Morgunblaðið - 04.03.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.03.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1986 5 Kópavogur: Obreytt röð í fimm efstu sætunum NIÐURSTÖÐUR prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi um helg- ina sýna óbreytta röðun í fimm efstu sætin á framboðslista flokksins til bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna i vor. Þátttaka í prófkjörinu var góð að sögn Richards Björgvinssonar, 1185 kusu og eru það talsvert fleiri en í sameiginlegu prófkjöri allra flokka fyrir síðustu kosningar. Rétt til að kjósa höfðu flokksbundnir sjálfstæðismenn ogjþeir sem undirrituðu stuðningsyfiriýsingu við flokkinn. I 1. sæti er Richard Björgvinsson samtals. Bima Friðriksdóttir er í með 273 atkvæði en 749 atkvæði samtals, 2. sæti skipar Bragi Micha- elsson með 366 atkvæði, 896 at- kvæði samtals, 3. sæti Ásthildur Pétursdóttir með 539 atkvæði en 967 atkvæði samtals, 4. sæti Guðni Stefánsson með 617 atkvæði og 923 atkvæði samtals og í 5. sæti Amór Pálsson með 639 atkvæði og 905 6. sæti með 566 atkvæði og 773 atkvæði samtals, Haraldur Kristj- ánsson er í 7. sæti með 632 atkvæði og 723 samtals og Kristinn Krist- insson í 8. sæti með 732 atkvæði. Frambjóðendur vom tólf en bind- andi kosning er í átta efstu sæti listans. Þorsteinn Pálsson á fundi sjálfstæðis- félaganna: Horfur í efnahagsmálum og kjarasamningarnir Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra og formaður Sjálfstæðis- flokksins mun fjalla um nýgerða kjarasamninga og horfur i efna- hagsmálum á almennum stjórn- málafundi sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Fundurinn verðu'r haldinn í sjálf- stæðishúsinu Valhöll fímmtudaginn 6. mars kl. 20.30. Að lokinni fram- söguræðu verða almennar umræð- ur. Sjálfstæðisfólk er hvatt til að fjolmenna og taka með sér gesti. (Fríttatíikynning) Þorsteinn Pálsson Fr imboö framsóknarmanna í Reykjavík: Alfreð Þorsteinsson eða Sigrún Magnús- dóttir í 1. sætið? ENN HEFUR ekki verið gengið frá framboðslista Framsóknar- flokksins við borgarstjórnarkosn- ingarnar í Reykjavík 31. maí nk. Að sögn Steinþórs Þorsteinsson- ar, formanns uppstillingarnefnd- ar Framsóknarfélags Reykjavík- ur, verður haldinn fundur í nefnd- inni síðdegis í dag, en hann kvaðst ekki geta fullyrt að tekin yrði ákvörðun um listann á þeim fundi. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru skoðanir mjög skiptar um það í Framsóknarflokknum hver skipa eigi fyrsta sætið á listanum og erfitt hefur verið að fá menn til að gefa kost á sér. Nöfn Alfreðs Þorsteinssonar, forstjóra Sölunefnd- ar varnarliðseigna, og Sigrúnar Magnúsdóttur, kaupmanns, hafa hins vegar mikið verið nefnd í þessu sambandi undanfama daga. Félagsmönnum Framsóknarfé- lags Reykjavíkur gafst fyrir nokkru tækifæri til að koma fram með ábendingar um frambjóðendur. Steinþór Þorsteinsson sagði, að um 2.000 bréf hefðu verið send út og óskað eftir munnlegum eða skrifleg- um tilnefningum. Samtals hefðu borist um 900-1.000 svör og 59 manns verið tilnefndir. Hann vildi ekki upplýsa hveijir hefðu oftast verið nefndir og benti á, að ekki hefði verið um bindandi val að ræða, heldur nokkurs konar hugmynda- banka fyrir uppstillingamefndina. \v Hinn eini og sanni daglega frá kl. 13 — I8e.h. föstudaga kl. 13 — 19 e.h. laugardaga frá kl. 10 — 16 e.h. stórútsölu markaður stendursem hæstá Fosshálsi 27 (fyrir neðan Osta- og smjörsöluna Árbæ, við hliðina á nýju Mjólkurstöðinni). SVR Strætis- vagnaferðir á 15mín. fresti, leið 10. Frítt kaffi — Hægt að fá heitar vöfflur m/rjóma, kleinur o.m.fl. Reyrhúsgögn, hillur og skápar Videó-horn fyrirbörn KARNABÆR - VOGUE - STEINAR - SKINNADEILD SÍS - HUMMEL - GARBÓ - RADÍÓBÆR - AXEL Ó. - Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD - VERÐLISTINN - YRSA - BARNAFATA- VERSL. FELL - GJAFAVÖRUDEILDIN - BONAPARTE O.FL. Nýir staðir á Italíu Heillandi náttúrufegurð Norður—ítalíu — Gar- davatn Kynningarverð 24. xnai í 3 vikur. Hótel Savoia í heilsulindabænum Abano Terme eða fjöl- skylduparadísin Lignano — gisting í hæsta gæðaflokki, stærsti vatns-skemmtigarður Ítalíu, úrval matsölu- og skemmtistaða og frábærar kynnisferðir til fornfrægra menningarborga. Fríklúbbsverð frá kr. 29.400í 3 vikur. Kynnið ykkur barna -afslá t tinn. Austurstræti 17, sími26611.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.