Morgunblaðið - 11.04.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.04.1986, Blaðsíða 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR11.APRÍL1986 HVAÐ ERAD GERAST UM Atriði í leikritinu Ella sem Egg-leikhúsiA sýnir um þessar mundir. Egg-leikhúsið: ELLA Sýningum fer nú óðum fækkandi á leikritinu Ella eftir Þjóðverjann Herbert Acthernbusch. Verkið er í þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar og hefur Egg-leikhúsið flutt það að undanförnu. Um helgina verður Ella sýnd á laugardag og sunnudag og hefjast sýningar kl. 21.00 íkjallara Hlað- varoans á Vesturgötu 3. Blásarkvintettinn ásamt Martin Berkofsky. Kjarvalsstaðir: Blásarakvinett Reykjavíkur og Martin Berkofsky pfanóleikari Blásarakvinetett Reykjavíkur og píanóleikarinn Martin Berkofsky halda tónleika á Kjarvals- stöðum sunnudaginn 13. apríl kl. 21.00. Á ef nisskrá verða kvintettar fyrir blásara eftir Þorkel Sigurbjörnsson (frumflutningur á nýrri og aukinni gerð verksins) og franska tón- skáldið Jean Francaix svo og sextett fyrir píanó og blásarakvintett eftir Francis Poulenc. Blásarakvintett Reykjavíkur skipa þeir Bernharður Wilkinson, Daði Kolbeinsson, Einar Jóhannesson, Joseph Ognibene og Hafsteinn Guðmundsson. Breiðholtsskóli: Skólasýning - Foreldra- skemmtun Skólasýning og foreldraskemmt- un vegna 200 ára afmælis Reykja- víkur verður i Breiðholtsskóla laug- ardaginn 12. apríl. Dagskráin er þannig: Kl. 13 Opnun sýningar. Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts leikur. Uppákoma leikhóps. Kl. 14. Foreldraskemmtun í sal. Kór, dans- flokkur, fimleikar, leikatriði o.fl. Kl. 16. Sundmót ískólalaug. Kl. 18. Sýningu lýkur. Listasafn Einars Jónssonar: Safn og garður Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30 til 16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega frá kl. 11 tiM 7. Sædýrasafnið: Dýrin mín stór og smá Sædýrasafnið verður opið um helgina eins og aðra daga frá kl. 10 til 19. Meöal þess sem ertil sýnis eru háhyrningar, Ijón, ísbjörn, apar, kindurog fjöldi annarra dýra, stórra og smárra. MYNDLIST Ásmundarsalur: Hallbjörg og Fischer Málverkasýningu Hallbjargar Bjarnadóttur og Fischers í Ásmund- arsal lýkur sunnudaginn 13. apríl. Á sýningunni eru 46 olíumálverk. Sýn- ingineropinalladagafrákl. 14-22. Pítubær í Keflavík Myndlistarsýning Sigríðar Rósenkars Nú stenduryfirsýning á 19 olíu- málverkum eftir Sigríði Rósenkars i Pítubæ í Keflavík. Þetta er fyrsta einkasýning Sigríðar, en hún hefur tekið þátt i nokkrum samsýningum. Sýningin eropin frá kl. 11.30 til 20.30 Gallerí íslensk list: Sýning Sigurðar Þóris Sýning Sigurðar Þóris í Gallerí íslensk list, Vesturgötu 17, stendur nú yfir. Opið laugardag og sunnu- dag frá kl. 14 til 18 en aðra daga frákl. 9 til 18. Gallerí Gangskör: 10 myndlistarmenn Galleríið er opiö alla virka daga frákl. 12-18ogfrá 14-18 um helgar. Að galleríinu standa 10 myndlistarmenn og eru verk þeirra til sölu í galleríinu sem er til húsa í Bernhöftstorfu. Konan í list Ásmundar Nú stendur yfir í Ásmundarsafni við Sigtún sýning sem nefnist „Kon- an í list Ásmundar Sveinssonar". Er hér um að ræða myndefni sem tekur yfir mestallan feril Ásmundar og birtist i fjölbreytilegum útfærsl- um. Skurðlistarskóli Hannesar: Skurðlistarskóli HannesarFlosa- sonar heldurtréskurðarsýningu i sal tónlistarskólaris á Seltjarnarnesi við Melabraut nk. laugardag og sunnu- dag frá kl. 14-22 báða dagana. Þar verða tréskerar við vinnu og allar upplýsingar um starfsemi skólans, sem er frístundaskóli, verða veittar. Á sýningunni verður innritaö í fáein laus pláss á vornámskeiði skólans. SAMKOMUR Spænskudeild Háskóla íslands: Spænskt kvöld í Félags- stofnun Spænskudeild Háskóla íslands gengst fyrir spænsku kvöldi í Fé- lagsstofnun stúdenta sunnudaginn 13. apríl kl. 20.30. Ádagskránni verða söngur, tónlist og Ijóð frá Spáni og Rómönsku-Ameríku. Flutningur fer f ram á spænsku og íslenskujöfnum höndum. íveturer spænska kennd sem aðalgrein við háskólann í fyrsta sinn og af því tilefni vilja nemendur í greininni vekja athygli á þeirri fjölbreyttu menningu sem er að finna í hinum spænskumælandi heimi. Félag heimspekinema: Um ástina Soffía, félag heimspekinema, efnir til samdrykkju um ástina í Odda laugardaginn 12. apríl kl. 14-17. Dagskráin erþannig: Hall- dór Guðjónsson kennslustjóri: 18 athugasemdir um ástina. Högni Óskarsson geðlæknir: Hví ást? Umræða og hlé. Helga Bachmann leikkona: Ást erábyrgð. Páll Skúla- son prófessor: Hvað er ást? Naustið: Helgardagskráin Á föstudagskvöld mun Helgi Hermannsson syngja m.a. lög úr Eyjum. Hrönn og Jónas Þórir leika Ijúfa tónlíst fyrir matargesti og Dansband Jónasar Þóris mun svo leika danstónlist við allra hæfi fram til kl. 03. Gestur kvöldsins á laugardag verður Sverrir Guðjónsson söngvari. Dansband Jónasar Þóris leikur fyrir dansi til kl. 03. Söngvarar Helgi Hermanns og Sverrir Guðjóns. Diddúarkvöld veröur í Naustinu á sunnudag. Diddú syngur og skemmtir ásamt Ólafi Gauk, Hrönn Geirlaugsdóttur, Jónasi Þóri og Helga Hermannssyni. Melaskóla- nemendurárg. 52 til 62 eru sérstak- lega velkomnir. Jónas Þórir og Helgi Hermanns leika m.a. bítlög fyrir gesti tilOI.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.