Morgunblaðið - 22.05.1986, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPn/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986
B 7
Stœrstu bankar heims
milljarðar dollara
20 40 60 80 100 120 140 160 180
1985
■ Sanwa (Japan)
| BankAmerica (US)
Industrial Bank of Japan
BNP (France)
Norinchukin (Japan)
*S«ptember 30th
BankAmerica (US)
Citicorp (US)
Chane Manhattan (US)
Barclays (UK)
National Westminster (UK)
Manufacturers Hanover (US)
BNP (France)
Ðanca Nationale del Lavoro (Italy)
JPMorgan (US)
Western Bancorporation (US)
Citicorp
stærsti banki
heims
VIÐ LOK síðasta árs var Amer-
ica Citicorp stærsti banki heims
þegar miðað er við eignir. Árið
1970 var BankAmerica í fyrsta
sæti en var kominn niður í sjö-
unda sæti í lok liðins árs.
Árið 1970 voru átta af tíu
stærstu bönkum annað hvort
bandarískir eða breskir. Nú eru hins
vegar aðeins tveir bandarískir og
enginn breskur í tíu efstu sætunum.
National Westminister, sem er
stærsti banki Bretlandseyja, er í
ellefta sæti yfír stærstu banka
heims. Nú einoka Japanir banka-
starfsemina - sjö japanskir bankar
eru í tíu efstu sætunum.
Þegar litið er á hækkun yensins
gagnvart dollar er líklegt að að
Dai-Ichi Kangyo taki sæti Citicorp.
Heimild: The Economist
l nibo<)
Míkró með
umboð fyrir
Clock
MÍKRÓ hf. hefur nýlega fengið
umboð fyrir dClock frá Micro-
sync. dClock er klukka fyrir
IBM-PC og aðrar sambærilegar
tölvur sem gerir það að verkum
að óþarft er að skrá dagsetningu
og tíma í hvert sinn sem vélin
er sett af stað. í frétt frá Mikró
segir að stærsti kosturinn við
þessa klukku sé að hún taki ekki
upp kortapláss i tölvunni heldur
sé henni með einfaldri aðferð
komið fyrir á móðurborði tölv-
unnar.
dClock vinnur þannig að þegar
tölvan er sett í gang skrásetur sér-
stakt forrit dagsetningu og tíma
sjálfvirkt inn á stýrikerfíð, að því
er segir í fréttinni. Þeir sem noti
tölvuna þurfí þannig ekki að svara
sérstökum spumingum um dag-
setningu og tíma. Þar af leiðandi
muni þeir, sem notfæri sér þann
möguleika MS-DOS-stýrikerfísins
að taka afrit frá ákveðnum dagsetn-
ingum, áreiðanlega kunna vel að
meta það að hafa öll gögn skrásett
á réttum dagsetningum.
í frétt Míkró segir hins vegar að
margir notendur IBM-PC og sam-
bærilegra tölva séu iðulega búnir
að fylla öll laus sæti fyrir aukakort
eða vilji ekki fóma lausu sæti fyrir
klukkukort og þar sé dClock því
einstök lausn. Sem sérstakan
bragðbæti sé sfðan að fínna leið-
beiningar í dClock handbókinni fyrir
þá er vilji stækka minni IBM PC/XT
í 640k á móðurborði tölvunnar án
þess að þurfa að kaupa dýr minnis-
stækkunarkort. dClock kostar með
ísetningu kr. 2.900.
Tímamót í fóðurframleiðslu
á Islandi
Fóðurblandan hf. hefur flutt alla
starfsemi sína í nýja, fullkomna fóð-
urverksmiðju að Korngarði 12 við
Sundahöfn. Með opnun nýju verk-
smiðjunnar verða ekki einungis
þáttaskil í 25 ára sögu Fóðurblönd-
unnar hf. heldur og tímamót í fóður-
framleiðslu á Islandi.
Við hönnun verksmiðjunnar höfum
við í senn tekið mið af reynslu okkar
og hugviti svissneskra völundar-
smiða. Arangurinn er tæknilega full-
komin fóðurverksmiðja þar sem
tölvutækni er nýtt við eftirlit og alla
vinnslu. Þetta gerir okkur meðal ann-
ars kleift að blanda fóðrið nákvæm-
lega í þeim hlutföllum sem uppskrift-
irnar segja til um og að auka mjög
vinnsluhraða og fjölbreytni. Með
þessu móti verða blöndurnar okkar
alltaf nýjar og ferskar er þær berast
kaupandanum.
í heild sinni mun nýja verksmiðjan
leiða af sér enn betri fóðurblöndur og
fullkomnari þjónustu. Nú, á tímum
kvótakerfis og offramleiðslu, er mikil-
vægara en nokkru sinni að standa rétt
að fóðrun búfjár. Skynsamleg notkun
kjarnfóðurs, byggð á þekkingu og
reynslu, er forsenda hagkvæmni í bú-
rekstri.
Bændur! Hafið samband við okkur og
nýtið ykkur fullkomnustu tækni í fóð-
urblöndun.
FOÐURBLANDAN HF.
KORNGARÐ112 S:(91)687766 SUNDAHÖFN
FORYSTA Í FÓÐURBLQNDUN
Áskriftarsíminn er 83033
'"•V:
f