Morgunblaðið - 06.06.1986, Page 16

Morgunblaðið - 06.06.1986, Page 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ1986 Safaríkt og meyrt A ð grilla úti á góðri stund er orðinn ómissandi hluti af íslenskri sumarsœlu. Kjöt afíslensku fjallulmihi er jafn ómissandi hluti afgrill- máltíð enda hœfir það bœði umhverfinu og matseldinni - meyrt, safaríkt og svo þetta sérstaka bragð sem aðeins íslenskt fjallalamb hefur eftir að hafa nœrst á ómenguðum villigróðri liðlangt sumarið. K Jöt affjallalambi er auðveltað geymafrosið (ódýr- ast keypt í heilum og hálfum skrokkum) og hœgt að nýta nánast allan skrokkinn í grill- mat-lceri, lundir, hrygg, hvers konar sneiðar nú eða skrokkinn í heilu lagi, t.d. þegar um hópa eraðræða. Meðlætimeð grilluðu kjöti af íslenskufjallalambi œtti að vera einfalt og látlaust. Glóðaðar kartöflureru vinsælar, einnig kartöflusalat, glóðaðir tómatar, ananas, epli, bananar, græn- meti og kryddsmjör. Það er lítíð mál að matreiða vel heppnaða griUmáitíð þegar kjötíð af íslenska fjallalambinu er annars vegar. Raunar er það bráðskemmtilegt! Best er að þíða kjötíð í ísskápnum 3-4 dögum fyrir notkun til að tryggja að það bráðni í munni veislugesta. Grillmeistarinn þarf líka að stilla sig um að stinga í kjötíð á grilÚnu, þó vissulega sé það freistandi, því þá er hætt við að safinn renni úr því. Það er líka óhætt fyrir kappann að spara sterka kryddið. Hér er það háQallabragðið sem gildir. Margir nota bara salt og pipar en hvítlaukur, blóðberg (timian), rosmarin, milt sinnep, mynta eða steinselja henta einnig vel í mörgum tílvikum. Meistarinn sér svo um að smjörpensla kjötíð, (það er svo gott) og þegar hann veifar kokkahúfunni er eins gott að vera snöggur með diskinn. Islenska lambakjötíð er nefnilega fljótt að hverfa jafnvel af stærstu grillum. Þá er bara að grilla meira!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.