Morgunblaðið - 08.06.1986, Side 1

Morgunblaðið - 08.06.1986, Side 1
tQíir t’/'rYr p (TTrn A ntrWrTO /TirfA mKTTDÍTOI'í B8 PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1986 BLAÐ i l 1 ]u: gii ua f- A- í": I , Jí h h r i Rætt við Sigurð Arnason skipherra Sigurður Arnason skipherra Landhelgisgæslan ver mikilvægustu auðlind landsins Sjómenn til hamingju með daginn! í Sigurður Árnason skipherra stóð í brúnni á varðskipinu Tý, þegar við komuin um borð til þess að hitta hann og ræða við hann um stöðu og stefnu Landlielgisgæzlunnar. En Sigurður er einn af reyndustu skipherrum gæzlunnar með áratuga reynslu. Fiskveiðar án svæðatakmarkana á landgrunninu Staða gæzlunnar, sagði hann í upphafí máls síns, er mjög óljós í dag þar sem þær landhelgisveiðar eins og við höfum þekkt til skamms tíma hafa lagzt niður að verulegu leyti vegna breytts hugsunarhátts fiskimanna og líka vegna þess að fiskur hefur minnkað á grunnslóð. Ég er þannig sinnaður í dag, að fiskveiðimörkin upp við landið eins og við höfum þekkt þau eiga að leggjast niður og fiskimenn eiga að taka þennan afla sem stjómvöld heimila þeim og i því magni sem þeim er leyfilegt án þess að svæðis- takmarkanir á landgrunninu komi til greina. Fiskurinn virðir engar línur og það finnst mér á stöðunni eins og hún er í dag skipta sköpum varðandi það hvort svæðistakmark- anir eiga að vera eða ekki. Ef maður horfir á þetta mál í gegnum árin þá tel ég að við höfum misst af geysilega miklum afla af því að það hefur ekki fengizt að taka fiskinn þar sem hann er í veiðarfærin sem þarf til þess að aflinn nýtist sem bezt og mest hagræði sé í veiðun- um. Ég er ekki viss um að allir dreifbýlismenn samþykki þessa hugmynd, en við verðum að reka fiskveiðar eins og hagkvæmast er fyrir þjóðarbúið í heild en ekki með hagsmuni fámennra hópa í huga. SJÁ BLAÐSÍÐU 2B

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.