Morgunblaðið - 11.04.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.04.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR11. APRÍL 1986 B 3 HEIÐURSGESTUR ÞINGSINS Hárgreiðslumeistarinn Alexandre hóf frægðarferli sinn 1946 þegar hann annaðist giftingarhárgreiðslu Begum Aga Khan, jafnframt því að vera hárgreiðslumeist- ari Greifynjunnar af Windsor. í dag gegnir hann hlutverki heimsforseta ICD-samtakanna, International des coiffeurs de dames, auk þess að reka hárgreiðslufyrirtæki sitt, Alexandre de Paris og starfa þar að auki talsvert í tengsl- um við hártísku frönsku tískuhúsanna, sem hann hefur gert sl. 20 ár. Tvisvar á ári leggur hann línuna við fatnað frá Yves Saint Laurent, Pierre Balmain, Hubert de Givenc- hy, Jean Patou, Chanel, Lanvin, Emanuel Ungaro, Jean Louis Scherrer, Hanae Mori og Diorfurs. Sama máli gegnir um sýningar á fjöldaframleiddum fatnaði frá Valent- ino, Kimijimi, AngeloTarlazzi og Karl Lagerfeld. Þá er Alexandre sérlegur sendiherra snyrtivörufyrirtækisins L'OREAL. Auk þessa hefur Alexandre í gegnum árin skapað hárstíl við þekkt andlit, hvort heldur er í hvers- dagslífinu eða fyrir sérstök tækifæri og á meöal þeirra sem hafa sýnt hárgreiðslur hans í gegnum tíðina má nefna Grace af Monaco og dætur hennar, sem hann greiðir reglulega, auk fjölda annarra kvenna sem bera ekki óþekktari nöfn. Alexandre rekur í dag þrjár hár- greiðslustofur í París og eina í Luxemborg. Þessi sextíu og fjöggurra ára gamli hárgreiðslumeistari er sem sé ekki á þeim buxunum að setjast í helgan stein með allar medalíurnar og viðurkenningarnar sem starfið hefur fært honum. Við birtum hér myndir af línunni sem hann hefur lagt fyrir vorið '86, bæði i klippingu, daggreiðslum og samkvæmisgreiðslum. Norðurlandaþing ICD, greiðslusamtakanna alþjóðlegu, verður haldið á íslandi í sumar, dagana 12.-17. júní, annars vegar á Laugarvatni og hins vegar í Reykjavík, þar sern þinginu lýkur með sýningu í veitingahúsinu Broadway. Á sýningunni koma fram hópar frá hverju Norðurlandanna, auk þess sem heiðursgestir þingsins verða viðstaddir og láta til sín taka, en er um að ræða ekki ómerkari menn í hárgreiðsluheiminum, en frönsku meistarana tvo Alexandre og Maurice Franck. Við segjum hér á síðunum frá þessum tveimur hárgreiðslumeistur um og birtum myndir af greiðslum sem þeir hafa gert fyrir komandi vor. - VE gátu þau aldrei fengið nægju sína af nærveru minni, athygli og ástúð, en oftast veitti hún mér einlæga hamingjukennd. Augnatillit, bros eða atlot barnanna voru mér alltaf ríkuleg laun fyrir mína móðurlegu umhyggju. Eftir að börnin mín fóru að stálp- ast er allt orðið með öðru móti. Þau krefjast óteljandi hluta af mér en vilja þó ekkert með nær- veru mína hafa lengur, kæra sig ekki um umhyggju mína, vilja jafn- vel ekkert af móðurlegri ástúð minni vita. Okkar gagnkvæmu skipti á verðmætum eru algjörlega komin úr skorðun og heyra til lið- inni tíð: Þau eiga ekki lengur til neitt bros, engan koss, engin blíðuhót til að endurgjalda mér það, sem ég geri fyrir þau. Samt er ég búin að lækka gjaldskrána verulega, vænti orðið ekki svo mikils í staðinn. Ekki til svo mikils mælzt Oftast mundi ég láta mér nægja að heyra ósköp einföld og látlaus orð af þeirra munni eins og til dæmis: „Sæl,“ þegar þau koma inn í herbergið, þar sem ég held mig; „Takk fyrir," þegar ég rétti þeim lyklana að bílnum; „Hafðu það nú reglulega huggu- legt í kvöld;" þegar þau standa upp frá borðum og eru þó naumast búin að kyngja síðasta bitanum; „Má ég?“ þegar þau eru búin að næla sér í bleiku úlpuna mína eða tímaritið, sem ég var að kaupa rétt áðan. Svo ekki sé nú minnzt á að fá einhverntíma að heyra sagt af ofurlítilli einlægni og áhuga „hvernig líður þér mamma?” þegar ég kem alveg draguppgefin heim úrvinnunni. Það mundi ylja manni svo mikið um hjartaræturnar, ef þau tækju einstaka sinnum eftir því, að ég er mannleg vera, sem stundum get verið alveg úrvinda af þreytu, átt í sálarstríði og fundið fyrir mannlegum veikleika. Sem sagt, að ég sé rétt eins gerð og þau, og að ég búi ennþá yfir óþrjótandi birgðum af ástúð og kærleika, sem stendur þeim alltaf til boða, ef þau aðeins litu á mig sem félaga sinn og samherja í stað þess að koma fram við mig eins og gjöfula mjólk- urkú. Ef til vill á ég þó sjálf nokkra sök á mínu núverandi sálarástandi. Ég hef aldrei orðið fyrir þvi að fá reglulegt þunglyndiskast og hef það fyrir vana að fara næstum alltaf á fætur á morgnana í sól- skinsskapi. Þegar allt kemur til alls hugsa ég, að yfirleitt hafi ég fremur komið fram sem „viljasterk kona“ heldur en einhver „aumingja mamma". Þar sem börnin hljóta því að hafa álitið, að ég væri alveg óslítandi og óbugandi, hafa þau greinilega ekki séð nokkra minnstu ástæðu til að hlífa mér í neinu. En það er raunar alveg sama, hvort ég hef komið fram sem vilja- sterk, þrautseig móðir eða sem hin undanlátsama, veikburða, því eitt er víst, að ég hvorki get né heldur ætla mér að venjast því, að sambandið milli okkar verði á þessa lund. Ef yfirleitt er þá hægt að tala um nokkuð samband.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.