Morgunblaðið - 04.03.1986, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1986
29
sinn. Þórður Einarsson, sem þá var I sendinefnd íslands hjá bandalag-
nferðirnar
stæðismanna og hef fram á síðasta
ár verið formaður utanríkismála-
nefndar flokksins. Meðal þess sem
Geir Hallgrímsson hafði_ áhuga á
var að senda fulltrúa íslands til
fundar í hermálanefnd Atlantshafs-
bandalagsins. Tvisvar á ári koma
yfirmenn hetja bandalagsþjóðanna
saman á fundum nefndarinnar og
ákvað Geir að senda menn á sh'kan
fund vorið 1984. Mæltist hann til
þess, að ég færi með Sverri Hauki
Gunnlaugssyni á vorfund hermála-
nefndarinnar í Briissel.
Við athugun á samstarfinu á
sviði öryggismála hefur komið í ljós,
að aðildarríki Atlantshafsbanda-
lagsins efna til tvíhliða viðræðna
um þau málefni, sem ekki er að-
staða til að ræða á fjölþjóðlegum
fundum. Þegar ég var í forsætis-
ráðuneytinu fór ég í þessum erinda-
gjörðum til Kanada ásamt öðrum
embættismönnum, var ferðin skipu-
lögð af kanadíska forsætisráðu-
neytinu eftir fund þeirra Pierre
Trudeau og Geirs Hallgrímssonar,
þáverandi forsætisráðherra. Bretar
sýndu á því áhuga að eiga tvíhliða
viðræður við íslendinga um örygg-
is- og alþjóðamál og var mælst til
þess, að ég tæki þátt í þeim með
þeim Olafi Egilssyni og Sverri
Hauki Gunnlaugssyni úr utanrikis-
ráðuneytinu hér og Einari Bened-
iktssyni, sendiherra í London. Hitt-
um við Breta á fundi í London í
janúar 1985. Eftir að Hollendingar
fengu áhuga á að reka kafbátaleit-
arflugvél frá Keflavikurflugvelli var
ákveðið að eiga fund með embættis-
mönnum þeirra og var það gert í
september 1985, sótti ég hann með
þeim Sverri Hauki Gunnlaugssyni,
skrifstofustjóra varnarmálaskrif-
stofu, og Einari Benediktssyni,
sendiherra.
Störf blaðamanns
Þessar ferðir koma störfum mín-
um á Morgunblaðinu ekki við frekar
en seta mín í Öryggismálanefnd.
Auðvitað er það álitamál, hvort
blaðamenn eigi að taka að sér trún-
aðarstörf fyrir stjómvöld eða stjóm-
málaflokka. Ég þekki erlenda
starfsbræður, sem myndu ekki gera
það. Hér á landi hefur venjan verið
önnur. Það hefur til að mynda lengi
tíðkast hér, að ritstjórar blaða sæki
fundi erlendis á vegum stjómmála-
flokka og stjómvalda, og er Þórar-
inn Þórarinsson, aldursforseti ís-
lenskra blaðamanna, skýrasta
dæmið um það. I sjálfu sér er ekki
unnt að skilja skrif Þjóðviljans um
kostnað ríkisins vegna ferða minna
sem gagnrýni á þá skipan, þótt hún
vefjist fyrir mér. Rétt er að taka
fram, að ég hef ekki þegið nein
laun af ríkinu fyrir þcssi störf.
Tilgangur Þjóðviljans með skrif-
um um þessar ferðir er að koma
höggi á okkur, sem emm talsmenn
þess, að Islendingar tryggi frelsi
sitt og öryggi í samvinnu við vest-
ræn lýðræðisríki. Fyrir þá sök fagna
ég því, ef Þjóðviljinn heldur áfram
að tönnlast á þessum ferðum mín-
um. Mér finnst hins vegar ófært,
að Morgunblaðið sé haft fýrir rangri
sök. Morgunblaðið þiggur hvorki
ríkisstyrk í þessu formi né öðm.
Þjóðviljinn kæmi hins vegar ekki út
nema af því að skattgreiðendur em
skyldaðirtil að leggja í púkkið.
I þessu máli sem öðmm er, eins
og hér hefur verið gert, nauðsynlegt
að minna Þjóðviljamenn á þá fmm-
skyldu blaðamanna að fara rétt með
staðreyndir. Þjóðviljamenn böggl-
ast við að birta rangfærslur til þess
eins að draga af þeim rangar álykt-
anir eins og venjulega.
Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða og Ingólfur Guðbrandsson,
forstjóri Útsýnar, undirrita samningana. Morgunbiaflið/Árni Sœberg
Hann sagði, að verð á skipulögð-
um ferðum frá íslandi, einkum
ferðum til sólarlanda væri nú til-
tölulega mjög lágt og hefði senni-
lega aldrei verið lægra í hlutfalli
við almennt verðlag. Útsýn væri
nú stærsti viðskiptavinur Flugleiða
og hefði þess vegna náð nú hlut-
fallslega enn betri samningum en
áður og árangur þess kæmi við-
skiptavinunum til góða í hlutfalls-
lega lægra verði á sólarferðum.
Staða og starfsemi Lánasjóðs íslenskra námsmanna:
Hver lánsafgreiðsla kost-
ar um fjögnr þúsund krónur
- segir Ardís Þórðardóttir formaður sjóðsins
Morgunblaðið/Júlíus
Frá fundi með fréttamönnum. Auðun Svavar Sigurðsson varaformað-
ur, Árdís Þórðardóttir formaður og Hrafn Sigurðsson framkvæmda-
stjóri.
STAÐA og starfsemi Lánasjóðs
íslenskra námsmanna var til
umræðu á fundi sem stjóm Lána-
sjóðsins hélt með fréttamönnum.
Árdís Þórðardóttir formaður
stjóraarinnar sem tók við for-
mennsku í ágúst á sl. ári, og
Auðun Svavar Sigurðsson sem
tók við varaformennsku í byrjun
síðasta árs gerðu grein fyrir
helstu upplýsingum sem safnað
hefur verið um starfsemi sjóðs-
ins. M.a. kom fram að eftirspura
eftir aðstoð frá L.Í.N. hefur
aukist sl. 4 ár, en hún hefur
reynst margföld á við spá sér-
fræðinga frá 1980—1981.
Fram kom að engar breytingar
yrðu á starfsemi sjóðsins fram til
vors, en eins og jafnan áður verður
aukafjárveiting að koma til sögunn-
ar til að hægt verði að lána úr sjóðn-
um í haust. 65% af því fé sem sjóð-
urinn lánar fer til nemenda í há-
skólanámi, en 35% í annars konar
nám. Að jafnaði eru umsóknir 10%
fleiri en úthlutanir og eru ástæður
þess að umsókn er hafnað í flestum
tilfellum þær að tilsettum ákvæðum
um námsárangur er ekki náð.
Stjórn sjóðsins er nú að afla upplýs-
inga hjá Háskólanum um náms-
framvindu þeirra sem eru innritaðir
í Háskólann, en nú eru rúmlega
4.000 innritaðir en eingöngu um
2.000 sem njóta aðstoðar sjóðsins.
Árlega koma út úthlutunarrreglur
sem sjóðurinn starfar eftir. 70% af
fjármagni sjóðsins kemur að jafnaði
úr Ríkissjóði, en það sem á vantar
er fjármagnað með erlendum lán-
um. Endurgreiðslur eru um 10% af
heildarfjármagni sjóðsins. Árdís
sagði að hver lánsafgreiðsla kostaði
um 4.000 krónur, en þar af væri
um helmingur launakostnaður.
Auðun Svavar Sigurðsson gerði
grein fyrir þróun Lánasjóðsins
undanfarin ár og taldi eftirspum
eftir lánum hafa aukist m.a. vegna
þess að lánakjör Lánasjóðsins væru
mun hagstæðari en almenn lánakjör
í landinu. Hann benti einnig á að
námsmenn væru í dýrara námi
erlendis en oft áður, helmingur af
lánum til erlendra námsmanna fara
til þeirra sem eru í námi í Bandaríkj-
unum, en þeir eru eingöngu 30%
heildarfjöldans. Þá bar hann lán úr
sjóðnum saman við lán úr sjóðum
hinna Norðurlandanna og taldi lán
úr Lánasjóði íslenskra námsmanna
með hagstæðustu lánum á Norður-
löndunum. Auðun taldi líkur á að
einhver hluti námslána væri misnot-
aður, þ.e. að nemendur sem skráðir
eru með heimili nytu fjárhagsað-
stoðar foreldra sinna, og ávöxtuðu
námslánin, þó ekkert væri hægt að
fullyrða um slíkt. Á fundinum voru
ræddar tillögur til breytinga á starf-
semi sjóðsins, og töldu þau Árdís
og Auðun ástæðu til að greina milli
styrkja og lána, þar sem sum lán
væru ekki afturkræf nema að hluta
vegna þeirra reglna sem nú væni
í gildi um endurgreiðslur. Ræddar
voru tillögur um styrkjakerfí og þær
hugmyndir sem komið hafa fram
um að styrkja þjóðhagslega hag-
kvæmt nám. Árdís sagði að stjómin
myndi ekki treysta sér til að segja
fyrir um hvaða lán væri þjóðhags-
lega haghvæmt og hvað ekki, til
greina kæmi hinsvegar að styrkja
þá sem færu í langt nám, t.d. í vís-
indum og listum. „Sverrir Her-
mannsson hefur sagt að hann hafi
ekki í hyggju að koma aftan að
námsmönnum og verður því unnið
eftir sömu reglum og hingað til, en
ljóst er að samkvæmt þessum fjár-
lögum verður sjóðurinn tómur í
ágúst n.k.“
Frá aðalfundinum: Talið frá vinstri. Anton Nikulásson, fundarstjóri, Helgi Laxdal, formaður félagsins,
Orn Steinsen, fundarritari, Aðalsteinn Gíslason, fundarritari og fsal J. Ólafsson, skrifstofustjóri.
Helgi Laxdal endur-
kjörinn formaður
HELGI Laxdal var endurkjörinn formaður Vélstjórafélags íslands
á aðalfundi félagsins fyrir nokkru, en stjóra þess var kjörin til
tveggja ára. Á fundinum var ennfremur samþykktur stuðningur við
veiðistjóraun með kvóta.
Vélstjórafélagið starfrækir nú
umboðsskrifstofur á fímm stöðum
á landinu, Reykjavík, Akureyri,
Stykkishólmi, Neskaupstað og Höfn
í Hornafirði. Félagar eru um 2.000
og stunda flestir hefðbundin vél-
stjórastörf bæði til sjós og lands; Á
sjó á far- og fískiskipum, en í landi
við orkuver, verksmiðjur og í frysti-
húsum. Þó fjölgar stöðugt þeim
félögum, sem stunda ýmis tækni-
störf á almennum vinnumarkaði.
Auk stjómar var á fundinum
kosin laganefnd, sem endurskoða
skal lög félagsins með tilliti til þess,
að það er landsfélag og því þurfi
að auka áhrif landsbyggðarmanna
í stjómun þess.
Stjóm Vélstjórafélagsins til
næstu tveggja ára skipa eftirtaldir:
Helgi Laxdal, formaður og Sveinn
Á. Sigurðsson, varaformaður. Aðrir
í stjóm eru: Ingólfur Sig. Ingólfs-
son, Guðmundur Hafsteinsson, Þór
Sævaldsson, Ásgeir Sumarliðason,
Jón Valdimarsson, Páll Magnússon
og Georg Ámason. Varamenn em:
Þorbergur Þórhallsson, Öm Amar-
son, Ragnar Sigurðsson, Hlöðver
Einarsson, Jón Guðmundsson, Ólaf-
ur Gunnarsson og Samúel Guð-
mundsson.
(Fréttatilkynning.)
i
MÍM fWWR’iC V*