Morgunblaðið - 04.03.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.03.1986, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ1986 Með ósk *> ASEA RAFMÓTORAR um hjálp að handan Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Árið 1985 var ár unglinga- myndarinnar í Hollywood. „Það má vel vera að litið verði á árið 1985 sem hið versta í sögu kvik- myndanna. Það var árið, sem Hollywood, hið ráðandi afl kvik- myndaiðnaðarins í næstum 75 ár, gafst hreinlega upp á því að þjóna fullorðnum kvikmynda- húsagestum_Það er erfitt að hafa uppá fleiri en tíu amerísk- um myndum frá síðasta ári, sem ekki höfða beint tii táninga." Þannig kemst breski kvikmynda- Flestar stærðir og gerðir fyrirliggjandi. Fljót afgreiðsla. .if'RÖNNING SS AÐEINS FYRIR SÖLUMENN Viitu njóta starfsins betur? Ljúka sölunni á auðveldari hátt? Svara mótbárum af meira ör yggi? DALE CARNEGIE SÖLU NÁM- SKEIÐIЮ er einu sinni í viku í 12 vikur á miðvikudögum frá kl. 14.30—18.00 og er eingöngu ætlaö starfandi sölumönnum. Námskeiðið er metið til háskóla- náms í Bandaríkjunum. NámskeiSið getur hjálpað þér að: ■A Gera söluna auðveldari. •A- Njóta starfsins betur. ★ Byggja upp eldmóð ÍC Ná sölutakmarki þinu íi Svara mótbárum meðárangri ■A Öðlast meira öryggi. ■A Skipuleggja sjálfan þig og sölunr íc Vekja áhuga viðskiptavinarins. Innritun og upplýsingar í sima: 82411 Einkaleyfi á Islandi STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson IZUMI STÝRILIÐAR Allar stærðir fýrir allar spennur. Festingar fyrir DIN skinnur. : Gott verð. í = HÉÐINN = VÉLAVÉRZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRRANTANIR-bJÓNUSTA ESAB RAFSUÐU- TÆKI,VIR OG FYLGI- HLUTIR FORYSTA ESAB ER TRYGGING FYRIR GÆÐUM OG ÞJÓNUSTU = HÉÐINN = VÉLAVERSUJN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER ESAB gagnrýnandinn, David Robinson, að orði í The Times í kvikmynda- yfirliti sínu yfir árið 1985. Það má ijóst vera að gagnfræða- og menntaskólanemar réðu lögum og lofum í bandarískri kvik- myndagerð á síðasta ári og við hér á íslandi höfum verið að súpa seyðið af því undanfaraa marga mánuði. Þegar þetta er skrifað eru hvorki fleiri né færri en átta unglinga- myndir sýndar í kvikmyndahúsum í Reykjavík. Ein af þeim er Hjálp að handan (The Heavenly Kid), sem sýnd er í Háskólabíói. Þar er á ferðinni dæmigerð amerísk ungl- ingamynd; sagan hefur verið marg- sögð í öðrum líkum myndum en til að krydda þessa hafa handrits- höfundamir Cary Medoway (sem einnig er leikstjóri) og Martin Copeland fengið sitthvað að láni úr myndum eins og Aftur til framtíð- arinnar og Heaven Can Wait. Snemma á sjöunda áratugnum drepur mesti töffarinn í Ford Laud- erdale sig með því að aka fram af klettum í keppni við gæjann sem var að kássast uppá dömuna hans. Töffarinn, sem heitir Bobby (Lewis Smith), fer rakleitt til himna en af því að hann hefur nú ekki verið neinn engill í lifanda lífi, heldur þvert á móti, þarf hann að hinkra við í dágóða stund áður en honum gefst tækifæri til að sýna hvað í honum býr og vinna sér þannig sæti í Himnaríki. Hann er nefnilega góður náungi inn við beinið. Átján árum seinna er hann svo sendur NÝR OG FULLKOMNARI OFNHITASTILLIR FRÁ DANFOSS Rétt val á sjálfvirkum ofnhitastillum heldur orkukostnaði í lágmarki. Leitið ráða hjá okkur. = HEÐINN = VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER aftur til Ford Lauderdale að hjálpa aula nokkrum að koma undir sig fótunum í hörðum heimi mennta- skólans. Aulaskapur stráksins er rækilega undirstrikaður með því að sýna hann einan úti í náttúrunni þyljandi ljóð og svo er hann sérfræðingur í Shakespeare auk þess sem hann lemur aidrei frá sér þegar honum er strítt (þið kannist við þetta). Náungi, sem les ljóð í Ford Lauder- dale, hlýtur að vera skrítinn og svoleiðis gæi þarf á verulegri hjálp að handan að halda. Ástandið í þriðja heiminum bliknar í saman- burði. Og Boggy hjálpar honum að hætta að lesa ljóð og kennir honum að lemja frá sér. Sjálfstraust er allt sem þarf. Svo vinnur stráksi hug og hjarta aðalgellunnar í menntó, sem er alvön töffurum. „Við skulum sleppa hamborgurun- um og drífa okkur beint í það,“ segir hún á fyrsta stefnumótinu með stráksa. Og svo kemur það auðvitað í ljós sem alla hefur grunað síðan löngu fyrir hlé að Bobby er pabbi aulans fyrrverandi. Það kemur manni ekkert á óvart í Hjálp að handan og maður veit alltaf nokkurn veginn hvað gerist næst. Lewis Smith er þrælgóður í hlutverki töffarans Bobbys og Rich- ard Mulligan er líka ágætur í gervi vemdarengils hans. En góði guð, ef þú ert á himnum, láttu náungana í Hollywood hætta að gera unglingamyndir. Stjömugjöf ★ V* FÆRIBANDA- MÓTORAR • Lokaðir.olíu- kældir og sjálfsmyrj- andi • Vatnsþétting- IP 66 • Fyllsta gang- öryggi, lítið viðhald = HÉÐINN = VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.