn. Nokkrar okkar eru líka rneð setningar, sem er óvanalegt fyrir dansara og svo er bara svo gaman að reyna eitthvað nýtt," segir Sigrún Guð- mundsdóttir, ballettdansari sem einnig leikur aðra af tveimur yngri útgáfum Þór- eyjar. „Birgir er gömul leikhúsrotta og nýtir þekkingu sína á leikhúsi mjög vel, eins og þar sem hluti verksins gerist á leiksviði," segir sú sem fer með hlutverk Þóreyjar, Kristbjörg Kjeld. Nanna tekur í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.