Morgunblaðið - 31.01.1986, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 31.01.1986, Qupperneq 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986 HVAD ERAÐ GERAST UM SÖFIW Listasafn Einars Jónssonar: Safn og garður MYNDLIST Verkstæðið V: Öðruvísi gallerí Verkstæðið V er gallerí og verk- stæði í senn, þar sem fimm þráð- listamenn vinna og sýna. Þeir eru: Elísabet Þorsteinsdóttir, vefur, Guðrún Jónsdóttir Kolbeins, vefur, HerdísTómasdóttir, vefurog þrykk, Jóna S. Jónsdóttir, þrykk, og Þuríður Dan Jónsdóttir, þrykk. Á verkstæðinu eru til sýnis og sölu myndverk úrýmsum efnum t.d. hör, ull, silki, handspunnu hross- hárí, bómull ýmist áþrykkt eða ofin. Einnig þrykkt gluggatjöld og ofnar gólfmottur. Þar að auki er ýmislegt smálegt til gagns og myndir, fatnað- urog fleira. Verkstæðið er opið alla virka daga frá kl. 10.00 til 18.00 og á laugardögum frá 10.00 til 16.00. Verkstæðið ertil húsa í Þingholts- stræti 28, við hliðina á Næpunni, móti lessal Borgarbókasafns Reykjavíkur. Listasafn íslands: Kjarvalssýning í Listasafni íslands stendur nú yfir sýning á öllum myndum Jóhann- esar S. Kjarvals í eigu safnsins, 130 að tölu. Eru það olíumálverk, teikn- ingar og vatnslitamyndir sem spanna allan listferil málarans. í tengslum við sýninguna hefur verið gefið út rit með Ijósmyndum af öllum listaverkunum, 116 svart- hvítar og 12 í lit. Ritið er hið vandað- asta og um 180 blaösíður. Sýningin eropin á þriðjudögum, fimmtudög- um, laugardögum og sunnudögum frákl. 13.30 til 16.00. ísafjörður: Slunkaríki „Made in Holland" nefnist sýn- ing, sem stenduryfir í Slunkaríki á ísafirði. Níu erlendir listamenn sýna verk sín en þeir starfa allir í Hollandi og eru í tengslum við Ríkisakademí- una í Amsterdam og stunda þar nám. Hver listamaður sýnir verk sín í eina viku í senn. Verkin eru málverk, teikningar, grafík og skúlptúr. Þau eru öll til sölu. Sýningin er opin þriðjudaga, fimmtudaga og föstu- daga kl. 16.00 til 18.00 og um helgarkl. 15.00 til 18.00. Ókeypis er inn á allar sýningar á vegum Myndlistarfélagsins á ísafiröi í Slunkaríki. Akranes: Myndlistarsýning með tónverkum Guðmundur Rúnar Lúðvíksson opnaði myndlistarsýningu í Bók- hlöðunni á Akranesi í gær og stend- ur hún fram á sunnudagskvöld. Á sýningunni verða frumflutt tón- verk sem Guðmundur hefur samið og tengjast myndunum. Á þessari sýningu er hann með blandaðar myndir, olíu, vatnsliti og krítarmynd- ir. Guðmundi Rúnari hefur verið boðið erlendis með sýninguna á þessu ári. Sýningin er opin kl. 16.00 til 22.30 í dag og um helgina kl. 14.00 til 21.00. Flestarmyndirnar eru til sölu. Kjarvalsstaðir: Málverk Sigfúsar Halldórssonar Sigfús Halldórsson heldur nú sýningu á 150 Reykjavíkur-myndum sem hann hefur máíað á sl. þremur árum. Sigfús hefuráöurhaldiö sjö einkasýningar auk þess sem hann hefurtekið þátt í samsýningum hér * // / 'tfUO KENWOOD Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30 til 16.00. Höggmyndagaröur- inn er opinn daglega frá kl. 11.00 til 17.00. Sædýrasafnið: Dýrin mín stór og smá Sædýrasafnið verður opið um helgina eins og atla daga frá kl. 10.00 til 19.00. Meöal þess sem ertil sýnis eru háhyrningar, Ijón, ísbjörn, apar, kindur og fjöldi ann- arra dýra, stórra og smárra. Úr verki Halldórs Laxness, „Silfurtunglinuu, sem Leikfólag Akureyrar sýnir nú um þessar mundir. Leikfélag Akureyrar: Silfurtunglið og Jólaævintýri UM HELGINA sýnir Leikfélag Reykjavíkur bæði Siifurtunglið eftir Laxness og Jólaævintýri, sem byggt er á sögu Dickens. Silfurtunglið var frumsýnt þann 24. janúar sl. og hefur hlotið góðar viðtökur og lof gagnrýneda. Haukur J. Gunnars- son leikstýrir og hannaði búninga og hafa hann og Örn Ingi leikmyndahönnuður horfið til ársins 1954 í allri umgjörð leiksins. Ingvar Björnsson hannaði lýsinguna og Edward Frederiksen útsetti tónlist, sem byggir á lagi Jóns Nordal við barnagælu Laxness, „Hvert örstutt spor“. Silfurtunglið er sýnt í kvöld, föstudag, og annað kvöld, laugardag, kl. 20.30. Á sunnudag kl. 16.00 verður Jólaævin- týri á fjölunum, söngleikurinn vinsæli með Árna Tryggvason í aðalhlutverki. Sýningum á Jólaævintýri fer að fækka. Ásmundarsafn: Konan í list Ásmundar Nú stenduryfiríÁsmundarsafni við Sigtún sýning sem nefnist „Kon- an í list Ásmundar Sveinssonar". Er hér um að ræða myndefni sem tekur yfir mestallan feril Ásmundar og birtist í fjölbreytilegum útfærsl- um. Sýningin er opin í vetur á þriðju- dögum, fimmtudögum, laugardög- um og sunnudögum kl. 14.00 til 17.00. SAMKOMUR Húnvetningafélagið: Félagsvist Húnvetningafélagið í Reykjavík efnirtilfélagsvistará morgun, laug- ardag, kl. 14.00 í húsnæði félags- ins, Skeifunni 17. Ætlunin erað spilað verði næstu laugardaga á sama tíma. Félagið væntir þess að þessi tími henti fólki vel og félagar fjölmenni ásamt gestum. VISA HEIMILIS- 0G RAFTÆKJADEILD Verd kr. 13.830,- LAUGAVEGI 170- 172 SIMAR 11687 - 21240 og erlendis og sýnt út um lands- byggðina. Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00 til 22.00 og lýkur 10. febrúar. Gallerí íslensk list: Bragi Ásgeirsson í Gallerí íslensk list að Vesturgötu 17 verða til sýnis og sölu næstu vikurnar grafík og málverk sem Bragi Ásgeirsson hefur gert á ýmsum tím- um. Galleríið er opið á virkum dög- um á verslunartíma frá kl. 9—17, enlokað erumhelgar. Gallerí Borg: Kristín Þorkels- dóttir Kristín Þorkelsdóttir opnaði sýn- ingu í Gallerí Borg í gær og stendur hún til 12. febrúar. Sýningin ber nafnið „Víddir" en þar er á fjórða tug vatnslitamynda, sem flest allar eru gerðará sl. sumri. Viðfangsefni Kristínar er landið og víðattur þess. Kristín hefur tekið þátt í sjö samsýn- ingum hér heima og erlendis, en þetta erönnureinkasýning hennar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.