Morgunblaðið - 22.05.1986, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIFTI/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986
r ll
Flug
People Express
með 1. farrými
Bandaríska flugfélagid People
Express, sem þekkt hefur verið
fyrir að bjóða flugferðir á lágum
fargjöldum og með lítilli þjón-
ustu um borð, er nú að breyta
flestum farþegaþotum sínum,
sem alls eru 80, þannig að um
borð í þeim verði afmarkað
fyrsta farrými. Einnig ætlar
flugfélagið að bjóða þeim far-
þegum, sem oft þurfa að ferðast,
sérstök kjör.
Einn af deildarstjórum People
sagði á fundi með blaðamönnum
þegar þessar breytingar voru til-
kynntar að farþegar á fyrsta far-
rými þyrfti ekki að greiða aukalega
fyrir farangursskráningu, né fyrir
mat og drykk um borð, og væri í
athugun að fella þessi gjöld einnig
niður hjá öðrum farþegum.
People Express er með aðalstöðv-
ar sínar hjá Newark-flugvelli í New
Jersey, en þaðar er jafnvel styttra
inn á Manhattan í New York borg
en frá Kennedy-flugvelli. Það er
dæmigert fyrir þau flugfélög sem
spruttu upp í Bandaríkjunum eftir
að samræmingu fargjalda þar var
hætt árið 1978. í fyrstu gekk rekst-
urinn mjög vel, og People færði
smám saman út kvíamar. En á síð-
asta fjórðungi ársins 1985 var 32,2,
milljóna dollara (rúml. 1.300 millj-
óna kr.) tap á rekstrinum, og á
fyrsta fjórðungi yfírstandandi árs
er áætlað að tapið nemi 35 milljón-
um dollara.
Tapið stafar aðallega af miklu
og hörðu fargjaldastríði á sumum
flugleiðum, eins og frá Denver í
Colorado, en í Denver eru aðal-
stöðvar Frontier Airlines, sem Pe-
ople Express keypti í október f
fýrra. Auk þess keypti People flug-
félögin Britt og Provincetown-
Boston Airlines, og hefur þessi út-
þensla og kostnaður við að sam-
hæfa reksturinn einnig átt sök á
tapinu. En með þessum kaupum
varð People Express fimmta
stærsta flugfélag heims, en var
áðurí 11. sæti.
Nýja þjónustan á fyrsta farrými
hófst á flugleiðinni milli Denver og
Newark. Þar kostar farseðillinn á
fyrsta farrými aðra leiðina 250
dollara (kr. 10.125), en venjulegt
fargjald á þessari leið hjá People
er 69 dollarar (kr. 2.795). Til
samanburðar má geta þess að
United Airlines tekur 600 dollara
(kr. 24.300 fyrir farseðil á fyrsta
farrými á þessari sömu leið, og 425
dollara (kr. 17.200) á ódýrara far-
rými.
Hvað sérkjör þeirra farþega sem
mikið ferðast varðar má taka sem
dæmi að farþegi sem flogið hefur
4
Lág fargjöld — People Express sem þekkt er fyrir að bjóða
lág fargjöld og litla þjónustu um borð í flugvélum félagsins, hefur
ákveðið að breyta flestum vélunum og bjóða farþegum er vilja að
ferðast á 1. fanými.
með félaginu 6.000 mílna vega-
lengd alls fær farseðil á fyrsta
farrými á flugleiðunum innanlands
fyrir sama verð og greitt er fyrir
ferð á ódýrara farrýminu. Og sá
sem ferðast hefur 20.000 mílur fær
ókeypis ferð fram og til baka til
einhvers viðkomustaða félagsins
innanlands.
Öll stærri flugfélögin í Bandarílq'-
unum bjóða upp á einhver sérkjör
fyrir þá sem oft ferðast flugleiðis.
Þessi sérkjör eru sérlega vinsæl
hjá þeim sem oft þurfa að ferðast
í viðskiptaerindum, og nota þeir þá
oft frímiðana til að fara með fjöl-
skyldur sínar í sumarleyfi.
(Heimild: New York Times)
A^ÍiSí'A
1946
1986
55
$5
Hverfisgötu 33, sími: 20560
Tölvudeild Akureyri:
Gránufélagsgötu 4,
TÖLVUR
STOÐFORRITIN
Áætlunarstoð ... kr. 6.000
Skrástoð ......kr. 6.000
Myndstoð ......kr. 6.000
Skýrslustoð......kr. 5.100
Ritstoð................kr. 6.000
Teiknistoð.......kr. 6.200
Skrifstofuvélar hf kynna nýjungar á PC tölvum
og búnaöi frá IBM. Meðal þess sem viö kynnum er öflugra
minni frá 256k upp í 10,5MB, stærri diskar frá 10MB upp
í 60MB, meiri vinnsluhraði, nýtt hnappaborð og síðast en ekki síst, ný AT tölva,
hraövirkari og öflugri en áður. Þetta eru atriði sem eru sannarlega frekari athugunar
virði.
Meö IBM PROPRINTER eða QUIETWRITER tölvuprenturum verður öll útskrift á
gögnum hraðvirk og hljóðlát, með vönduðu letri og snyrtilegum frágangi.
Auk IBM PC bjóðum við til sölu IBM system 36 tölvubúnað í þremur stærðum
ásamt tilheyrandi notendahugbúnaði.
IBM PC........... kr. 95.800
IBMPC/XT20MB.......kr. 156.200
IBM PC/AT 20MB.....kr. 226.100
IBM PC/AT-3 30 MB ... kr. 258.300
PRENTARAR
Proprinter ................. kr. 27.000
Quietwriter ................ kr. 61.000
Quietwriter m/grafík........ kr. 76.000
Arkamatari f/Quietwriter.... kr. 17.500
Pappírsdragari f/Quietwriter . kr. 3.900
sími: 96-26155