Morgunblaðið - 22.05.1986, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ,VIDSKIPTIWVINWOIÍF FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986
ÍSLANDS
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Bakkafoss 4. júní
Elvira Oria 17. júní
Bakkafoss 2. júlí
Elvira Oria 15. júli
NEWYORK
Bakkafoss 3. júní
Elvira Oria 16. júní
Bakkafoss 30. júni
Elvira Oria 14. júli
HALIFAX
Elvira Oria 20. júní
Elvira Oria 18. júll
BRETLAND/
MEGINLAND
IMMINGHAM
Álafoss 25. maí
Eyrarfoss 1.júní
Álafoss 8. júní
Eyrarfoss 15. júní
FELIXSTOWE
Álafoss 26. maí
Eyrarfoss 2. júni
Álafoss 9. júní
Eyrarfoss 16. júní
ANTWERPEN
Álafoss 27. maí
Eyrarfoss 3. júni
Álafoss 10. júni
Eyrarfoss 17. júni
ROTTERDAM
Álafoss 28. mai
Eyrarfoss 4. júni
Álafoss 11.júni
Eyrarfoss 18. júní
HAMBORG
Álafoss 29. maí
Eyrarfoss 5. júni
Álafoss 12. júni
Eyrarfoss 19. júni
GARSTON
Fjallfoss 26. maí
Fjallfoss 9. júní
IMMINGHAM
Laxfoss 2. júní
BREMERHAVEN
Laxfoss 3. júní
NAPOLÍ
Skeiðsfoss 26. maí
PINETAR
Skeiðsfoss 2. júní
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
FREDRIKSTAD
Skógafoss 27. mai
Reykjafoss 3. júní
Skógafoss 10. júní
Reykjafoss 17. júní
ÁLABORG
Skógafoss 29. maí
Skógafoss 12. júní
HORSENS
Reykjafoss 6. júni
Reykjafoss 20. júní
GAUTABORG
Skógafoss 28. maí
Reykjafoss 4. júní
Skógafoss 11. júní
Reykjafoss 18. júni
KAUPMANNAHÖFN
Skógafoss 30. maí
Reykjafoss 5. júni
Skógafoss 13. júní
Reykjafoss 19. júní
HELSINGJABORG
Skógafoss 30. maí
Reykjafoss 5. júní
Skógafoss 13. júni
Reykjafoss 19. júni
HELSINKI
Skip 26. mai
Dettifoss 2. júní
GDYNIA
Dettifoss 6. júní
ÞÓRSHÖFN
Skógafoss 1. júní
Reykjafoss 8. júni
RIGA
Selfoss 30. maí
LENINGRAD
Selfoss 26. maí
HANG0
Selfoss 28. mai
ROSTOCK
Dettífoss 8. júni
EIMSKIP
Pósthússtrœti 2.
Sími: 27100
Sljórnun
Dr. Michael Kami með námsstefnu
hjá Sijórnunarfélaginu
Heimsfrægur fyrirlesari og framtíðarfræðingur
STJÓRNUNARFÉLAG íslands
hefur fengið heimsfrægan fyrir-
lesara, dr. Michael Kami, til að
koma hingað til lands og halda
eins dags námsstefnu um stefnu-
mótun fyrirtækja í dag. Verður
námsstefnan haldin í Súlnasal
Hótels Sögu föstudaginn 13. júní.
Dr. Michael Kami er einn fremsti
og eftirsóttasti framtíðarfræðingur
°g ráðgjafi í Bandaríkjunum um
þessar mundir og hefur lagt sig
fram um að stunda rannsóknir og
fylgjast með nýjungum á sviði þjóð-
mála, viðskipta og tækni. Kami er
nú rúmlega sextugur að aldri,
fæddur og uppalinn í Brasilíu en
flutti ungur til Bandaríkjanna. A
sjötta og sjöunda áratugnum var
hann framkvæmdastjóri áætlunar-
deildar IBM og í nokkur ár einnig
framkvæmdastjóri hjá Xerox þegar
uppgangur fyrirtækisins var hvað
mestur. Þegar hann var 42ja ára
að aldri flutti hann til Flórída og
hóf nám að nýju. Hann seldi hluta-
bréf sín í IBM og Xerox og lauk
MBA-prófí og doktorsprófí. Hann
tók síðan upp lifnaðarhætti sem
hann hafði lengi dreymt um, keypti
sér hús, 42ja feta snekkju og flug-
vél og hóf sjálfstæðar rannsóknir
og ráðgjafastörf í fyrirtæki sínu,
Corporate Planning Inc. Hann er
reglulega í sambandi við marga
helstu stjómendur stærstu fyrir-
tækja Bandaríkjanna. Hann vinnur
við ráðgjafastörf og fyrirlestrahald
90 daga á ári og tekjur hans eru
25 til 40 milljónir á ári. Þá peninga
segir hann duga til að eyða þá 200
daga sem hann notar til að lesa,
ferðast og mennta sig með því að
fylgjast með nýjungum á sviði
stjómunar, hagfræði og breyting-
um á þjóðfélagsháttum og tækni.
Stjómunarfélagið hefur sett á
laggimar undirbúningsnefnd til að
skipuleggja námsstefnu Kami hér
á landi og skipa hana Þorkell Sigur-
laugsson, framkvæmdastjóri hjá
Eimskip, Lára Ragnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stjómunarfélagsins,
og Eggert Á. Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri fjárhagsdeildar Sam-
bandsins. Þorkell hefur áður haft
kynni af dr. Kami og skrifaði raunar
tvær greinar um hann og framtíðar-
sýn hans hér í viðskiptablaðið fyrir
tæpu ári. „Eg hef sótt tvær ráð-
stefnur með dr. Kami,“ segir Þor-
kell í samtali við Morgunblaðið.
„Hin fyrri var haldin 1981 í Toronto
og sótti ég hana þá ásamt Herði
Sigurgestssyni, forstjóra Eimskipa-
félagsins, en hann hafði þá áhuga
á að kynna sér nýjungar í áætlunar-
gerð og framtíðarspám á því sviði.
Yfírskrift þeirrar ráðstefnu var
New Management Realties. Síðari
ráðstefnan var svo haldin í Brussel
í fyrra og var hátíðaráðstefna í til-
efhi 25 ára starfs dr. Kami á þessu
sviði og bauð hann eingöngu til
hennar þeim mönnum sem höfðu
verið hjá honum á fyrri ráðstefnum.
Þetta var alls um 50 manna hópur
og náðist þama skemmtileg sam-
heldni og andi á ráðstefnunni fyrir
bragðið, svo að það var mjöggaman
að sitja hana.
Þorkell segir það einkenna dr.
Kami að hann býr yfír mjög mikilli
frásagnarlist, sé mjög lifandi fyrir-
lesari og skýr í framsetningu, svo
að hann á auðvelt með að halda
áheyrendum við efnið allan tímann.
Hann leggur sig í líma við að kynn-
ast ráðstefnugestum sínum og get-
ur komið þeim í opna skjöldu með
beittum spumingum eða dæmum
en þó jafnan án þess að vera ágeng-
ur eða ókurteis. „Það gerðist svo á
ráðstefnunni í fyrra að ég færði það
í tal við Kami hvort hann væri til
í að heimsækja ísland og var hann
lagsþróunin er jafn hröð og sveiflu-
kennd eins og nú er orðið — og
olíuverðslækkunin nú undanfarið
er e.t.v. skýrasta dæmið um. Dr.
Kami telur að menn eigi ekki að
gera áætlanir lengra fram í tímann
en þeir hafa raunverulega þörf fyrir
hveiju sinni. Þeir eigi ekki að binda
sig við smáatriðin heldur reyna að
að greina meginlínumar í því hvert
stefnir og bregðast við í samræmi
við það. Að því leyti eiga hugmyndir
Kami fullt erindi við okkur í dag.“
I grein Þorkels Sigurlaugssonar
í viðskiptablaðinu í júlí í fyrra og
hann byggði á viðtali Roger Collis
í blaðinu Chief Executive við
dr.Kami, birtist tafla sem vakti
talsverða athygli en þar dró Kami
upp þær þjóðfélagsbreytingar sem
hann telur að verði á næstu árum.
Látum við þessa framtíðarsýn
fylgja hér með:
til í það nema hvað hann var þá
bókaður fram í tímann allt þar til
nú í sumar. Það var síðan ákveðið
að Stjómunarfélagið tæki að sér
að koma á þessari námsstefnu með
honum í júní og sameinar dr. Kami
heimsóknina hingað ferð sem hann
er að fara til Evrópu.“
Þorkell segir engan vafa á þvi
að hugmyndir dr. Kami eigi fullt
erindi við íslendinga. Hann bendir
á að hér á landi sé starfandi nefnd
á vegum forsætisráðherra sem
ætlað sé að skila einhveiju áliti um
framtíðarþróun íslensks þjóðfélags
fram yfír aldamótin. „Kami er hins
vegar heldur vantrúaður á áætlun-
argerð og stefnumótun af þessu
tagi. Venjan er sú að þegar settar
em á laggimar nefndir hagsmuna-
aðila, þá er árangurinn mjög ítar-
legar álitsgerðir og jafnvel spár í
smáatriðum og niðurstöðumar
gjaman á þá lund eins og hags-
munahópamir vilja sjá þróunina
verða. Kami segir að þessi aðferð
dugi tæpast lengur þegar þjóðfé-
Tryggingafélög
Þjóðfélagsbreytingar sem dr. Michael Kami
telur aö verði á næstu árum
Frá:
Iðnaðarþjóðfélagi
Miðstýringu
Sterkum áhrifum verkalýðsfélaga
Þjóðernisstefnu
Almennri tækni
Ríkisforsjá
Eðlisfræði
Fulltrúalýðræði
Hagkvæmni stærðarinnar
Stjórnendaþjóðfélagi
Skammtíma hugsanagangi
Prentun
Fjölmiðlun
Fjölskyldu sem einingu
Stjórnmálaflokkum
Einnota auðlindum
EfnislegumCafköstum
Starfsfólki á launum
Vinstri og hægri stjórnmálum
Baráttu við náttúruna
Piramítaþjóðfélagi
Til:
Upplýsingaþjóðfélags
Valddreifingar
Veikra áhrif verkalýðsfélaga
Alþjóðahyggju
Nýrrar tækni
Einstaklingsforsjár
Líffræði
Einstaklingsiýðræðis
Hagkvæmrar stærðar
Frumkvöðlaþjóðfélags
Langtíma hugsanagangs
Tölvuvæðingar
Einstaklingsmiðlunar
Einstaklingsins sem einingar
Málefnaflokka
Fjölnota auðlinda
Þekkingarlegra afkasta
Verktaka
Málefnalegra stjórnmála
Lífs með náttúrunni
Flats þjóðfélags
Nær 17 millj. króna
hagnaður hjá Sjóvá
UM 16,9 milljóna króna hagnað-
ur varð af rekstri Sjóvátrygg-
ingafélags íslands á síðasta ári.
Kom þetta fram á aðalfundi fé-
lagsins, sem haldinn var hinn 13.
maisl. Bókfærð iðgjöld félagsins
á síðasta ári, sem var 67. starfsár
þess, námu 462,1 milljón króna
sem samsvarar um 51% hækkun
milli ára. Tjón á sl. starfsári
námu 521,3 milljónum króna og
hækkuðu um 266,5 milljónir eða
um 105%. Ijónaprósenta ársins
var 131% en 91% árið 1984.
Að því er fram kemur í frétt frá
Sjóvá nemur eigin tryggingasjóður
Sjóvá nú liðlega 559 milljónum
króna og hækkaði um 46%. Af
þessu má ráða að félagið er vel í
stakk búið til að mæta tjónum og
staða félagsins þannig sterk, segir
í fréttinni.
Iðgjöldin af ökutækjatryggingum
námu 153,2 milljónum króna og
hækkuðu um rúm 50%. Þetta er
stærsta vátryggingagrein félagsins
og námu iðgjöldin 42% af heildar-
tryggingariðgjöldum þess. Tjón árs-
ins námu tæplega 190 milljónum
króna og er það rúmlega 65%
hækkun milli ára. 'Ijónaprósenta
var 124% árið 1985 en 113% árið
áður.
Afkoman í bifreiðatryggingum
var slæm á síðastliðnu ári, segir í
fréttinni. Gjaldskrárhækkun á árinu
1985 var 68% í ábyrgðartrygging-
um en mikil hækkun tjónakostnaðar
milli ára var þess valdandi að staða
í þessari grein versnaði enn frekar.
í húftryggingum nam gjaidskrár-
hækkunin 68,7%.
Tæplega 20 þúsund ökutæki voru
í ábyrgðartiyggingu hjá Sjóvá um
síðastliðin áramót og hafði þeim þá
fjölgað um tæplega 7% frá árinu
áður.
Auk ökutækjatrygginga annast
félagið eignartryggingar en þar
námu iðgjöldin 97,6 milljónum
króna, ábyrgðar- og slysatrygging-
ar 55,8 milljónum króna og endur-
tryggingar 49,7 milljónum króna.
Um síðastliðin áramót tók gildi
samstarfssamningur milli Sjóvá og
Hagtiyggingar hf. sem felur í sér
að Sjóvá annast nú allan daglegan
rekstur Hagtryggingar. Er það von
forráðamanna félaganna að með
þessu móti megi styrkja stöðu
Hagtryggingar hf.
Stöðugt er unnið að tölvuvæð-
ingu fyrirtækisins og eru um þessar
mundir 55 tölvuskjáir í notkun hjá
félaginu. Jafnframt er unnið að
því að koma stærri umboðum fé-
lagsins' í beint tölvusamband við
aðalskrifstofu og ætti það að leiða
af sér bætta þjónustu við viðskipta-
vini viðkomandi umboða, segir
ennfremur í fréttinni.
Á árinu störfuðu að meðaltali 53
starfsmenn hjá félaginu, en fram-
kvæmdastjóri þess er Einar Sveins-
son.
Eins og áður hefur Verið greint
frá gerðu Sjóvá og Tryggingarmið-
stöðin hf. með sér samning I janúar
1985 um stofnun nýs líftryggingar-
félags, Sameinaða lfftryggingarfé-
lagsins hf. Hið nýja félag hóf starf-
semi sína 1. júní 1985 og hefur nú
yfírtekið líftryggingarstofna Líf-
tryggingarfélags Sjóvá hf. og Líf-
tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Hagnaður af rekstri félagsins eftir
skatta nam 559 þús. krónum. Fjöldi
líftryggingaskírteina hjá félaginu
er nú 7.200. Framkvæmdastjóri
félagsins er Siguijón Pétursson.