Morgunblaðið - 06.06.1986, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1986
f
Það er ýmislegt sem til þarf við greininguna.
Aðfínna shut rétta
ténílitum
Við erum öll fædd með
ákveðinn húðlit og
hann fylgir okkur frá
vöggu til grafar,“ segir
Katrín Eymundsdóttir
er hún byrjar að kynna
litgreiningaraðferð
sem meðal annars er
ætlað að auðvelda
fólki að átta sig á því
hvaða litirfara því
best, jafnt í klæðnaði,
skartgripum sem
snyrtivörum.
Katrín lærði þessa
litgreiningaraðferð í
Kanada þar sem
hún dvaldi í tvö ár.
„Þetta er ákaflega vinsælt bæði
í Bandaríkjunum og Kanada, en
ég hafði ekki heyrt um þetta hér
á landi áður en ég fór vestur um
haf. Þangað fór ég með eigin-
manni mínum sem var þar við
framhaldsnám í heimilislækning-
um frá ’83-’85. Ég kynntist fljót-
lega konu sem hafði þann starfa
að kenna fólki þessa litgreining-
araðferð. Hún fann að ég hafði
mikinn áhuga á þessu og ég
varð nemandi hennar um nokk-
urra mánaða skeið og varð heill-
uð af þessu. Ég hef verið búsett
á Húsavík undanfarin 20 ár og
mér þótti tilvalið að hafa þessa
kunnáttu með mér til baka og
krydda lífið og tilveruna þar.
Húsvíkingar hafa sýnt þessu
mikinn áhuga, en ég hef einnig
haldið stutt námskeið í Reykjavík
þegar ég hef verið á ferðinni",
segir Katrín.
Litir geta gerbreytt
andliti
„Tilgangurinn með þessu lit-
greiningarkerfi er þríþættur. í
fyrsta lagi má segja að litir geti
gerbreytt andliti, en þegar ég
tala um liti á ég við tóninn í litun-
um, þá annað hvort gulan eða
bláan. Réttur tónn frískar upp
andlitið, en rangur tónn vinnur
á móti því. í öðru lagi þá er það
staðreynd að ef við höfum það
fyrir meginreglu að kaupa alltaf
föt í sama tóninum þá stækkar
fataskápurinn smám saman.
Fötin passa öll saman á einn
eða annan hátt. í þriðja lagi
getur það bjargað okkur frá
þessum dýru „slysum" sem við
flest þekkjum í fatakaupum, þ.e.
að kaupa flíkur sem við kunnum
engan veginn við þegar allt
kemur til alls. í 90% tilfella er
það liturinn sem við kunnum
ekki við, en ekki sniðið eins og
við höldum oft að það sé. Öll
eigum við yfirleitt einhverjar
gamlar flíkur sem við kunnum
vel við, þá er það í flestum tilfell-
um liturinn sem ræður þar um
fremur en sniðið," segir Katrín.
Bláirog
gulir tónar
„Blái tónninn er kallaöur vetur
og sumar á meðan sá guli er
kallaður haust og vor. Þetta eru
bara nöfn sem tónunum eru
gefnir til að gera þetta skemmti-
legra, þeir gætu alveg eins heitið
a,b,c, og d. Langflestir heims-
búar eru vetrarfólk og það eru
einnig margir íslendingar. Þessi
hópur getur klætt sig í mjalla-
hvítt og svart með góðum
árangri, en svart er litur sem
þykir vera grennandi og margir
klæðast honum þess vegna.
Þetta er misskilningur í flestum
tilfellum. Svart er ekki grennandi
nema í ákveðnum samsetning-
um. Sumarlitirnir eru mildari en
vetrarlitirnir, en sem fyrr segir
er það blái tónninn sem er ríkj-
andi í þeim báðum. Þeir sem
tilheyra vorinu og haustinu taka
Rœttvið Katrínu
Eymundsdóttur
um litgreining-
araðferðsem
hún lœrði
íKanada
sig betur út í litum með gulum
tóni, en fámennasti hópurinn af
þessum fjórum er sennilega
vorið" segir Katrín, en bætir við
að ekkert sé algilt í þessu. „Það
eru alltaf nokkrir sem vega salt
á milli bláa tónsins og þess gula
og geta þá litið vel út í þeim
báðum. Þetta á oftar við um þá
sem eru dökkir á húð og hár."
í •
Katrín segir að þetta litgrein-
ingarkerfi eigi rætur sínar að
rekja til þýsks listmálara, Jo-
hannes Ittens að nafni. „Hann
kenndi málun við Bauhaus-lista-
háskólann og tók eftir því að
þegar nemendur hans voru að
mála þá löðuðust þeir alltaf að
sömu tónunum. Hann fór að
athuga þetta nánar og sá að
ekki var um neina tilviljun að
ræða. Út frá athugunum sínum
kom hann svo fram með þetta
litgreiningarkerfi sem er hugsað
bæði fyrir karla og konur. Það
kemur einnig fyrir að ég fæ börn
til litgreiningar. Ég frétti af einni
sjö ára gamalli stúlku á Húsavík.
Móðir hennar hafði heyrt hana
vera að biðja bænirnar sínar eitt
kvöldið og tekið eftir því að aftan
við þær var bætt einni ósk: aö
komast í litgreiningu. Hún
hringdi því í mig daginn eftir og
þeirri stuttu verður að sjálfsögðu
að ósk sinni," segir Katrin hlæj-
andi.
En hvernjg fer svona litgrein-
ing fram? „í fyrsta lagi þarf við-
komandi að vera algjörlega laus
Skófatnaðursumarsins er
líflegur eins og meðfylgjandi
myndir bera með sér. Mikið
er um sandala og strigaskó
ýmiss konar og við þá eru
gjarnan hafðir skrautlegir
sokkar, doppóttir, röndóttir,
alsettir rósum og þarfram
eftir götunum. Sem sagt
skór og sokkar í glaðlegum
litum og litasamsetningum
og því ættu allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.,
En sjón er sögu ríkari...