Morgunblaðið - 22.05.1986, Side 1

Morgunblaðið - 22.05.1986, Side 1
Rósastríð hið nýja MJÓG hörð samkeppni rikir nú innan blóma- heildsölunnar. A þeim vettvangp starfa nú tvö fyrirtæki — Blómamiðstöðin, sem starfað hefur í 25 ár, og Blómaheildsalan sem er nýlegt fyrirtæki. Breytingar standa fyrir dyrum þjá báðum fyrirtækjum til að mæta harðnandi samkeppni, eins og aegir frá blaðinu í dag. B5 Axis hitti í mark HÍJSGAGNAFYRIRTÆKIÐ Axis sló í gegn á norrænu húsgagnasýningunni í Bella Center á dögunum með nýja línu af barnaherbergishús- gögnum, sem Pétur Lútersson hefur hannað. Fjöldi aðila hefur óskað eftir að fá einkaumboð fyrir framleiðslu Axis, bæði i Evrópu og i Bandaríkj unum. Eyjólfur Axelsson, fram- kvæmdastjóri Axis, segir frá árangri fyrirtæk- isins á sýningunni í viðtali i dag og hvaða vandræðum fyrirtækið stendur frammi fjrir af þessum sökum. VIÐSKIPn AIVINNULIF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 22. MAI1986 BLAÐ B Fóðuriðnaður Foðurblandan hf. flutt í Sundahöfn Nær allur fóðuriðnaðurinn kominn á sama stað FÓÐURBLANDAN hf. hefur flutt alla starfsemi sína i nýtt húsnæði að Korngarði 12 i Sundahöfn. Hin nýja verksmiðja Fóðurblöndunar er fullkomnasta fóðurblöndunarstöð landsins, að sögn Hjörleifs Jónssonar for- stjóra, og býður hún upp á Borgarverk ogHagvirki bjóða best íklæðningar nýlega voru opnuð tilboð i þremur útboðum Vegagerðar rikisins. Óvenju fá tilboð bárust í verkin og voru lægstu tilboð í öllum tilvikum fyrir ofan kostn- aðaráætlun Vegagerðarinnar. Stærri verkin eru klæðingar á vegi en samkeppni verktaka virð- ist ekki vera eins mikil um þau eins og almenna vegagerð, enda sérhæfð tæki notuð við þau. möguleika til framleiðslu á nýj- um fóðurvörum. Hjörleifur sagði að verksmiðjan væri tölvustýrð. Það skapaði meðal annars mikla möguleika á fjöl- breytni tegunda, bæði í hinum hefðbundnu búgreinum og aukabú- greinunum svokölluðu, þannig að nánast gæti hver einstakur bóndi látið framleiða fyrir sig sína eigin fóðurblöndu. Afkastageta verk- smiðjunnar er 12—15 tonn á klukkustund. Munurinn er mikill því afkastageta gömlu verksmiðj- unnar sem var í leiguhúsnæði á Grandavegi, var 3,5—4 tonn á klukkustund. „Við eigum núna að geta annað eftirspuminni og auk þess farið að stunda sölumennsku sem við höfum ekki áður þurft," sagði Hjörleifur. Með flutningi Fóðurblöndunnar er stór hluti íslenska fóðuriðnaðar- ins kominn á sama stað. Allar ís- lensku fóðurblöndunarverksmiðj- urnar, Fóðurblandan hf., Mjólkurfé- lag Reykjavíkur og SIS, em við Komgarð. Þar er einnig Komhlaðan hf. sem fóðurverksmiðjumar eiga í sameiningu og aðstaða Guðbjöms Guðjónssonar hf. sem er einn stærsti fóðurinnflytjandinn. Bláskógar biðja um greiðslustöðvun Húsgagnaverslunin Bláskógar hf. í Reykjavík hefur farið fram á að fá þriggja mánaða greiðslu- stöðvun. Beiðni félagsins var tekin fyrir hjá skiptaráðanda í gær en ekki afgreidd og var forráðamönnum Bláskóga gefinn vikufrestur til að skiia fyllri upplýsingum. Ragnar Hall, skiptaráðandi, sagði, að gerð væri krafa til betri upplýsinga um fyrirtækið og áform stjómenda þess á þeim tíma, sem greiðslustöðvun stendur. Ragnar Hall sagði, að frá ára- mótum hefðu borist 22 beiðnir um greiðslustöðvun. Á sama tíma á síð- asta ári voru beiðnimar fimm. Hins vegar em engin fyrirtæki nú í greiðslustöðvun, en nokkrir ein- staklingar. Gjaldþrot: Kröfur íþrotabú Blóma ogávaxta tæpar 30 m.kr. Líklegt að aðeins tíundi hluti krafna innheimtist Borgarverk hf. í Borgamesi átti lægsta tilboð í klæðingar á vegi í Skagafirði og á Miðfjarðarveg. Til- boð Borgarverks var 12.476 þúsund krónur, sem er tæplega 8% yfír kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 11.567 þúsund krónur. Tvö önnur tilboð bárust í verkið og voru þau bæði hærri, auk eins frávikstilboðs til viðbótar. Hagvirki hf. átti lægsta tilboð í gerð efra burðarlags og klæðingar á Þingvallaveg (Móakotsá - Stóra- landstjöm) og Vesturlandsveg í Hvalfirði, en alls em þetta rúmir 11 kílómetrar. Tilboð Hagvirkis var 9.455 þúsund krónur, sem er tæp- lega 2% yfir áætlun sem hljóðaði upp á 9.294 þúsund krónur. Þijú önnur tilboð bámst í verkið, öll hærri en tilboð Hagvirkis. Fossverk sf. á Selfossi átti lægsta tilboð í lagningu 2 km af Miðfjarð- arvegi. Tilboðið var 1.177 þúsund kr., eða tæplega 3% yfir kostnað- aráætlun sem var 1.144 þúsund kr. Tvö hærri tilboð bámst. KRÖFUSKRÁ í þrotabú Blóma og ávaxta hf. í Reykjavík var lögð fram í gær og nema almenn • ar kröfur í búið 28,3 miljjónum króna auk 125 þúsunda danskra króna (rúmlega 600 þúsund ís- lenskar krónur) og lýstar for- gangskröfur, þ.e. launakröfur og kröfur frá lífeyrissjóðum, nema rúmum 902 þúsundum króna. Magnús Norðdahl, lögmaður, bústjóri þrotabúsins, sagði i gær, að liklegt væri að aðeins tiundi hluti almennra krafna innheimt- ist, en allar forgangskröfur. Blóm og ávextir hf. var lýst gjaldþrota 24. febrúar síðastliðinn og er vitað um eignir að verðmæti 3 milljónir króna. Það er því ljóst að lítill hluti þeírra kraftia sem gerðar em í þrotabúið innheimtist, eins og áður segir. Stærstu kröfu- hafar em Búnaðarbankinn með 9,9 milljónir króna, Verzlunarbankinn með um 1,3 milljónir, Tollstjórinn með 4,4 milljónir króna og blóma- bændur með um 4 milljónir króna. Blóm og ávextir hf. rak tvær verslanir; í Hafnarstræti 3 og Al- aska við Miklatorg. Skömmu áður en félagið var lýst gjaldþrota var verslunin við Hafnarstræti seld. Magnús Norðdahl sagði að margir kröfuhafar hefðu lýst því yfir að þeir væra ósáttir við þessa sölu og að mati þeirra hefði verslunin verið seld langt undir raunvirði. Hann sagði að væntanlega fæm einhveijir kröfuhafar fram á málshöfðun á hendur þess er keypti búðina, en það er skiptafundar að ákveða hvort það verður gert. Skiptaráðandi í Reykjavík metur hins vegar hvort ástæða er til frekari rannsóknar vegna bókhalds félagsins eða með- ferðar búsins skömmu fyrir gjald- þrot og tilkynnir það ríkissaksókn- ara, sem tekur ákvörðun um rann- sókn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.