Morgunblaðið - 11.04.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.04.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUE1 l.APRÍL 1986 fyrir þessu hefur orðið. Oft á tíðum versnar þessi taugastreita við að menn fara upp úr því að neyta áfengis í óhófi, eiga við stöð- ugt svefnleysi að stríða eða taka að nota fyf að staðaldri. Einhvern tíma eftir að hinn örlagaríki atburður eða hið yfirþyrmandi atvik átti sér stað, gerir fyrsta óttakastið vart við sig: Hjartað tekur að hamast, æðaslátturinn verður afar hraður, það setur að viðkomandi flökurleika og aðkenn- ingu af svima. Venjulega kemur þeim, sem fyrir þessu verður, sízt til hugar, að einhver tengsl kunni að vera á milli þessa ástands og alvarlegrar veiklunar á taugakerfinu og tilfinningalífi. Þessi skyndilega vanlíðan virðist því koma nánast sem þruma úr heiðskíru lofti yfir viðkomandi einstakling, sem verður þar af leiðandi gripinn skelf- ingu. Sumu fólki lærist þó smátt og smátt að sætta sig nokkurn veginn við slík ótta- köst og taka að líta á þau sem fylgikvilia einhverra líkamlegra meinsemda. Öðrum finnst aftur á móti, að slík óvænt óttaköst hljóti að leiða til þess að þeir kafni, gangi af vitinu eða fái hjartaáfall, sökum þess að þetta fólk skilur ekki hin líkamlegu ein- kenni slíkra óttakasta. Þetta fólk verður því yfirleitt svo ofboðslega hrætt og kvíöið við að fá annað slíkt óvænt óttakast, að það neytir nánast allra bragða til að reyna að koma í veg fyrir að það endurtaki sig. Ef svo vill til að fyrsta óttakastið gerir vart við sig einhvers staðar á almannafæri, getur svo farið, að viðkomandi forðist eftir- leiðis að koma aftur á þann stað. Fólk, sem þjáist orðið af agoraphobíu eða víðáttu- fælni á háu stigi, tekur jafnvel að forðast allt það, sem það óttast aö kunni að valda öðru kasti, en þessi afstaða hefur aftur á móti í för með sér, að þetta fólk hefur ekki neinn stað lengur til að flýja til, þar sem það finnur fyrir öryggi og getur slakað á. Þeir, sem þannig er ástatt fyrir, geta ekki lengur sótt kvöldverðarboö, þeim líður illa í ösinni í stórverzlunum, fyllast andúð á hraðbrautum og hrýs hugur við að þurfa að nota neðanjarðarlestir. Að óttast eigin óttatil- f inningu er hættulegt geðheilsunni Hvort skyndilegt og óvænt óttakast leiði til myndunar víðáttufælni, fer allt eftir því hvaða skilning viðkomandi leggur sjálfur í sjúkdómseinkennin. Þannig segirdr. David Burns frá einu atviki, sem kom fyrir hann sjálfan: Hann var að reyta illgresi úti í garði hjá sér dag nokkurn, þegar hann fann allt í einu fyrir áköfum svima. „Ég hugsaði með sjálfum mér, þetta er áhugavert, og það verður gaman að sjá til, hvort það líður alveg yfir mig. Þeim manni, sem hættir til sjúklegs kvíða, gæti brugðið illilega, og hann færi ef til vill að túlka áþekka svima- kennd hjá sér sem vott um ævarandi heilsuleysi sitt þar eftir eða jafnvel eigin dauöadóm. „Roosevelt forseti hafði rangt fyrir sér, þegar hann hélt því fram, að hið einasta, sem við þyrftum raunverulega að óttast, væri óttinn sjálfur," bætir dr. Ruth Eidelson við. „í sjálfu sér er óttatilfinningin heilbrigð kennd, sem unnt er að aölagast og er raunar af hinu góða. Óttinn fer ekki að verða sálrænt niðurrifsafl, fyrr en menn taka að óttast óttann. Kvíði getur til dæmis oft virkað bætandi á sálarástand manna og getur gert þá sterkari á svellinu. Flestir eru kvíðnir, áður en þeir eiga að fara að halda ræðu en gera það samt; ef til vill lætur þessi kvíðatilfinning ekkert á sér bæra í næsta skipti, þegar maður á að halda ræðu. En ef maður færist undan þvíað flytja fyrirhugaða ræðu, hefur kvíðinn þar með náð yfirhöndinni, og sá maður verður eins og gísl þessarar nagandi tilfinn- ingar. Það var mikið framfaraspor í geðheil- brigðismálum, þegar geðlæknar og aðrir, sem veita meðferð við geðrænum kvillum, tóku að fást af alvöru við að lækna sjúklinga sjna af óttanum við óttann sjálfan." Ýkt sjálfsöryggi óheppi- legt Vatn á myllu sjúklegra kvíðatilfinninga er það, sem Burns kallar hneigð manna til tilfinningalegrar fullkomnunar, það er að segja þegar maður fer að álíta, aö hann eigi aldrei að vera haldinn neinum áhyggj- um, eigi með réttu aldrei að vera sorg- mæddur eða fyllast reiði. Þeir, sem haldnir eru slíkri hneigð til tilfinningalegrarfull- komnunar verða jafnan að vera algjörlega vissir í sinni sök, áður en þeir taka mikils- verðar ákvarðanir eða taka á sig skuld- bindingar eins og til dæmis að skipta um starf eða ganga í hjónaband. „Fólk kvíðir því þá, að það reynist ekki nægilega „ör- uggt með sig", þegar á hólminn er komið," segir dr. David Burns. „Alveg eins og sjálfs- öryggi sé einhver fastur eðlisþáttur í skap- gerð manna. Satt að segja er velflest fólk harla óöruggt með sig, þegar það tekur að fást við eitthvað nýtt og framandlegt eins og til dæmis þegar ungur maður er að bjóða ungri stúlku út með sér í fyrsta sinn." Þeir, sem rækta með sér hið „fullkomna" sjálfsöryggi á tilfinningasviðinu, álíta líka, að þeir þurfi alveg endilega aö hafa alltaf fullkomið vald yfir tilfinningum sínum, hvað sem á dynur. Ruth Eidelson segirt.d. frá einum af sjúklingum sínum, en það er afar dugandi kaupsýslukona, sem alltaf óttaðist að fara í lyftu. „Ég gerði því fremur ráð fyrir því, að hún væri hrædd við að lyfturnar kynnu að bila, hrapa niður og að hún biði bana. En því var alls ekki þannig varið: Það kom í Ijós, að hún óttaðist það mest, að ef lyíftan festist, þá myndi hún missa með öllu stjórn á tilfinningum sínum og fara að öskraupp yfirsig." Sjúkleg kvíðatilfinning er ekki neinn sér- stakur „kvennakvilli" enda þótt að meiri líkindi séu til, að konur þjáist fremur af vissum tegundum kvíða og ótta en karl- menn. Þær eru einnig líklegri til að láta uppskátt um slíkar tilfinningar. Margir karlmenn kjósa fremur að bíta bara á jaxl- inn og neyða sjálfa sig til að halda rósemi sinni við kringumstæður eða atvik, sem í reynd veldur þeim geysilegri skelfingu, kvíða og óbeit — eða þá að þeir taka fremur til við að drekka til þess að gleyma hræðsl- unni. „Kostaðu huginn at herða“ Tilfinningaleg sjálfstjórn er að sjálfsögðu ein meginuppistaðan í hugmyndum Vestur- landabúa um ótvíræða og ósvikna karl- mennsku. Það er því alltaf einstaklega erfitt fyrir karlmenn að þurfa að viðhalda hið ytra sínum karlmennskubrag, þótt þeir þjáist af sjúklegum kvíða og séu haldnir óttatilfinningu. Fari karimenn aö finna fyrir þess háttar „kvennakvilla", taka þeir gjarn- an að óttast, að karlmennska þeirra verði dregin í efa. Þá eru karlmenn og yfirleitt hræddari við það en konur að missa með öllu stjórn á sér og fara að beita ofbeldi. Dæmi um slíka hræðslutilfinningu er lög- reglumaður einn, sem lét af störfum við löggæzlu, vegna þess að hann óttaðist svo mjög, að hann myndi missa einhvern tíma stjórn á sér, grípa til byssunnar og verða einhverjum að bana fyrir slysni. Það er aldrei auðveltfyrir karlmenn að viðurkenna fyrir öðrum, að þeir þjáist af óttatilfinningu, og þegar karlar fara að leita sér sálf ræði- legrar aðstoðar við slíkum kvilla, reynist kvíðatilfinning þeirra oft á tíðum mun virk- ari og ákafari en gerist hjá konum yfirleitt. í öðru lagi er karlmönnum mun tamara en konum að nota áfengi til þess að vinna bug á kvíða sínum. í þriðja lagi eru karl- menn líklegri til þess en konur að finna upp á einhverjum líkamlegum kvillum, sem þeir þykjast þjást af til þess að útskýra fyrir sjálfum sér og öðrum andlega vanlíðan sina. Karlmenn fara fremur til heimilislækn- is síns og kvarta við hann um magaverk eða höfuðverk, en að leita til sálfræðings eða geðlæknis og kvarta við þá um tauga- spennu, sjúklega óþolinmæði eða sjúklega óttatilfinningu, sem þeir þjáist af. „Sú tegund kvíða, sem einkum ásækir karlmenn er svo áþekk hjá þeim flestum," segir dr. David Burns, „að ég get næstum því lesið hugsanir þeirra karlmanna, sem til mín leita. Þeir gera sér áhyggjur af því, hvernig þeir ræki starf sitt og hvernig þeim vegni í vinnunni yfirleitt eða hvernig sam- skipti þeirra við aðra séu. Kaupsýslumaður- inn eða lögfræðingurinn kemur á vettvang og hugsar sem svo: „Hvernig fer, ef ég skyldi missa þennan viðskiptavin eða tapa þessu máli? Allir munu þá komast að þeirri niðurstöðu, að ég sé lítt fær í mínu starfi eða þá heimskur eða óttalegur kjáni." Þankagangur þeirra fer þá gjarnan að verða einkar neikvæður, kvíði og svartsýni setjast að í huga þeirra: „Ef mér ekki tekst að hafa hemil á tilfinningum mínum, mun mér ekki ganga vel í starfinu. Ef mér tekst ekki vel upp, þá missi ég vinnuna. Ef ég missi vinnuna, þá fer konan frá mér; og fari hún frá mér, þá á ég engan að, sem þykir vænt um mig.““ Á báðum áttum Út á við eru margir af þeim karlmönnum, sem þannig er ástatt fyrir, valdamiklir, farsælir í starfi eða jafnvel hin mestu hörku- J tól gagnvart öðrum; en þeir geta samt sem áður verið skelfingu lostnir undir niðri við tilhugsunina um að vekja vanþóknun yfir- boðara sinna eða það að ná ekki settu marki, og þeir eru sífellt á nálum um að velgengni þeirra sé einstaklega fallvölt. Aðrir karlmenn eiga í erfiðleikum með að gera endanlega upp hug sinn í sambandi við tilfinningaleg tengsl sín við hitt kynið. Einn af þeim karlmönnum, sem leituðu hjálpar hjá dr. David Burns, sá sér engan veginn fært að velja endanlega á milli þeirra tveggja kvenna, sem hann var í tygjum við, vegna þess að honum fannst sú tilhugsun alveg óbærileg, að svo kynni að fara að hann hefði valið hinn verri kvenkostinn, þegar allt kom til alls. Flokkun sjuklegra kvíðakennda Kvllli Einkenni Algengustu af brigði sjúkl. kvíðatilfinninga Vara lengi (a.m.k. einn mánuð). Sjálfráða taugakerfið undir miklu álagi (titringur, óróleiki, van- hæfni i slökun, vöðvar verkja). Ofvirkni ósjálfráða taugaviðbragða (áköf svitamyndun, mikill hjartsláttur, hraður púls, hröð öndun, svimaköst, meltingartruflanir, hitastraumar eða kulda- hrollur). Beygur (viðvarandi hugboð um að eitthvað slæmt sé framundan, slæmir fyrirboðar, áhyggju- þungi, taugaspenna). Varnaðarviðbrögð (erfiðleikar á einbeitingu, svefnleysi, óþotinmæði, skyndileg reiðisköst). Skefjalaus óttatilfinning Bráð ofsahræðslukennd og tilfinning af yfirvofandi ógn, sem getur staðið í allmargar mínútur, áköf kviða- og óttaeinkenni — en það kunna að líða mánuðir eða ár milli slíkra kasta. Sumir tengja þennan skefjalausa ótta sinn einhverjum ákveðnum, afmörkuðum stað, þar sem slíkt ofsalegt hræðslukast hefur komið yfir þá og taka jafnframt að forðast áþekkar kringumstæður og þar riktu (bíla, verzlunarsvæði), en þetta ástand leiðirtil viðáttufælni (agoraphobíu). Víððttufælni (Agoraphobía) Ekki „ótti við almannafæri'' heldur við það sem er samfara almannafæri — minni öryggiskennd, minni yfirsýn og stjórn á því sem gerist. Þetta sálarástand er „ótti við óttann". Fólk með víð- áttufælni forðast þær kringumstæður, sem það óttast að valdi því stjórnlausum óttaköstum. Sumir verða algjörlega að halda sig heima fyrir og mega vart fara út fyrir hússins dyr; en öðrum finnst þeir vera öruggir innan vissra marka frá heimili sínu eða með vissu „öruggu fólki'' sem þeir geta þá hegðað sér alveg eðlilega með hvar sem er. Hræðsluköst við og við. Félagsleg hræðslukennd Ótti eða kvíðatilfinning, sem setur að manni varðandi félagslegar kvaðir eins og að fara í samkvæmi eða á mannamót, þurfa að halda ræðu. Ósjálf ráð, eðlíslæg hræðsla við ákveðin at- riði eða kringumstæður Eðlislægur ótti við sérstaka hluti, sérstakar kringumstæður (skordýr, þrönga klefa, stiga, dýr). Martraðarkenndur ótti Þegar enn upplifa aftur og aftur einhvern voðaviðburð (styrjöld, nauðgun, glæpaverk, náttúru- hamfarir) i endurminningunni, martröð i svefni, dagleg kvíðakennd. Þráhyggja — áunninn kvíði Alls konar óviðráðanleg þráhyggja (ásæknar hugsanir um eitt og hið sama eða fjarstæðukennd- ar hugarsýnir) eða óviðráðanleg árátta af ýmsu tagi (óumflýjanlegar vanaathafnir eins og að þurfa sífellt að þvo sér um hendurnar) í þvi skyni að bægja frá kviðatilfinningum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.