Morgunblaðið - 21.05.1986, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
■---------------------— ---- --------- ■ ■■ ■. —...................... . ■ ........... ■ ■ ------
Sanngjarnt jafntefli á Skaganum
ÍA — Fram
0:0
c
Texti:
Sigþór Eiríksson
Mynd:
Bjarni Eiríksson
AKRANESVÖLLUR 1. deild:
í A—Fram 0:0 (0:0)
Áhorfendur:1354
Dómaii:Gísli Guðmundsson
Gul spjöld:Steinn Guöjónsson, Fram, Valgeir
Barðason, ÍA, Sveinbjörn Hákonarson, ÍA.
Einkunnagjöfin:
ÍA: Birkir Kristinsson 3, Hafliöi Guöjónsson
3, Heimir Guömundsson 2, Guöjón Þóröarson
4, Siguröur B. Jónsson 4, Sveínbjörn Hókonar-
son 2, Guöbjörn Tryggvason, 3, Ölafur Þóröar-
son 2, Árni Sveinsson 2, Valgeir Baröason
3. Höröur Jóhannesson 2. Stefón Viöarsson
(vm. lék of stutt).
30 stig samtals.
Fram: Friörik Friöriksson 3, Þorsteinn Þor-
steinsson 2, Ormarr örtygsson 2, Viðar Þor-
kelsson 4, Jón Sveinsson 3, Kristinn R. Jóns-
son 2, Pétur Ormslev 4, Steinn GuÖjónsson
2, öm Valdimarsson 2, Guömundur Torfason
3, GuÖmundur Steinsson 2. Þórður Marelsson
(vm. 2) Amljótur Davíösson (vm. lók of stutt.)
29 stig samtals.
Bæði ÍA og Fram sýndu ágætan
• Besta marktækifærið f leiknum á Akranesi. Kristinn Jónsson fókk knöttinn frfr inni í vítateig Skagamanna og markið blasti við. En
skotið geigaði — boltinn fór framhjá marki hægra megin. Morgunbiaðið/Bjarni
leik í blíðunni á Akranesi á laugar-
daginn þó uppskeran hafi verið rýr
í mörkum talin. Bæöi liðin náðu
að skapa sér nokkur ágæt mark-
tækifæri, en örugg markvarsla
beggja markvarða, og reyndar yfir-
leitt ágætur varnarleikur, kom í veg
fyrir mörkin.
Framarar byrjuðu betur, voru
ákveðnari í sóknarleik sínum, og
höfðu undirtökin á miðjunni. ( síð-
ari hálfleik fóru Skagamenn að
koma meira inn í leikinn og síðustu
15 mínútur leiksins sóttu þeir
hokkuð stíft án þess að geta skor-
að. Jafntefli voru því sanngjörn
úrslit þegar upp var staðið.
Fram fékk nokkur ágæt færi í
fyrri hálfleik, en aðeins eitt sem
kalla má dauðafæri. Þá gaf Pétur
Ormslev góða sendingu á Kristin
Jónsson sem stóð óvaldaöur á
vítapunkti, en hann skaut yfir. Það
sama á reyndar við um Skaga-
menn — af nokkrum þokkalegum
færum telst eitt hafa verið dauða-
færi. Það kom þremur mínútum
fyrir leikslok þegar Ólafur Þórðar-
son lék á Viðar Þorkelsson og
komst inn í vítateiginn óvaldaður.
En hann var aðeins of seinn að
skjóta og Viðar bjargaði deginum
fyrir sjálfum sér og Fram með því
að komast á siðustu stundu fyrir
skotið og bjarga i horn.
Pétur Ormslev og Viðar Þorkels-
son lékur mjög vel fyrir Fram í
lejknum, en heimamenn á Akra-
nesi kættust yfir frammistöðu
tveggja nýliöa í liði ÍA, miðvaröar-
ins Sigurðar B. Jónssonar og bak-
varðarins Hafliða Guðjónssonar,
sem báðir áttu framúrskarandi
góðan leik. Þá var Guðjón Þórðar-
son mjög traustur í miðvarðarstöð-
unni.
FH-ingar sterkari
í Garðinum
í STUTTU MÁLI:
Garðsvöllur 1. deild.
Víöir—FH 3:1 (1:1).
Mark Víðis: Helgi Bentsson á 7. mín.
Mörk FH: Ingi Björn Albertsson á 5. mfnútu,
Ólafur Danivalsson á 70. mín. og Kristján
Gíslason á 89. mín.
Áhorfendur: 450.
Dómari: Guömundur Haraldsson og dæmdi
hann mjög vel.
Gult spjald: Daníel Einarsson, Víöi.
Einkunnagjöfin:
Víöir: Gísli Hreiöarsson 3, Klemenz Sæ-
mundsson 2, Vilhjálmur Einarsson 2, Mark
Duffield 2, Daníel Einarsson 3, Guöjón Guö-
mundsson 3, Helgi Bentsson 3, Björn Vil-
helmsson 2, Ólafur Róbertsson 2, Vilberg
Þorvaldsson 2, Guömundur Knútsson 3, Svan-
ur Þorsteinsson (vm. 2) og Þóröur Þorsteins-
son (vm. 3).
Samtals: 27.
FH: Gunnar Straumland 4, ViÖar Halldórsson
3, Kristján Gíslason 3, Henning Henningsson
Vfðir-FH
1:3
3, Pálmi Jónsson 3, Ólafur Danivalsson 2, Ingi
Björn Albertsson 4, Ólafur Hafsteinsson 2,
Ólafur Jóhannesson 3, GuÖmundur Hilmars-
son 2, Magnús Pálsson 3 og Kristján Hilmars-
son (vm. lék of stutt).
Ingi Björn Albertsson haföi
skoraö eftir aðeins 4 mínútur og
fimmtíu sekúndur í Garðinum og
margir bjuggust viö því að hann
hlyti Markabikar Morgunblaðsins
fyrir að skora svo snemma. En sú
varð ekki raunin því Bjarni Svein-
björnsson, Þór, gerði enn betur
gegn Val því hann skoraöi eftir
tæpar þrjár mínútur. Ingi Björn
skoraði meö skalla eftir góða
sendingu frá Pálma Jónssyni.
Það liðu aðeins tvær mínútur
þar til Víðismenn höfðu jafnað leik-
inn. Helgi Bentsson skoraði þá
meö föstu skoti út við stöng frá
vítateigslínu og þannig var staðan
f hálfleik.
FH-ingar voru mun aðgangs-
harðari í seinni hálfleik og komust
aftur yfir á 70. mínútu. Ingi Björn
óð upp hægri kantinn og upp að
markinu og í stað þess að skjóta
eins og flestir bjuggust við gaf
hann laglega út á Ólaf Danivals-
son, sem stóð einn og óvaldaður
við markteigshorniö og átti auðvelt
með að skora. Eftir markið sóttu
Víðismenn meira en Gunnar
Straumland, markvörður, var betri
en enginn og varði oft meistara-
lega.
Kristján Gíslason innsiglaði síö-
an sigur FH er hann skoraði gott
mark einni mínútu fyrir leikslok.
Sigur Hafnfirðinga var sanngjarn
og sáust oft skemmtileg tilþrif hjá
þeim.
• Ingi Bjöm og Mark Duffleld, nýi maðurinn hjá Vfðl, kljóst um
knöttinn.
Góð byrjun
hjá Blikum
UBH ■ C- 1:0 ÍBK i
Texti: Guðjón Arngrímsson
KÓPAVOGSVÖLLUR1. deild:
UBK-ÍBK 1:0 (1:0)
Mark UBK: Jón Þórir Jónsson (Á 18. mín.)
Áhorfendur: 7
Dómari: Magnús Jónatansson.
Gult spjald: Skúli Rósantsson ÍBK
Einkunnagjöfin:
UBK: örn Bjarnason 3, Ingvaldur Gústafsson
2, Ólafur Björnsson 2, Magnús Magnússon
2, Benedikt Guömundsson 2, Jón Þórir Jóns-
son 3, Hákon Gunnarsson 2, Jóhann Grétars-
son 2, Guömundur GuÖmundsson 3, GuÖ-
mundur Valur SigurÖsson 2, Helgi Ingason
2. Vignir Baldursson vm., lék of stutt.
Samtals 25.
ÍBK: Þorsteinn Bjarnason 2, Siguröur Guðna-
son 2, Valþór Sigþórsson 2, Freyr Sverrisson
3, Skúli Rósantsson 2, Gunnar Oddsson 2, Jón
Sveinsson 1, Kjartan Einarsson 2, (var Guö-
mundsson 2, Sigurjón Sveinsson 1. Sigurður
Björgvinssonvm. og Ingvar GuÖmundsson
vm., lékuof stutt.
Samtals 19.
Örlítiö meiri hugmyndaugði
Blika í sóknarleiknum var þaö sem
skildi þessi tvö annars áþekku lið
að á laugardaginn. Sigurinn færði
nýliðunum 3 kærkomin stig, en
skildi Keflvíkinga eftir með ótal
vandamál að leysa.
Frá því í fyrra hefur liðið misst
Ragnar Margeirsson, Sigurjón
Kristjánsson og Helga Bentsson -
eitt stykki góða framlínu - og það
sást í leiknum. Þar fyrir utan gat
Hólmbert Friöjónsson ekki stýrt
liðinu á laugardaginn vegna veik-
inda. Keflvíkingar voru ekki minna
með knöttinn, líklega öllu meira,
en þegar þeir komust að teignum
hjá Blikum gerðist lítið sem ekkert.
Miðverðirnir Valþór og Freyr eru
kjölfestan í liðinu og eru mikið með
knöttinn, en Keflvíkinga vantar
öfluga framliggjandi tengiliði eða
framlínumenn.
Blikarnir voru jafnari, f vörninni
kraftmiklir og stórir jaxlar, en fram-
arlega á vellinum voru þeir Guð-
mundur Guðmundsson, ungur og
snarpur miðvallarleikmaður, Jón
Þórir Jónsson, sem gerði mjög
mikið af mörkum í annarri deild í
fyrra, og Hákon Gunnarsson á
köflum útsjónarsamir og náðu aö
skapa sérfæri.
Eina markið í leiknum kom eftir
misheppnað útkast Þorsteins
keflavíkurmarkvarðar í fyrri hálf-
leik. Keflavíkurvörnin var í róleg-
heitum á leið fram völlinn þegar
hann henti boltanum beint til Há-
kons á hægri kantinum. Hann lék
upp að vítateig og renndi til Jóns
Þóris hægra megin í teignum sem
skoraði úr fremur auðveldu færi.
Besta færi Keflíkinga var víta-
spyrna sem Kjartan Einarsson
fiskaði rétt fyrir leikhlé og misnot-
aði síðan. Örn blikamarkvörður
varði glæsilega.
Leikurinn í heild var tilþrifalítill,
og lítill raunverulegur mælikvarði
á getu liðanna.
• Magnús Magnússon skallar
frá Blikamarkinu.