Morgunblaðið - 04.03.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1986
17
Kvenfélag Frí-
kirkjunnar:
Afmælis-
fagnaður
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík, elsta kirkjufélag lands-
ins og jafnframt eitt af elstu kven-
félögum hér á iandi, verður áttatfu
ára fímmtudaginn 6. mars næst-
komandi. Þetta prýðilega félag var
stofnað þann dag árið 1906. Til-
gangur þess hefur frá upphafí verið
tvíþættur í fyrsta lagi „að sameina
krafta vora trúarlífi og kristilegu
siðgæði, tii eflingar safnaðarlífi
voru . .. og hjálpa" ? annan stað
„fátækum konum og líkna sjúkum
og bágstöddum í söfnuðinum", eins
og segir í skipulagsskránni.
Þegar litið er yfir farinn veg hins
velviljaða félags, kemur í ljós, að
Kvenfélag Fríkirlqunnar hefur jafn-
an reynt að standa við þessi fyrir-
heit, mörgum rétt hjálparhönd og
staðið dyggan vörð um safnaðarlífíð
við Ijömina. Er full ástæða til þess
að þakka Guði fyrir þetta góða félag
og biðja félagskonum allrar bless-
unar, lífs og liðnum. Ég neftii af
handahófi dæmi um starfsgleði
kvennanna og kemur þá fyrst f
hugann stórhöfðingleg gjöf þeirra
til Fríkirkjunnar árið 1983, er þær
skenktu kirkjunni forkunnarfagurt
altarisklæði og góðan messuhökul
í tilefni af 80 ára afmæli kirkjuhúss-
ins. Þá halda þær árlega útimarkað
til fjáröflunar, margsinnis standa
þær fyrir kirkjukaffi árið um kring
og á vorin bjóða þær fermingar-
bömum í ferðalag, þar sem færi
gefst til þess að hnykkja á ferming-
arundirbúningnum og eignast um
leið glaðar stundir. Af þessari virkni
sést, að það munar um framlag
félagsins í safnaðarstarfinu.
Fimmtudagskvöldið 6. mars
verður afmælisfagnaður í Átthaga-
sal Hótels Sögu og hefst kl. 19.30
með borðhaldi. Margt verður sér til
gamans gert og þegar borð verða
upp tekin stiginn dans. Aðgöngu-
miðar á afmælisfagnaðinn eru til
sölu í Versluninni Brynju frá og
með mánudeginum 3. mars og fram
á miðvikudag.
Gunnar Björnsson
fríkirkjuprestur
Postulínsvasinn með mynd Fri-
kirkjunnar eftir Balthasar.
/\uglýsinga-
síminn er 2 24 80
Altarisklæðið og hökullinn, sem Hólmf riður Ámadóttir vann. Aftari röð frá vinstri: Margrét Þorsteinsdóttir og Elin Þorkelsdóttir
Nú hefst
nýr kafli í sögu
tékkareikninga!
Spennandi fyrir þá sem vilja ávaxta
veltufé sitt betur.
Það urðu kaflaskil í bankaþjónustu árið
1984 þegar Verzlunarbankinn, fyrstur banka,
kom með óbundinn sérkjarareikning á markað-
inn: KASKÓ-REIKNINGINN. Um það geta
þúsundir ánægðra Kaskóreikningseigenda borið
vitni.
Enn ryður Verzlunarbankinn brautina og
nú með því að kynna nýjan kafla í sögu
tékkareikninga.
Hann er ætlaður þeim sem vilja ávaxta
veltufé sitt betur. Sérstaða hans felst í því að nú
geta eigendur tékkareikninga samið við
bankann um að hafa ákveðna lágmarksinnstæðu
á reikningi sínum mánuð í senn.
Af þeirri innstæðu greiðir bankinn síðan
almenna sparisjóðsvexti auk uppbótar.
Aðrar staðreyndir um tékkareikninginn.
1. Þú getur breytt lágmarksupphæðinni til
hækkunar eða lækkunar fyrir 21. dag hvers
mánaðar.
2. Af innstæðu umfram umsamið lágmark
reiknast vextir eins og af almennum
tékkareikningi.
3. Ef innstæða fer niður fyrir lágmarkið
reiknast almennir tékkareikningsvextir af
allri innstæðunni þann mánuð.
4. Vextir bætast við vaxtastöðu í lok hvers
mánaðar og við höfuðstól reikningsins í
árslok.
5. Mánaðarlega færðu yfirlit frá Verzlunar-
bankanum sem sýnir uppsafnaða vexti þína.
Nú þarftu ekki lengur að standa
í millifærslum.
Þessi reikningur er einnig tilvalin leið
til þess að prófa sig áfram í sparnaði.
Komdu við í næstu afgreiðslu Verzlunarbankans
og náðu þér í upplýsingabækling eða hringdu og fáðu hann sendan heim.
V/€RZUJNRRBRNKINN
-vÍMtcvi rtteð pé% (
AUK hf. 43.105/SlA