Morgunblaðið - 31.01.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.01.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986 B 15 Gunnar Örn sýnir nú í Listasafni ASÍ Listasafn ASÍ: Gunnar Örn í Listasafni ASÍ stendur nú yfir sýning á verkum Gunnars Arnar. Þetta er 18. einkasýning Gunnars Arnar og eru á sýningunni 40 máiverk og 5 skúlptúrar. Sýningin stendur til sunnudagsins 9. febrúar og er opin virka daga kl. 16.00 til 20.00 og um helgar kl. 14.00 til 22.00. | Grétar Reynisson við eitt verka sinna Morgunblaöið/Bjarni Nýlistasafnið: Grétar Reynisson Grétar Reynisson myndlistarmaður opnar sýningu í Nýlistasafninu við Vatnsstíg í kvöid, föstudag, kl. 20.00. Á sýningunni eru á annað hundrað myndir unnar í olíu og akrýl. Aður hefur Grétar eingöngu sýnt skúlptúrverk á einkasýningu og samsýningum, auk þess sem hann hefur unnið við leikmyndagerð. Sýningin er opin virka daga kl. 16.00 til 20.00 og um helgar kl. 14.00 til 20.00. Henni lýkur 9. febrúar nk. Hótel Borg: Orator með dansleiki Á Hótel Borg eru nú haldnir dansleikirum helgará vegum Ora- tors, félags laganema í Háskóla ís- lands. Þar verður bryddað upp á ýmsum nýjungum. Gestgjafinn: Eyjakvöld Svokölluð Eyjakvöld eru haldin föstudags- og laugardagskvöld í Gestgjafanum ÍVestmannaeyjum. Yfirskrift þeirra er: Ég vildi geta sungið þér. Flutt verða lög og Ijóð eftir Oddgeir Kristjánsson, Ása í Bæ, Árna úr Eyjum, Gísla Helgason og Gylfa Ægisson. Þar að auki verðurflutt hið nýja þjóðhátíðarlag eftir Lýð Ægisson og Guðjón Weihe. f tengslum við Eyjakvöldin verður boðið upp á pakkaferðir til Eyja. Framreiddur verður ýmiss konar matur sem dæmigerður má teljast fyrir Vestmannaeyjar. Norræna húsið: Tónlist á íslandi í Norræna húsinu stendur nú yfir sýningin „Tónlistá íslandi", þarsem rakin er saga tónlistar á fslandi. Aðaluppistaða sýningarinnar er Ijós- myndaröð og má þar sjá myndir af mörgum þeim, sem komið hafa við sögu í tónlistarlífi íslendinga frá því fyrir aldamót. Einnig eru á sýning- unni ýmsir sögufrægir munir, mörg elstu hljóðfæri landsins, handrit, nóturog bækur. í tengslum við sýninguna er fyrir- lestraröð og verða flutt erindi ásamt tóndæmum um hverja helgi, meðan á sýningunni stendur. Fyrirlesari um þessa helgi er Hjálmar H. Ragnars- son tónskáld og talar hann um ís- lenska píanótónlist, en Atli Heimir Sveinsson og Snorri Sigfús Birgis- son leika sýnishorn úr píanóverkum íslenskra tónskálda. Fyrirlesturinn verður haldinn kl. 17.00 á morgun, laugardag, í Norræna húsinu. Tón- listarsýningin er opin daglega kl. 14.00 til 19.00 fram til 23. febrúar. Norræna húsið: Danskur rithöfund- ur í heimsókn Danski rithöfundurinn Svend Áge Madsen les upp úr verkum sínum í Norræna húsinu kl. 16.00 nk. sunnudag. Hann er með þekktari rithöfundum Danmörku og kom fyrsta bók hans út árið 1963. Hann hefur síðan sent frá sér um það bil 20 bækur: skáldsögur, smásögur og leikrit. Svend Áge kom til Islands fyrir um 10 árum og var þá nýlokið tíma- bili á rithöfundarferli hans, þarsem hann skrifaði blöndu af fagurbók- menntum og dægrastyttingu til þess að ná til lesepdanna, eins og hann orðaði það. Nú er hann aftur á móti þekktari fyrir seinni verk sín, en í þeim sameinast nútímastíll, blöndu af spennu, kímni og klókind- um. Hótel Saga: Laddi á Sögu Á Hótel Sögu I kvöld, föstudags- kvöld, ereinkasamkvæmi íSúlnasal ogÁtthagasal. Mímisbareropinn en þar skemmta þeir Andrés Bach- mann og Kristján Óskarsson. Astra-Bar og Grillið eru sömuleiðis opin, en þó skemur, eða til 0.30. Reynir Jónasson leikurfyrirmatar- gesti. Á laugardagskvöld í Súlnasal skemmtirhinn kunni grínisti Laddi og hljómsveit Magnúsar Kjartans- sonar leikur fyrir dansi til kl. 3.00. í Átthagasal verðureinkasamkvæmi en í öðrum sölum hótelsins verður sama dagskrá og í kvöld. Félag harmonikku- unnenda: Skemmtifundur Félag harmonikkuunnenda gengst fyrir skemmtifundi félagsins fyrirfebrúarmánuð nk. sunnudag og hefst hann að vanda kl. 15.00 ÍTemplarahöllinni við Skólavörðu- holt. Fram koma ýmsir hljóðfæra- leikarar, veitingar verða bornarfram og í lokin verður stiginn dans. Fé- lagsmenn eru ávallt velkomnir. Húsavíkurkirkja: Tónleikar Ásunnudaginn, 2. febrúar, halda Kristinn Sigmundsson söngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari tónleika í Húsavíkurkirkju kl. 21.00. Á efnisskránni verða lög eftir innlend og erlend tónskáld svo sem Svein- björn Sveinbjörnsson, Markús Kristjánsson, Þórarinn Guðmunds- son, Schubert, Giordani, Durante og fleiri. Amarhóll: Klassískt kvöld Fyrsta svokallaða „klassíska kvöld" veitingastaðarins Arnarhóls í vetur verður haldið nk. sunnudags- kvöld, en þessi kvöld urðu vinsæl í fyrravetur. Tilgangurinn með þess- um kvöldum er að gefa ungu og efnilegu tónlistarfólki á að koma fram og spreyta sig og verða þau haldin framvegis á sunnudagskvöld- um. Frákl. 20.00 til 22.00 leikur Marakvartettinn, en hann er skipað- ur tónlistarfólki úr Sinfóníuhljóm- sveit íslands. Eftir það tekur ungur tenórsöngvari, Guðbjörn Guð- björnsson, lagið og Guðbjörg Sigur- jónsdóttir leikur undir. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Upphitun Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt ís- lenskt leikrit í kvöld, föstudag. Verk- ið heitið Upphitun og er eftir Birgi Engilberts. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson, tónlist eftir Gunnar Þórðarson, leikmynd og búninga gerði Sigurjón Jóhannsson, Nanna Ólafsdóttirsamdi dansana og Páll Ragnarsson annast lýsingu. I hlut- verkum eru: Kristbjörg Kjeld, Þóra Friðriksdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Guðrún Þ. Stephensen, Bryndís Pétursdóttir, Tinna Gunnlaugsdótt- ir, Sigurveig Jónsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og ballettdansararnir Sigrún Guðmundsdóttir, Katrín Hall, Helena Jóhannsdóttir, Lára Stefáns- dóttir, Birgitte Heide og Asta Hen- riksdóttir auk sex telpna úr ballett- skóla Þjóðleikhússins. Með vffið í lúkunum Gamanleikurinn „Með vífið í lúk- unum" eftir Ray Cooney verður sýnt tvisvará laugardagskvöld. Fyrri sýn- ingin er kl. 20.00 og sú síðari kl. 23.00. Uppseltvarásýningarnar sl. laugardagskvöld. Kardemommu- bærinn Kardemommubærinn eftirThor- björn Egnerverðursýndurkl. 14.00 á sunnudag og er það 65. sýningin á þessu vinsæla barnaleikriti. Villihunang Nú fer hver að verða síðastur að sjá uppfærslu Þjóðleikhússins á Villihunangi eftir Anton T sjékhov og Michael Frayn. Næsta sýning verð- ur á sunnudagskvöld og eru einung- is örfáar sýningar eftir á þessum gamanleik um ástir og ótryggð. Leikfélag Reykjavíkur: Land míns föður Á laugardags- og sunnudags- kvöld verður stríðsárasöngleikur Kjartans Ragnarssonar, Land míns föður, sýndur á fjölum Iðnó. Sýning- ar eru nú orðnar 72 og hefur verið uppselt á þær allar og nú þegar er uppselt á svo til allar helgarsýningar í febrúar. Sýnt er öll kvöld nema mánudagskvöld. Sex í sama rúmi í kvöld, föstudag, verðursýning á breska gamanleiknum „Sex í sama rúrni" í Iðnó, en það er jafn- framt síðasta sýning á leiknum þar. Vegna mikillar aðsóknar hefur það nú veriö flutt í Austurbæjarbíó og verða þar miönætursýningar um helgar. Leikfélag Hafnarfjarðar: Fúsi froskagleypir Um þessa helgi verða siðustu sýningar á barnaleikritinu „Fúsi froskagleypir" eftir danska rithöf- undinn Ole Lund Kirkegaard. Leik- félag Hafnarfjarðar hefur undan- farna mánuði sýnt þetta leikrit í Bæjarbíói í Hafnarfirði við góða aðsókn, en vegna mikilla anna leik- ara og aðstandenda sýningarinnar verður ekki unnt að sýna leikritiþ oftar. Sýning er í kvöld kl. 17.30, á morgun laugardag kl. 14.00 og á sunnudaginn kl. 14.00. Revíuleikhúsið: Skottuleikur Revíuleikhúsið sýnir Skottuleik í Breiðholtsskóla á morgun laugar- dagkl. 15.00ogerþegarorðið uppselt á sýninguna. Næstu sýning- areru kl. 17.00samadagogá sunnudaginn kl. 16.00. Leikarareru Guðrún Þórðardóttir, Guðrún Al- freðsdóttirog Saga Jónsdóttir. Leik- stjóri og höfundur er Brynja Bene- diktsdóttir. Miðapantanireru í síma 46600. Leiklistarskóli íslands: Allt í plasti Þriðji bekkur Leiklistarskóla (s- lands frumsýndi unglingaleikritið „Allt í plasti" í gærkvöldi, en 2. sýn- ing er í kvöld, þriðja sýning á sunnu- dag og sú fjórða á mánudag. Leik- stjórierAndrésSigurvinsson, Haf- liði Arngrímsson þýddi verkiö, en það er eftir Volker Ludvig og Detlev Micel. Verkið var fyrst sýnt í Berlín fyrir fáum árum og fjallar um hin ýmsu „unglingavandamál" sem upp koma. Alþýðuleikhúsið: Tom og Viv Alþýðuleikhúsið frumsýndi leikrit- ið „Tom og Viv" í gær að Kjarvals- stöðum, en það er byggt á ævi NóbelsskáldsinsT.S. Eliot og hjóna- bandserfiðleikum hans. Höfundur er Michael Hastings. Inga Bjama- son leikstýrirverkinu, búningarog sviðsmynd er í höndum Gerlu og leikendur eru: Viðar Eggertsson, Sigurjóna Sverrisdóttir, Arnór Ben- ónýsson, Margrét Ákadóttir, María Sigurðardóttir og Sverrir Hólmars- son, sem jafnframt þýddi leikinn. Leifur Þórarinsson samdi tónlist, sem Kolbeinn Bjarnason leikurá þverflautu. Önnursýning erá morgun, laug- ardag, kl. 16.00, þriðja sýning á sunnudag kl. 16.00 og sú fjórða á mánudag kl. 20.30. Kjallaraleikhúsið: Reykjavíkursögur Ástu Kjallaraleikhúsið, Vesturgötu 3, sýnir „ReykjavíkursögurÁstu" í kvöld kl. 21.00 og erþað 62. sýning. Á morgun laugardag kl. 17.00 verð- ur 63. sýning á verkinu og sú 64. á sunnudag kl. 17.00. Leikendur eru Guðrún Gísladóttir, Helgi Skúla- son, Guðrún M. Bjarnadóttir og Emil Guðmundsson. FERÐIR Ferðafélag íslands: Gönguferðir Sunnudaginn 2. febrúarverður gengið á Kóngsfell í Bláfjöllum og er gangan létt. Brottför er frá Um- ferðarmiöstöðinni austanmegin kl. 13.00. Á sama tíma er lagt upp í skíöagöngu í Bláfjöll og nágrenni. Á þessum árstíma eráríðandi að þátttakendur í ferðunum séu í hlýj- um klæðnaöi. Útivist: Skíðaganga og Gullfossferð Tvær dagsferðir eru á dagskrá Útivistarnk. sunnudag. Kl. 10.30 verðurfarið að Gullfossi í klaka- böndum. í þeirri ferð verður einnig farið að Geysi, Strokki, Haukadals- kirkju, Bergþórsleiði og fossinum Faxa. Kl. 13.00verðurfarinnskíða- gönguferð um Leiti og Jósepsdal. Gengið verður að Eldborg og að gignum Leiti og til baka í Jósepsdal þarsem skíðaíþróttin blómstraði fyrrum. Þessi ganga hentar jafnt byrjendum sem öðrum. Brottför er frá BSÍ bensínsölu og eru allirvel- komnir. Hana-nú: Hressingarganga Vikuleg laugardagsganga frí- stundahópsins Hana-nú í Kópavogi verðurá morgun, laugardag. Lagt verður af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Nú birtir óðar og eru Kópavogsbúar ávallt velkomnir í laugardagsgöngur klúbbsins nú á Þorranum. Takmarkið er hreyfing, samvera og súrefni. • Þau Hrönn, Jónas Þórir, Helgi og Hermann Ingi sjá gestum Naustsins fyrir skemmtun um helgina. í Naustinu um helgina í kvöld, föstudag, og annaft kvöld verftur skemmtidagskrá íanda þorrans í umsjá Helga, Hermanns Inga og Jónasar Þóris. „Dúó Naustsins", þau Hrönn Geirlaugsdóttir og Jónas Þórir, leika á fiðlu og pfanó fyrir matargesti. Hljómsveit Jónasar Þóris leikur síftan fyrir dansi fram eftir nóttu og er húsið opiðtil kl. 3.00 Á sunnudagskvöld leikur „Dúó Naustsins" Ijúfa tónlist fyrir gesti staðarins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.