Morgunblaðið - 06.06.1986, Page 11

Morgunblaðið - 06.06.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1986 B 11 Morgunblaðið/Ólafur Bragason. Afköst starfsmanna Flugleiða eru langt fyrir ofan meðaltalsaf- köst starfsmanna IATA-flugfélaga. Ef tekin er ein algengasta mælieiningin sem notuð er til að mæla framleiðni í flugrekstri, arðbærir farþegakílómetrar á starfsmann, þá eru Flugleiðir í 3. sæti. Fyrir neðan koma 109 flugfélög. Framleiðni IATA-flugfélaga: Flugleiðir í fremstu röð __________Flug Gunnar Þorsteinsson Einu sinni á ári birtir hið virta flugtímarit, Air Trans- port World, yfirlit yfir flug- flutninga, svo og ítarlega út- tekt á framleiðni þeirra flug- félaga er eiga aðild að IATA, alþjóðasamtökum flugfélaga. Nýjasta úttekt tímaritsins nær yfir árið 1984 og tekur til 112 af 134 IATA-flugfélögum. Ár- inu 1985 verða gerð skil í næsta októberhefti Air Transport World. Þar sem Flugleiðir eiga aðild að IATA er ekki úr vegi að skoða framleiðni og sætanýtingu félags- ins árið 1984 og miða árangurinn við önnur félög innan raða IATA. Til að bera saman stöðu Flugleiða á milli ára eru birtar sambærileg- ar tölur allt frá 1980. Meðfylgj- andi tafla sýnir því árangur Flug- leiða þetta fímm ára tímabil. Af flugfélögunum 112 eru Flugleiðir í öðru sæti hvað varðar arðbæra farþegakílómetra á starfsmann. Þessi mælieining er oftast notuð til að mæla fram- leiðni í flugrekstri. Þá urðu Flug- leiðir í þriðja sæti hvað varðar sætanýtingu, með 77,5% nýtinga- hlutfall. Fjölgun farþega IATA-flug- félaganna milli áranna 1983-84 varð 4,5% að meðaltali, en hjá Flugleiðum varð hún 17,3%. Ef einungis er tekin farþegaaukning í áætlunarflugi á milli þessara sömu ára, þá varð meðaltalsaukn- ingin 5,9% en hjá Flugleiðum varð hún 21,9% Á árinu 1984 störfuðu að meðaltali 1152 starfsmenn við flugrekstur Flugleiða, en 186 við önnur störf á vegum félagsins. Hér verður ekki farið út í að skýra meðfýlgjandi töflu enda tala tölumar sjálfar sínu máli. Sætanýting og framleiðni Flugleiða 1980-84 Ár 1980 1981 1982 1983 1984 Sætanýting % 74,8 74,9 75,9 76,0 55,5 lATA-röð: 1. 1. 1. 2. 3. Arðb. farþegakílóm. p. starfsm. 1.212.00C 958.000 1.140.000 1.588.00C 1.781.000 lATA-röð: 5. 14. 7. 4. 2. Samtals tonn-kilóm. p. starfsm. 138.827 106.925 150.909 180.158 199.007 lATA-röð: 9. 25. 12. 6. 9. Farþ. per starfsmanr 492 431 451 532 573 lATA-röð: 26. 33. 31. 28. 30. Frakt tonn-kilóm. p starfsm. 19.012 15.251 15.913 21.289 20.854 lATA-röð: 35. 41. 43. 31. 38. Starfsm. Flugleiða (v/flugr. eingöngu) 1.065 1.159 1.211 1.060 1.152 Samt. lATA-flugf.: 95 97 101 107 112 Tilvisun: „AirTransport World", Annual lATAAirline Productivity Report, (October 1981,1982, 1983, 1984, 1985) Bandaríkin: Flugrélasmiðj ur hagnast Frá Boeing-verksmiðjunum í Seattle. f fyrra högnuðust Boeing og McDonnell Douglas meira en nemur samanlagðri tekjuhlið íslenska fjárlagafrumvarpsins. Ágóði stóm bandarísku flug- vélasmiðjanna Boeing og Mc- Donnell Douglas sl. ár var skýjum ofar, ef þannig má að orði kom- ast. Rekstrarhagnaður Boeing nam 566 milljörðum dollara, eða jafnvirði rúmlega 23 milljarða ís- lenskra króna. McDonnell Dougl- as skilaði 325 milljóna dollara arði, eða rösklega 13 milljörðum í íslenskum krónum talið. Saman- lagt nam því hagnaðurinn rúmum 36 milljörðum íslenskra króna, og til að gefa samanburð, þá nam tekjuhlið íjárlagafrumvarps ís- lenska ríkisins 33,5 milljörðum þegar það var lagt fram síðast. Mesta sala Boeing í dollurum talið í 30 ár Þar sem markaðurinn fyrir notaðar, sæmilegar farþegaþotur er nánast þurrausinn hljóp mikill fjörkippur í sölu nýrra Boeing- þotna á sl. ári. Til marks um þetta má nefna, að á síðasta ársfjórð- ungi síðasta árs var sala Boeing tæpum einum milljarði dollara meiri en á sama tímabili 1984. Heildarsala Boeing árið 1985 vekur athygli fyrir það hvað hún er há. Hún nam 13,6 milljörðum dollara og er alveg ástæðulaust að umreikna þá stjarnfræðilegu upphæð í íslenska mynt. Miðað við árið áður jókst hún um 32%. I upphafl greinarinnar er getið um rekstrarhagnaðinn. Boeing nýtur vitaskuld góðs af vaxandi flugflutningum, a.m.k. síðan 1984, og þar af leiðandi batnandi hags flugfélaga. Tals- menn Boeing telja að ágóðinn hefði þó orðið enn meiri ef verk- föll og fargjaldastríð hefðu ekki hrjáð bandarísk flugfélög. Sl. ár voru pantanir á nýjum Boeing-flugvélum þær mestu í dollurum talið sl. 30 ár, eða síðan fyrirtækið hóf að smíða þotur. Alls seldust 390 vélar fyrir 14,9 milljarða dollara og eru það helm- ingi fleiri vélaren 1984 (169 vélar fyrir 5,8 milljarða dollara). Flug- vélagerðirnar sem seldustu voru: 30 B 737-200, 252 B 737-300, 42 B 747,45 B 757 og 21 B 767. I fyrra smíðaði Boeing 203 vélar og eina gerðin sem var minna af var hin nýja B 767 (23 vélar á móti 29 árið 1984). Fram- leiðsluáætlun 1986 hljóðar upp á 239 flugvélar af öllum gerðunum, að söluverðmæti 15,5 milljarða dollara, sem er tveimur milljörð- um meira en 1985. Biðpantanir eða verkefni Bo- eing námu í lok síðasta árs tæpum 25 milljörðum dollara. Þar af voru 75% fyrir flugfélög en afgangur- inn fyrir bandarísku ríkisstjóm- ina. Bandarísk stjómvöld keyptu Boeing-vélar fyrir 4,7 milljarða á sl. ári, sem var 3,4 milljarða doll- ara aukning frá 1984. Douglas hagnast ekki í samræmi við sölu Ágóði McDonnell Douglas á sl. ári jókst ekki í samræmi við söl- una. Salan í fyrra nam 11,5 millj- örðum dollara og var 2 milljörðum hærri en 1984. Hinsvegar jókst rekstrarhagnaðurinn milli ára aðeins um 20 milljónir dollara og hefur þegar verið greint frá hon- um í upphafi greinarinnar. Ástæðan fyrir minni hagnaði en áætlað var er sú, að tap var á rekstri upplýsingakerfís og -banka. Einnig dró þyngri vaxta- byrði úr arðinum, en Douglas hefur á undanfömum ámm þurft að taka dýr lán til að framfleyta sér fyrir erfiða hjalla. Engu að síður gekk rekstur þriggja flugframleiðsludeilda fyr- irtækisins vel á sl. ári. Deildimar framleiddu omstuþotur, farþega- og flutningavélar og svo geimbún- að og eldflaugar. Frá árinu 1984 jukust samanlagðar tekjur þeirra um 18% og hagnaðurinn um 22%. Starfsmenn McDonnell Dougl- as em nú 97 þúsund borið saman við 88.000 í árslok 1984. Bið- pantanir eða verkefni námu um síðustu áramót 16,5 milljörðum dollara miðað við 14,9 milljarða á samatíma 1984. Tveggja hreyfla MD 80- farþegaþotan er vinsælasta fram- leiðsla Douglas um þessar mundir, og hafa 660 vélar verið pantaðar. Þar af var búið að smíða 266 um sl. áramót, svo 399 vélar vom þá ósmíðaðar. C3sT®j m v «Sy. MorRunblaöið/Gunnar Þorstemsson Forvitnir gestir bíða í röðum eftír að fá að skoða nákvæma eftirlikingu af bandarísku X29-tilraunaþotunni enda um tækni- byltíngu að ræða. Slíkar nýjungar fær almenningur oftast fyrst að sjá á stærstu alþjóðaflugsýningunum. Næsta sýning verður haldin á Englandi í september nk. Flugsýningar og keppnir erlendis 1986 Það er viðbúið að margt flugáhugafólk verði á ferðalögum erlend- is á næstu mánuðum og þvf er ekki úr vegi að birta örlitla saman- tekt, eða almanak, yfir stærstu erlendu flugsýningamar og helstu alþjóðlegu flugkeppnimar. Þannig getur fólk fellt þessa viðburði inn í fríin sín ef það verður statt í nágrenninu. Lesendur em þó minntir á að sumar dagsetningamar kunna að breytast enda upplýs- ingarnar fengnar úr hinum ýmsu erlendu flugtímaritum og því birtar hér án ábyrgðar. Stærstu flugsýningar 5/6—8/6: Heimssýningin 1986. Minnst 50 ára afmælis Douglas DC-3. Staður: Vancouver i Kanada. 6/6—15/6: Hanover-flugsýningin. Staður: HanoveríV-Þýskalandi. 22/6—1/7: Indónesiuflugsýningin. Staður: Jakarta í Indónesíu. 1/8—8/8: Oshkoshflugsýningin. Staður: Oshkosh, Wisconsin í Bandaríkjunum. 1/8—10/8: Heimssýningin 1986. Dagarhelgaðirflugi. Staður: Vancouver i Kanada. 31/8—7/9: Alþjóðlega flugsýningin í Farnborough. Staður: Farnborough, Hampshire á Englandi. 29/10—1/11: Flugsýning og ársþing bandarískra vélflugmanna. Staður: San Antonio, Texas i Bandaríkjunum. Helstu flugkeppnir 24/5—7/6: Evrópumeistarakeppnin í vélsvifflugi. Staður: Zell-am-See í Austurríki. 29/5—1/6: Heimsmeistarakeppnin i rallyflugi. Staður: Castellon á Spáni. 14/6—29/6: Evrópumeistarakeppnin i svifflugi. Staður: Mengen ÍV-Þýskalandi. 22/6—28/6: Heimsmeistarakeppnin í þyrluflugi. Staður: Castle Ashby á Englandi. 3/7—7/7: N-Ameríkukeppnin i loftbelgjaflugi. Staður: Barrie, Ontario i Kanada. 1 /8—7/8: Heimsmeistarakeppnin i listflugi. Staður: South Cerney á Englandi. 9/9—21/8: Evrópumeistarakeppnin í „fisléttu" flugi (microlight). Staður: Avila á Spáni. 12/8—17/8: Evrópumeistarakeppnin i nákvæmnisflugi (pre- cision). Staður: Lodz í Póllandi. 13/8—20/8: Evrópumeistarakeppnin (ioftbelgjaflugi. Staður: Stubenberg-am-See í Austurríki. Að framan er aðeins getíð um helstu viðburði, eins og fyrr scgir. Hinsvegar er í einu af aprílheftum breska tímaritsins Flight Internatíonal ýtarleg skrá yfir a.m.k. 100 aðra smærri viðburði víðsvegar um heiminn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.